Morgunblaðið - 13.11.2001, Síða 27

Morgunblaðið - 13.11.2001, Síða 27
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 27 um, sem eiga að slökkva á sér sjálf þar sem kveikurinn endar. Ætíð verður þó að hafa í huga að engin trygging er fyrir því að kertin slökkvi á sér sjálf og því ber að varast að treysta á það, til dæmis ef sjálfslökkvandi kerti eru notuð í aðventukransa.  Kúlu-, þríhyrnings og fígúru- kerti eru afar viðkvæm fyrir trekk og við slíkar aðstæður brennur vax þeirra hraðar en þegar um venjuleg kerti er að ræða. Slík kerti verða því að vera á tryggu undirlagi sem engin hætta er á að kvikni í út frá.  Húðuð kerti, til dæmis kerti með gull- eða silfurhúð eiga til að ósa meira en venjuleg kerti. Einn- ig eru dæmi um að húð slíkra kerta bráðni utan af þeim. Fylgist því vel með kertunum og slökkið strax ef þau byrja að ósa.  Vermi- eða sprittkerti eru um margt frábrugðin venjulegum kertum og þurfa sérstakrar að- gæslu við. Vaxið í þeim verður fljótandi stuttu eftir að kveikt er á kertinu og því er ekki ráðlegt að færa það úr stað meðan það logar. Látið slík kerti ætíð brenna út af sjálfu sér eða slökkvið með kertaslökkvara. Notið aldrei vatn.  Varasamt er að setja útikerti þétt saman og kveikja á þeim. Útikerti skal undantekning- arlaust standa á óbrennanlegu undirlagi og aldrei á tréplötu, trépalli eða öðru auðbrenn- anlegu. Útikerti loga flest ein- göngu á kveiknum en þó eru til kerti þar sem allt yfirborð vaxins logar. Þá getur loginn náð allt að 50 sm hæð og blaktað í allar áttir. Snertið aldrei form útikerta með berum höndum. Eldur getur blossað upp ef vatn eða snjór slettist á vax kertisins. Æskilegt er að koma kertum þannig fyrir að þau sjáist vel. Þeir sem klæð- ast víðum fatnaði þurfa að gæta sérstakrar varúðar í nánd við slík kerti. JÓLALISTINN frá Kays er kom- inn. Í listanum er að finna jólagjaf- ir handa allri fjölskyldunni, segir í tilkynn- ingu frá B. Magnússon. Þar segir ennfremur að í listanum sé mikið úrval. Mælt er með því að pantað sé tímanlega því 2–3 vikur tekur að fá vöruna afhenta og sumir vöruflokkar seljast upp, segir enn- fremur. Jólalistinn frá Kays kominn DREIFING ehf. hefur sett á mark- að jurtakjöt, sem ætlað er þeim sem borða kjöt af dýrum en vilja fá létt- ari máltíð einu sinni til tvisvar í viku, segir í til- kynningu frá fyr- irtækinu. Hin nýja fram- leiðsla er kynnt undir vörumerkinu Tivall eða Hälsans kök gourmet. Jurtakjötið er framleitt úr grænmeti og jurtum, með mildu bragði og er sagt svipað undir tönn og meyrt kjöt. Tegundirnar sem nú standa til boða eru sojapylsur, sesamnaggar, sælkerahamborgarar, jurtasnitsel, sælkerabollur og meistaralasagna. Jurtakjöt er matreitt á sama hátt og venjulegt kjöt og framreitt með sama meðlæti, segir loks í tilkynn- ingu, og fæst í Heilsuhúsinu og stærstu matvöruverslunum. Jurtakjöt fyrir þá sem vilja léttan mat NÝTT w w w .t e xt il. is MEÐGÖNGUFATNAÐUR fyrir mömmu og allt fyrir litla krílið Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136 FASTEIGNIR mbl.ismbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.