Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 1
6. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 9. JANÚAR 2002 BANDARÍSKI öldungadeildarþing- maðurinn Joseph Lieberman kvaðst í gær telja að stefnuræða, sem Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hyggst flytja síðar í vikunni, myndi draga úr spennunni milli Indlands og Pakist- ans og marka þáttaskil í deilu ríkjanna um Kasmír. Lieberman, sem var varaforseta- efni demókrata í síðustu forsetakosn- ingum í Bandaríkjunum, kvaðst telja að ræða Musharrafs myndi hafa „úr- slitaþýðingu“ og koma í veg fyrir nýtt stríð milli Indlands og Pakistans vegna deilunnar um Kasmír. „Hann er að undirbúa ávarp til pakistönsku þjóðarinnar sem mun breyta sögu landsins,“ sagði Lieberman eftir við- ræður sendinefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings við Musharraf í Ísl- amabad. „Ég er sérstaklega vongóð- ur um að bæði ríkin flytji hersveitir frá landamærunum.“ Indverjar og Pakistanar hafa sent tugi þúsunda hermanna að landa- mærum ríkjanna og Lieberman sagði deiluna mikið áhyggjuefni. „Meðan hersveitirnar eru þarna og spennan er svona mikil er alltaf hætta á slysi, eða að einhverjir sem vilja kynda undir spennunni milli þessara ríkja – hryðjuverkamenn – grípi til að- gerða.“ Lieberman bætti við að Musharraf væri að undirbúa áætlun um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi sem myndu ekki aðeins draga úr spenn- unni sem nú ríkir við landamærin heldur einnig „marka þáttaskil í deil- unni um Kasmír“ sem hefur leitt til tveggja styrjalda milli ríkjanna. Ann- ar bandarískur þingmaður, repúblik- aninn Fred Thompson, var ekki eins bjartsýnn og Lieberman. „Ég tel að ekki sé til nein töfralausn. En við er- um vongóð um að spennan minnki.“ Indversk stjórnvöld hafa ekki enn svarað yfirlýsingu Musharrafs frá því í fyrrakvöld um að Pakistanar væru algerlega andvígir hvers konar hryðjuverkum. Indverjar segja Pak- istana ekki hafa gert nóg til að hindra hryðjuverkastarfsemi og vilja ekki efna til friðarviðræðna nema Pakist- anar handtaki félaga í herskáum hreyfingum í Pakistan sem taldar eru hafa staðið að blóðugri árás á þing- húsið í Nýju-Delhí 13. des. AP Ungir Indverjar í borginni Jalandhar bíða eftir læknisskoðun til að geta skráð sig í indverska herinn. Vænta stefnu- breytingar hjá Musharraf Íslamabad, Nýju-Delhí. AFP, AP. Ham- ingjan er dýr London. AP. ÞAÐ gamla orðtæki að ham- ingjan fáist ekki keypt fyrir peninga er ekki á rökum reist – hins vegar þarf talsvert mikið af þeim eigi maður að upplifa sælu og svima. Þetta kemur fram í niður- stöðum nýrrar rannsóknar fræðimanna við Warwick-há- skólann í Bretlandi. Þykir rannsóknin, sem stóð samtals í um áratug, sýna að lífsviðhorf fólks getur breyst mjög til batnaðar hlotnist því óvæntir fjármunir. Kom skýrt fram að þeir sem höfðu unnið fjármuni í happdrætti, eða fengu drjúgan aur í arf, urðu mun hamingju- samari en áður og að andleg heilsa þeirra tók stakkaskipt- um. Niðurstaða fræðimannanna, sem fengu níu þúsund breskar fjölskyldur til að taka þátt í rannsókn sinni, var hins vegar sú að til að umbreyta „venju- legri manneskju í afar ham- ingjusaman einstakling“ þyrfti til jafnvirði einnar milljónar breskra punda, eða um 150 milljónir íslenskar krónur. Telst hamingjan því föl – en rándýr. Fræðimennirnir taka aftur á móti fram í niðurstöðum sínum að menn þurfi ekki að örvænta þó að þeir vaði ekki í seðlum – farsælt hjónaband og góð heilsa sé enn ávísun á hamingju. EVRÓPUSAMBANDIÐ krefst þess að ríkisstjórn Argentínu leggi fram áreiðanlega og raunhæfa áætlun um það hvernig unninn verði bugur á efnahagskreppunni í landinu, sagði Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, sem nú er í forsæti í Evr- ópusambandinu (ESB), í gær. Aznar sagði á fréttamannafundi, að krafist væri „tafarlausra úrbóta.“ Til þess að slíkt væri mögulegt yrði að leggja fram áætlun sem arg- entínska þjóðin og alþjóðlegar stofn- anir teldu áreiðanlega og raunhæfa. Aznar bætti því við að slík áætlun hlyti að verða „ávöxtur samræðna“ við aðra aðila og alþjóðastofnanir. „Þetta er spurning um grundvallar- traust,“ sagði Aznar. Spánverjar telja að Argentínu- stjórn hafi enn sem komið er ekki að- hafst nóg til þess að sigrast á efna- hagskreppunni. Juan Jose Lucas, ráðherra í spænsku stjórninni, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að Argent- ínumenn yrðu að „beita sig efna- hagslegum sjálfsaga,“ og að þær ráð- stafanir sem þegar hefðu verið gerðar væru ófullnægjandi og ein- kenndust af lýðskrumi. Lucas sagði að spænska stjórnin fylgdist vand- lega með þróun mála í Argentínu í ljósi sögulegra tengsla ríkjanna, sem í framtíðinni bæri að styrkja og verja. Hann lagði áherslu á nauðsyn þess að gætt væri hagsmuna er- lendra fyrirtækja og einstaklinga er störfuðu í Argentínu. Eduardo Duhalde var kjörinn for- seti Argentínu á nýársdag og varð þá fimmti forseti landsins á hálfum mánuði. Gríðarlegar efnahagsþreng- ingar þjaka Argentínu og fer fátækt þar vaxandi. Erlendar skuldir eru að sliga ríkissjóð og hefur stjórn Duhaldes gripið til þess ráðs að af- nema tengingu argentínska pesóans við gengi Bandaríkjadollars og fella pesóann. Óvissa ríkti meðal Argentínu- manna í gær, markaðir voru lokaðir og áhrif efnahagsráðstafananna voru ekki að fullu komin fram. Gengi pesóans var fellt um þriðjung og hætta er talin á að það leiði til verð- bólgu, er dragi stórlega úr kaup- mætti. Tenging pesóans við dollar- ann fyrir tíu árum var gerð til þess að stemma stigu við óðaverðbólgu. Allt hefur verið með kyrrum kjör- um síðan gengisfellingin var til- kynnt, en óttast er að óeirðir kunni enn að brjótast út. Í lok síðasta árs létu 30 manns lífið í óeirðum þegar almenningur mótmælti stöðu efna- hagsmála og aðgerðarleysi stjórn- valda. Spánverjar fylgjast vandlega með þróuninni í Argentínu Segja aðgerðir stjórnar Duhaldes ófullnægjandi Madríd, Buenos Aires. AFP, AP. Reuters Fátæk kona með barn sitt betlar á Flórídastræti í Buenos Aires. ÞRÍR fyrrum ráðherrar talibana- stjórnarinnar í Afganistan voru látnir lausir í gær eftir að hafa gefið sig fram við fulltrúa bráðabirgðastjórn- arinnar nýju. Meðal þremenninganna er fyrrum yfirmaður dómsmála, Nur- uddin Turabi. Mun Turabi hafa geng- ið mjög hart fram í því að reglum tal- ibana væri fylgt fram. Auk Turabis gáfu múllann Obaid- ullah, fyrrum varnarmálaráðherra talibana, og múllann Haqqani, fyrrum iðnaðarráðherra, sig einnig fram við afgönsk stjórnvöld. Fulltrúar bráða- birgðastjórnarinnar sögðu mennina hafa verið leysta úr haldi samkvæmt samkomulagi um að fyrrverandi ráðamenn er gefi sig sjálfviljugir fram skuli njóta verndar. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar sögðu í gær að þetta væru einmitt þeir menn sem bandarísk yfirvöld vildu draga fyrir dómstóla, „og við væntum þess skilyrðislaust að þeir verði afhentir,“ sagði forseti banda- ríska herráðsins. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, heimsótti Afganistan óvænt á mánudagskvöld og sagði þá að menn hefðu fullan hug á að leggja Afgönum lið og stuðla að uppbyggingu í land- inu. Fólk sagt lifa á grasi Abid Hassan, starfandi bankastjóri Alþjóðabankans í Washington, skaut á það í gær að leggja þyrfti til 15 millj- arða dollara í uppbyggingarstarfið í Afganistan ef vel ætti að fara. Verður haldin ráðstefna í Tókýó í Japan síðar í þessum mánuði þar sem reynt verð- ur að tryggja fjárstuðning við Afgan- istan. Fullyrtu fulltrúar hjálparstofnana í gær að hungursneyð blasti við tugum þúsunda Afgana og sögðu að margir íbúar afskekktari byggða drægju nú fram lífið með því að borða gras. Þrír háttsettir talibanar látnir lausir úr haldi Kandahar, Kabúl, Peshawar í Pakistan. AFP.  Múllarnir/21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.