Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 21
MÚLLANN kom í útibú afganska seðlabank-
ans í Kandahar á skrifstofutíma, bað um að fá
að hitta bankastjórann, sem einnig var múlla,
og lagði fram ávísun undirritaða af þriðja múll-
anum, Mohammad Omar.
Þetta var 16. október, níu dögum eftir fyrstu
loftárásir Bandaríkjamanna á Afganistan, og
enn eina ferðina var hafið stríð í þessu bláfá-
tæka landi. Múllann, háttsettur meðlimur í
stjórn Omars í talibanahreyfingunni, staldraði
ekki lengur við í bankanum en það tók að út-
skýra þessa skyndilegu peningaúttekt, opna
peningaskápinn í kjallaranum og troða fimm
milljónum bandarískra dollara og pakist-
anskra rúpía í stóran strigapoka, að því er
tveir starfsmenn bankans greindu frá nú í
byrjun vikunnar. Strigapokinn var síðan bor-
inn út í Toyota Land Cruiser sem beið fyrir ut-
an.
Síðan hefur hvorki sést tangur né tetur af
þessum peningum. Ekki hefur heldur orðið
vart við rúmlega sex milljónir Bandaríkjadoll-
ara sem háttsettir leiðtogar talibanahreyfing-
arinnar báru út úr skrifstofum bankans í Kab-
úl 12. nóvember, að því er skrifstofustjórinn
þar segir. Milljónir dollara til viðbótar eru
taldar glataðar úr öðrum útibúum Da Afghan-
istan Bank, sem er opinbert nafn seðlabank-
ans. En þar eð talibanastjórnin hefur verið
hrakin frá völdum og nýja bráðabirgðastjórnin
í landinu hefur einungis allra nauðsynlegustu
grunnþætti úr að spila segja embættismenn í
bankanum að engin leið sé að segja til um
hversu mikið fé sé horfið.
Töfðu ekki við skriffinnsku
„Þeir tóku alla peningana úr hinum útibúun-
um, en við vitum ekki alla málavexti,“ sagði Al-
lah Hashmee, yfirmaður Kabúlútibúsins, þar
sem talibanarnir voru ekki að tefja við að fylla
út pappíra. „Engar ávísanir, engar kvittanir,“
sagði Hashmee. „Þeir bara komu og tóku
þetta.“
Eitt af því sem huga þarf að, þegar banda-
rískir hermenn leita að Omar og öðrum hátt-
settum talibanaleiðtogum, er hversu mikið
reiðufé Omar tók með sér þegar talibanarnir
flýðu frá Kandahar fyrir mánuði síðan. Ef Om-
ar hefur komist út úr Afganistan geta fúlg-
urnar úr opinberum sjóðum landsins farið
langt með að tryggja för hans, og skálkaskjól
erlendis. Fulltrúi bráðabirgðastjórnarinnar í
Afganistan, Khalid Pashtoon, sagði í síðasta
mánuði að Omar hefði haft á brott með sér
hundrað milljónir dollara þegar hann flýði frá
Kandahar, sem var hin eiginlega höfuðborg
landsins í tíð talibana.
Sú upphæð virtist fremur ótrúleg fyrir ekki
löngu síðan, en er alls ekki alveg út í hött í ljósi
þess að bankafulltrúar segja aðstoðarmenn
Omars hafa hreinsað ellefu milljónir dollara úr
bara útibúum seðlabankans í Kabúl og Kand-
ahar. Hashmee, útibússtjórinn í Kabúl, sagði
að í öðrum stórum borgum landsins séu þetta
tveir til þrír bankar, og talibanar kunni að hafa
geymt fé í þeim öllum.
En ellefu milljónir dollara gætu reynst
þungur baggi, ef Omar er á leið til afskekktra
fjallanna í Mið-Afganistan, eins og fregnir frá
yfirmanni leyniþjónustunnar í Kandahar
benda til. Í útvarpsávörpum sem Omar hélt á
hverju kvöldi í Kandahar, áður en hann yfirgaf
borgina, viðurkenndi hann að herför Banda-
ríkjamanna myndi að líkindum hrekja talibana
frá völdum, en hét því iðulega að „halda til
fjalla“ og hefja skæruhernað.
Á bifhjóli eða asna
Bandarískir og afganskir embættismenn
hafa sagt að fjöldi þeirra hermanna sem eru
hliðhollir talibönum sé í mesta lagi fáein þús-
und, ef ekki hundruð, og talið er að fæstir
þeirra séu í för með Omari. Talið er að til þess
að komast undan bandarísku gervihnatta- og
lofteftirliti hafi Omar afsalað sér alræmdum
bílaflota sínum, svörtum Land Cruiserum –
sem nú eru sigurtákn í Kabúl og ekið um af
háttsettum embættismönnum í óvinaliði talib-
ana. Þess í stað er hinn sjálfskipaði „höfðingi
hinna trúuðu“ sagður fara um á bifhjóli – sum-
ir segja á asna.
Hvort heldur sem er myndi strigapokinn
sem borinn var út úr bankanum í Kandahar
síga í. „Þetta var stór poki,“ sagði Abdul Qad-
ez, aðstoðarútibústjóri. Í umræddum poka
voru upphaflega hundrað kíló af pakistönsku
hveiti, en nú var hann troðinn út af tíu-, tutt-
ugu- og hundraðdollara seðlum, samtals –
Qadez fletti upp í rauðri höfuðbók merktri
„Reikningsbók nr. 17“ og renndi fingri niður
síðuna – 3.488.222 dollarar.
Stærstu seðlabúntin voru þó pakistanskar
rúpíur, 93 milljónir, eða sem svarar 1,55 millj-
ónum dollara. Stærstu seðlar sem til eru eru
1.000 rúpíur. Við þessa stóru úttekt tæmdust
hillurnar í peningaskápnum í kjallaranum, sem
gengið er niður í um sjúskaðar, gular dyr úr
anddyrinu.
„Það voru engir peningar eftir,“ sagði Qad-
ez. Útibúi afganska seðlabankans í Kandahar
var því lokað. Í Kabúl var fraktin enn um-
fangsmeiri. Hashmee sagði að fulltrúar talib-
ana hefðu farið með 5,3 milljónir dollara, 22
milljónir rúpía og 18 milljarða afgana, sem eru
opinber gjaldmiðill í Afganistan.
Þá kostaði hver dollari 60 þúsund afgani, að
sögn borgarbúa. Gengið hækkaði þegar talib-
anastjórnin féll, og nú kostar dollarinn um 25
þúsund afgani – og hefur verðgildi seðlabúnt-
anna í pokum flýjandi talibananna því rúmlega
tvöfaldast, þótt þau séu áreiðanlega jafn þung
eftir sem áður. Stærsti seðillinn er tíu þúsund
afganir.
Eingöngu opinbert fé
Fazli Ahmad, núverandi útibússtjóri í Kand-
ahar, segir að peningarnir sem teknir voru út
16. október hafi verið opinbert fé. Þar var ekki
um að ræða þær tekjur sem talibanar hafa haft
– og Bandaríkjamenn og fleiri segja þær hafa
verið miklar – af ópíumsmygli, fengið frá er-
lendum ríkisstjórnum, þ. á m. Pakistan og
Saudi-Arabíu, eða frá Osama bin Laden, sem
einn fyrrverandi fulltrúi talibana sagði hafa
verið helsta einstaka fjáraflamann stjórnar-
innar. „Það voru þeirra eigin peningar. Það
var ekki komið með þá hingað,“ sagði Ahmad.
Fimm milljónir dollara var venjulega það
sem bankinn hafði í hirslum sínum í mánuði
hverjum, að mestu komið frá gjöldum og skött-
um sem safnað var í grennd við Kandahar-
hérað. Upphæðin var meiri á árlegum píla-
grímaferðatíma múslíma til Mecca, þegar
tekjur af vegabréfum og flugmiðum juku inn-
eignina á reikningnum í Kandahar í hátt í 14
milljónir dollara, sagði Ahmad.
Þegar sendimaður Omars, Ghulagha, kom
með ávísunina frá Omar sagði hann við þáver-
andi útibússtjóra, Abdul Samad, að líkur væru
á að húsið hans við aðaltorgið í Kandahar yrði
fyrir sprengjum Bandaríkjamanna, að því er
bankafulltrúar sögðu. Qadez sagði að sendi-
maðurinn hefði útskýrt úttektina með eftirfar-
andi hætti: „Omar múlla sagði að við skyldum
taka alla þessa peninga með okkur og þá gæt-
um við borgað opinberum starfsmönnum á
heimili hans.“
Fordæmi var fyrir því. Á fyrstu dögum tal-
ibanastjórnarinnar var fjárhirsla hennar kista
úr blikki, sem Omar hafði við hliðina á sér, og
úthlutaði hershöfðingjum handfylli af afgön-
um, að því er pakistanski blaðamaðurinn Ahm-
ed Rashid sagði í bók sinni, Talibanar. „Þegar
fór að ganga vel var annarri kistu bætt við – í
henni voru Bandaríkjadollarar,“ skrifaði
Rashid.
Ekki trúleg útskýring
En að þessu sinni virðist enginn í bankanum
hafa tekið fullkomlega mark á útskýringunni
sem gefin var. Í fyrsta lagi bjó Omar ekki leng-
ur á heimili sínu heldur svaf á sjúkrahúsum, í
moskum og í sveitaþorpum, af ótta við loft-
árásir Bandaríkjamanna. Auk þess, útskýrði
Ahmad, „var engum leyft að koma nálægt hús-
inu hans!“
Ahmad var áður gjaldkeri í bankanum, en
eftir fall talibanastjórnarinnar var hann gerð-
ur að útibússtjóra. Hann hefur ekki fengið
launin sín greidd – 1.800 rúpíur á mánuði, eða
um 3.000 krónur – þá undanfarna þrjá mánuði
sem opinberir starfsmenn í Kandahar hafa
verið launalausir. „Hann tók peningana og
fór,“ sagði Ahmad. „Við vorum öll skilin eftir.“
Múllarnir
tæmdu
bankana
Nokkrum dögum eftir að loftárásir Banda-
ríkjamanna á Afganistan hófust létu æðstu
menn talibanahreyfingarinnar bera sér allt
reiðufé úr peningaskápum seðlabankans,
tróðu því í poka og óku burt í flottu jepp-
unum sínum. Síðan hefur ekkert sést af þess-
um peningum, og opinberir starfsmenn í
landinu hafa verið launalausir í þrjá mánuði.
Reuters
Peningahöndlari í Kabúl heldur á búntum af afgönum, opinberum gjaldmiðli Afganistans. Einn Bandaríkjadoll-
ari kostar nú um 25.000 afgana, en í tíð talibanastjórnarinnar þurfti 60.000 afgana til að kaupa einn dollara.
Kandahar. The Washington Post.