Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 35
áðið
ninni
aður í
r hótanir
uverk í
m og að
ðu ekki
málum í
sagði að
íkjanna,
væru að
lýsingar
að kanna
yðjuverk
í bandarískum farþegaþotum.
„Svo virðist sem þetta hafi ekki
verið árás hryðjuverkamanna, en
við höfum ekki komist að neinni
óyggjandi niðurstöðu ennþá,“ sagði
háttsettur embættismaður í Wash-
ington.
Gert er ráð fyrir því að Banda-
ríska samgönguöryggisráðið,
NTSB, stjórni rannsókn málsins og
bendir það til þess að yfirvöld hall-
ist að þeirri kenningu að um slys
hafi verið að ræða.
Tveir embættismenn í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu
sögðu að ekki hefðu verið sendar
neinar orrustuþotur á New York-
svæðið til viðbótar þeim herflugvél-
um sem haldið hafa uppi eftirliti yf-
ir svæðinu frá hryðjuverkunum
fyrir tveimur mánuðum.
Talsmaður bandaríska flughers-
ins sagði að orrustuþotur hefðu
verið á eftirlitsflugi yfir New York
þegar þotan hrapaði.
Sáu hreyfil falla til jarðar
Rudi Giuliani, borgarstjóri New
York, sagði að nokkrir borgarbúar
hefðu séð hreyfil falla til jarðar áð-
ur en þotan hrapaði. „Við þurfum
að einbeita okkur að því að reyna að
bjarga fólki sem kann að hafa kom-
ist lífs af,“ sagði borgarstjórinn og
hvatti borgarbúa til að halda still-
ingu sinni. Komið var upp hjúkr-
unaraðstöðu í barnaskóla og fram-
haldsskóla í Rockaway.
Þotan var í eigu flugfélagsins
American Airlines sem á 35 Airbus-
þotur af gerðinni A-300.
230 manns létu lífið í farþegaþotu
TWA sem hrapaði undan strönd
Long Island eftir flugtak frá Ken-
nedy-flugvelli árið 1996. Rannsókn
slyssins leiddi í ljós að sprenging
varð í eldsneytistanki þotunnar, lík-
lega vegna neista í raflögnum.
úðarhverfi eftir flugtak í New York
Reuters
egaþotu flugfélagsins American Airlines liggur við hús í Rockaway-hverfinu í Queens þar sem þotan hrapaði í gær.
AP
Slökkviliðsmenn að störfum á slysstaðnum í New York. Nokkur íbúð-
arhús eyðilögðust þegar þotan hrapaði með 255 manns innanborðs.
AP
að slökkva elda í húsum í Rockaway-hverf-
m farþegaþota American Airlines hrapaði.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 35
AIRBUS 300-600-þotan, sem hrap-
aði til jarðar í New York í gær, hef-
ur hingað til þótt mjög áreiðanleg
og með tilliti til þess þykir slysið
þeim mun furðulegra.
Þotur af þessari gerð eru með tvo
hreyfla og eiga við eðlilegar aðstæð-
ur að öðru leyti að geta bjargast á
einum hreyfli. Sérfræðingar segja
hins vegar, að sé það rétt, sem haft
er eftir vitnum, að annar hreyfillinn
hafi fallið af, þá hljóti það að benda
til meiriháttar bilunar eða galla í
vélinni og burðarvirkjum hennar.
„Slys í flugtaki“ afar fátíð
Airbus-vélarnar eru evrópskar,
framleiddar hjá samsteypunni Air-
bus Industrie, og þar er fullyrt, að
áreiðanleiki þeirra sé yfir 99%. Þot-
an, sem hrapaði í gær, er af nokkuð
gamalli gerð og kom það fram hjá
talsmanni Airbus í gær, að Americ-
an Airlines væri með 35 slíkar í
sinni þjónustu en alls væru þær 250
víða um heim. Bætti hann því við, að
hvað þessar vélar áhrærði, væru
„slys í flugtaki“ afar fátíð og hann
kvaðst ekki minnast þess, að hreyf-
ill hefði nokkurn tíma fallið af.
Airbus A300 voru fyrstu vélarnar,
sem Airbus-samsteypan tók í notk-
un árið 1974, en í gær var ekki alveg
ljóst um smíðaár vélarinnar, sem nú
fórst.
Slysasagan
Á síðustu 13 árum hafa 15 Airbus-
vélar farist og er þá slysið í gær
undanskilið:
Í ágúst í fyrra hrapaði Gulf Air
A320 í Persaflóa.
Í janúar á síðasta ári fórust 169
manns er A310 hrapaði í sjóinn
við Fílabeinsströndina.
101 fórst er A310 hrapaði við
Surat Thani-flugvöllinn í Taíl-
andi.
197 fórust þegar A300 hrapaði á
Taívan í febrúar 1998.
234 biðu bana í september 1997
er A300 hrapaði í Indónesíu.
60 fórust er A-310-300 hrapaði
skömmu eftir flugtak í Búkarest.
Sjö fórust í júní 1994 þegar A330
fórst í Toulouse í Frakklandi.
Í apríl 1994 fórust 259 er A300
fórst í Japan.
Í mars 1994 fórust 75 er A310
hrapaði í Síberíu.
Í september 1993 fórust tveir er
eldur kom upp í A320 við lend-
ingu í Varsjá.
167 fórust með A300 er hún hrap-
aði í Kathmandu í Nepal í sept-
ember 1992.
Í júlí 1992 fórust 113 er A310
hrapaði til jarðar í Kathmandu í
Nepal.
Í janúar 1992 biðu 87 manns bana
þegar A320 hrapaði í Strassborg.
90 fórust er A320 hrapaði í
Bangalore í febrúar 1990.
Átta fórust er A320 hrapaði í Ha-
bersheim í júní 1988.
16. Airbus-slysið á 14 árum
Hafa þótt áreiðan-
legar hingað til
ÆTTINGJAR farþega sem voru um
borð í þotu American Airlines grétu
og féllu niður á kné sér þegar fréttir
bárust af því til Santo Domingo að
flugvélin hefði farist skömmu eftir
flugtak í New York í gær.
Bandarískir embættismenn sögðu
að flestir þeirra sem um borð voru
hefðu verið frá Dóminíska lýðveldinu
en vélin var á leið þangað frá New
York með 255 manns innanborðs.
Um 50 ættingjar farþeganna biðu
í flugstöðinni í Santo Domingo en
þar átti þotan að lenda kl. 16.51 að ís-
lenskum tíma. Fólkið beið þess að
opinber farþegalisti yrði gefinn út.
„Guð minn góður!“ æpti Miriam Fi-
jado þegar hún frétti að systir henn-
ar og þrjú börn hennar hefðu verið
um borð í flugi 587. „Ég hafði ekki
séð þau í átta ár. Nú eru þau horfin.“
„Guð minn góður, ekki barnið,
ekki barnið,“ hrópaði Germania
Brito sem hafði farið til flugvallarins
til að taka á móti systur sinni, eig-
inmanni hennar og tveggja ára syni
þeirra. „Guð hjálpi okkur öllum,“
sagði hún.
Eduardo Fresola var einnig á
flugvellinum til að taka á móti bróð-
ur sínum, Jose Antonio, en þeir
höfðu ekki sést í þrjú ár. „Hann vann
sem sölumaður í New York. Hann
var eini bróðir minn,“ sagði hann.
Sjónvarpsstöðvar í Dóminíska lýð-
veldinu sýndu beint frá slysstaðnum
í New York. Á meðal þeirra sem
fylgdust með var Melida Reinoso,
sem hafði farið á flugvöllinn til að
taka á móti eiginmanni sínum og
syni þeirra. „Ég vaknaði snemma til
að fara út á völlinn. Hvers vegna
gerðist þetta?“
Roberto Valentin, ræðismaður í
New York, kvaðst telja að 90% far-
þeganna hefðu verið frá Dóminíska
lýðveldinu.
„Nú eru þau horfin“
Harmi slegnir ætt-
ingjar bíða frétta í
Santo Domingo
Santo Domingo. AP.
AP
Ung stúlka á skrifstofu ræðis-
manns Dóminíska lýðveldisins í
New York heldur á mynd af föð-
ur sínum, sem fórst í flugslysinu.
BORGARSTJÓRINN í New
York, Rudy Giuliani, sagði
að sín fyrstu viðbrögð við
þeim fregnum að harmleikur
hefði enn einu sinni riðið yfir
íbúa New York hefðu ein-
kennst af einskærri geðs-
hræringu. „Guð minn góður.
Það fyrsta sem fór um huga
mér var þetta: guð minn góð-
ur,“ sagði Giuliani er hann ræddi við
blaðamenn í gær.
Giuliani benti á að íbúar Rock-
away-hverfisins í Queens hefðu orðið
illa úti í hryðjuverkaárásunum 11.
september sl. „Á leið minni á slys-
stað keyrði ég framhjá kirkju sem
ég held að ég hafi heimsótt um tíu
sinnum eftir árásirnar til að fylgja
fólki til grafar,“ sagði hann. Munu
margir lögreglu- og brunaliðsmenn
búa í Rockaway en eins og kunnugt
er fórust margir úr þeirra röðum
þegar World Trade Center hrundi
til jarðar eftir hryðjuverkaárásirnar.
„Sú hugsun að Rockaway yrði
vettvangur svona harmleiks nú olli
mér miklu hugarangri,“ sagði Giuli-
ani. „Auðvitað er atburðurinn eftir
sem áður jafn hræðilegur, hvar svo
sem hann á sér stað. Það veldur
manni þó sérstökum ugg að þetta
skuli gerast hér.“
„Guð minn góður“
New York. AFP.
amtali
g ég fór
num. Þá
i að yf-
sínum.
t hafa
r en hún
il baka
á jafn-
vélin
ra hvar
ar stadd-
hluta
Queens-hverfisins en þar brotlenti flugvélin. Hann
sagðist hafa séð eld loga glatt í vinstri hlið flugvél-
arinnar, sem var af gerðinni Airbus A300.
„Við horfðum til himins og sáum hvar eldtungurnar
komu úr vinstri hliðinni – kannski varð sprenging í
vélinni,“ sagði Saliro. Önnur vitni töldu hins vegar að
eldurinn hefði verið í hægri hlið vélarinnar.
„Flugvélin flaug rétt yfir höfði okkar, byrjaði að
halla til vinstri en kúventi síðan snögglega til hægri,“
sagði Saliro. „Ég hafði áhyggjur af því að hún myndi
koma í áttina að okkur og lenda á bílnum.“
Sagði hann þá bræður hafa skolfið og nötrað. „Við
vissum ekki hvað við áttum til bragðs að taka.“
Nokkrir hverfisbúar, sem reyndu að slökkva eldana
á slysstaðnum, sögðu brennandi flughreyfil hafa kom-
ið til jarðar í bakgarði húss eins í hverfinu og valdið
því að það varð óðara alelda. Enginn mun hins vegar
hafa verið heimavið þegar atburðurinn átti sér stað.
Frá því að árásirnar áttu sér stað 11. september
hafa bandarískar herþotur sveimað yfir New York í
öryggisskyni. Sagði Susan Locke, sem býr í nágrenni
slysstaðarins í gær, að hún hefði fyrst haldið að há-
vaðinn stafaði af herþotu í lágflugi. „En síðan leit ég
út um gluggann og sá flugvélina taka snarbeygju nið-
urá við og stefna beint til jarðar.“
Önnur kona sagði í samtali við CNN að allir hefðu
verið í mikilli geðshræringu er þeir yfirgáfu hús sín
rétt hjá slysstaðnum að beiðni lögreglunnar. „Það eru
allir miður sín vegna þessa atburðar,“ sagði hún.
„Flugvélin lenti á húsinu við hliðina á mínu og fór í
þúsund mola, held ég. Ég hélt mig við framhlið húss-
ins míns því hitinn var of mikill hinum megin.“
Hún sagðist heppin að hafa sloppið lifandi. „Ég hélt
þetta væri flugvél sem flygi allt of lágt,“ sagði hún.
„En síðan skall hún til jarðar og það var eins og
sprengja hefði sprungið.“
frá og hrapaði til jarðar“