Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 47 TENGLAR ............................... www.hitthusid.is Árni Óli Ásgeirsson, Dagur Kári Pétursson og Þorgeir Guðmundsson eru allir leikstjórar af yngri kynslóðinni sem hafa getið sér orðs fyrir athyglisverðar stuttmyndir. Hver veit nema það fjölgi í þeirra hópi þegar námskeiði Hins hússins lýkur? hafin á námskeiðið. Keppnin hefst að loknu námskeiðinu og munu þátttak- endur fá góðan tíma til að vinna myndirnar sínar. Þess ber að geta að það er ekki nauðsynlegt að fara á námskeiðið til að að taka þátt í keppninni. Skilafrestur mynda er til 19. febrúar. Námskeiðið og samkeppnin er fyrir ungt fólk á aldr- inum 16–25 ára. Upplýsingar um skráningu og keppnisreglur er í Hinu húsinu í síma 55-15353.  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8. Vit 299 Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 8. Vit 328 Sýnd kl. 10. Vit 319 HJ MBL ÓHT Rás 2 DV Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 319 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is strik.is  MBL  Kvikmyndir.com BREYTTU SJÁLFUM ÞÉR OG LÍTTU HEIMINN ÖÐRUM AUGUM. Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 327 Sýnd kl. 6. Ísl tal Vit 320 Sýnd kl. 5. Íslenskt tal Vit 307 betra en nýtt Sýnd kl. 11.15. „Besta mynd ársins“ SV Mbl Ævintýrið lifnar við „Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl Nýr og glæsilegur salur Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6 HJ MBL ÓHT Rás 2 DV MAGNAÐ BÍÓ Stórverslun á netinu www.skifan.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Yndisleg rómantísk gamanmynd í anda Sleepless in Seattle. John Cusack (Americas Sweetheart´s) og Kate Beckinsale (Pearl Harbor) hafa aldrei verið betri. Örlög með kímnigáfu... Getur einu sinni á ævinni gerst tvisvar? l ... Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 www.laugarasbio.is „Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl HK. DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com „Besta mynd ársins“ SV Mbl i ir. Sýnd kl. 3.20, 5.45, 6.45, 9 og 10. B.i 12 ára HJ. MBL. LÖGREGLAN í Beirút í Líbanon réðst til inngöngu í Virgin Megastore-búð sem er þar í borg á dögunum. Ástæðan var meint siðspillandi áhrif kvikmynda sem þar voru seldar á DVD-formi og þær sagð- ar af talsmönnum lögreglunnar „grafa undan trúarbrögðum, góðu siðferði og viðskiptahöftum á Ísrael, auk þess sem þær hvetja ungt fólk til að fremja sjálfsmorð“. Voru þetta myndir eins og Some Like it Hot, The Nutty Professor, The Great Escape, Rush Hour, Key Largo, Jesus of Nazareth og allar myndir Stanley Kubricks. Þetta kom for- ráðamönnum Virgin algerlega í opna skjöldu þar sem Beirút hefur að und- anförnu reynt að markaðs- setja sig sem borg vilhalla viðskiptum. Richard Branson, yfirmaður Virgin, hefur þegar sent forsætisráðherra Líbanon, Rafik Al-Hariri, og forsetanum, Emile Lahoud, mótmælabréf. Einkennis- og óeinkennisklæddir lögreglu- menn réðust inn í búðina og þurfti verslunar- stjórinn að dúsa í svartholinu næstu tvo daga. „Það hefði verið meira en nóg að senda einn fulltrúa,“ sagði hann í yfirlýsingu. „Það var komið fram við okkur eins og við værum stór- hættulegir glæpamenn!“ Talsmaður Virgin segir að það sé erfitt að vita hvað megi og hvað ekki í Líbanon. T.a.m. hafi búðin forðast að selja þungarokk af ótta við að lenda uppi á kanti við líbönsk yfirvöld. En svo er Frank Sinatra og bannaður ásamt mynd- um Elizabeth Taylor – sem eru sagðar taka af- stöðu með Ísraelum. „Þetta er furðulegt,“ sagði fulltrúi frá Virgin. „Sjónvarpsstöðvarnar hérna sýna þessar myndir daga og nætur.“ Þingmaðurinn Boutros Harb mótmælti þess- ari aðför og sagði að Líbanon væri að verða al- gert lögregluríki. Lögregla ræðst inn í Virgin í Beirút Líbanska lögreglan telur The Nutty Professor grafa undan trúarbrögðum, góðu siðferði, viðskiptahöftum á Ísrael og það sem meira er hvetja ungt fólk til að fremja sjálfsmorð. GERI Halliwell, fyrrum kryddpía, er að gera starfsmenn vax- myndasafns Maddömu Tussaud gráhærða. Í júlí á síðasta ári lagði Geri sjálf til við yfirmenn safnsins að þeir skyldu gera vaxmynd af henni. Þessu var tekið fagnandi enda var búið að steypa hinar kryddpíurnar í vax eftir að hún hætti í sveitinni. Styttan átti að vera tilbúin í þessum mánuði en miklar tafir hafa orðið á vinnunni þar sem Geri staðhæfir að þeir sem að líkaninu vinna geri læri og rass of feit. Einn listamannanna segir: „Í hvert sinn sem hún situr fyrir segist hún hafa grennst og heimtar að hún verði mæld upp á nýtt. Það höfum við gert, æ ofan í æ, og alltaf fáum við sömu töl- urnar. Samt heldur hún áfram að tönglast á þessu og það eru allir að verða vitlausir hérna.“ Nú er svo komið að safnið hefur í hyggju að hætta við allt saman. „Það eru margir hér sem óska þess heitt að þetta rugl hefði aldrei farið í gang,“ sagði listamaðurinn að endingu. Vaxstytta af Geri Halliwell í bígerð Styttan yfir kjörþyngd Reuters Þau virðast ekki feit, séð héðan frá! HITT húsið og Skjár einn ætla í janúar að ráðast í stuttmyndaverkefni, en það sam- anstendur af ókeypis námskeiði í stutt- myndagerð og stuttmyndasamkeppni í framhaldinu. Verðlaun verða í boði í keppn- inni og vinningsmyndirnar sýndar á Skjá einum. Námskeiðið verður haldið á Geysi Kakó- bar, þriðjudaginn 15. janúar kl. 20–22, fimmtudaginn 17. janúar kl. 20–22, þriðju- daginn 22. janúar kl. 20–22 og fimmtudag- inn 24. janúar kl. 20–22. Námskeiðið verður fjögur kvöld og verður í fyrirlestraformi. Farið verður í alla þætti stuttmyndagerðar, frá hugmyndavinnu til frumsýningar. Böðv- ar Bjarki Pétursson, eigandi Kvikmynda- skóla Íslands, mun sjá um skipulagningu þess auk þess sem hann mun sjálfur kenna hluta efnisins. Umsjónarmaður verkefnis- ins er Jón Gunnar Ólafsson. „Aðalmálið var að það hefur verið erfitt fyrir fólk að kynnast því hvernig á að gera stuttmyndir,“ segir Jón Gunnar, aðspurður um tildrögin að námskeiðinu. „Vanalega kostar þetta tugi þúsunda. Því fannst okkur sniðugt að koma með smá kynningu, og ég tek það skýrt fram að þetta er ekki hugsað sem svo að þegar námskeiði lýkur sért þú fullnuma í stuttmyndagerð. Þetta er í raun bara kynning á ferlinu - hvernig þú nærð að koma hugmynd í fullgert stuttmyndaform. Svo í framhaldinu veit fólk betur hvort þetta hentar því eður ei.“ Fjöldi er takmarkaður og er skráning Ókeypis nám- skeið í stutt- myndagerð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.