Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 46

Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 46
MINNINGAR 46 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284 ✝ Þóra IngibjörgStefánsdóttir fæddist á Hnappa- völlum í Öræfum 31. júlí 1919. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 4. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Stefán Þor- láksson, f. 1878, d. 1969, og Ljótunn Pálsdóttir, f. 1882, d. 1955. Systkini Þóru, er upp kom- ust, eru: Arnljótur, f. 1908, d. 1924, Kristín, f. 1911, Guðrún, f. 1912, d. 1996, Sigríður, f. 1916, Páll, f. 1918, Helgi, f. 1920, d. 1978, Þorlákur, f. 1922, og Þórður, f. 1923. Þóra giftist Alfreð G. Sæ- mundssyni frá Kambi í Árnes- hreppi á Ströndum, f. 1915, d. 1983. Þau bjuggu alla sína bú- skapartíð í Kópavogi. Börn þeirra eru: 1) Sæmundur, f. 1949, kona hans er Erna Jóna Arnþórs- dóttir, f. 1948, börn þeirra eru Dagrún, f. 1984, og Alfreð Gunnar, f. 1987. 2) Unnur Stefanía, f. 1953. 3) Helga, f. 1956, dóttir hennar er Elva Þóra Arn- ardóttir, f. 1994. 4) Björk, f. 1959, mað- ur hennar er Birgir Björnsson, f. 1961, börn þeirra eru Hjördís Þóra, f. 1998, og Bergur Páll, f. 2000. 5) Stefán, f. 1959, kona hans er Ingibjörg Linda Sigurðardóttir, f. 1962, börn þeirra eru Gunnar Ingi, f. 1995, og Björgvin Heiðar, f. 1999. Dóttir Lindu og fósturbarn Stef- áns er Edda Doris Þráinsdóttir, f. 1985. Útför Þóru fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Í dag kveðjum við ástkæra systur, mágkonu og frænku, Þóru Ingi- björgu Stefánsdóttur. Við viljum minnast hennar í fáein- um orðum. Hún var ein þeirra sem gera veröldina betri og bjartari með jákvæðni sinni og bjartsýni. Þóra ólst upp hjá foreldrum sínum í stórum systkinahópi á vestri miðbæ á Hnappavöllum. Á bernsku- og unglingsárum hennar var hópur tápmikilla ung- menna á Hnappavöllum þar sem voru sex bæir. Mikið félagslíf í sveit- inni á vegum ungmennafélagsins og einnig var sungið mikið. Ung að ár- um fluttist Þóra til Reykjavíkur. Þar kynntist hún manninum sínum, Al- freð Gunnari Sæmundssyni. Þau giftu sig sumardaginn fyrsta árið 1949. Fyrstu búskaparárin leigðu þau í Kópavogi en fluttu í nýtt íbúð- arhús í Vallargerði 14 í Kópavogi og voru þar með fyrstu íbúunum þar. Heimili þeirra bar vitni um vandað handbragð húsbóndans og smekkvísi og hirðusemi þeirra beggja. Þau voru alltaf mjög samhent og tókst með hagsýni og ráðdeild að koma upp börnunum fimm. Þau bera þess öll vitni um gott og ástríkt uppeldi og hafa komið sér vel í leik og starfi. Þóra var mikil hannyrðakona og saumaði hún öll föt á börnin sín. Sömuleiðis vann hún hluta úr degi á saumastofu Kópavogshælis í mörg ár. Einnig söng hún með Skaftfell- ingakórnum í nokkur ár en hún hafði alla tíð mikið yndi af söng. Þóra hélt mikla tryggð við ætt- ingja sína hér í Öræfunum. Eftir að hringvegurinn var opnaður fóru þau hjónin oftast á hverju ári í sveitina. Það var alltaf mikil tilhlökkun að fá þau í heimsókn og börnin þeirra dvöldu mörg sumrin í sveitinni. Þá var oft þröngt setið en það skipti ekki máli. Eins stóð heimili þeirra okkur allt- af opið af mikilli gestrisni og það var ekki eftirtalið þótt við þyrftum að dvelja þar í lengri eða skemmri tíma. Fyrir um 20 árum veiktist Þóra og náði sér nokkuð vel. En tveimur ár- um síðar missti hún Alfreð mann sinn og varð það henni mikið áfall, eftir 34 ára farsælt hjónaband. Alltaf bar hún sig samt vel og þegar hún veiktist aftur nokkrum árum síðar kom sannarlega í ljós hve langt hún komst á bjartsýninni og óbilandi kjarki. Þrátt fyrir líkamlega fötlun sem þessi glæsilega kona bar með mikilli reisn var hún mjög dugleg að fara sinna ferða. Þá hafa börn henn- ar og tengdabörn reynst henni svo vel að aðdáun hefur vakið. Hún kom á hverju sumri meðan heilsan leyfði í sveitina sína. Þá naut hún þess að horfa yfir túnin og sjóinn. Oft leitaði hugur hennar austur til ættingja hennar. Síðustu árin dvaldi hún á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð og naut þar góðrar umönnunar. Elsku Sæmundur, Unnur, Helga, Björk og Stefán. Guð gefi ykkur og fjölskyldum ykkar styrk og huggun. Minningin lifir áfram með okkur um yndislega konu. Við kveðjum hana með orðum skáldsins. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Fjölskyldurnar Hnappavöll- um 3 og 4 í Öræfum og Silfurbraut 7c á Höfn. Elsku Þóra mín. Mig langar til að þakka þér fyrir allar yndislegu samverustundirnar- sem ég fékk að njóta í návist þinni. Ég man hve það var notalegt að koma heim til þín. Þú hafðir alltaf tíma til að setjast niður og spjalla um daginn og veginn. Og yfirleitt fylgdi kaffibolli og eitthvert góðgæti með því. Vöfflurnar þínar sem þú varst svo ólöt að baka voru nú alltaf vel þegnar. Þú varst alltaf fyrst og fremst að hugsa um að þeir sem í kring um þig voru hefðu það sem best. Þótt heilsu þinni hrakaði í gegnum árin þá varstu alltaf svo já- kvæð og bjartsýn. ,,Ef börnunum mínum og ættingjum líður vel, þá líð- ur mér vel,“ sagðir þú alltaf. Nú er þrautunum þínum lokið og þú búin að hitta hann Alla þinn aftur, sem þú varst búin að sakna svo mikið. Guð geymi þig elsku frænka mín og þakka þér fyrir allar góðu minning- arnar. Þú stjarna mín við skýja skaut, á skærum himinboga, svo hrein á þinni bláu braut þú brunar fram með loga, og þegar allt er orðið hljótt og alheims kyrrð og friður, þá horfir þú um heiða nótt af himni þínum niður. (Þorst. Erlingsson.) Kveðja Stefanía Lóa. Í dag verður jarðsungin móður- systir mín Þóra Stefánsdóttir og lögð til hinstu hvílu við hlið á heittelsk- uðum eiginmanni sínum, Alfreð G. Sæmundssyni. Veit ég að hún er ánægð að vera komin aftur til hans Alla síns sem hún saknaði svo mikið eftir að hann kvaddi þetta jarðlíf 14. nóvember 1983. Þóra var fædd og uppalin í sveit- inni á milli sanda, sem er á milli stórra fljóta sem illmögulegt var að komast yfir, þar til brýr komu til sög- unnar nú á seinni tímum. Hún flutt- ist ung suður þar sem hún hitti sinn lífsförunaut, hann Alfreð frá Kambi í Árneshreppi á Ströndum. Þannig var langt á milli æskustöðva þeirra og torsótt á þeim tímum að heim- sækja þær. Þrátt fyrir það héldu þau einstaklega góðu sambandi við sitt fólk á og frá þessum stöðum. Þau ferðuðust mikið um landið á „rúss- anum“ sem Alfreð innréttaði sjálfur og þau nutu þess að geta gist í hon- um. Þóra átti góðar minningar frá þessum ferðum, og talaði oft um hvað það var gott að heyra rign- inguna lemja þakið og vera með allt á þurru. Þóra og Alfreð mega teljast einir af frumbyggjum Kópavogs þar sem þau byggðu sér hús upp úr 1950, á mjög erfiðum tímum þar sem torvelt var að fá byggingaefni. Dugnaður, útsjónarsemi, heiðarleiki og sam- heldni var það sem skipti máli og saman yfirstigu þau allar þrautir. Al- freð var í flestum frístundum úti í skúr að smíða og var húsið og inn- réttingarnar hans handverk. Þóra var mjög lagin í höndunum og saum- aði allt á börnin sín og jafnvel frænd- fólk. Ungu hjónin í Vallargerði 14 eignuðust fimm börn sem öll bera vitni um hlýlegt og gott uppeldi. Eft- ir að Alfreð dó og einnig eftir að Þóra fékk sitt fyrsta heilablóðfall, þannig að hún lamaðist að hluta, kom það best í ljós hversu heilbrigð og traust börnin þeirra eru, þau hugsuðu svo vel um hana eftir að hún missti heils- una. Við ættingjar Þóru að austan kom- um alltaf í Vallargerði þegar við komum í bæinn og þá settumst við yfirleitt þar upp, oft í marga daga og jafnvel lengri tíma bæði í fæði og húsnæði. Við fengum aldrei annað á tilfinninguna en að það væri nóg pláss og nógur matur og við ættum að vera hjá þeim og hvergi annars staðar. Þar sem er nóg hjartarúm er nóg húsrúm. Ég man eftir tveimur læknisferðum til Reykjavíkur þegar ég var barn og að sjálfsögðu var Þóra sem besta mamma fyrir sunnan. Það var alltaf notalegt að sitja í litla eldhúsinu í Vallargerði á meðan hellt var upp á kaffi og bakaðar vöffl- ur. Ekki vorum við Magga í vand- ræðum með pössun fyrir börnin okk- ar ef á þurfti að halda því alltaf hafði Þóra tíma og pláss til að taka þau og ég held að Helena Marta hafi tekið það upp hjá sér að kalla hana Þóru ömmu og ég man að Þóra var bara ánægð með það. Okkur hefur alltaf verið boðið annan í jólum til fjöl- skyldunnar í Vallargerði í heim- areykta hangikjötið að austan. Þar er alltaf spilað og sungið, spilað á harmonikku og gengið í kringum jólatré. Alltaf var Þóra jafn ánægð og ekki dró það úr ánægju hennar þegar Helena Marta var líka farin að mæta með nikku og syngja. Þegar við Magga ásamt Bjarka syni okkar vorum húsnæðislaus í nokkrar vikur var það sjálfsagt að við fengjum húsnæði og fæði hjá Þóru. Svo mörgum árum seinna kom sama staða upp hjá Stefáni, syni Þóru, og fjölskyldu hans og þá dvöldu þau hjá okkur í nokkrar vik- ur. Þá fannst Þóru það ekki lítið sem við ættum inni hjá henni. Þannig var Þóra. Hún var hin sanna íslenska húsmóðir sem vildi alltaf þjóna öllum en það þurfti ekkert að gera fyrir hana því hún sagðist alltaf hafa allt sem hún þyrfti á að halda. Enda var hún sæl með sitt og sína. Þóra hafði alltaf mikinn áhuga á öllu sem gerðist í Öræfasveitinni og hún fylgdist alltaf vel með og vildi fá fréttir að austan. Hún var alltaf svo jákvæð og alltaf svo glöð og svo stolt af börnunum sínum og síðar barna- börnunum. Þóra starfaði með Ferða- félaginu Breiðamörk sem var átt- hagafélag Öræfinga og Suðursveitunga sem hélt uppi sam- komum að vetri til hér fyrir sunnan og stóð fyrir ferðalögum að sumri til. Þóra söng með Söngfélagi Skaftfell- inga á meðan heilsan leyfði. Nú er þætti Þóru hér í þessari jarðvist lokið og nú líður henni von- andi vel þar sem Alfreð tekur örugg- lega á móti henni. Börnum Þóru, tengdabörnum og barnabörnum vottum við okkar dýpstu samúð. Ég, Margrét, Bjarki og Helena og allir úr Kotinu, þau Sigríður og Bjarni, Gunnar, Addi, Unnur og Jón og fjölskyldur þeirra, þökkum þér innilega fyrir góðar samverustundir og allt það sem þú gerðir fyrir okkur. Minningin um góða konu lifir áfram. Blessuð sé minning þín. Stefán Bjarnason. Það er komið að því að kveðja hana Þóru frænku mína. Fregnin um lát hennar kom ekki á óvart og hún var tilbúin þegar kallið kom. Líkam- legar þjáningar og þrautir hennar eru nú að baki og hún er aftur komin í faðm Alfreðs síns eins og hún hlakk- aði svo til. Nú gengur hún fagnandi og frjáls og þau taka danssporin eins og þau gerðu svo oft í Vallargerði. Þóra var alla tíð mjög heilsuhraust en ári áður en Alfreð lést þegar hún var aðeins 62 ára fékk hún heilablæð- ingu og varð heilsa hennar aldrei söm eftir það. Þóra var hávaxin og myndarleg kona, svo lifandi og sterk, viljinn svo einbeittur og öflugur, hugsunin svo hlý og skýr, vináttan svo gefandi og góð. Einu sinni var ort til hennar þessi vísa: Þó fari ég yfir fjöllin há og finni löndin stóru sé ég aldrei meyju þá sem jafnast á við Þóru. Þóra var mjög frændrækin, hugs- unarsöm við unga sem aldna og taldi ekki eftir sér að heimsækja þá sem veikir voru til að veita þeim styrk. Ekkert skipti Þóru meira í lífinu en að eiga góðan mann og koma börnum sínum til manns og þroska. Hún upp- skar líka ríkulega eins og hún sáði. Ég minnist frænku minnar með mikilli hlýju. Hún var einstök og mér fyrirmynd í svo ótal mörgu. Ég var ekki nema tæplega 11 ára þegar ég fór að venja komur mínar til frænd- fólksins í Vallargerði og kynntist því myndarheimili sem þau Alfreð og Þóra höfðu skapað sér og börnum sínum. Þar ríkti glaðværð, gagn- kvæm virðing og slík væntumþykja í garð hvers annars að óneitanlega ákvað ég í huganum að svona heimili vildi ég sjálf reisa í framtíðinni. Það var m.a.s. sérstök lykt í forstofunni sem ég taldi mér trú um að enginn nema Þóra gæti viðhaldið en lyktin breyttist reyndar ekkert eftir að Unnur hóf búskap í Vallargerði en Þóra flutti í Vogatungu. Ótal minningar koma upp í hug- ann þegar ég skrifa þessar línur. Ég minnist ferðar austur í Öræfi um páska þegar keyrt var yfir allar jök- ulárnar á rússajeppanum. Ekki leist manni á að hægt væri að komast lif- andi yfir þær en Þóra hafði tröllatrú á Alfreð sínum sem bílstjóra og söng alla leiðina, hélt að þetta yrði nú ekki mikið mál. Með fullan bíl af fólki tókst þetta allt saman en oft munaði mjóu. Þau voru líka dugleg að ferðast um landið þvert og endilangt í sumarfríum sínum. Ég man líka eftir því þegar við Unnur ætluðum að fara á útihátíð í Húsafelli um verslunarmannahelgi. Ekki voru nú allir hrifnir af því uppá- tæki en Þóra og Alfreð sáu aumur á okkur og ákváðu bara að skella sér með á hátíðina. Fór svo að þau sam- þykktu að leggja rússanum fyrir ut- an aðalhátíðarsvæðið til að trufla okkur ekki, ef við lentum á sjéns, og lofuðu að koma aldrei í tjaldið okkar. Þurftu bara að vita hvar við ætluðum að tjalda. En það leið ekki á löngu áð- ur en við vorum mættar í heitt kakó og flatkökur og mikið var gott að hafa þau þarna. Þegar ég gifti mig leigði ég íbúð í nágrenni við Vallargerði. Þóra kom oft við á laugardagsmorgnum þegar hún var að versla, stoppaði yfirleitt stutt en þessar morgunheimsóknir voru kærkomnar. Ekki var hún alls kostar ánægð þegar hún þurfti ekki að baka fyrir brúðkaupið mitt, sem hún bauðst auðvitað til að gera að fyrra bragði. Hún vildi alltaf gera einhverjum greiða, ef hægt var. Tveimur dögum fyrir giftinguna kom hún með nokkra tertubotna og sagði mér að það væri nú gott að frysta þá og eiga til vara, ef óvæntir gestir kæmu í heimsókn. Þeir áttu eftir að koma sér vel og lengi bakaði ég sjálf alltaf nokkra botna til að eiga í kist- unni, svona til vara. Þóra var hús- móðir af lífi og sál og kenndi manni margt gagnlegt. Gott samband var á milli Þóru og barna hennar og tengdabarna. Auð- velt var að skynja þá gagnkvæmu væntumþykju sem þar ríkti á milli. Allt var gert til að auðvelda henni líf- ið sem mest. Og þrátt fyrir fötlun sína aftraði það henni ekki að fara upp nokkra stigaganga ef því var að skipta til að fara í heimsóknir. Hún fékk bara hjálp og þá gekk þetta ágætlega. Hún naut hverrar stundar með sínu fólki. Ekki gladdi það hana síður að vita að öðrum liði vel. Það var ótrúlegur vilji og þrek sem hún bjó yfir, allt fram á síðasta árið sem hún lifði. Hún var alltaf jákvæð og lífsglöð og það var mannbætandi að hitta hana. Með þessum orðum kveð ég Þóru og þakka henni samfylgdina og óska henni velfarnaðar í nýjum heim- kynnum. Vinum mínum, frændsystk- inunum úr Vallargerði og fjölskyld- um þeirra sendi ég samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Megi minningin um yndislega móður lýsa ykkur og milda söknuðinn í huga ykkar. Katrín S. Óladóttir. ÞÓRA INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR Sími 562 0200 Erfisdrykkjur EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir há- degi á föstudag. Í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingar- dag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. Skilafrestur minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.