Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jenný LovísaEinarsdóttir fæddist á Grund í Stafneshverfi 9. maí 1912. Hún lést á Garðvangi í Garði 2. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Jónsson frá Ystaskála á Rangárvöllum, d. 1932, og Anna Soffía Jósafatsdóttir frá Litlu-Ásgeirsá í Víði- dal í Húnavatns- sýslu, d. 1956. Systk- ini hennar eru Þor- björg Ágústa, Jóhann Kristinn og Jóhanna Kristín, öll látin. Fyrri maður Jennýjar var Einar Haukur Jónsson bifreiðarstjóri, f. 2.10. 1906, d. 23.3. 1935. Börn þeirra eru: 1) Jóna Margrét, f. 21.10. 1930, d. 11.12. 1931. 2) Anna Mar- grét, f. 28.4. 1932, gift Lárusi A. Guðbrandssyni, f. 22.4. 1934. Börn þeirra eru: a) Jenný Lovísa, f. 13.9. 1953, gift Smára Friðjónssyni, f. 13.6. 1950, börn þeirra eru Anna Margrét, f. 1978, sambýlismaður Benedikt R. Guðmundsson, f. 1972, dóttir þeirra er Jenný Lovísa, f. 2001, Arnar Þór, f. 1982, og Aron Már, f. 1984. b) Guðbrand- ur Arnar, f. 26.11. 1954, kvæntur Bryndísi Margréti Sigurðardótt- ur, f. 8.7. 1959. Börn þeirra eru Sigríður Gerður, f. 1978, Sandra Sif, f. 1989, og Birta Sól, f. 1994. c) Árni Þór, f. 1.6. 1958, kvæntur Stefaníu Gunnarsdóttur, f. 31.10. 1971. Börn þeirra eru Helena Ósk, f. 1996, og Andri Þór, f. 2001. Dóttir Árna er Eva Kristín, f. 1988. d) Hulda Dagmar, f. 22.1. 1965, sambýlismaður Aðalsteinn Hallbjörnsson, f. 28.9. 1976. Dóttir hennar og fyrrverandi eiginmanns hennar, Einars Ásbjörns Ólafsson- ar, er Emma Hanna, f. 1986, og dóttir hennar og Kristmunds Car- ter er Aníta, f. 1995. 3) Einarína Sigurveig, f. 29.4. 1934, gift Helga Guðleifssyni, f. 24.9. 1933. Börn þeirra eru: a) Einar Haukur, f. 10.6. 1954, kvæntur Sigríði Magn- úsdóttur, f. 2.3. 1958. Synir þeirra eru Magnús Helgi, f. 1996, og Sig- urjón Veigar, f. 1997. Sonur Sig- ríðar er Ársæll Páll Óskarsson, f. 1990. b) Þorbjörg Ágústa, f. 9.10. 1955. Fyrrverandi eiginmaður hennar er Vigfús Heiðar Guð- mundsson, f. 4.6. 1952. Börn þeirra eru Guðmundur Freyr, f. 3) Inga Eygló, f. 27.12. 1938, sam- býlismaður Fred Lindeman. Fyrr- verandi eiginmaður hennar er Jan Erik Mustad, sonur þeirra er Arn- stein, f. 1961. 4) Þorsteinn, f. 16.9. 1940, kvæntur Guðrúnu Ólöfu Guðjónsdóttur, f. 2.9. 1941. Börn þeirra eru: a) Sólveig, f. 29.7. 1961, gift Gunnari S. Olsen, f. 23.4. 1953. Dóttir þeirra er Guðrún Ólöf, f. 1992. Sonur Sólveigar er Þor- steinn Árnason Surmeli, f. 1985. b) Jenný Lovísa, f. 3.11. 1964, gift Jó- hanni Torfa Steinsson, f. 9.7. 1954. Börn þeirra eru Jórunn, f. 1989, og Jóhann Örn, f. 1993. c) Irmý Rós, f. 27.5. 1971, gift Jóni Gauta Dag- bjartssyni, f. 9.3. 1971. Synir þeirra eru Sigurbjörn Elí, f. 1994, og Teitur Leon, f. 2000. Sonur Guðrúnar Ólafar er Þórður Örn Karlsson, f. 2.8. 1959, d. 28.10. 1991. Kona hans er Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 12.6. 1958. Börn þeirra eru Hafþór Örn, f. 1978, og Heiðrún Rós, 1985. 5) Brynja, f. 17. október 1944, gift Helga Hólm, f. 18.3. 1941. Börn þeirra eru: a) Hrannar, f. 17.4. 1964, kvæntur Hallfríði Bene- diktsdóttur f. 18.10. 1966. Börn þeirra eru Helena Brynja, f. 1990, og Helgi Benedikt, f. 1998. b) Hlín, f. 10.10. 1966 gift Guðbirni Árna- syni, f. 1.3. 1960. Börn þeirra eru Helga, f. 1992, og Hugi, f. 1995. c) Hilma, f. 19.5. 1972 gift Hauki Skúlasyni, f. 19.1. 1974. Synir þeirra eru Hlynur, f. 1997, og Skúli, f. 2001. d) Hrund, f. 4.5. 1975. 6) Guðrún, f. 26. október 1948, gift Ragnari Gerald Ragn- arssyni, f. 6.4. 1948. Börn þeirra eru Ragnheiður Guðný, f. 22.9. 1969, gift Alberti Óskarssyni, f. 13.6. 1968. Synir þeirra eru Ragn- ar Gerald, f. 1993, og Aron Ingi, f. 1995. e) Inga Birna, f. 9.3. 1972, sambýlismaður Dagur Freyr Inga- son, f. 13.2. 1972. Dóttir þeirra er Árný Eik, f. 2001. Dóttir Ingu Birnu er Guðrún Kara Valgarðs- dóttir, f. 1997. f) Árni, f. 27.8. 1978. g) Einar, f. 9.4. 1980. 7) Árni, f. 30.8. 1957, kvæntur Erlu Ó. Mel- steð, f. 1.7. 1958. Dóttir Árna og Þórdísar Gunnarsdóttur er Jenný Lovísa, f. 1979. Fyrstu búskaparár sín bjó Jenný í Hvammi í Sandgerði. Árið 1942 flutti hún til Keflavíkur og bjó lengst af á Suðurgötu 16. Jenný gegndi húsmóðurhlutverkinu mestan part starfsævi sinnar en þegar um fór að hægjast starfaði hún við fiskvinnslu og seinna meir við ræstingar. Afkomendur Jenn- ýjar eru nú 92. Útför Jennýjar Lovísu fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 1978, Sólbjörg Lauf- ey, f. 1984, og Berg- þóra Sif, f. 1989. c) Ólöf Sveinhildur, f. 28.2. 1957, gift Leifi Harðarsyni, f. 25.3. 1957. Börn þeirra eru Ragnheiður, f. 1988, Sveinn Smári, f. 1990, og Sólveig, f. 1995. Sonur Sveinhildar er Helgi Þór Einarsson, f. 1976. Sonur hans og Kristínar Kristjáns- dóttur er Benedikt Jökull, f. 2000. d) Vil- hjálmur, f. 21.5. 1962, kvæntur Hönnu Stefánsdóttur, f. 8.1. 1964. Sonur þeirra er Einar Andri, f. 1988. 4) Haukur, f. 16. ágúst 1935. Fyrrverandi eigin- kona hans er Anney Alfa Jóhanns- dóttir, f. 29.1. 1949. Börn þeirra eru: a) Jóna Margrét, f. 13.12. 1977, sambýlismaður Svavar Hjartarson. Sonur þeirra er Júlíus Karl, f. 1994. b) Alda Ósk, f. 26.12.1979, sambýlismaður Kol- beinn Gísli Bergsteinsson, f. 16.12. 1976. Börn þeirra eru Jakob Freyr, f. 1996, Karen Alfa Rut, f. 1998, og Rakel Andrea Dögg, f. 2001. c) Einar Haukur, f. 4.2. 1981. Seinni maður Jennýjar var Árni Þorsteinsson skipstjóri, f. í Gerð- um í Garði 14. nóvember 1908, d. 10. mars 1986. Börn þeirra eru: 1) Guðný Helga, f. 1.11. 1937, gift Höskuldi Goða Karlssyni, f. 7.9. 1933. Dætur þeirra eru: a) Þor- björg Ágústa, f. 18.3. 1958, sam- býlismaður Guðmundur Rúnar Gunnarsson f. 22.1. 1961. Börn þeirra eru Hallveig Hörn, f. 1980, sambýlismaður Vigfús E. Vig- fússson, f. 12.2. 1981, dóttir þeirra er Guðrún, f. 2001, Höskuldur Goði f. 1987, og Hjörtur f. 1989. b) Ásdís Þrá, f. 29.8. 1959, gift Ás- mundi Magnússyni, f. 7.1. 1963. Dóttir þeirra er Katrín, f. 1992. Dóttir Ásdísar er Guðný Helga Herbertsdóttir, f. 1978, gift Einari Ágústi Víðissyni, f. 1973. c) Hall- veig Björk, f. 1.3. 1965. Fyrrver- andi eiginmaður hennar er Steinn Agnar Pétursson, f. 19.7. 1963. Börn þeirra eru Hlíf, f. 1987, Pétur Geir, f. 1993, og Vigfús Karl, f. 1994. d) Halldís Hörn, f. 5.10. 1967, sambýlismaður Henrik Holm, f. 27.5. 1968. Dóttir Halldísar og Þorgríms Guðmundssonar er Jón- ína Björk, f. 1995. 2) Þorbjörg Ágústa, f. 1.11. 1937, d. 10.4. 1955. Hinn 2. janúar sl. andaðist Jenný Lovísa Einarsdóttir, tengdamóðir mín og vinkona, á dvalarheimilinu Garðvangi í Garði. Jenný var á ní- tugasta aldursári og ég trúi því að hún hafi dáið södd lífdaga. Langar mig hér að minnast hennar nokkr- um orðum því í hartnær fjörutíu ár hafa leiðir okkar legið þétt saman. Í gömlum málshætti gyðinga segir svohljóðandi: Guð getur ekki verið alls staðar og þess vegna skapaði hann mæðurnar. Jenný Lovísa Ein- arsdóttir var svo sannarlega móðir allt fram í andlátið og hún tók hlut- verk sitt alvarlega og bar hag barna sinna ávallt fyrir brjósti. Þótt það hafi ekki verið hennar stíll að bera tilfinningar sínar á torg var ávallt gott að leita til hennar og það sást einna best á því hversu góður vinur hún varð sínum fjöl- mörgu barnabörnum. Þeirra sökn- uður er því mikill við fráfall henn- ar. Fyrsta sameiginlega heimili okkar Brynju hér í Keflavík var hjá þeim Jenný og Árna í kjall- aranum á Suðurgötu 16 og það var ákaflega gott að hefja búskap á þeim stað þar sem svo margir aðrir áttu öruggt skjól bæði fyrr og síð- ar. Eðli málsins samkvæmt eign- aðist Jenný marga tengdasyni og þjóðsagan um vondu tengdamóð- urina átti svo sannarlega ekki við á þeim bæ. Hún var einstaklega lag- in við að leyfa okkur að njóta okkar og með árunum fengum við hver og einn ákveðin hlutverk á heimili hennar. Við fundum því fljótt að við vorum ávallt velkomnir á Suður- götu 16. Jenný Lovísa var fædd á Grund í Sandgerði 9. maí árið 1912 og voru foreldrar hennar Einar Jónsson og Anna Soffía Jósafatsdóttir. Æska hennar var í litlu frábrugðin æsku ungra kvenna á þeim tíma. Skóla- gangan var stutt og fljótt tóku við hin algengu störf þess tíma. Það var til þess tekið hvað Jenný var lífsglöð og dugleg ung kona. Þetta voru uppgangstímar í Sandgerði og þangað sóttu vertíðarmenn hvaðan- æva af landinu. Jenný starfaði sem ráðskona fyrir áhafnir og var það bæði erfitt og ábyrgðarmikið starf. Hver áhöfn hafði sameiginlega vist- arveru til afnota og þar var bæði eldað, matast og sofið. 5–6 manns voru á sjó og annað eins í landi. Á hendi ráðskonunnar var matseld þegar allir voru í landi, það þurfti að útbúa kost þeirra sem reru og það þurfti að sjá um þrif og þvotta. Jenný Lovísa kynntist ung fyrri manni sínum, Einari Jónssyni bif- reiðastjóra, og áttu þau saman fjögur börn. Einar féll frá áður en yngsta barnið fæddist eða í mars 1935. Nokkrum árum síðar giftist Jenný síðari manni sínum, Árna Þorsteinssyni skiptjóra. Þau stofn- uðu fyrst heimili í Sandgerði en fluttu til Keflavíkur árið 1942. Þau eignuðust saman sjö börn. Þótt leiða megi að því líkum að oft hafi líf Jennýjar verið erfitt með allan þennan barnaskara lýsir það vel skapferli hennar að aldrei ræddi hún um líf sitt á þeim nótum. Það eitt er víst að hún hefur skilað hlutverki sínu vel. Við kveðjum hana í dag með bestu þökkum til hennar fyrir allt sem hún gaf sam- ferðamönnum sínum á lífsleiðinni. Helgi Hólm. Þá er björkin endanlega fallin. Blöðin féllu þegar í haust eins og sjálf náttúran segir til um. Elskuleg tengdamóðir mín Jenný Lovísa Einarsdóttir kvaddi þennan heim södd lífdaga í stríði við elli kerlingu á nítugasta aldursári. Æskuheimili hennar var að Grund í Miðneshreppi. Foreldrar hennar voru langt að komnir. Móð- irin frá Litlu-Ásgeirsá í V-Húna- vatnssýslu og faðirinn frá Ysta- Skála undan Eyjafjöllum. Fjöl- skyldan varð brátt sex manna því foreldrarnir eignuðust þrjár dætur og einn son. Systurnar Þorbjörg – Jóhanna – Jenný ásamt foreldrum sínum urðu þó snemma að upplifa sorgina er bróðir þeirra og sonur Jóhann Kristinn dó aðeins 12 ára gamall. Ekki er ólíklegt að bróðurmiss- irinn hafi tengt þær systur þeim einstöku systraböndum og samhug til allra verka sem þær ræktuðu með sér meðan líf þeirra entist. Æskuárin voru fljót að líða við hafið þar sem allir kepptust við að draga björg í bú. Horft var eftir bátunum til hafs og beðið í voninni að þeir skiluðu sér allir í höfn. Ung giftist Jenný, Einari Hauki Jónssyni og eignuðust þau fjögur börn, en urðu fyrir því að missa sitt fyrsta barn tæplega 5 mánaða og 5 árum síðar féll eiginmaðurinn frá. Eftir sat sjómannsekkjan unga með þrjú börn á framfæri. Tengdamóðir mín átti þá eins og ætíð trú sína á ljósið og vonina. Að horfa fram en ekki aftur. Lífið var henni hvatning til frekari dáða, umfram allt fyrir börn sín. Þáttaskil urðu í lífi Jennýjar er ástir tókust með ungum skipstjórn- anda og sjósóknara Árna Þor- steinssyni úr Garði. Þau hasla sér völl í eigin húsi, Hvammi í Sand- gerði, sem þau síðan flytja til Keflavíkur að Suðurgötu 16 árið 1942. Á tímabilinu 1937 – 57 eignast þau sjö börn en þar barði sorg að dyrum, enn einu sinni, er tvíbura- systir konu minnar fellur frá 16 ára gömul. Fjölskyldan stóra horfir til ljóssins og vonarinnar, treystir og trúir á Guð sinn. Á meðan Árni dregur björg í bú stendur móðirin ein með sinn stóra barnahóp að fæða, klæða og annast uppeldisskyldur heimilisins. Fjar- vistir eiginmannsins reyna á, ekki síður erfiðar fyrir sjómanninn en konu hans og börn. Þannig hefur líf sjómannsfjölskyldunnar verið og mun verða svo lengi sem land okk- ar verður byggt. Enn horfir fjölskyldan til ljóss- ins, vonarinnar og kærleikans er fjölskyldufaðirinn fellur frá 10. mars 1986. Í nær hálfa öld bjó tengdamóðir mín á Suðurgötu 16, sem stundum var líkust umferðarmiðstöð, þar sem börnin, vinir þeirra, tengda- synirnir og dæturnar, barnabörnin og barnabarnabörnin, gamlir sveit- ungar og frændalið úr Sandgerði og Garðinum og margir sérstakir persónuleikar komu og áttu sam- komu- og griðastað. En að því kom að Suðurgatan var kvödd með trega og Jenný flutti um set að Aðalgötu 5, Kefla- vík. Þar leið henni vel í um tíu ár í umsjón barna sinna er búsett eru í Keflavík. Ekki vænti ég að á nokk- urn sé hallað þó ég segi að þar hafi átt stóran hlut Guðrún dóttir henn- ar og eiginmaður hennar Ragnar. Fyrir það er fjölskylda mín ævar- andi þakklát. Í stormum vetrar og vors 2000– 2001 var sem einmanaleikinn sækti að tengdamóður minni og hugurinn stæði nær börnunum er þau voru í umsjá hennar. Það dró því nær þeim tíma er höggvið var á sjálf- stæði hennar í orði og verki. Hún flutti að Garðvangi, heimili fyrir aldraða, og var þar í fullkomri um- sjón annarra, þar til yfir lauk 2. janúar síðastliðinn. Tengdamóðir mín var gædd eft- irsóknarverðum mannkostum. Hún elskaði ætíð heimili sitt. Hún vildi gjarnan fá að ráða sér og sínum og troða ekki öðrum um tær. Tryggð og hollustu hennar við fjölskyld- una, vini og frændalið, var við- brugðið. Kjarkurinn í baráttu við örlögin virtist ekki kalla fram tár eða sjálfsvorkun og aldrei kvartaði hún. Þolinmæðin og styrkurinn – eins tíminn sjálfur –sem minnti á djúpt og ægiblátt hafið sem hún hafði fyrir augum sér alla tíð. Meðan björkin stóð með fagur- limaða krónu og ræturnar fastar í íslenskri mold, stóðu 92 afkomend- ur í skjóli íslenskrar hvunndags- hetju. Fjölskylda mín biður algóðan Guð að gefa henni frið og sælu í ríki sínu um leið og samfylgd er þökkuð af alhug. Höskuldur Goði og fjölskylda. „Dáinn, horfinn“ – harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En eg veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. Þessar ljóðlínur Jónasar Hall- grímssonar sem hann orti til látins vinar síns komu upp í hugann þeg- ar við frænkurnar settumst niður til þess að skrifa minningarorð um ástkæra ömmu okkar og vinkonu sem er nú látin á nítugasta aldurs- ári. Amma lifði tvo eiginmenn, tvö börn af ellefu og átti orðið 92 af- komendur við andlát sitt. Hún var fastur punktur í tilverunni og verð- ur erfitt að ímynda sér framtíðina án hennar en við höfum minning- arnar um ótrúlega konu og enga venjulega ömmu. Að fara til ömmu var sem að skreppa í heimsókn til vinkonu sinnar og skipti 60 ára ald- ursmunurinn engu. Hún var skörp, skelegg og skemmtileg og lá ekki á skoðunum sínum. Hún var tann- hvöss á tíðum svo að ókunnugum stóð stundum ekki á sama. En það var grunnt á yfirborðinu og undir niðri kraumaði húmorinn og brosið fram á síðustu stundir. Við frænkurnar erum fæddar sama árið og höfum fylgt henni ömmu í tæp þrjátíu ár. Þær eru óteljandi stundirnar sem við áttum saman og eigum að minnast. Það var skroppið til ömmu í frímínútum eða eftir skóla þegar við bjuggum í Keflavík, eftir vinnu eða um helgar þegar við vorum fluttar til Reykja- víkur, og með börnin okkar þegar þau voru komin í heiminn. Önnur okkar bjó hjá ömmu í eitt ár um fermingaraldurinn og hin hóf bú- skap sinn í kjallaranum hjá ömmu eins og fleiri barnabörn hafa gert. Oftar en ekki var setið við eldhús- borðið og spjallað, stundum tuðað og þrætt, en alltaf brosað. Öll sam- skipti sönn og hreinskilin, vænt- umþykjan áþreifanleg þótt væmn- inni væri svosem aldrei fyrir að fara. Við tengdumst henni á einstæð- an hátt, hún gaf okkur allan sinn tíma og oft var eins og hún skildi okkur betur en foreldrar okkar. Aldrei ræðum við frænkurnar ömmu okkar nema með hlýju, og bros á vör og alltaf verið sammála um að nákvæmlega svona ömmur viljum við vera í framtíðinni. Elsku amma, við viljum þakka fyrir samfylgdina, það eru forrétt- indi að hafa fengið að ganga með þér í gegnum lífsins þrautir. Þú kenndir okkur margt og þeim lær- dómi munum við búa að og koma áfram til barnanna okkar. Dauðinn er hluti af lífinu og amma er nú sjálfsagt hvíldinni feg- in. Hún var heilsuhraust fram á síðustu ár og síðustu mánuði hrak- aði henni hratt. Hún átti hægt andlát í faðmi fjölskyldu sinnar þann 2. janúar sl. að Garðvangi í Garði. Við syrgjum kæra ömmu okkar en minnumst hennar með gleði í hjarta. Við þökkum samfylgdina og stöndum ríkari á eftir. Hilma og Inga Birna. Elsku amma, þú skipaðir alltaf stóran sess í lífi okkar systkinanna, það verður því tómlegra hér án þín. Þær voru ófáar samverustund- irnar á Suðurgötu 16 og seinna á Aðalgötunni. Þú áttir alltaf til brjóstsykur eða eitthvert annað góðgæti og oft sátum við við eld- húsborðið og ræddum lífsins gagn og nauðsynjar. Það sem var svo einstakt við þig amma var að þú gast alltaf talað við hvert og eitt okkar eins og jafn- ingja. Það var aldrei eins og þú værir neitt eldri en við og þú sýnd- ir því jafnan áhuga sem við vorum að fást við hverju sinni. Þess vegna var líka svo gott að leita til þín. Heimsóknunum fjölgaði mikið á Aðalgötuna árið sem mamma og pabbi voru í Ekvador. Þá varst þú mér ómetanlegur stuðningur. Það sem okkur þótti líka svo vænt um í fari þínu var hvað þú varst hrein og bein. Þú sagðir hlutina alltaf eins og þeir voru og því höfðum við öll svo gaman af. Jólin eru okkur bræðrunum sér- staklega minnisstæð og það var óneitanlega tómlegt við jólaborðið í ár þar sem þú varst of veik til að geta verið með okkur. Minningarnar eru margar og svo ljúfar og þær geymum við í hjarta okkar. Takk fyrir samfylgdina. JENNÝ LOVÍSA EINARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.