Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIKLAR breytingar hafa átt sér
stað í hópi stærstu hluthafa Bakka-
vör Group í kjölfar nýafstaðins út-
boðs á hlutafé í fyrirtækinu. Bakka-
bræður SARL, sem er í eigu
bræðranna Ágústs og Lýðs Guð-
mundssona, er sem fyrr stærsti hlut-
hafinn með 28,66%. Kaupthing Lux-
embourg S.A. kemur þar á eftir með
5,09%. Antonious Yerelemou, for-
stjóri Kastours Fresh Foods, breska
matvælafyrirtækisins sem Bakkavör
Group festi nýverið kaup á, er nú
orðinn þriðji stærsti hluthafinn með
4,92% en alls eru fimm af fyrrver-
andi eigendum KFF á meðal 10
stærstu hluthafa Bakkavör Group.
Samtals eru þeir með 18,74% hlut í
félaginu. 40 stærstu hluthafar
Bakkavör Group áttu hinn 4. janúar
síðastliðinn alls tæplega 88% hluta-
fjár. Eftir nýafstaðna hlutafjáraukn-
ingu nemur heildarhlutafé Bakkavör
Group nú kr. 1.515.830.002.
! "# %
&
' (
) '
! "# *
+ ,-
! "# -.
/
! "# "#
-
( 0 "#
! " 1 ,
! "#
-"2 0
3 "# ! 0
4! 3
55+ 1 "# "# 1 7*0
7 +
-"2 "# 7
( 0 "# 7
! "# 8
& 0 91 5"#
+ 1 3
55+ 1 "# :;
#
< = > ? @ &A ! <
"#*2, !
-"2 ! "#
! "# 5
! "# *
& 1 ! "# ! "# 5 !"
! "# , B>
C;
( 0
( 01
#
)* )+, -**-
40 stærstu hlut-
hafar Bakkavör
Group hf.
NORÐMENN fluttu á síðasta ári út
sjávarafurðir fyrir um 347 milljarða
íslenskra króna. Það er um 8,5 millj-
arða króna samdráttur frá árinu 2000
eða um 2,4%. Verðmæti laxaútflutn-
ings dróst saman um 18,6% á milli ár-
anna eða sem nemur um 11,3 millj-
örðum króna. Í magni talið dróst
útflutningurinn saman um 1,6%.
Samdrátturinn er rakin til minni út-
flutnings til Evrópusambandsland-
anna og aukinnar framleiðslu á eld-
islaxi í heiminum og verðlækkana í
kjölfar hennar.
Útflutningsverðmæti uppsjávar-
fisks; síldar, makríls og loðnu, hefur
hinsvegar aldrei verið meira eða tæp-
ir 86 milljarðar króna sem er 30,5%
aukning frá fyrra ári. Þar af jókst
verðmæti síldarútflutnings um 43,2%
og var ríflega 38 milljarðar króna. Þá
fluttu Norðmenn út makríl fyrir tæpa
33 milljarða króna, sem er 22,7%
aukning frá fyrra ári, og loðnu fyrir
um 5,3 milljarða sem er 39% aukning.
Eins náði útflutningsverðmæti
saltfisks og skreiðar hámarki en það
nam rúmum 55 milljörðum króna eða
um 8% meira en árið 2000, samkvæmt
tölum frá norsku hagstofunni og
norska útflutningsráðinu.
Hinsvegar dró nokkuð úr útflutn-
ingi Norðmanna á frosnum hvítfisk-
flökum, nam alls um 22,6 milljörðum
króna sem er 20,7% samdráttur. Mest
dró úr útflutningi til Bretlands eða
um 30,8% frá árinu 2000. Þá dróst út-
flutningur á ferskum fiski saman um
5% en verðmæti hans nam í fyrra
rúmum 11 milljörðum króna. Enn-
fremur dró nokkuð verðmæti rækju-
útflutnings Norðmanna eða um 20%
frá árinu 2000 en hann nam alls 13,6
milljörðum króna.
ESB ennþá helsti markaðurinn
Þrátt fyrir um 7,1% samdrátt í út-
flutningi Norðmanna til Evrópusam-
bandsins er ESB enn helsti markað-
urinn fyrir norskar sjávarafurðir. Alls
fluttu Norðmenn út sjávarafurðir til
ESB landa fyrir um 192 milljarða
króna á síðasta ári en fyrir um 155
milljarða króna til landa utan ESB
sem er 4,1% aukning frá árinu 2000.
Þannig jókst útflutningur til Austur-
Evrópu um 37,5%, aðallega til Rúss-
lands og Úkraínu. Einnig juku Norð-
menn verulega útflutning sinn til
Kína og Suður-Kóreu á síðasta ári.
Minna flutt út frá
Noregi á síðasta ári
Verðmæti laxaútflutnings dróst
saman um 18,6%
● ÁÆTLANIR Norsk Hydro gera ráð
fyrir áframhaldandi fjárfestingum á
þessu ári og þarf fyrirtækið að
selja eignir til þess. Hydro hefur
breytt rekstrarmarkmiðum ársins
og boðar nú minni hagnað en áður
var áætlað. Ástæðan er lægra
verð á áli, miklar fjárfestingar og
seinkun á olíuframleiðslu.
Komið hefur fram að Hydro hefur
keypt þýska álfélagið VAW fyrir 20
milljarða norskra króna og eru það
stærstu fyrirtækjakaup í norskri
sögu. Áætlanir gera ráð fyrir áfram-
haldandi fjárfestingum og eru aðrir
20 milljarðar norskra króna upp-
hæðin sem á að fjárfesta fyrir.
Vegna þessarar stefnumótunar
þarfnast Hydro meira fjármagns og
mun því selja eignir fyrir um 10
milljarða norskra króna fyrir lok
næsta árs, að því er Dagens Nær-
ingsliv greinir frá.
Framhald á
fjárfestingum
Norsk Hydro
● DEN norske Bank hefur keypt
hluta af sjóðastarfsemi sænska
trygginga- og fjármálafyrirtækisins
Skandia (Skandia Asset Manage-
ment) fyrir sem samsvarar um 32
milljörðum íslenskra króna. Búist er
við að sameiningin verði frá og með
júní nk.
Fjárfestingarsjóðir Skandia velta
um 2.500 milljörðum íslenskra króna
og eru m.a. starfræktir í London,
New York og Hong Kong en alls starfa
um 200 manns við sjóðastýringu og
tengda starfsemi hjá Skandia.
Svein Aaser, bankastjóri DnB, seg-
ir í Dagens Næringsliv að kaupin séu
liður í þeirri stefnu DnB að verða í for-
ystuhlutverki fjárfestingarsjóða á
Norðurlöndunum. Við sameininguna
eykst velta sjóðastarfsemi DnB veru-
lega, úr 1.100 milljörðum íslenskra
króna í 3.600 milljarða.
DnB kaupir
sjóði Skandia
GREINING Íslandsbanka væntir
þess að hagkerfið nái því að verða í
betra jafnvægi á þessu ári en á því
síðasta. Líkur séu á að hratt dragi úr
viðskiptahallanum og að verðbólgan
hjaðni. Samhliða ættu vextir að fara
lækkandi. Árið verði hins vegar að
öllum líkindum ár samdráttar og um-
skipta þar sem vöxtur verði í útflutn-
ingi en samdráttur í innlendri neyslu
og fjárfestingum. Af þessum sökum
verði gangur fyrirtækja mjög ólíkur
eftir því í hvaða geira efnahagslífsins
þau starfa. Þetta kemur fram í nýju
Markaðsyfirliti Greiningar ÍSB.
Þar segir að aukinnar bjartsýni
hafi að undanförnu gætt um þróun
innlends efnahagslífs. Komi þar
margt til og nefna megi samning ASÍ
og SA sem dregið hafi úr óvissu um
stöðu vinnumarkaðarins á árinu,
hagvísa sem bendi til þess að hratt sé
að draga úr halla á vöruskiptum við
útlönd og aukningu á aflaheimildum.
Samhliða þessari auknu bjartsýni
hafi krónan hækkað að verðgildi og
trú manna á að verðbólgan komi til
með að hjaðna og vextir að lækka á
næstu mánuðum styrkst.
„Greining ÍSB væntir þess að
verðbólgan hjaðni hraðar á þessu ári
en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Grein-
ing ÍSB spáir því að verðbólgan verði
3,5% yfir þetta ár og að hið rauða
strik kjarasamninga haldi. Áður
spáði Greining 4,2% verðbólgu yfir
árið. Helstu ástæður skjótari hjöðn-
unar verðbólgunnar er hækkun á
gengi krónunnar undanfarið,“ segir í
Markaðsyfirlitinu.
Spáir verðmeiri krónu
í árslok en áður var áætlað
Krónan hefur hækkað talsvert að
verðgildi á síðustu vikum og telur
Greining ÍSB að væntingar hafi snú-
ist með þeim hætti að ekki sé hægt
að útiloka frekari gengishækkun í
bráð. Þegar líður á árið reiknar
Greining ÍSB hins vegar með því að
verðgildi krónunnar rýrni nokkuð að
nýju. Minni óvissa á vinnumarkaði,
auknar aflaheimildir og fleiri þættir
valdi því hins vegar að Greining ÍSB
spái því að krónan verði verðmeiri í
árslok en áður var áætlað.
„Frá því að Seðlabankinn lækkaði
stýrivexti sína í byrjun nóvember
síðastliðins hafa horfur um verð-
bólgu batnað. Greining ÍSB telur að
Seðlabankinn komi til með að lækka
vexti um 50–100 punkta í þessum
mánuði. Ástæðurnar eru helst hækk-
un raunvaxta undanfarið, minni
verðbólguvæntingar, skýr merki um
hjöðnun framleiðsluspennunnar,
vaxtalækkanir í viðskiptalöndunum
og síðast en ekki síst minni óvissa um
stöðu vinnumarkaðarins á þessu ári.
Greining ÍSB telur góðar líkur á að
Seðlabankinn lækki stýrivexti sína
um ríflega 200 punkta yfir þetta ár,“
segir í Markaðsyfirliti Íslandsbanka.
Greining ÍSB spáir sam-
drætti og umskiptum
● VIÐRÆÐUR eru hafnar milli lág-
fargjaldaflugfélagsins easyJet og
flugvélaframleiðendanna Boeing
og Airbus um hugsanlega stærstu
pöntun nýrra véla fyrir lágfar-
gjaldaflugfélag til þessa. Frá því
var greint á fréttavef BBC í gær að
talað sé um að easyJet vilji fá af-
hentar 75 flugvélar eigi síðar en á
árinu 2007.
Í áætlunum easyJet er gert ráð
fyrir að fjöldi véla félagsins verði
48 á árinu 2004. Félagið er nú
með 26 flugvélar í flugi milli 16
borga í Evrópu.
Fram kemur í frétt BBC að bæði
easyJet og írska lágfargjaldaflug-
félagið Ryanair geri ráð fyrir að
flytja fleiri farþega en önnur evr-
ópsk flugfélög innan sex ára, að
undanskildum þremur þeim
stærstu, British Airways, Luft-
hansa og Air France. Farþegum
lágfargjaldaflugfélaganna í Evrópu
hefur almennt ekki fækkað, eins
og farþegum sem ferðast með
öðrum flugfélögum, í kjölfar
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september á nýliðnu ári.
Haft er eftir talsmanni easyJet
að breytingar á Airbus 319 flugvél-
inni úr því að vera með 145 sæti
yfir í 150 sæti geri að verkum að
hún komi vel til greina fyrir félagið.
Boeing vélar easyJet taka 149 far-
þega.
EasyJet stækkar flugvélaflotann