Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 68

Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. TRÚNAÐARRÁÐ flugumferðar- stjóra ákvað í gærkvöldi að aflýsa verkföllum sem áttu að koma til framkvæmda 16.–30. nóvember. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að forystumenn flugumferðarstjóra höfðu fengið þau skilaboð frá rík- isstjórninni að verkfall yrði stöðvað með lögum ef þeir aflýstu ekki verkfalli. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sagðist sannfærður um að stjórn flugumferðar á íslenska flug- stjórnarsvæðinu hefði flust úr landi ef til verkfalls hefði komið. Verkfall hefði ekki verið liðið og lagafrum- varp hefði komið fram í dag ef því hefði ekki verið aflýst. Davíð boðaði forystu Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra til fund- ar í gær en auk hans sátu fundinn samgönguráðherra, fjármálaráð- herra og landbúnaðarráðherra. „Við skýrðum frá því sjónarmiði ríkisstjórnarinnar að verkfall flug- umferðarstjóra væri algjörlega úr takti við allt sem væri að gerast í heiminum og það væri okkar skoð- un að þeim bæri að aflýsa verkfall- inu. Það væri ekki hægt að lama flugflota okkar eins og aðstæðurnar væru og ekki hægt að senda þau skilaboð til umheimsins frá Íslandi að hér vildu menn gera flug á þessu svæði enn erfiðara. Við sögðum að ef flugumferðarstjórum væri algjör- lega hulið við hvaða aðstæður flug í veröldinni byggi í dag hlyti Alþingi að grípa í taumana að undirlagi rík- isstjórnarinnar,“ sagði Davíð. „Ég hef á tilfinningunni að flug- umferðarstjórar geri sér ekki grein fyrir hversu erfitt getur verið að halda þeirri flugþjónustu sem við veitum og hefur gefið okkur miklar og góðar tekjur. Þeir virðast ekki hafa trúað því fram að þessu að þjónustunni verður ekki haldið hér á landi þegar sífelldar verkfallshót- anir eru hafðar í frammi. Eins og tæknin er orðin er hægt að stýra flugumferð á íslenska flugstjórnar- svæðinu hvar sem er í heiminum. Það væri þess vegna hægt að gera það frá Ástralíu.“ Davíð sagði að ef þetta verkfall hefði skollið á léki enginn vafi á því að þessi þjónusta hefði farið frá Ís- landi með öllum þeim afleiðingum sem það hefði í för með sér. Ætluðu að afnema verkfallsrétt Í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra flugumferðarstjóra í gær segir að á fundi með ráðherrum úr ríkis- stjórninni hafi komið fram ósk rík- isstjórnarinnar um að flugumferð- arstjórar aflýstu boðuðum verkföllum „ella myndi ríkisstjórnin beita sér fyrir lagasetningu til að afnema verkfallsrétt þeirra varan- lega. Félag íslenskra flugumferðar- stjóra harmar að stjórnvöld skuli vilja beita meirihluta sínum á Al- þingi til að afnema virkan samn- ingsrétt stéttarfélags í stað þess að ljúka kjaradeilunni við samninga- borðið. Flugumferðarstjórar vilja ekki gefa stjórnvöldum færi á að afnema grundvallarréttindi með valdi og velja því þann kost að aflýsa boð- uðum verkföllum“, segir í yfirlýs- ingu flugumferðarstjóra. Sættum okkur ekki við verkföll Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í gærkvöldi að hann fagnaði þessari niðurstöðu. Hún væri fengin í ljósi aðstæðna í flug- heiminum og kvaðst hann vona að hún skapaði svigrúm fyrir farsæla lausn í kjaradeilunni. „Við teljum að það sé ekki nokk- ur möguleiki fyrir okkur að sætta okkur við verkföll. Við þurfum að sinna skyldum okkar gagnvart samningi við Alþjóðaflugmálastofn- unina um flugþjónustuna. Staðan í fluginu í dag er almennt með þeim hætti að það gefur ekki mikið svig- rúm. Við höfðum ekki meiri tíma til að taka þessar ákvarðanir, hvorki stjórnvöld né flugumferðarstjórar, því að flugfélögin þurfa fyrirvara á því að fella niður flug,“ sagði Sturla. Flugumferðarstjórar aflýstu verkfallinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugumferðarstjórar komu saman í gærkvöldi til að ræða viðbrögð við fundi þeirra með forystumönnum ríkisstjórnarinnar. Verkfall ekki liðið við þessar aðstæður segir forsætisráðherra ar á Ísafirði. Hafsteinn segist hafa gert ráðstafanir strax sama dag og sent nýjar flaugar um borð í Ægi og látið kanna ástand flauganna í öðrum varðskipum. Að sögn Hafsteins hefði ekki þurft stærra skip með meiri togkraft en Ægi til að draga Örfirisey til hafnar. Hins vegar geti það komið fyrir að varðskipin séu ekki nægilega öflug til að draga stærri fraktskip og togara. „Það hefði ekki átt að vera vandamál með þetta skip, Ægir hefði átt að ráða við það. En vegna ennþá stærri skipa erum við ekki eins vel í stakk búnir og við vildum vera. Það verður líka að hafa í huga, eins og við höfum oft bent á, að fyrir um þrjátíu árum voru stærstu fragtskipin 3.300 tonn en í dag eru þau 20.000 tonn. Stærstu fiskiskipin hafa þrefaldast að stærð og þetta þarf allt að hafa í huga,“ seg- ir Hafsteinn. SKOTFLAUGAR sem notaðar eru til að koma línu á milli skipa brugðust ítrekað þegar varðskipið Ægir freist- aði þess að koma taug yfir í togarann Örfirisey á laugardag, þegar skipið hraktist stjórnlaust upp að Grænu- hlíð í mynni Jökulfjarða. Að sögn Hafsteins Hafsteinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, kemur þetta mjög á óvart og segir hann að rann- sakað verði ítarlega hvernig hver skotflaugin af annarri brást við björg- unaraðgerðirnar, enda sé um mjög al- varlegt mál að ræða. Hafsteinn sagði að flaugarnar hefðu ýmist splundrast eða flækt lín- una auk þess sem ein flaugin geigaði í erfiðum aðstæðum. Loks þegar tókst að koma taug á milli skipanna misstu skipverjar um borð í Örfirisey línuna úr spilinu vegna veðurofsans, að sögn Símons Jónssonar, skipstjóra Örfir- iseyjar. Það voru síðan skipverjar á Snorra Sturlusyni sem tókst að koma taug yfir í Örfirisey og draga til hafn- Skotflaugar í Ægi brugðust ítrekað við björgun Örfiriseyjar Flaugarnar sprungu eða flæktu línuna  Björgunarbúningar/6 UNGUM stjórnanda 25 tonna hjólaskóflu tókst að bjarga sér með því að stökkva út úr vinnu- vélinni augnabliki áður en hún steyptist niður þverhnípi og end- aði niðri í fjöru um 120 metrum neðar. Atvikið átti sér stað á veg- inum í Kambanesskriðum, á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur, um kl. 11 í gærmorgun. Lög- reglan á Fáskrúðsfirði sagði í gær að á flóði sæist eingöngu í topp vélarinnar niðri í fjörunni en hún væri annars í kafi og erf- itt yrði að ná henni upp. Stjórnandi vélarinnar, Þor- steinn Ragnar Leifsson, tvítugur starfsmaður Arnarfells, var að störfum við framkvæmdir á veg- inum ásamt starfsfélögum sínum þegar óhappið varð og hvílist nú samkvæmt læknisráði á Breið- dalsvík en þurfti ekki að fara á slysadeild. Þorsteinn var að moka upp kant á veginum og ætlaði að keyra frá kantinum, þegar drapst á vélinni með þeim afleiðingum að hún fór að renna stjórnlaust niður um 40 metra langa brekku neðan við veginn. „Ég reyndi eins og ég gat að koma vélinni í gang aftur en það gekk ekki svo á síð- ustu stundu stökk ég út og lenti í grjótskriðu. Ég rúllaði örlítið nið- ur og hlífði höfðinu með hönd- unum,“ sagði hann. Þá var vélin aðeins nokkrum metrum frá brekkubrúninni og fór fram af augnabliki síðar. Þessu fylgir mikil geðshræring „Það er varla hægt að lýsa því hvernig er að lenda í svona lög- uðu. Þessu fylgir mikil geðshrær- ing og maður er guðs lifandi feg- inn að hafa sloppið.“ Þorsteinn hlaut mar á mjöðm eftir harða lendinguna en annars er ástand hans gott. „Ég bjóst við að slasast meira en það má segja að það sjái nán- ast ekkert á mér og það þykir mörgum ótrúlegt.“ „Hlífði höfðinu með hönd- unum“ Mynd/Hjalti Stefánsson FJÓRÐA haustið í röð hefur haförn sést austan við Vík í Mýrdal. Ekki er ljóst hvort þetta er sami fuglinn en að minnsta kosti kemur hann á sömu staðina ár eftir ár. Fuglinn er með ljósar fjaðrir í stélinu sem hann hefur ekki haft í fyrri heimsóknum. Í góða veðrinu á sunnudag virtist hann vera að reyna að veiða fisk í Kerlingardals- ánni en fékk ekki frið fyrir tveimur heimaríkum hröfnum sem réðust á hann hvað eftir annað þangað til hann flúði. Töluvert hefur verið um alls kon- ar óvenjulega fugla á þessum slóð- um í haust, t.d. hefur hegri sótt mikið í fiskitjarnir sem eru við bæina austan við Vík í Mýrdal. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Örninn er mættur í Mýrdalinn Handtekin eftir ölvunarakstur MJÖG ölvuð kona, sem var ökumaður jeppa, var handtekin á Reykjanesbraut síðdegis í gær eftir að hafa ekið á bifreið með þeim afleiðingum að tvö börn og einn fullorðinn meidd- ust og urðu að leita sér að- hlynningar á slysadeild. Þá hafði ökumaður jeppans þegar skemmt þrjár kyrrstæð- ar bifreiðir í Mjódd með ölvun- arakstri sínum. Konan ók af vettvangi út Álfabakka að Reykjanesbraut þar sem hún endaði för sína með því að aka aftan á fjórðu bifreiðina sem fólkið var í. Hún var kyrr á vettvangi uns lögreglan kom og færði hana á lögreglustöð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.