Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 28
ERLENT 28 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FALL borgarinnar Mazar-e-Sharif fyrir helgi gæti reynst mikilvægur áfangi í baráttu Bandaríkjamanna fyrir því að koma talibanastjórninni í Afganistan frá völdum, en hún hefur haldið hlífiskildi fyrir Sádí-Araban- um Osama bin Laden, sem sakaður er um að bera ábyrgð á hryðjuverk- unum í Bandaríkjunum 11. septem- ber sl. Strax í gær mátti sjá afleið- ingar þess, að talibönum mistókst að halda borginni, en þá þeystu sveitir Norðurbandalagsins fram og voru í þann mund að taka borgirnar Herat, Taloqan og Kunduz í norðurhluta landsins. Og áfram átti að sækja til höfuð- borgarinnar Kabúl, ef marka má fregnir úr herbúðum Norðurbanda- lagsins í gær. Sannast þar líklega það sem haft er eftir Tommy R. Franks, yfirmanni bandaríska heraflans í stríðinu í Afganistan, í The Wash- ington Post um helgina, að Banda- ríkjamenn styðji við bak Norður- bandalaginu en segi því ekki fyrir verkum. Bæði George W. Bush Bandaríkjaforseti og Pervez Mus- harraf, forseti Pakistans, höfðu nefnilega lagst gegn því að Norður- bandalagið gerði áhlaup á Kabúl að svo stöddu. Fyrsti áþreifanlegi sigurinn í stríðinu í Afganistan Taka Mazar var í raun fyrsti sig- urinn í stríðinu í Afganistan sem staðið hefur í meira en mánuð. Borg- in er mikilvæg því haldi Norður- bandalagið henni, sem telja má lík- legt úr þessu, eru herir talibana austur af borginni einangraðir frá vopnabræðrum sínum í suður- og vesturhluta Afganistan. Ennfremur eykur fall Mazar mjög möguleika hjálparstofnana á að koma hjálpar- gögnum til íbúa Afganistans, sem eiga um sárt að binda. Loks er ljóst að hyggist Bandaríkjamenn efna til landhernaðar þá auðveldar aðgangur að Mazar þeim það mjög. Flugvöllur er í útjaðri borgarinnar og þangað liggur jafnframt bein leið frá Úsbek- istan í norðri, þar sem Bandaríkin hafa aðstöðu. Táknrænt mikilvægi falls Mazar er einnig mikið því þrátt fyrir að Banda- ríkin hafi haldið úti hernaðaraðgerð- um í Afganistan í meira en mánuð, og hafi varpað á þeim tíma meira en átta þúsund sprengjum á landið, hefur lít- ill árangur verið sjáanlegur fyrr en nú. Vonast menn til að fall hennar færi Afgönum heim sanninn um að talibanastjórnin riði til falls og að þeir snúist gegn henni. Þar er einkum rætt um ýmsa hér- aðshöfðingja úr röðum Pastúna í Suður-Afganistan. Telur The New York Times það raunar eina af for- sendum þess, að Bandaríkjamenn vinni sigur í stríðinu, að þeim takist að verða sér úti um bandamenn með- al Pastúna. Til þeirra þurfi síðan að koma hergögnum og fylgja framsókn þeirra gegn talibönum eftir með loft- árásum. Enn gæti síðan komið til þess að Bandaríkjamenn yrðu að grípa til þess ráðs að senda inn landher en ljóst er að Bush Bandaríkjaforseti vill forðast það í lengstu lög. Telur The New York Times því ekki öruggt að fall Mazar marki endalok talibanastjórnarinnar í Afg- anistan. Þannig sé borgin fjarska langt frá borginni Kandahar, helsta vígi talibana í suðurhluta landsins. Hefur heyrst sú kenning að stórsigr- ar Norðurbandalagsins undanfarna daga skýrist að miklu leyti af því að talibanar hafi sjálfir ákveðið að draga herlið sitt frá þeim svæðum í Norður- Afganistan sem þeir ekki telja sig geta varið. Fyrst og fremst hyggist þeir verja sitt bakland sem sé meðal Pastúnanna í Suður-Afganistan. Afraksturinn af nánara sam- starfi við Norðurbandalagið Fall Mazar er bein afleiðing af þeirri ákvörðun Bush-stjórnarinnar að taka höndum saman með herjum Norðurbandalagsins í viðleitninni til að koma talibönum frá. Raunar var borgin frá fyrstu stundu eitt af skot- mörkum Bandaríkjamanna í loft- árásunum en það var ekki fyrr en ný- lega sem ákveðið var að fylkja liði að fullu með afgönsku stjórnarandstöð- unni. Bandarískir hersveitarforingj- ar í Norður-Afganistan hafa þannig undanfarna daga gert hvort tveggja, veitt aðstoð af jörðu niðri til að tryggja að sprengjur Bandaríkja- manna rötuðu rétta leið, og hjálpað foringjum Norðurbandalagsins við að skipuleggja árásina, sem á end- anum leiddi til falls Mazar. Raunar bætti Bandaríkjaher um betur og tryggði að ávallt væru næg- ar vistir til að reiðskjótar hermanna Norðurbandalagsins liðu ekki skort. Þrír hersveitarforingjar stýrðu áhlaupi Norðurbandalagsins, Úsbek- inn Abdul Rashid Dostum, Ostad Atta Mohammad, sem er Tadjiki, og Haji Mohaqiq, sem er Hazari. Grunnt hefur verið á því góða milli Dostum og Mohammad, og varð ósætti þeirra í millum til þess að Norðurbandalaginu mistókst í fyrri tilraun sinni til að ná Mazar, fyrir þremur vikum. Þeir ákváðu í kjölfar- ið að slá striki yfir deilur sínar og áttu gott samstarf í áhlaupinu nú. Hefur verið ákveðið að vistarverur hermanna Norðurbandalagsins verði í útjaðri Mazar og í stað þess að her- lög gildi í borginni mun borgaraleg- um öflum ætlað að fara með stjórn mála. Sögðu talsmenn Norðurbanda- lagsins þetta til að tryggja að daglegt líf íbúa Mazar yrði sem ólíkast því er þeir máttu venjast þegar borgin var undir stjórn talibana. Ótti við grimmdarverk Ekki er ljóst hversu margir her- menn talibana féllu í áhlaupinu en Abdul Rashid Dostum viðurkenndi um helgina að lík lægju í hrönnum við stræti og torg Mazar. Bauð Dostum tailbönum að snúa aftur til borgar- innar og sækja lík ættingja sinna en ólíklegt er að þeir þekkist það boð enda flúðu allir talibanar Mazar, af ótta við hefndaraðgerðir vegna þeirra þúsunda manna, sem þeir eru sagðir hafa myrt á valdatíma sínum. Afganska stjórnarandstaðan réð Mazar á tímabilinu 1992–1996 og er fullyrt að ótal mörg mannréttinda- brot hafi verið framin í tíð þeirra. Sá Mary Robinson, yfirmaður Mann- réttindastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, enda ástæðu til þess um helgina að fara fram á að óbreyttum borgurum í Mazar yrðu grið gefin, hvort heldur þeir hefðu talist stuðn- ingsmenn talibana eða væru úr röð- um minnihlutahópa. Komu tilmæli Robinson á sama tíma og fulltrúar SÞ sögðu að stjórn- leysi ríkti nú í Mazar. Sagði talsmað- ur SÞ að fólk léti greipar sópa í borg- inni, fólki væri rænt og það tekið af lífi án dóms og laga. Margir hafa haft af því áhyggjur að sveitir Norður- bandalagsins hefndu sín grimmilega á talibönum og kom fram í máli Mohaqiq að um tvö hundruð pakist- anskir hermenn, sem studdu talib- ana, hefðu verið teknir af lífi í Mazar á föstudag og laugardag eftir að borgin féll. Sagði Haji Mohaqiq að mennirnir hefðu neitað að gefast upp og áhlaup því verið gert á bækistöðvar þeirra. Fullyrða fulltrúar Norðurbandalags- ins að allt kapp verði lagt á að koma koma í veg fyrir tilhæfulaus morð en fulltrúar Bandaríkjastjórnar óttast að allar fregnir af hefndarverkum torveldi það verk að fá Pastúna í Suð- ur-Afganistan til að snúast gegn tal- ibönum. Raunar eru uppi áform um að efna til sérstaks átaks er ætlað væri að sýna Pastúnum að taka Maz- ar-e-Sharif væri hluti af stríði, sem nú væri háð gegn talibanastjórninni en ekki gegn Pastúnum sem þjóð. Hugmyndin felur, að sögn The New York Times, í sér að boðið yrði til fundar fulltrúa Norðurbandalags- ins og Pastúna til viðræðna um hvernig haga skuli stjórn Afganistan þegar búið verður að bola talibönum frá völdum. Líklegt að fall Mazar marki þáttaskil Afganska stjórnarandstaðan í Afganistan sækir nú með aðstoð Bandaríkjanna fram á öllum vígstöðvum í norðurhluta landsins. Davíð Logi Sigurðsson segir í grein sinni að Bandaríkjamenn voni að fall borgarinnar Mazar-e-Sharif verði til þess að íbúar lands- ins snúist gegn talibanastjórninni. Tashkent í Úsbekistan, Teheran, Washington, Sameinuðu þjóðunum. AFP, The Washington Post. Reuters Hópur vestrænna hermanna með liðsmönnum Norðurbandalagsins í norðurhluta Afganistans. david@mbl.is           !" #"$ %"&'' (& )"* " !" +#"    && ,  #(&*-+     . /           & &0/"%"0 /*1 %$ 23"3& 4&3"3#&% 5"  # 603"3# %+        603"3#   !"# ! $%&'!$!   !(   $%( $ & &0 )$ $! $ * !!$ + ! 4&3"3#&% ,  $++! $%$  $  - 5" &* (&% ).%$ "!%!  + )%  &  /% ).%$/) $ "!%!  + ÞRÍR fréttamenn, tveir Frakkar og einn Þjóðverji, féllu er talibanar sátu fyrir þeim og hermönnum Norður- bandalagsins í Norðaustur-Afganist- an. Frönsku útvarpsstöðvarnar Radio France Internationale og RTL stað- festu í gær, að tveir fréttamenn þeirra, Johanne Sutton og Pierre Billaud, hefðu fallið og þýska tíma- ritið Stern staðfesti lát Volkers Handloiks, lausráðins blaðamanns. Talið er, að þau séu fyrstu erlendu fréttamennirnir, sem láta lífið í Afg- anistan síðan hernaðurinn gegn tal- ibönum og hryðjuverkasveitum Osama bin Ladens hófst 7. október. Sendiherra afgönsku útlaga- stjórnarinnar í Dushanbe í Tadsík- ístan segir, að fjórði fréttamaðurinn, hugsanlega Bandaríkjamaður, hafi fallið en það hefur ekki verið stað- fest. Boðið að skoða skotgrafir Levon Sedunts, rússneskur fréttamaður, sem var í för með fréttamönnum, sem féllu, segir, að hermenn Norðurbandalagsins hafi boðið þeim að skoða skotgrafir talib- ana við borgina Taloqan, sem Norð- urbandalagið hefur náð á sitt vald. Talið var, að skotgrafirnar hefðu verið yfirgefnar en þegar komið var að þeim á skriðdreka hófu talibanar að skjóta á hann með sprengjuvörpu. Veronique Rebeyrotte frá frönsku útvarpsstöðinni France Culture var einnig í ferðinni og segir hún, að fréttamannahópurinn hafi verið uppi á skriðdrekanum. „Við voru hlæjandi og áttu okkur einskis ills von. Síðan gerðist allt í senn. Það var skotið á okkur, skrið- drekinn stöðvaðist skyndilega og sumir féllu af honum. Skriðdrekan- um var síðan ekið burt á miklum hraða. Við vissum ekkert um þá fé- laga okkar, sem féllu af honum,“ sagði Rebeyrotte. Farið var með lík fréttamannanna til Dushanbe í Tadsíkístan í gær en í fyrirsát talibana féllu einnig 30 her- menn Norðurbandalagsins. Þrír fréttamenn láta lífið í átökunum í Afganistan Féllu í fyrirsát talibana Reuters Bandarískir sjónvarpsmenn hlynna að félaga sínum sem varð fyrir byssukúlu frá talibönum í norðurhluta Afganistans. Khwaja Bahuaddin. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.