Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir Sýnd kl. 3.30. Sýnd kl. 4. Með íslensku tali Miðasala opnar kl. 15 Varúð!! Klikkuð kærasta!  E.P.Ó. Kvikmyndir.com  Empire SV Mbl  Kvikmyndir.com  Rás 2 MOULIN ROUGE! Hausverkur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. B. i. 16. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni.  DV Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Úr smiðju snillingsins Luc Besson (Leon, Taxi 1&2, Fifth Element) kemur ein svalasta mynd ársins. Zicmu, Tango, Rocket, Spider, Weasel, Baseball & Sitting Bull eru YAMAKAZI. Þeir klifra upp blokkir og hoppa milli húsþaka eins og ekkert sé...lögreglunni til mikils ama. Ótrúleg áhættuatriði og flott tónlist í bland við háspennu-atburðarrás! Maður finnur nokkur líkindi með öðrum Bandaríkjamanni, ekki síður sérstökum, þegar hlustað er á nýj- ustu afurð Bill Callahan sem notast einatt við einsmannssveitarnafnið Smog. Ég er að hugsa um hann Will Oldham, sem rekur einnig einsmanns sveit sem kallast Palace (og/eða Pal- ace brothers, Pal- ace Music, Palace songs) en hefur einnig hljóðritað undir eigin nafni svo og sem Bonnie Prince Billy. Báðir menn dularfullir og sérvitrir þó þeir eiginleikar hafi fyrst magnast upp hjá þeim sem hér er til umfjöllunar á tveimur síðustu plötum. Listfenginu svo sannarlega til mikils framdráttar. Fyrri plötur Smog draga að miklu leyti dám af því lágfitlsrokki sem ein- kenndi þá tíma sem þær voru gerðar á. Á síðustu plötu, Dongs of Sevotion, sem er hans níunda, tókst Callahan hins vegar að rista sér afar persónu- legan hljóm, myrkan og þungbúinn og á stundum ægifallegan. Á Rain on Lens er sem Callahan fari með þetta sjónarhorn enn lengra. Kannski öllu heldur að hann fari með það inn í sig, hvar hann veltir sér ein- manalega upp úr ráðgátum þessa heims og þess næsta. Rokkið hér er spunnið varlega, næstum því við- kvæmnislega. Lögin eru einföld og mjakast hægt og bítandi áfram og yf- ir þeim öllum liggur torkennilegur andi sem er treystur enn frekar með þjökuðum og þrúgandi textum Call- ahans. Rain On Lens er frábær lista- smíð og þegar upp er staðið er líkt og löng, undarleg andakt sé að baki.  Tónlist Einræn snilld Smog Rain on Lens Drag City/Domino Bill Callahan verður undarlegri og und- arlegri með hverri plötu ... sem betur fer. Arnar Eggert Thoroddsen Lykillög: „Song“, „Keep Some Steady“, „Rain on lens 2“. STEFNUMÓTIN halda áfram að stefna saman lifandi listamönnum alla þriðjudaga á veitingahúsinu Gauki á Stöng. Kvöldið í kvöld er með athyglisverðara móti enda listamennirnir hver úr sinni áttinni ef svo mætti að orði komast. Fyrst ber að nefna hljómsveit- ina Lace sem áður kallaðist Móa and the Vinylistics en sveitin sú er nýbúin að gefa út hljómdisk sam- nefndan sveitinni. Söngkonan Mó- eiður Júníusdóttir er í broddi fylk- ingar en með henni eru þeir Kiddi bassaleikari, Gulli trommuleikari, Sindri gítarleikari og Halli hljóm- borðsleikari. Einnig kemur Attingeri fram, en tölvudúettinn sá er skipaður þeim Halldóri og Magga og hafa þeir verið að framleiða tónlist í þrjú ár. Í kvöld mun sjálfur Krummi úr Mínus aðstoða þá pilta við trommuleik og Franz, gítarleikari Ensími, ætlar og að gutla listilega á gítarinn. Nú svo ætlar Sjón sjálfur að troða upp, súrrealisti og Smekk- leysumaður, sem ætti að vera flestum að góðu kunnur fyrir skáldskap sinn og aðra iðju innan listaheima. Eins og alltaf hefjast leikar kl. 21 og er miðaverð 500 kr. Aldurs- takmark er 18 ár. Stefnumót á Gauknum Orð og hljómar Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Sjón kemur fram á Stefnumóti í kvöld. HÉR er um að ræða þriðju skíf- una í Stefnumótaröð Undirtóna. Að þessu sinni eru það raftónlistar- mennirnir Prince Valium og Plast- ik sem leiða saman vélar sínar og hefur hvor sinn helming plötunnar til umráða. Eins og á fyrri útgáfum hafa Undirtóna- menn náð að skapa heillegan hljóm á plötunni en þar sem um tvo ólíka listamenn er að ræða er það síður en svo sjálfgefið. Hér er það værðin sem ræður ríkjum. Menn eru ekkert að rasa um ráð fram og kafa djúpt í sögu raftónlistarinnar til að finna rétta tóninn. Prince Valium setur í gang með stuttum hljóðbút þar sem hann notar bjagaðar raddir úr bíómynd- um sem aðalstefið. Dularfullur og hvetjandi inngangur með vísun í bræðurna úr sveimsveitinni Orbi- tal. Upphafslagið endurspeglast svo í lagi fjögur þar sem suði og röddum er blandað saman. Þessi endurtekning í miðjum klíðum krefst nokkurs hugrekkis. Sam- kvæmt einhverjum illa skilgreind- um stöðlum hefði kannski verið eðlilegra að setja lag fjögur í lok syrpunnar til að loka þætti Prince Valium á diskinum en í þessu til- felli gengur þetta vel upp. Önnur lög Prinsins mætti kannski kalla geimtónlist af gamla skólanum. Naumhyggjulegt tæknó, teppalagt með ýmiss konar rafiðnaðarsuði og fjarlægum ,,synth“-stefum. Jean Michell Jarré var konungur þess- arar háloftalegu tónlistarstefnu og gaf hann út sín bestu verk í byrjun 9. áratugarins þannig á tímakvarða raftónlistar er verið að seilast nokkuð langt aftur. Hér er jafnvel að finna ,,puff“-hljóðið fræga sem þótti alveg ómissandi (ég tengi það alltaf við geimför og geimbúninga) til að fanga dulúð óravíddanna. Gamaldags Nýjasta tækni og vís- indi músík þar sem reynt er að skapa tiltekið andrúmsloft frekar en að stuða hlustandann. Í heild er hlutur Prince Valium virkilega góður og sýnir hversu nauðsynlegt það er að grúska í verkum frum- kvöðlanna. Plastik hefur sína lagasyrpu á rólegu stefi sem silast áfram í rúm- lega 8 mínútur. Full einhæft og átakalaust og líkist á köflum lag- línu úr tölvuleik. Sömu sögu má segja um annað lagið sem hefði kannski sómt sér betur á einhverju nýaldarhljómverkinu og undir- strikar nafnið það; „The Alchemist of Orodruin“. Ekki nógu sterk byrjun en lögin sem fylgja bæta fyllilega úr skák; „hey!“ og „Sleep- ing in My Arms“ eru hið ljúfasta silikonpopp og bestu lög Plastik. Lokalögin tvö eru síðan af sama sauðahúsi og þau fyrstu en í heild sterkari og áhugaverðari tónsmíð- ar. Plastik nær ekki fyllilega að mynda sér sterka rödd á plötunni. Á köflum er tónlistin hverful og værðarleg svo hún minnir á af- dankaða slökunartónlist en annað er gott og afslappandi án þess að gera tilkall til jógastellinga. Hann nær því oftast að skapa gamaldags hljóðrými með tónlist sinni og sýn- ir, eins og Prince Valium, að fram- úrstefna er ekki alltaf framfarir. Tónlist Eldri tækni og vísindi Prince Valium/Plastik Prince Valium/Plastik Undirtónar Prince Valium er Þorsteinn Ólafsson og semur lög 1–6. Plastik er Aðalsteinn Guðmundsson og semur hann lög 7–12. Spilunartími: 68 mínútur. Undirtónar gefa út undir merkjum Stefnumóta. Heimir Snorrason Morgunblaðið/Golli Aðalsteinn Guðmundsson, sem stundum notast við listamanns- nafnið Plastik, á sex lög á þriðja Stefnumótadiskinum. Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.