Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ D ECODE, móðurfélag Íslenskrar erfðgrein- ingar ehf., og banda- ríska fyrirtækið MediChem Life Sciences Inc. hafa undirritað samn- ing um samruna fyrirtækjanna. Samkvæmt samningnum kaupir deCODE MediChem fyrirtækið og munu hluthafar MediChem fá 0,3099 nýja almenna hluti í de- CODE í skiptum fyrir hvern al- mennan hlut í MediChem. Ef mið- að er við verð á hverjum almenn- um hlut í deCODE við lokun markaða á mánudag samsvara við- skiptin því að hver hlutur í Medi- Chem sé keyptur á 3,04 Banda- ríkjadali og að kaupin séu því gerð á samtals 8,4 milljarða íslenskra króna. Líffræði og dýratilraunir vegna þróunar lyfja Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagðiá blaðamannafundi sem fyr- irtækið hélt í gær að til þess að ÍE gæti nýtt sér þá efnafræði sem væri til staðar hjá MediChem og tengt hana þeirri erfðafræði, sem unnið er að á vettvangi Íslenskrar erfðagreiningar, þyrfti að byggja upp aðstöðu sem krefðist 200–300 starfa fyrir sérmenntað starfsfólk. Vonandi yrði mögulegt að byggja þá starfsemi upp á Íslandi, þótt það væri alls ekki sjálfgefið. Sú uppbygging verði þó að gerast hratt og þegar á þessu ári, að sögn hans. Um væri að ræða að- stöðu til að vinna að líf- fræði og við svonefnd dýralíkön, sem felst m.a. í rannsóknum og dýratilraun- um, vegna þróunar lyfja. Samruninn samþykktur af stjórn beggja félaga Skv. upplýsingum ÍE í gær munu núverandi hluthafar Medi- Chem eiga um 15,7% í sameinuðu fyrirtæki að teknu tilliti til um- breytingar forgangshluta í al- menna hluti. Samruninn hefur þegar verið samþykktur af stjórn- um beggja félaga. Kaupin voru tilkynnt í gærmorg- un og í framhaldi af því greindu forsvarsmenn Íslenskrar erfða- greiningar nánar frá viðskiptunum á fréttamannafundi. Kl. 14 var svo sendur út símafundur með grein- ingaraðilum og fjárfestum á Net- inu þar sem Kári Stefánsson, Hannes Smárason, aðstoðarfor- stjóri ÍE, og Michael Flavin for- stjóri MediChem, ræddu samning- inn. MediChem er lýst sem braut- ryðjanda í lyfjaþróun og þjónustu- rannsóknum fyrir líftækni- og lyfjaiðnaðinn. Það var stofnað árið 1987 og stundar þjónusturann- sóknir fyrir lyfjaiðnaðinn. Mark- mið fyrirtækisins er að flýta þróun nýrra lyfja sem byggjast á upp- götvunum í erfðafræði með af- kastamikilli tækni við efnafræði- og lífefnafræðirannsóknir. Starfs- menn MediChem eru nú 163, þar af eru 107 efnafræðingar, 12 sam- eindalíffræðingar og 9 sérfræðing- ar í greiningu á kristalbyggingu próteina. Hámarka tekjur af uppgötv- unum í erfðafræði sjúkdóma Að mati forsvarsmanna ÍE falla rannsóknir og þróunarvinna Medi- Chem mjög vel að áætlunum Ís- lenskrar erfðagreiningar um að há- marka tekjur af uppgötvunum fyrirtækisins í erfðafræði algengra sjúkdóma. Eru mögu- leikar ÍE taldir aukast til muna með þessum kaupum á að fylgja eft- ir uppgötvunum fyrir- tækisins í erfðafræði með frekari rannsókn- um í efnafræði og lífefnafræði, með það að markmiði að koma nýjum lyfjum á markað. ,,MediChem er fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði þeirrar efna- fræði sem er notuð við lyfjagerð, og sú sérþekking sem liggur í þeirri efnafræði er ekki til staðar eins og stendur innan Íslenskrar erfðagreiningar,“ segir Kári Stef- ánsson. ,,Það er alveg ljóst að til þess að geta búið til lyf á grund- velli þeirra erfðavísa sem við ein- angrum í algengum sjúkdómum, þurfum við á þessari efnafræði að halda,“ sagði Kári. Að hans sögn eru sennilega ekki nema þrír Íslendingar sem hafa sérþekkingu á þessu sviði efna- fræðinnar. ,,Við töldum mjög erfitt að ráða til Íslands í kringum 100 efnafræðinga til þess að sinna þeim þörfum sem við gerum ráð fyrir að við komum til með að hafa á næstunni. Við sáum því ekki ann- an kost en að gera þetta ann- aðhvort með því að byggja þetta upp erlendis eða með því að kaupa erlent fyrirtæki og við tókum þá ákvörðun að kaupa MediChem,“ sagði hann. Kári sagði einnig að sú ákvörðun að kaupa MediChem væri snöggtum ódýrari og fljót- virkari kostur en ef ÍE hefði ráðist í að byggja upp þessa starfsemi frá grunni. ÍE komið á fulla ferð í lyfjaþróun Kári segir MediChem mjög góða viðbót við starfsemi ÍE og með samrunanum megi segja að ÍE sé komið á fulla ferð í lyfjaþróun. ,,Við stundum nú rannsóknir á erfðafræði 50 algengra sjúkdóma og höfum sótt um einkaleyfi á hundruðum nýrra lyfjamarka. Við búum yfir nauðsynlegri þekkingu og aðstöðu til að staðfesta mik- ilvægi lyfjamarka í algengum sjúk- dómum og til að gera víðtækar skimanir á lyfjasameindum sem hafa áhrif á þessi lyfjamörk. Með kaupunum á MediChem getum við nú stundað enn frekari rannsóknir á sviði efnafræði og lífefnafræði. Með því að fara með rannsóknir okkar enn lengra fram veginn í átt til nýrra lyfja, tryggjum við hlut- höfum okkar mestan hugsanlegan ávinning af niðurstöðum rannsókna okkar,“ segir Kári. ,,Auðvitað erum við að nálgast lyfjaiðnaðinn en í sjálfu sér er það ekkert markmið hjá okkur að vera með sendiferðabíl sem dreifir lyfj- um út í aptótek,“ segir Kári að- spurður. Hann segir að með þess- um kaupum sé ÍE að útfæra enn frekar eigin viðskiptaáætlun og búa til meiri verðmæti úr þeirri þekkingu sem sköpuð er á vett- vangi fyrirtækisins. Erfðafræðin sé hins vegar og verði áfram und- irstaða ÍE sem veiti fyrirtækinu sérstöðu. ÍE hefur gert stóra samninga við svissneska lyfjafyrirtækið Hoffman laRoche og Roche Diagn- ostics og spurður hvaða áhrif kaupin á MediChem hefði á gerð slíkra samstarfssamninga sagði Kári að fyrirtækið yrði í enn betri aðstöðu til samninga við lyfjafyr- irtæki. Í samstarf við önnur leiðandi lyfja- og líftæknifyrirtæki Að mati forsvarsmanna ÍE starf- ar fjöldi mjög góðra vísindamanna hjá MediChem og er aðstaða og skipulag rannsókna fyrirtækisins til mikillar fyrirmyndar. Með þess- ari sameiningu eykur ÍE við starf- semi sína í Bandaríkjunum og kemst í samstarf við önnur stór og leiðandi lyfja- og líftæknifyrirtæki, s.s. Pharmacia, Bristol Myer Squibb, Argonne National Lab- oratory, Degussa, Rigel Pharma- ceuticals, Elitra Pharmaceuticals og Neurocrine Biosciences, að sögn Kára. Öflugt verkfæri til að smíða ný lyf Haft er eftir dr. Michael Flavin, forstjóra MediChem, í sameiginlegri frétta- tilkynningu félaganna í gær að með því að sameina uppgötvanir Íslenskrar erfðagrein- ingar á nýjum lyfja- mörkum og sérþekkingu Medi- Chem á smáum lyfjasameindum verði til mjög öflugt verkfæri til að smíða ný lyf. ,,Lýðerfðafræðirannsóknir Ís- lenskrar erfðagreiningar hafa þeg- ar leitt til uppgötvana á nýjum lyfjamörkum í mikilvægum sjúk- dómum. Með því að taka þær upp- götvanir inn í þróunarferli og rannsóknir okkar á sviði efnafræði og lífefnafræði, eigum við mögu- leika á að skapa veruleg verðmæti fyrir hluthafa sameinaðs fyrirtæk- is,“ sagði Flavin. Gert er ráð fyrir að deCODE muni gefa út um 8,3 milljónir nýrra almennra hluta vegna sam- runans og taka yfir alla útistand- andi kauprétti MediChem. Sam- runinn er háður samþykki banda- rískra samkeppnisyfirvalda og er með fyrirvara um samþykki hlut- hafa. Hópur hluthafa MediChem, sem á samtals um 63% hlut í fyr- irtækinu, hefur gert bindandi sam- komulag við deCODE um að greiða samningnum atkvæði sitt. Þjónusturannsóknir fyrir stóran hóp líftæknifyrirtækja Íslensk erfðagreining mun halda áfram þjónusturannsóknum sem MediChem annast fyrir stóran hóp lyfja- og líftæknifyrirtækja, m.a. Abbott Laboratories, Allergan, Amgen, AstraZeneca, Bristol Myers Squibb, Degussa, DuPont Crop Protection, Elitra Pharma- ceuticals, Genta, GlaxoSmithKline, Johnson&Johnson, Lilly, Neur- ocrine Biosciences, OSI Pharma- ceuticals, Pfizer, Pharmacia, Rigel Pharmaceuticals, Roche, 3M Pharmaceuticals. Með kaupunum fylgir fullkomin rannsóknaaðstaða í Bandaríkjun- um, þar á meðal 10.000 fermetra höfuðstöðvar MediChem í Wood- ridge í Illinois og 4.000 fermetra þróunarmiðstöð í Lem- ont í Illinois. Þrjú dótt- urfyrirtæki MediChem fylgja móðurfélaginu í samrunanum. Thermo- Gen í Chicago hefur einkaleyfi á ákveðnum aðferðum við tjáningu próteina og lífhvötun með hitaþolnum ensím- um. Emerald Biostructures í Seattle sérhæfir sig í afkastamikl- um greiningum á byggingu pró- teina og Advanced X-Ray Analyti- cal Services stundar rannsóknir á þrívíddarbyggingu próteina með röntgengeislum við deild innan Argonne-rannsóknamiðstöðvarinn- ar, sem annast rannsóknir á ljós- eindagjöfum. Íslensk erfðagreining ehf. kaupir bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið MediChem Life Sciences Vona að aðstaða fyrir 2–300 ný störf skapist á Íslandi Morgunblaðið/Sverrir Forsvarsmenn Íslenskrar erfðagreiningar kynntu kaupin á bandaríska lyfja- og líftæknifyrirtækinu MediChem á blaðamannafundi sem haldinn var í Kópavogi í gær. F.v. Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri ÍE, Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, og Páll Magnússon, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins. DeCODE Genetics, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, hefur keypt bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið MediChem Life Sciences. Kaupverðið er 8,4 milljarðar kr. Með samrunanum þarf að byggja aðstöðu fyrir 200–300 ný sérfræði- störf og vona forsvars- menn ÍE að hugsanlega verði hægt að setja þá starfsemi upp á Íslandi. Forstjóri ÍE segir fyr- irtækið með þessum samruna komið á fulla ferð í lyfjaþróun. Betri aðstaða til samninga við lyfjafyrirtæki Kaupverð sam- svarar 8,4 millj- örðum króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.