Morgunblaðið - 13.11.2001, Síða 39

Morgunblaðið - 13.11.2001, Síða 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 39 VINUR minn ágæt- ur, skólabróðir og ná- grannaprestur lengi, séra Jakob Ágúst Hjálmarsson, dóm- kirkjuprestur í Reykjavík, ritaði góða grein í Morgunblaðið hinn 25. október síð- astliðinn. Yfirskrift hennar var Húsvillt fólk. Í prestsembætti sínu vestur á Ísafirði man ég að séra Jakob var ævinlega kallaður séra Jakob. Sjálfur nefndi ég hann einlægt svo í ávarpi og umræðu. Börnin mín köll- uðu hann aldrei annað en séra Jak- ob. Og þannig hafa Íslendingar rætt um presta sína og ávarpað þá í mörg hundruð ár. Má ég strax skjóta því hér inn að ég hefi stundum vogað að leiðrétta yngri starfssystkini mín þegar þau hafa byrjað símtal við mig þannig: „Góðan dag! Er þetta Gunnar? þetta er séra Jón!“ Ég hefi þá stundum hleypt í mig kjarki og stunið upp: „Nei, það er öfugt! þú ættir heldur að segja: Er þetta séra Gunnar? þetta er Jón prestur.“ Sama gildir um þarfaþingið símsvara. Þar fer betur að presturinn segi ekki: „Þetta er á skrifstofu Víðivalla- prestakalls, séra Jón Jónsson, sem talar.“ Séra er nefnilega einkum og sérílagi ávarpstitill, þó jafnframt löngum notaður, þegar rætt var um prest. Í samræmi við þetta hefi ég sömu- leiðis verið ósáttur við það, þegar prestar undirrita bréf eða blaða- greinar ellegar þá t.d. messuauglýs- ingar í blöðum eða útvarpi með nafni sínu svolátandi: Séra Jón Jónsson. það væri hins vegar alvanaleg ut- anáskrift á bréfi til séra Jóns. Ég las grein séra Jakobs í Morg- unblaðinu um daginn með mikilli at- hygli enda var hún vel þess virði. En ég hnaut um það að blaðið skyldi í umgengni við nafn höfundarins sleppa alveg hinum gamla og hefð- bundna titli. Ekki af því að það skipti neinu meginmáli. En það er nýlunda. Í umbroti var vakin sér- stök athygli á einni málsgrein séra Jakobs. Þar sagði svo: „Öryrkjar þurfa af mörgum ástæðum fremur á því að halda en flestir aðrir,“ segir Jakob Ágúst Hjálmarsson, „að búa við öryggi í húsnæðismálum.“ Ljós- mynd af séra Jakobi fylgdi grein- inni. Undir henni stóð: Jakob Ágúst Hjálmarsson. Nú ríður á að flýta sér að taka skýrt fram, biðja góðfúsan lesanda að athuga vel, leggja þunga áherslu á, og undirstrika alveg sérstaklega, að þótt við liggi, að ég, suma daga, hálfsjái eftir þessum forna titli, sennilega mest af óútskýrðri vana- festu, þá tel ég það alls ekki og eng- an veginn skipta neinu höfuðmáli, hvorki til eða frá, hvort menn segja og skrifa séra eða ekki. Samanborið við alvöru lífsins er þetta um- ræðuefni auðvitað skoplítið. Og mér þætti ákaflega miður að vera vændur um stærilæti eða uppskafningshátt í þessum punkti. Svo viðkvæmur væri ég fyrir því, að ég veit varla, hvort ég á að þora að biðja Morgun- blaðið að birta þessar línur. Ég gæti hæglega orðið að athlægi. Og það er mikið langur vegur frá, að ég geri sjálfur kröfu til þess að vera ávarpaður á einn hátt fremur en annan. það má í raun einu gilda, svo lengi sem nokkurn veginn er vit- að, af praktískum átæðum, við hvern er átt. Og kannski væri bara best og þægilegast að hætta að burðast með þetta gamla góss. Hinu sama má raunar halda fram um margt af því, sem mannskepnan hefur í frammi og tekur sér fyrir hendur. Allt um það má segja, að fyrirbrigðið, sem við köllum menningu, samanstandi einmitt af aragrúa af svonalöguðum „einskis verðum“ smámunum, og mætti nefna borðsiði sem gott dæmi. Annað framúrskarandi dæmi er sjálft tungumálið. Í því er minn- ing þjóðar fólgin. þess vegna væri fróðlegt að vita, hvort það er ásetn- ingur og stefna okkar kæra, gamla, virðulega, ágæta og fordæmisgef- andi fjölmiðils, Morgunblaðsins, að hætta, vitandi vits, að kalla Jón prest séra Jón. Og ef svo er, hvers vegna þá? Að séra eða ekki, það er þessi spurning Höfundur er prestur. Séringar Þess vegna væri fróð- legt að vita, segir Gunnar Björnsson, hvort það er ásetningur og stefna okkar kæra, gamla, virðulega, ágæta og fordæmisgefandi, Morgunblaðs, að hætta vitandi vits, að kalla Jón prest séra Jón. Gunnar Björnsson ALÞJÓÐADAGUR félagsráðgjafa er 13. nóvember. Af því tilefni viljum við rita fáeinar línur til að vekja athygli á námi okkar og fé- lagsstarfi innan Há- skóla Íslands. Nám í félagsráðgjöf er 120 eininga samfellt BA-nám til löggildra starfsréttinda. Einnig geta þeir nemendur sem lokið hafa BA-námi eða BS-námi í heil- brigðis- eða félagsvís- indum sótt um inn- göngu í starfsréttindanám í fé- lagsráðgjöf. Fjöldi nemenda sem fá inngöngu í félagsráðgjöf á þriðja ár (starfsréttindanám) er takmarkaður við 18 nemendur. Að loknu fjögurra ára námi eða 120 einingum er boðið upp á einstaklings- bundið meistaranám. Þessi ný- breytni gekk í gildi í lok árs 1999. Áð- ur sóttu nemar í félagsráðgjöf framhaldsnám erlendis og er það enn vinsælt. Að loknu framhaldsnámi er hægt að sækja um sérfræðileyfi sam- kvæmt reglugerð nr. 555/1999 á eft- irfarandi sviðum: 1. Félagsráðgjöf á heilbrigðissviði – klínísk félagsráðgjöf. 2. Félagsráðgjöf í félagsþjónustu. 3. Félagsráðgjöf á fræðslu- og skólasviði. 4. Félagsráðgjöf í réttarkerfi. Markmið náms í félagsráðgjöf er þríþætt og miðar að því að veita nem- endum fræðilega undirstöðu og þjálf- un til að starfa við ráðgjöf og meðferð einstaklinga, fjölskyldna og hópa. Einnig undirbúning til stjórnunar þjónustustofnana og stefnumörkun- ar á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Námið veitir góða undirstöðu í að- ferðafræðilegri þekkingu og þjálfun í að stunda rannsóknir á sviði fé- lagsráðgjafar. Námið á að tryggja að nemendur öðlist heildarsýn á sam- virkni einstaklings og samfélags og tileinki sér siðfræði félagsráðgjafar. Námið á að veita nauðsynlegan und- irbúning til starfa og til framhalds- náms. Til að ná þessum markmiðum fer námið á þriðja og fjórða ári að hluta til fram á stofnunum, undir hand- leiðslu starfsþjálfunarkennara. Nem- ar á fjórða ári eru í samfelldri starfs- þjálfun í fjóra mánuði þar sem þeir vinna rannsóknarverkefni úr efniviði á vettvangi. Nemar á þriðja ári eru í þrjá mánuði, tvo daga í viku og skila greinargerð og smærri verkefnum. Félag félagsráðgjafanema við Há- skóla Íslands heitir Mentor. Stjórn félagsins er skipuð fjórum nemend- um, auk þess eru kosnir þrír nemar í skemmtinefnd, nemendafulltrúi sem situr skorarfundi og nemendaráð- gjafi. Í Mentor er unnið frjótt starf að ýmsum hagsmunamálum nemenda, m.a. ráðgjöf fyrir nýnema. Einnig er unnið að fjölbreytilegri fræðslustarf- semi og fær félagið fyrirlesara tengda greininni til að krydda námið. Skemmtinefnd sér um að hafa fram- boð á skemmtunum til að hrista hóp- inn saman fyrir utan námið. Nemar á fjórða ári gefa út blað um málefni fé- lagsráðgjafar til að afla fjár til út- skriftarferðar. Þessi starfsemi á að uppfylla markmið félagsins sem eru að styrkja samheldni félagsráðgjafa- nema, meðal annars í uppbyggingu og eflingu greinarinar. Allt samstarf er mikilvægt hjá félagsráðgjöfum í starfi og því er þetta mikilvægur hluti af námi okkar. Við erum á þriðja og fjórða ári í fé- lagsráðgjöf og höfum því töluverða yfirsýn yfir námið. Okkur finnst það vera fjölþætt og spennandi. Það er komið víða við til þess að öðlast þá heildarsýn sem er kjarninn í starfi fé- lagsráðgjafa. Námið veitir okkur inn- sýn í flesta þá þætti sem varða sam- félag fólks. Félagsráðgjöf – fjöl- þætt og spennandi nám Matthildur Þórarinsdóttir Félagsráðgjöf Markmið náms í fé- lagsráðgjöf miðar að því, segja Matthildur Þórarinsdóttir og Ey- mundur Hannesson, að veita nemendum fræði- lega undirstöðu og þjálf- un til að starfa við ráð- gjöf og meðferð. Matthildur er nemi á fjórða ári í félagsráðgjöf og formaður Mentors. Eymundur er nemi á þriðja ári í félagsráðgjöf. Eymundur Hannesson NÝJAR verslunar- miðstöðvar er hægt að byggja, en það er ekki hægt að reisa nýjan miðbæ. Jú, það er kannski hægt að reisa eitthvað og kalla það miðbæ eða miðborg – en það verður aldrei miðbær vegna þess að miðbærinn er á sínum stað – niðri í bæ – þar sem hann hefur alltaf verið og mun verða um ókomin ár. Þar slær nefnilega hjartað í borginni. Þetta er stóri munur- inn á miðborginni og öðrum verslunarkjörnum. Og þessi sérstaða er í raun haldreipi miðborg- arinnar í sviptingum og ölduróti tím- ans. Miðborgin blífur, hvað sem hver segir. Henni getur auðvitað hnignað og hún getur dafnað og eflst. Miðborgin hefur svo ótal margt fleira innan sinna vébanda, sem fólk sækist eftir, heldur en verslunarmið- stöðvarnar. Miðborgin er kjarni mannlífs í borginni, miðstöð menning- ar og sögu. Þar er auðvitað mikil verslun og veitingasala líka, en allt verður þetta að spila saman til að mið- borgin standi undir nafni. Offramboð á húsnæði Það er eðlilegt að nokkur glímu- skjálfti sé í mönnum á þessu hausti, þegar svo mikið verslunarrými bætist við í Smáranum í Kópavogi. Aðeins tvær verslanir hafa þó flutt úr mið- borginni í Smáralind. Nokkrar hafa opnað aðra eða þriðju verslun þar, en verða áfram með flagg- skip sitt í miðbænum. Hinsvegar er ljóst, að talsverðar sviptingar eru í húsnæðismálum, jafnt í miðborginni sem annars staðar í Reykja- vík. Víða standa ný- byggð stórhýsi auð, óseld eða óleigð, og má telja víst að offramboð sé á skrifstofu- og versl- unarhúsnæði í borginni um þessar mundir. Það er líka áhyggjuefni, að nú eru óvenju mörg verslunarpláss í mið- borginni ýmist auð eða notkun þeirra hefur verið breytt án formlegra umsókna samkvæmt samþykktum reglum. Verslunum fækkar enn Ef rýnt er í skýrslu um fjölda og flokkun verslana í miðborginni, sem Þróunarfélag miðborgarinnar tekur saman á hverju hausti, kemur í ljós að verslunum heldur áfram að fækka. Þær eru nú 315, en voru 337 á sama tíma í fyrra. Verslunum hefur því fækkað um 22, þar af um 10 við Laugaveg. Fækkun verslana í mið- borginni hefur verið stöðug frá árinu 1996, þegar talning þeirra hófst með þessum hætti, en þá voru verslanirn- ar 372. Athyglisvert er að öll fækk- unin á þessum sex árum er í Kvosinni og við Laugaveg, en ef Skólavörðu- stígur, Hverfisgata og hliðargötur eru teknar saman er fjöldinn þar nán- ast hinn sami nú og fyrir sex árum. Veitingastöðum hefur hinsvegar fjölgað mjög hratt í miðborginni á síð- ustu árum og er það vel, en þó þarf að huga að jafnvægi hinna ýmsu þjón- ustuþátta, þannig að einn yfirgnæfi ekki aðra eða boli þeim hreinlega burt af stóru svæði. Hvernig bregst miðborgin við auk- inni samkeppni? Svörin eru mörg og ekki einhlít. Allir sem hagsmuna hafa að gæta – og þá eru borgaryfirvöld ekki undanskilin – þurfa að taka höndum saman og leita leiða til að efla verslun og viðskipti í miðborginni. Sérstaka áherslu þarf að leggja á verslun við Laugaveg, sem er helsta verslunargata borgarinnar. Í stuttu máli má segja, að miðborg- in bregðist við stóraukinni samkeppni með því að standa undir nafni, með því að halda áfram að vera miðborg, öflug, þróttmikil og framsækin, en jafnframt rómantísk, gamaldags og sérstæð. Miðborg sem stendur undir nafni Einar Örn Stefánsson Miðborgin Miðborgin hefur svo ótal margt fleira sem fólk sækist eftir heldur en verslunarmið- stöðvarnar, segir Einar Örn Stefánsson. Hún er kjarni mannlífs í borginni. Höfundur er framkvæmdastjóri Þróunarfélags miðborgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.