Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 53
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 53 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og fyrirbæna- stund kl. 12 í kirkjunni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur hádegisverður að stundinni lokinni. Samvera foreldra unga barna kl. 14–16 í neðri safnaðar- sal. 12 spora starf kl. 19 í kirkjunni. Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádeg- isverður í safnaðarheimili eftir stund- ina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón- usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sigrúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin og alltaf hægt að bætast í hópinn. Unglingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga í um- sjón Gunnfríðar og Jóhönnu. Langholtskirkja. Endurminningarhópur kvenna kl. 14-15.30. Nýr hópur hefur göngu sína um slóðir minninganna í dag. Verið velkomnar að hafa samband við Svölu djákna í síma 520 1300. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. TTT-fundur kl. 16 fyrir krakka í 5.–7. bekk. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Sóknarpresturinn sr. Bjarni Karlsson kennir Biblíufræðin á lifandi og auðskilinn hátt. Gengið inn um merktar dyr á austurgafli kirkjunnar. Efni kvöldsins: Veislumaðurinn Jesús frá Nasaret. Allir velkomnir. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng og lofgjörð við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá bænahóps kirkjunnar undir stjórn Margrétar Scheving sál- gæsluþjóns. (Sjá síðu 650 í Texta- varpi). Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir félagar velkomnir. Foreldramorg- unn miðvikudag kl. 10–12. Fræðsla: Slys á börnum, forvarnir, skyndihjálp. Heimsókn frá Rauða krossi Íslands. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT-klúbburinn í Ártúnsskóla kl. 14.20– 15.20. Barnakóraæfing kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn- um má koma til sóknarprests í viðtals- tímum hans. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK, kirkju- starf aldraðra hefst með leikfimi kl. 11.15. Léttur málsverður. Helgistund, samvera og kaffi. Æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára á vegum KFUM&K og Digra- neskirkju. Húsið opnað kl. 16.30. Fót- boltaspil, borðtennis og önnur spil. Alfa námskeiðið. Fræðari sr. Magnús B. Björnsson. Kvöldverður kl. 19, fræðsla, hópumræður, helgistund. Fella- og Hólakirkja. Bæna- og kyrrð- arstund í kirkjunni. Organisti leikur frá kl. 12. Kl. 12.10 hefst stundin og að henni lokinni kl. 12.25 er framreiddur léttur hádegisverður í safnaðarheim- ilinu gegn vægu gjaldi. Fyrirbænaefnum má koma til presta og djákna. Þeir sem óska eftir akstri láti vita fyrir kl. 10 á þriðjudagsmorgni í síma 557 3280. Starf fyrir 11–12 ára drengi kl. 17. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Kirkju- krakkar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Korp- uskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30– 18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogs- kirkju, eldri deild, kl. 20–22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstundir kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10– 12. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjallað. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í Kirkjuhvoli kl. 17.30 í um- sjón KFUK. Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æsku- lýðsstarf fyrir 10–12 ára í Álftanes- skóla, stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 18. Opið hús kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðsfélag yngri félaga. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Kyrrðar– og fyr- irbænastund með Taizé-söngvum í dag kl. 18. Hægt er að koma fyrirbænaefn- um til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10– 12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand- bergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar fyrir 6–9 ára krakka. Kl. 17.30 TTT-kirkjustarf 10– 12 ára krakka. Gengið inn um kirkjudyr uppi. Kl. 20 hjónakvöld. Fræðsla og spjall fyrir þau sem vilja gera gott hjóna- band betra. Sr. Kristján Björnsson flytur erindi kvöldsins og tekur við skráning- um í síma 488 1501 og 893 1606. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur opinn kl. 14–16 með aðgengi í kirkjuna og Kap- ellu vonarinnar eins og virka daga vik- unnar. Aðgengi frá Kirkjuteig. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Ferm- ingarundirbúningur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8. A&B í Holtaskóla. Kl. 15.15–15.55, 8. ST í Myllubakkaskóla og kl. 16–16.40, 8. IM Myllubakka- skóla. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára starf alla þriðjudagakl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15– 19. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar þriðju- dögum kl. 10–12. Ólafsvíkurkirkja. Taize-messa kl. 20 á fimmtudagskvöldið 15. nóvember. Áhersla lögð á kyrrðina, einfalda söngva og bænagjörð. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í Hrakhólum í kvöld kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Safnaðarstarf KYRRÐARDAGAR á aðventu verða í Skálholtsskóla dagana 30. nóv.–2. des. nk. Margir hafa óskað eftir tækifæri til að draga sig í hlé, fara í hvarf og undirbúa sig andlega fyrir jólin til mótvægis við erilinn og ann- irnar sem annars ráða jólaund- irbúningnum. Einnig hefur verið óskað eftir skjóli þar sem fólk getur tekist á við erfiðar fréttir eða ákvarðanir í friði án utanaðkomandi áreitis. Skálholtsskóli efnir því til Kyrrðardaga á aðventu og eru all- ir að sjálfsögðu velkomnir, ekki síst þau sem ekki hafa áður tekið þátt í Kyrrðardögum. Þessir Kyrrðardagar eru styttri en oft gerist, þeir hefjast föstu- dagskvöldið 30. nóvember og lýk- ur síðdegis á sunnudag, 2. desem- ber. Kyrrðardagarnir hefjast kl. 18 á föstudagskvöld með kvöld- bænum í kirkjunni og kvöldverði. Þá fer fram kynning á dagskrá og inntaki daganna og síðan geng- ið inn í kyrrðina, þar sem þögn rík- ir milli þátttakenda og fólk fær að vera ótruflað með sjálfu sér og Guði sínum. Dagskráin er mjög einföld þann- ig að þátttakendur hafa mikinn frjálsan tíma til að njóta kyrrðar bæði í húsakynnum skólans og við útivist. Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup flytur stutta hugleið- ingu á föstudagskvöldið til íhug- unar fyrir þátttakendur. Laugardagurinn hefst með morgunmessu í Skálholtskirkju en helgihald verður reglubundið í kirkjunni. Síðar um morguninn flytur Helga Hróbjartsdóttir kenn- ari hugleiðingu og síðdegis Rann- veig Sigurbjörnsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Um kvöldið verður samvera við arininn með upplestri af völdum textum og kyrrlátum söng. Á sunnudag verður fjallað sér- staklega um andlegan undirbún- ing jóla á aðventu og verður lagt til grundvallar efni frá Alfa- námskeiðunum sem haldin eru í mörgum söfnuðum um þessar mundir. Þögninni verður aflétt við há- degisverðinn og síðan notið hátíð- armessu í Skálholtskirkju hjá sr. Agli Hallgrímssyni og Skálholts- kórnum. Kyrrðardögum lýkur um kl. 16.30. Þátttökukostnaður er kr. 11.500 fyrir fullt fæði í tvo sólarhringa og dvalið í einbýli með uppbúnu rúmi. Ef dvalið er í tvíbýli er verðið lægra og einnig ef fólk leggur til eigið sængurlín. Umsjón Kyrrðardaga á aðventu hefur rektor Skálholtsskóla, sr. Bernharður Guðmundsson. Nánari upplýsingar og skráning er í Skálholtsskóla, Skálholti 801 Selfoss, sími 486 8870, netfang: rektor@skalholt.is Skálholt Kyrrðardagar á aðventu í Skálholtsskóla FRÉTTIR Opinn fundur Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Drífa Hjartardóttir, Kristján Pálsson, Árni R. Árnason og Kjartan Ólafsson, boða til op- ins stjórnmálafundar í sam- komuhúsinu í Garði, miðviku- daginn 14. nóvember kl. 20:00. Fundarstjóri: Sigurður Jónsson, sveitarstjóri. Allir velkomnir. Fundarboðendur. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR S M Á A U G L Ý S I N G A RI TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir, Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir, Lára Halla Snæfells, Erla Alex- andersdóttir, Margrét Haf- steinsdóttir og Garðar Björg- vinsson michael-miðill starfa hjá félaginu og bjóða félags- mönnum og öðrum uppá einka- tíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. KENNSLA ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF  EDDA 6001111319 I  HLÍN 6001111319 IV/V H.v. Hamar 6001111319 I I.O.O.F.Rb.1  15111138 — 9.III ET I* KR-konur KR-konur Munið fundinn í kvöld kl. 20.15. Álfabikarinn og penzim verða í umræðunni. Allar konur velkomnar. Stjórnin. AD KFUK, Holtavegi 28 Fundur í kvöld kl. 20:00. Halla Jónsdóttir sér um biblíu- lestur.     Myndasýning í FÍ-salnum mið- vikud. 14. nóv. 2001 kl. 20:30. Guðmundur Hallvarðsson sýnir myndir og segir frá ferðum um Hornstrandir. Allir velkomnir. Kaffiveitingar í hléi. Verð 500 kr. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Sunnud. 18. nóv.: Hrútagjá - Fjallið eina á Reykjanesi. Þórs- mörk á aðventu, Landmanna- laugar um áramót. Bókið ykkur tímanlega. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNA mbl.is Í TEXTA með kafla úr bókinni Of stór fyrir Ísland – ævisaga Jóhanns risa, sem birtist í Morgunblaðinu á sunnudag, var rangt farið með nafn útgefandans. Hið rétta er að bókafor- lagið Hólar gefur bókina út. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Á BERGSTAÐASTRÆTI, við hús númer sjö, var ekið á bifreiðina SJ-759, sem er rauð Toyota, þar sem hún stóð kyrr og mannlaus. Er talið- að þetta hafi átt sér stað þann 10. nóvember sl. um kl. 14.15. Sá sem það gerði eða aðrir sem geta gefið frekari upplýsingar eru beðnir að snúa sér til umferðardeild- ar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum ÞRIÐJA heiðursbikarmót Taflfélags Hreyfils verður haldið miðviku- dagana 14. og 21. nóvember í félags- heimili Hreyfils kl. 20. Mótið er haldið til heiðurs Guðlaugi Guðmundssyni, einum af stofnendum félagsins, en það var stofnað 24. febr- úar 1954. Guðlaugur var formaður fé- lagsins árin 1958–59, skákmeistari 1968 og Norðurlandameistari spor- vagnastjóra 1968. „Guðlaugur var einnig stjórnarmaður í skáksambandi Íslands 1971–73,“ segir í fréttatil- kynningu. Mótsgjald er 500 kr. hvort kvöld. Telfdar verða sjö umferðir Monrad, tímamörk eru 30 mínútur. Heiðursbik- armót TFH MÁLBJÖRG, félag um stam, heldur foreldrafund miðvikudaginn 14. nóv- ember í Hátúni 10, 9. hæð, kl. 20. Flutt verður stutt erindi um stam barna. Rætt um vetrarstarfið og væntingar næsta sumars. Foreldrafundur hjá Málbjörg ÁSTA Valdimarsdóttir kennari og bókasafnsfræðingur endurtekur kynningu á hlátursmeðferð indverska læknisins Madan Kataria, „The Yogic Concept of Laughter Therapy“ í Nor- ræna húsinu föstudaginn 16. nóvem- ber kl. 17, og tekur kynninginmeð æf- ingunum u.þ.b. eina klst. Einnig verður farið yfir hlátursæf- ingar Kataria. Allir geta tekið þátt í kynningunni. Spurningum verður svarað. Að- gangseyrir er kr. 1.000. Hluta af ágóða verður varið til líknarmála, segir í fréttatilkynningu. Hlátursnámskeið í Norræna húsinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.