Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 58
DAGBÓK
58 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes, Lagarfoss,
Vigri, Goðafoss og
Arnarfell koma í dag.
Thule fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Baldur Árni og Selfoss
koma í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa, kl.
10 púttvöllur opinn. All-
ar upplýsingar í síma
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl.
10 sund, kl. 13 leirlist.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ, á Hlaðhömrum
á fimmtudögum kl. 17–
19. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 586-8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10 sam-
verustund, kl.14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Borgarleik-
húsið 15. nóv. kl. 20.
Miðapantanir sem fyrst
í síma 820-8571 eftir há-
degi. Rúta frá Kirkju-
hvoli kl. 19.15. Stunda-
skrá í hópastarfi er
auglýst á töflu í kjall-
aranum í Kirkjuhvoli og
á www.fag.is. Sími 568-
5052. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Leikfimi í Íþróttahús-
inu við Strandgötu kl.
11.30 Saumar og brids
kl. 13.30. Tréútskurður
í Lækjarskóla kl. 13. Á
morgun verður píla og
myndlist.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Mánu-
dagur: Brids kl. 13.
Danskennsla Sigvalda
fellur niður. Þriðjudag-
ur: Þorvaldur Lúðvíks-
son hrl. til viðtals kl.
10–12, panta þarf tíma.
Skák kl. 13, haustmót
skákdeildar FEB. Al-
kort spilað kl. 13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. Söng-
félag FEB, kóræfing kl.
17. Línudanskennsla
Sigvalda fellur niður.
Bridsnámskeið kl.
19.30. Silfurlínan er op-
in á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB. kl.
10–16 s. 588-2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16, blöðin og kaffi. Far-
ið verður að sjá leikritið
„Með vífið í lúkunum“
föstudaginn 16. nóv-
ember, miðapantanir
fyrir 14. nóv. Hæð-
argarði s. 568-3132.
Garðabær. Opið hús í
Kirkjuhvoli í dag kl 13–
16. Spilað og spjallað.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–17.30 vinnustofur
opnar, kl. 9–12 opið hús
í Miðbergi, leiktæki og
fleira, umsjón Sólveig
G. Ólafsdóttir, kl. 13
boccia. Föstudaginn 16.
nóvember kl. 16 verður
opnuð myndlistarsýning
Kristínar Bryndísar
Björnsdóttur, Gerðu-
bergskórinn syngur
undir stjórn Kára Frið-
rikssonar. Allir vel-
komnir. Upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
9.05 og 9.50 leikfimi, kl.
9.30 glerlist, kl. 14 fer
þriðjudagsganga frá
Gjábakka, kl. 14 boccia,
kl. 16.20 og kl. 17.15
kínversk leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga kl. 9.05,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, spænska.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
bænastund. Fótsnyrt-
ing, handsnyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–17 hárgreiðsla,
kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja eldri
borgarar á morgun mið-
vikudag fyrirbænastund
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi. kl. 13 spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð, kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
Eineltissamtökin.
Fundir á Túngötu 7, á
þriðjudögum kl. 20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Kvenfélag Kópavogs.
Fundur verður fimmtu-
daginn 15. nóv kl. 20.30
í Hamraborg 10. Sýning
á trévörum frá Fönd-
urhorni Evu.
Safnaðarfélag Ás-
kirkju. Félagsvist verð-
ur miðvikudaginn 14.
nóv. í safnaðarheimili
Ásprestakalls, neðri sal.
Kaffi. Allir velkomnir.
ITC deildin Harpa
heldur deildarfund í sal
Flugvirkjafélags Ís-
lands í Borgartúni 22,
þriðjudaginn 13. nóv. kl.
20–22.
Fundurinn er öllum op-
inn. Þjálfun í þína þágu.
Upplýsingar gefur Lilja
í síma 581-3737. Tölvu-
póstfang ITC Hörpu er
itcharpa@hotmail.com
og heimasíðan er http:/
www.life.is/itcharpa
Geðhjálp Formaður
Geðhjálpar, Sigursteinn
Másson, verður með
viðtalstíma á þriðjudög-
um frá kl. 17–19 á Tún-
götu 7. Tímapantanir í
síma 570-1700. Allir vel-
komnir.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur, opið hús í
kvöld þriðjudaginn 13.
nóvember. Gömlu dans-
arnir kl. 20.30–23. Allir
velkomnir.
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum alls
konar notuð frímerki,
innlend og útlend, ný og
gömul, klippt af með
spássíu í kring eða um-
slagið í heilu lagi (best
þannig). Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM&K, Holtavegi
28, Rvík og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1,
Akureyri.
Í dag er þriðjudagur 13. nóvember,
317. dagur ársins 2001. Birktíus-
messa. Orð dagsins: Fyrir því segi
ég yður: Hvers sem þér biðjið í bæn
yðar, þá trúið, að þér hafið öðlast
það, og yður mun það veitast.
(Mark. 11, 24.)
Víkverji skrifar...
SÍÐASTLIÐINN laugardag fórVíkverji í verslunarleiðangur og
þurfti hann meðal annars að kaupa
sér blekhylki í litprentara sem hann
á. Af fyrri reynslu vissi Víkverji að
verð á blekinu er mjög mismunandi
eftir verslunum og ákvað hann því
að kanna verðið á nokkrum stöðum.
Lagði hann fyrst leið sína í tölvu-
vöruverslun sem hann hefur oft átt
viðskipti við og þar reyndist blek-
hylkið kosta um 2.900 krónur. Vík-
verja minnti að síðast þegar hann
keypti þessa vöru hefði verðið verið
talsvert lægra og hann ákvað því að
kanna málið í bókaverslun við
Laugaveginn þar sem hann vissi að
sams konar blekhylki er selt. En þá
kom upp vandamál.
x x x
HVERNIG sem Víkverji reyndigat hann ekki með nokkru
móti fundið bílastæði í nágrenni við
bókaverslunina. Hann ók í tvígang
Laugaveginn fram hjá versluninni,
en hvert einasta bílastæði var upp-
tekið og sömu sögu var að segja um
stæðin í nálægum götum. Á ferða-
lagi sínu sá Víkverji tvö dæmi þess
að starfsmenn verslana við Lauga-
veginn komu út úr vinnustað sínum
og settu pening í stöðumæla þar
sem þeir höfðu greinilega lagt bílum
sínum. Flaug þá sú hugsun að Vík-
verja að það háttalag verslunarfólks
að nota þessi eftirsóttu bílastæði
sjálft væri ekki vel til þess fallið að
laða viðskiptavini að verslunum
þess. En Víkverji gafst ekki upp og
loks fann hann bílastæði við Skóla-
vörðustíginn í þokkalegu göngufæri
við bókaverslunina sem hann hugð-
ist heimsækja. Víkverji átti í vasa
sínum pening til að tryggja sér
stæðið í fimmtán mínútur og taldi
hann það nægilegan tíma til að
kanna verðið á blekhylkinu eftir-
sótta. Eftir röskan göngutúr komst
hann svo að því að í bókaversluninni
kostaði blekhylkið rúmlega 4.200
krónur og það fannst Víkverja satt
að segja hreinasta okur. Hann yf-
irgaf því verslunina og var nokkuð
þungt í skapi eftir alla fyrirhöfnina
og hugðist halda aftur í tölvuvöru-
verslunina og spara sér um 1.300
krónur með því að kaupa blekhylkið
þar. Áður en Víkverji hélt að bíl sín-
um skaust hann inn í nálægt apótek
og keypti þar smáræði sem hann
vanhagaði um og arkaði síðan rak-
leiðis að bílnum. Þar blasti svo við
honum stöðumælavörður sem var í
óða önn að skrifa sektarmiða á bíl
Víkverja sem varð þá ljóst að hann
var orðinn rúmlega einni mínútu of
seinn á staðinn. Kom í ljós að þessi
töf hafði kostað hann hvorki meira
né minna en 1.500 krónur.
x x x
ÞETTA atvik varð til þess að Vík-verji fór að hugsa um þá gagn-
rýni sem fram hefur komið hjá
Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa
á þá gríðarlegu hækkun sem varð á
aukastöðugjöldum í borginni í fyrra,
en þá tók gjaldið stökk úr 500 krón-
um í 1.500 krónur. Getur Víkverji
ekki annað en tekið undir gagnrýni
borgarfulltrúans sem m.a. hefur
bent á að þetta óheyrilega háa gjald
hefur orðið til að fækka viðskipta-
vinum í miðbænum og þar með
grafa undan því að þar geti verið
rekin blómleg verslun í samkeppni
við verslunarmiðstöðvar þar sem
ekki þarf að greiða fyrir bílastæðin.
Ef það er vilji borgaryfirvalda að
treysta verslun í miðbænum í sessi
hljóta þau að þurfa að taka þessi mál
til endurskoðunar.
LÁRÉTT:
1 ljós hugsun, 8 stútum, 9
vindurinn, 10 elska, 11
fen, 13 sleifar, 15 guðs-
hús, 18 annast, 21 auð, 22
lækna, 23 sálir, 24 vesa-
lingar.
LÓÐRÉTT:
2 gleður, 3 lofað, 4 skyn-
færa, 5 matreiðslumanns,
6 viðlag, 7 vökvar, 12 um-
fram, 14 dráttardýr, 15
meltingarfæri, 16 björtu,
17 óhreinkaði, 18 skreið í
gegnum, 19 þrábiðja, 20
forar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fóarn, 4 sárin, 7 ósköp, 8 iljar, 9 afl, 11 anna, 13
angi, 14 nafar, 15 grín, 17 frek, 20 bak, 22 unaði, 23 lítur,
24 deiga, 25 kenni.
Lóðrétt: 1 flóra, 2 askan, 3 næpa, 4 skil, 5 rýjan, 6 norni,
10 fífla, 12 ann, 13 arf, 15 grund, 16 Írani, 18 ritin, 19
karfi, 20 bisa, 21 klók.
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SAMKVÆMT Morgun-
blaðinu í dag (þriðjudag)
fékk þáttur Davids Lett-
ermans „The Late Show“
Emmy-verðlaun sem: Besti
skemmti- eða tónlistarþátt-
urinn. Hvernig væri nú að
íslensku sjónvarpsstöðv-
arnar, sem um þessar
mundir berjast um hylli
áhorfenda, tækju þáttinn til
sýningar? Sjónvarpsstöðin
Sýn var með þáttinn á dag-
skrá í 1 ár en hætti af óskilj-
anlegum ástæðum. Gaman
væri að heyra hvort t.d. hin
nýja Stöð 1 væri með þetta
á prjónunum; það var sú
stöð sem upphaflega kynnti
okkur þennan þátt.
Kveðjur,
HKÞ.
Hvar fást
stórir og flottir?
MIG langar til að vita hvort
einhver hefur hugmynd um
hvar maður getur fengið
flotta brjóstahaldara í
stærð DD eða E. Það virð-
ist vera sama hvert maður
fer, engin verslun býður
uppá flotta brjóstahaldara í
þessum stærðum (nema
kannski ömmubrjóstahald-
ara). Er bara gert ráð fyrir
að allar konur í þjóðfélag-
inu hafi lítil brjóst? Er ekki
gert ráð fyrir því lengur að
það eru til konur með stór
brjóst?
Ein óánægð.
Hækkun
sem aldrei kom
FYRRVERANDI heil-
brigðis- og tryggingaráð-
herra, Ingibjörg Pálma-
dóttir, lofaði einstæðum
öryrkjum hækkun á bótum
þegar hún starfaði sem ráð-
herra. Þessi hækkun er enn
ekki komin. Einstæðir ör-
yrkjar lifa í fátækt og hafa
gert það lengi. Nú þegar
jólin nálgast kvíðum við
þeim árstíma.
Sæmundur Kristjánsson,
Álfhólsvegi 43a.
Lifandi verur
ÉG VAR að lesa pistil eftir
Sigríði Eymundsdóttur í
Velvakanda um dýravernd.
Trúi því nú ekki að fólk sé
að fara með kettina sína
upp á Hellisheiði til að
losna við þá þegar til er
heimili (Kattholt) sem tek-
ur við kettlingum án endur-
gjalds. Vil ég benda fólki á
að þetta eru lifandi verur og
bið það að íhuga hvernig
dýrunum líður sem farið er
svona með. Hvernig getur
fólk sofið á næturnar sem
gerir svona?
Björg Jóhannsdóttir.
Engu eytt
í vegagerð
ÉG HEF þá ósk fram að
færa að á næsta ári verði
engu af fé okkar skattgreið-
enda eytt í vegagerð.
Hvorki undir, yfir né á jörð-
inni. Sú sóun sem átt hefur
sér stað í þessum mála-
flokki er óafsakanleg, með-
an gamalt fólk sem rukkað
er um skatta fram á graf-
arbakkann er látið veslast
upp og deyja aðhlynningar-
laust eins og nú er. Sífellt er
staglast á orðinu menning;
menningarhús, menningar-
dagur, menningarborg,
menningarár og hver veit
hvað. Meðan slíkt ástand er
látið viðgangast á spítulum
og aðhlynningarstofnunum
er lokað vegna peninga-
leysis tel ég þetta orð og þá
fallegu hugsun sem er á
bak við það hafa hlotið al-
gert gengisfall. Kornið sem
fyllir mælinn er áætlun um
milljarðasukk í Siglufjarð-
arveg. Hvaðan koma skatt-
peningarnir og hvar eru
þingmenn Reykjavíkur og
nágrennis? Eiga þeir ekk-
ert að gæta hagsmuna okk-
ar um forgangsröðun fjár-
munastreymis úr ríkis-
sjóði?
Skattgreiðandi.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Lettermann
í sjónvarpið ÁGÆTU þingmenn.
Mikið hljótið þið og
samstarfsmenn ykkar að
hafa lítið álit á greind
kjósenda ykkar ef þið
styðjið frumvarp um að-
vörunarmiða á vín-
flöskur. Dettur ykkur
virkilega í hug að fólk
drekki minna ef slíkir
miðar eru á flöskunum?
Það vita allir vitibornir
dýrmætum tíma þess er
varið í þvílíkt bull. Búast
má við að neytendaverð
áfengis muni hækka ef
slíkar merkingar verða
lögleiddar.
Ekki er mér kunnugt
um slíkar kröfur í öðrum
Evrópulöndum.
Júlíus P. Guðjónsson,
Starengi 24, Rvík.
karlar og konur að áfeng-
isneysla er óæskileg fyrir
verðandi mæður. Það vita
líka allir að óheimilt er að
aka bifreið eftir áfeng-
isneyslu. Þessa álímdu
miða les enginn frekar en
aðvörunarmiða á tóbaks-
umbúðum.
Ekki er að undra að
rekstrarkostnaður þings-
ins hefur aukist þegar
Til þingmanna