Morgunblaðið - 09.01.2002, Page 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLAR á Ítalíu spáðu því í gær að
Silvio Berlusconi forsætisráðherra myndi velja
Gianfranco Fini aðstoðarforsætisráðherra í
embætti utanríkisráðherra. Fini er einn um-
deildasti stjórnmálamaður Ítalíu og leiðtogi
Þjóðarbandalagsins, arftaka gamla fasista-
flokksins.
Berlusconi tók við utanríkisráðherraembætt-
inu til bráðabirgða eftir afsögn Renatos Rugg-
ieros vegna deilu um framtíðarhlutverk Ítalíu
innan Evrópusambandsins. Ruggiero, fyrrver-
andi forseti Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO), er hlynntur nánara Evrópusamstarfi og
afsögn hans olli titringi í höfuðborgum Evrópu
þar sem hann hefur notið mikillar virðingar
vegna reynslu sinnar sem stjórnarerindreki.
Berlusconi segist ætla að gegna utanríkisráð-
herraembættinu í að minnsta kosti hálft ár. Öll
stærstu dagblöð Ítalíu spáðu því að Fini tæki
við embættinu en lögðu áherslu á að erfitt yrði
fyrir hann að vera bæði utanríkisráðherra og
leiðtogi Þjóðarbandalagsins.
„Það er eðlilegt að aðstoðarforsætisráðherr-
ann sé talinn koma til greina í embættið,“ sagði
Fini í sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld. „Verði ég
beðinn um að taka við embættinu þá geri ég
það – ef ekki ætla ég ekki að þröngva mér í
það.“
Fjölmiðlarnir sögðu að erfitt yrði fyrir Berl-
usconi að gegna embættinu mjög lengi. Hann
hefur þegar þurft að fresta fyrirhuguðum fundi
með utanríkisráðherra Spánar, Josep Pique,
sem fer nú fyrir ráðherraráði Evrópusam-
bandsins, þar til í næstu viku. Fundi utanríkis-
ráðherra Bretlands, Frakklands, Ítalíu og
Þýskalands, sem halda átti á morgun, hefur
einnig verið frestað.
Berlusconi gagnrýndur
Nokkrir embættismenn ESB-ríkja hafa látið
í ljósi áhyggjur af brotthvarfi Ruggieros.
„Helsta vandamál okkar núna er að átta okkur
á hvað Ítalir vilji,“ sagði evrópskur stjórnarer-
indreki. „Berlusconi segir engan vafa leika á
því að Ítalir styðji nánara Evrópusamstarf en
losar sig við eina ráðherrann sem er bersýni-
lega hlynntur samstarfinu.“
Ítalinn Mario Monti, sem fer með auðhringa-
varnir í framkvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, sagði í gær að brotthvarf Ruggieros væri
mikið áfall „fyrir land sem á ekki of marga trú-
verðuga þungavigtarmenn á alþjóðavettvangi“.
Hann gagnrýndi einnig Berlusconi vegna nokk-
urra umdeildra ummæla hans eftir að hann
varð forsætisráðherra og sagði að hann yrði að
skilgreina betur hlutverk Ítalíu innan Evrópu-
sambandsins og móta skýrari stefnu í Evrópu-
málum.
Berlusconi hefur oft verið upp á kant við
embættismenn Evrópusambandsins, meðal
annars vegna stjórnarsamstarfsins við Norður-
bandalagið, sem hefur látið í ljósi efasemdir um
Evrópusamstarfið. Ýmsar yfirlýsingar Berlusc-
onis sjálfs hafa valdið uppnámi, svo sem um-
mæli hans eftir hryðjuverkin 11. september um
„yfirburði“ vestrænnar menningar yfir menn-
ingu múslíma. Hann sagði reyndar síðar að orð
sín hefðu verið misskilin.
Róm. AFP, AP.
Gianfranco Fini, aðstoðarforsætisráðherra
Ítalíu, stígur út úr bíl sínum í miðborg Rómar.
AP
Embættismenn í ESB-ríkjum láta í ljósi áhyggjur af afsögn Ruggieros
Talið að Fini verði
utanríkisráðherra
AFGANISTAN mun innan fárra
mánaða verða vinsæll áfangastaður
hugrakkra ferðamanna, að því er
ferðamálaráðherra landsins, Abdul
Rahman, spáir.
„Landið er nú opið ferðamönnum í
fyrsta sinn í 23 ár. Margir verða for-
vitnir að sjá það með eigin augum,
sérstaklega þar sem það hefur verið
svo mikið í sjónvarpinu að undan-
förnu,“ sagði Rahman í viðtali við
AFP-fréttastofuna. Kvaðst hann
vænta þess að ferðamannastraumur-
inn hæfist eftir þrjá til fjóra mánuði,
fyrst og fremst frá Evrópu, músl-
ímaríkjum og Bandaríkjunum.
Nefndi hann meðal annars sem
áhugaverða staði Tora Bora-fjöllin,
þar sem talið er að hryðjuverkamað-
urinn Osama bin Laden hafi dulist
ásamt fylgismönnum sínum, og
Kandahar, höfuðvígi talibana.
Ferðamálaráðherrann viðurkenn-
ir að mörg ljón séu í veginum fyrir
uppbyggingu ferðamannaþjónust-
unnar. Ennþá er barist á nokkrum
stöðum í Afganistan, Bandaríkjaher
heldur enn uppi loftárásum á skot-
mörk í landinu og stigamenn hafa
marga helstu vegi á valdi sínu. Auk
þess er samgöngukerfi landsins í
lamasessi, skortur er á raforku og
gististaðir standast ekki alþjóðlegar
kröfur. Rahman kvaðst þó fullviss
um að yfirvöldum takist innan fárra
vikna að tryggja öryggi ferðamanna
á völdum stöðum, þar á meðal í höf-
uðborginni Kabúl, Panjshir-dalnum
og hinni fornu borg Herat.
„Umfjöllunin [um Afganistan] í
fjölmiðlum kann að vera neikvæð um
þessar mundir, en nú fáum við þó
allavega umfjöllun. Í yfir tuttugu ár
var landið algjörlega hunsað af um-
heiminum,“ sagði Rahman við AFP.
AP
Tveir drengir í verslun föður síns í Kabúl en þar eru seldir minjagripir, fornmunir og alls konar handiðnaður.
Er verslunin við svokallað Kjúklingastræti í miðborginni en Afganar vona, að það verði fjölsótt af erlendum
ferðamönnum. Á teppinu má sjá, að það er ofið í Afganistan og myndefnið nærtækt, skriðdrekar og byssur.
Spáir straumi ferða-
manna til Afganistans
Kabúl. AFP.
6.000 araba
leitað í
Banda-
ríkjunum
The Washington Post.
BANDARÍSKA dómsmálaráðu-
neytið mun brátt hefja skipulega leit
að þúsundum manna frá Mið-Aust-
urlöndum, sem ekki hafa sinnt skip-
unum um að fara úr landi.
Dómsmálaráðuneytið hefur til-
greint um sex þúsund unga menn frá
arabalöndum, sem hafa farið huldu
höfði eftir að þeim var gert að yf-
irgefa Bandaríkin. Hefur ráðuneytið
kunngert að handtaka þeirra fái for-
gang umfram mál þeirra hundruða
þúsunda útlendinga sem hunsað hafa
skipanir um að fara úr landi. Menn-
irnir sex þúsund eru allir frá ríkjum
sem bandarísk yfirvöld telja að skot-
ið hafi skjólshúsi yfir liðsmenn al-
Qaeda, hryðjuverkasamtaka Osama
bin Ladens, en embættismenn hafa
neitað að gefa upp nákvæmlega
hvaða lönd sé um að ræða.
Áhyggjur af mismunun
Mannréttindasamtök og hópar ar-
abískra innflytjenda í Bandaríkjun-
um hafa lýst áhyggjum af aðgerð-
unum og segja þær sýna að barátta
bandarískra yfirvalda gegn hryðju-
verkum hafi leitt til mismununar
fólks eftir uppruna. Hefur meðal
annars verið bent á að af þeim
300.000 útlendingum sem ekki hafa
sinnt skipunum um að fara úr landi
séu langflestir frá löndum Suður-
Ameríku.
„Þetta eru vissulega viðkvæmir
tímar,“ hefur The Washington Post í
gær eftir Wade Henderson, for-
stöðumanni samtakanna Leadership
Council on Civil Rights. „En þessar
aðferðir við löggæslu – að elta menn
uppi á grundvelli þjóðernis en ekki
grunsamlegrar hegðunar eða
ábyggilegra vísbendinga – eru afar
vafasamar.“
James Zogby, forseti Arabísk-am-
erísku stofnunarinnar, tók í sama
streng og dró í efa að það skilaði ár-
angri í baráttunni gegn hryðjuverk-
um að elta uppi ólöglega innflytjend-
ur frá Mið-Austurlöndum umfram
aðra. Benti hann á að flestir hryðju-
verkamannanna sem tóku þátt í
árásunum 11. september hefðu dval-
ið í landinu með löglegum hætti.
Embættismenn innan dómsmála-
ráðuneytisins, sem The Washington
Post tók tali, vörðu aftur á móti að-
gerðirnar og sögðu eðlilegt að beina
sjónum sérstaklega að þegnum
þeirra landa sem vitað væri að skotið
hefðu skjólshúsi yfir hryðjuverka-
menn, í því skyni að tryggja al-
mannaöryggi. Blaðið hafði ennfrem-
ur eftir embættismönnunum að
bandaríska innflytjendaeftirlitið
hygðist herða eftirlit með ólöglegum
innflytjendum hvaðanæva.
Al-Qaeda-
liði sprengdi
sig í loft upp
Kandahar. AFP.
EINN af sjö arabískum stríðsmönn-
um, sem verið hafa í herkví á sjúkra-
húsi í afgönsku borginni Kandahar,
sprengdi sjálfan sig í loft upp í gær-
morgun. Talið er að arabinn hafi
verið félagi í al-Qaeda, hryðjuverka-
samtökum Osama bin Ladens.
Maðurinn, sem er talinn hafa heit-
ið Mohammad Rasool, reyndi að
flýja úr herkvínni skömmu fyrir
dögun í gærmorgun. Þegar verðir
umkringdu hann fyrir utan sjúkra-
húsið sprengdi hann sprengju sem
hann hafði innanklæða.
Alls voru tólf arabar fluttir á
Mirwais-sjúkrahúsið í nóvember eft-
ir að hafa særst í loftárás Banda-
ríkjahers á flugvöllinn í Kandahar.
Á þeim tíma var borgin enn höf-
uðvígi talibanastjórnarinnar, en áð-
ur en talibanar yfirgáfu borgina 7.
desember fengu þeir aröbunum á
sjúkrahúsinu í hendur vistir og vopn
svo þeir gætu varið sig. Fimm arab-
anna tókst að komast út úr sjúkra-
húsinu í desember, fjórir þeirra
komust undan en einn var hand-
tekinn af afgönskum hersveitum í
Kandahar.
Margir stríðsmannanna eru taldir
vera frá Jemen, en þeir hafa lokað
sig inni á fyrrum kvennadeild
sjúkrahússins og hótað að sprengja
sjálfa sig í loft upp, verði reynt að
handtaka þá.
Ökuskírteini
með rafræn-
um gögnum
Washington. AP.
BANDARÍSKA alríkisstjórnin er
farin að kanna, í samráði við yf-
irvöld í einstökum ríkjum, mögu-
leikana á að þróa nýja gerð öku-
skírteina sem hefðu að geyma
upplýsingar á rafrænu formi, þ. á
m. fingraför. Handhafar ökuskír-
teina í Bandaríkjunum eru alls um
184 milljónir.
Sérfræðingar í öryggismálum
óttast að þetta leiði til þess, að í
raun verði til persónuskilríkjakerfi
er geri yfirvöldum kleift að fylgjast
með fólki með rafrænum hætti.
Þeir sem fylgjandi eru því, að
þessi nýja gerð ökuskírteina verði
þróuð, segja að ef varlega verði far-
ið gætu þessi nýju skírteini orðið til
þess að aðvörun bærist ef grunaður
hryðjuverkamaður reyndi að stíga
um borð í flugvél, taka út peninga
eða komast inn í landið.
♦ ♦ ♦