Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 63
Sýnd kl. 8.
ÓHT. RÚV
HJ MBL
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 10. B. i. 12.
SV MBL
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 8 og 10.20.Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6 og 10.
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
„Stórskemmtileg kómedía“
H.Á.A. Kvikmyndir.com
Úr
smiðju
snillingsins
Luc Besson kemur
ein svalasta mynd ársins.
Zicmu, Tango, Rocket, Spider,
Weasel, Baseball & Sitting Bull eru
YAMAKAZI. Þeir klifra upp blokkir
og hoppa milli húsþaka eins og ekkert
sé... lögreglunni til mikils ama.
Ótrúleg áhættuatriði og
flott tónlist í bland við
háspennu-atburðarrás!
Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8.
Varúð!!
Klikkuð kærasta!
Sýnd kl. 10.
EINN leikstjóri þeirra ágætismynda,
sem boðið er uppá á Kvikmyndahátíð
í Reykjavík 2001, er dáður og virtur
meðal íslenskra sem erlendra bíó-
gesta. Þótt hann sé fyrst og fremst
þekktur leikari er hann einnig athygl-
isverður framleiðandi, handritshöf-
undur og leikstjóri en hefur einnig
fengist við að semja kvikmyndatón-
list. Þessi fjölhæfi listamaður er eng-
inn annar en Tim Robbins, afburða
fagmaður sem gerir allt af metnaði og
alúð sem hann kemur nálægt. Fyrir
bragðið hefur honum oft verið líkt við
ekki ómerkari mann en Orson Welles,
sem líkt og Robbins var jafnfær á
flestum sviðum.
Robbins fæddist í Kaliforníu 1958.
Faðir hans er þjóðlagasöngvarinn Gil
Robbins í The Highwaymen (á því
ekki langt að sækja tónlistargáfuna),
fjölskyldan flutti til Greenwich Vill-
age, listamannahverfisins í New
York, um miðjan, sjöunda áratuginn.
Þar kom Robbins hin ungi fram í
fyrsta sinn, söng dúett með föður sín-
um, baráttusönginn „Blekið er svart,
blaðið er hvítt“. 12 ára gamall gerðist
Robbins meðlimur í leikhúsfélags-
skap, þar sem hann var þátttakandi
næstu sjö árin. Eins var hann virkur í
leikhússtarfi á skólaárunum, bæði lék
í og leikstýrði skólaleikritum.
Eftir tveggja ára háskólanám í
New York hélt Robbins aftur á vest-
urströndina og settist í UCLA, Kali-
forníuháskóla í Los Angeles. Lauk
námi með láði árið 1981 og stofnaði
leiklistarhóp í anda „avant garde“,
með bekkjarfélögum sínum (m.a.
John Cusack), sem stóð fyrir upp-
færslum verka höfunda á borð við
Bertolt Brecht og Alfred Jarry.
Við tóku vanabundin reynsluár
smáhlutverka í sjónvarpsmyndum og
-þáttum. 1984 fékk Robbins að reyna
sig á léreftinu, í aukahlutverki í Toy
Soldiers og síðar á sama ári í aðal-
hlutverki unglingamyndarinnar Frat-
ernity Vacation. Aukahlutverkin
helltust yfir hann í vinsælum mynd-
um á borð við The Sure Thing og Top
Gun, að ekki sé minnst á Howard the
Duck …
Gegnumbrotið var frábær leikur í
einu aðalhlutverkanna í Bull Durham,
hafnaboltamynd Rons Sheltons (’88).
Náði feikivinsældum, Robbins
skyggði á stjörnuna, Kevin Costner,
sem hafði betur í baráttunni um ástir
aðalkvenpersónunnar, sem hin frá-
bæra og föngulega Susan Sarandon
túlkaði með tilþrifum. Hinn hávaxni
og stælti Robbins hló hinsvegar síðast
og best, því þau Sarandon hafa verið
óaðskiljanleg síðan, eignast börn og
buru, hjónabandið þykir einstaklega
farsælt, en Sarandon hefur 12 ár um-
fram bónda sinn.
Robbins hafði í mörgu að snúast á
tíunda áratugnum. Lék m.a. í skell-
inum Eric the Viking og Jacob’s Lad-
der (báðar ’90), sem þóttu mislukk-
aðar en hafa margt til síns ágætis. Sú
fyrrnefnda er ótrúlega skemmtileg
framan af og hin stórlega vanmetin í
yfirnáttúrlega geiranum. Því næst lá
leiðin í The Player (‘92), háðsádeilu
Roberts Altmans á skemmtanaiðnað-
inn, sem færði leikaranum verðlaun á
kvikmyndahátíðinni í Cannes. Sama
ár leikstýrði hann, skrifaði, lék titil-
hlutverkið og samdi tónlistina við Bob
Roberts, háðsádeilu í heimildarmynd-
arstíl um söngelskan, hægrisinnaðan
frambjóðanda til öldungadeildarinn-
ar.
Leiðir þeirra Altmans lágu aftur
saman við gerð Short Cuts (’93), þar
sem Robbins fór fremstur í stórum og
forvitnilegum leikarahópi. Á næsta
ári fór Robbins með aðalhlutverk í
hvorki fleiri né færri en fjórum mynd-
um, þar af þrem mislukkuðum; Pret-
a-Porter (e. Altman), gamanmyndinni
I.Q. og The Hudsucker Proxy Coen-
bræðra. Rúsínan í pylsuendanum var
frábær kvikmyndagerð Franks Dara-
bonts á stuttsögunni The Shawshank
Redemption eftir Stephen King. Sú
mynd sem hefur fært Robbins mest-
an hróður er dramað Dead Man
Walking (’95), sem færði honum Ósk-
arstilnefningu fyrir leikstjórn, Sean
Penn fyrir bestan leik í aðalhlutverki
karla, en Sarandon vann þau fyrir
bestan leik í aðalhlutverki kvenna.
Árekstrar
Eftir þriggja ára hlé frá kvik-
myndaleik fór Robbins með aðalhlut-
verkið á móti Martin Lawrence í
Nothing to Lose (’97), auðgleymdri
gamanmynd, þeir Lawrence áttu þó
góð augnablik saman. 1999 lauk
Robbins við The Cradle Will Rock,
sem verið er að sýna á kvikmyndahá-
tíðinni. Bregður sér í hlutverk leik-
stjóra, handritshöfundar og framleið-
anda, en myndin, sem hlotið hefur
góða dóma, er byggð á leikriti sem
enginn annar en Orson Welles svið-
setti fyrstur manna fyrir 60 árum.
Fjallar um árekstra lista og stjórn-
mála í gerjuninni í Bandaríkjunum á
fjórða áratugnum. The Cradle Will
Rock vakti talsverða athygli í Cannes
’99, en sama ár lék Robbins óvenju-
legt hlutverk í Arlington Road.
Vinstri sinnaðan hryðjuverkamann
sem siglir undir fölsku flaggi. Gríð-
arlega vanmetin mynd, þar sem
Robbins fer á kostum, ásamt Jeff
Bridges og Joan Cusack.
Á síðasta ári fengum við tækifæri
til að sjá Robbins í öðruvísi hlutverki í
gæðamyndinni High Fidelity, en um
þessar mundir er hann að leika í end-
urgerð Charade, sem þau Cary Grant
og Audrey Hepurn léku í á sínum
tíma. Jonathan (Silence of the
Lambs) Demme stjórnar nýju útgáf-
unni, sem ber nafnið The Truth About
Charlie, og verður frumsýnd 2002.
Robbins og Morgan Freeman sýna sannkall-
aðan stórleik í The Shawshank Redemption.
TIM ROBBINS
www.lordoftherings.net
Sýnd kl. 6 og 8.
„Stórskemmtileg kómedía“
H.Á.A. Kvikmyndir.com
MYNDIN SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM
STÓRKOSTLEG BARDAGA OG ÁHÆTTUATRIÐI
JUSTIN CHAMBERS TIM ROTH MENA SUVARI
Sýnd kl. 5.40 og 10.15. Ath ótextuð
Opnunarmynd
Myndin hefur hlotið lof áhorfenda og
gagnrýnenda víða um heim.
Myndin hlaut hið virta Gullna Ljón á
kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum nú í ár.
Sýnd kl. 8 og 10.15. Ath textuð
Besta leikkona í
aukahlutverki
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
THE SHAWSHANK REDEMPTION (1994)
Ein langbesta fangelsismynd sögunnar. Segir frá
skotheldri gildru sem bráðsnjall, saklaus dæmdur banka-
maður (Robbins), setur upp til að ná sér niðri á svívirðilegum
fangelsisstjóra (Bob Gunton) og tryggja sjálfum sér farsælt
líf og flótta úr múrnum. Óvenju pottþétt og útsmogin flétta
um snilli og þrautseigju (myndin gerist á nokkrum áratug-
um) og makleg málagjöld. Í söguna spinnast mannlegir þætt-
ir, einkum hrífandi saga af vináttu bankamannsins og lang-
dvalarfanga, (Morgan Freeman), og ýmsum skondnum
persónum bregður fyrir. Afburða vel leikin, frábærlega vel
skrifuð og leikstýrð af nýliðanum Frank Darabont. Robbins
og Freeman eru, mann langar að fullyrða, í hlutverkum ævi
sinna. Unun á að horfa. William Sadler, Clancy Brown, James
Whitmore og Gunton, eru allir ómissandi liðir í keðjunni.
DEAD MAN WALKING (1995 )
Sannsöguleg, magnþrungin mynd um nunnu sem
reynir að lina dóm í máli forherts sakamanns, síðan að fá
hann til að iðrast fyrir aftökuna. Vekur áhorfandann til um-
hugsunar um gildi dauðarefsingar í nútímaþjóðfélagi – án
þess að vera hlutdræg. Meistaralegur leikur Susan Sarandon
og Sean Penn, sem sannar hversu stórfenglegur leikari hann
er. Leikstjórn Tims Robbins í sama gæðaflokki. Ein áhrifa-
ríkasta mynd síðari ára. Meistaraverk.
SHORT CUTS (1993)
½ Besta, síðari tíma verk Roberts Altman, fjallar um
eina tvo tugi firrtra, Los Angelesbúa, í níu, mismunandi sög-
um sem tengjast á einhvern hátt gegnum persónurnar. At-
hygliverð mynd sem setti mark sitt á kvikmyndagerð 10 ára-
tugarins, tilraunir í þessa átt voru jafnvel gerðar hérlendis.
Altman dregur upp forvitnilega innsýn í bandarískt þjóðlíf í
hnotskurn. Persónurnar túlka þverskurð í mannlífsflórunni,
upp fyrir haus í sæinum hversdagslegu vandamálum. Hand-
ritið bæði gagnrýnið og fyndið og leikhópurinn magnaður.
Hann telur m.a. Frances McDormand, Jack Lemmon, Lily
Tomlin, Jennifer Jason Leigh, Robert Downey, Jr. og Made-
leine Stowe. Enginn betri en óvenjuvígalegur Robbins sem
illskeyttur og ómerkilegur, leðurgallaður, hjálmi prýddur
umferðarlögregluþjónn.
Tim Robbins ásamt spúsu
sinni, Susan Sarandon.
i i
i i, .
Sean Penn og Susan Sarandon í Dead Man
Walking. Robbins þótti fara á kostum í
handritsgerð og leikstjórn.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson