Morgunblaðið - 22.01.2002, Page 2

Morgunblaðið - 22.01.2002, Page 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isEiður Smári búinn að skora 16 mörk/B4 Gunnar njósnar um svissneska landsliðið/B1 12 SÍÐUR40 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM HEILBRIGÐIS- og tryggingamála- ráðherra hefur gert samning við Landspítala – Háskólasjúkrahús um að fjölga gerviliðaaðgerðum um 50% og bakflæðisaðgerðum um 65% mið- að við síðasta ár. Þá verður gerviliða- aðgerðum fjölgað verulega á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri og Heilbrigðisstofnuninni á Akranesi. Markmiðið er að stytta biðtíma eftir þessum aðgerðum. Heildarkostnaður við átakið er tæplega 85 milljónir króna en auk þess hafa 4,5 milljónir króna verið veittar til að fjölga augnaðgerðum á augndeild Landspítalans. Segir í fréttatilkynningu að í fyrra hafi 263 gerviliðaaðgerðir verið gerðar á Landspítalanum – Háskóla- sjúkrahúsi en á þessu ári er ætlunin að gera um 400 slíkar aðgerðir. Í fyrra voru gerðar 163 bakflæðisað- gerðir en stefnt er að því að gera um 270 á þessu ári. Þá verður gerviliðaaðgerðum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fjölgað um 60 á árinu og loks verður hnjáaðgerðum á Heilbrigðisstofnun- inni á Akranesi fjölgað um 20. Hagkvæmar aðgerðir Meðalaldur þeirra sem bíða eftir aðgerð á mjaðmar- og hnjálið er 68 ár. Í fréttatilkynningunni segir að þessar tilteknu aðgerðir séu valdar í ljósi þess meðal annars að þær eru taldar hagkvæmar fyrir einstakling og samfélag. Liðskiptaaðgerðir eru þannig þær aðgerðir sem taldar eru borga sig hvað best og taka menn í mati sínu tillit til umtalsverðs lyfja- kostnaðar, óþæginda þeirra sem í hlut eiga og skertrar starfsgetu þeirra. Að mörgu leyti megi segja hið sama um bakflæðisaðgerðir þótt þeir sem þurfa á þeim að halda séu að jafnaði yngri. Samningur heilbrigðisráðherra við þrjá spítala Gerviliðaaðgerðum fjölgað verulega SALA áfengis hjá Áfengis- og tób- aksverslun ríkisins jókst í lítrum talið um 48% á undanförnum sex árum eða úr 8.980 þúsundum lítra árið 1996 í 13.291 lítra á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum um sölu áfengis sem fengust hjá ÁTVR hafa orðið töluverðar breytingar á áfengisneyslu á undanförnum árum en sala á léttari víntegundum, und- ir 22% að styrkleika, jókst ár frá ári þetta sex ára tímabil úr rúmlega 1,3 milljónum lítra árið 1996 í tæplega 2,2 millj. lítra í fyrra eða um 64%. Mismunurinn nemur 849 þús. lítr- um. Sala á sterku áfengi 6% minni í fyrra en 1996 Sala á sterku áfengi með yfir 22% áfengisinnihald dróst hins vegar saman í lítrum talið á þessu tíma- bili. Árið 1996 nam salan 852 þús. lítrum, tveimur árum síðar var sal- an komin niður í 800 þús. lítra, og hefur árleg sala á sterkari teg- undum áfengis síðan haldist svipuð en á seinasta ári seldi ÁTVR 801 þús. lítra af sterku áfengi. Er það 6% samdráttur miðað við söluna ár- ið 1996. Sala á bjór hefur farið stigvax- andi í lítrum talið á þessu tímabili. Árið 1996 seldi ÁTVR 6,8 milljónir lítra af bjór en á síðasta ári voru seldar rúmlega 10,3 milljónir lítra og nemur aukningin 51% frá 1996. Þessar tölur sýna ekki heild- arsölu áfengis á Íslandi á þessu tímabili því frá og með 1. desember 1995 hófu heildsalar sölu á áfengi til veitingahúsa og hætti ÁTVR þá allri dreifingu á áfengi annarri en þeirri er fram fer í vínbúðum. SAMKOMULAG hefur náðst milli Fjárvaka og Íbúðalánasjóðs um að hætta við innleiðingu á stöðluðu Flexcube-skuldabréfakerfi hjá sjóðnum. Þetta kemur fram í frétt frá Íbúðalánasjóði. Þar segir ennfremur: „Íbúðalána- sjóður og Fjárvaki eru sammála um að atriði sem snerta mjög sértæka vinnslu ákveðinna skuldabréfa- flokka Íbúðalánasjóðs og eru til- komin vegna sérstöðu sjóðsins verði ekki leyst án veigamikilla breytinga á stöðlum Flexcube-hugbúnaðarins án þess að veikja heildarhugbún- aðarlausnina.“ Hallur Magnússon, yfirmaður gæða- og markaðsmála Íbúðalána- sjóðs, segir að kerfið hafi verið í að- lögun hjá Íbúðalánasjóði allt frá haustinu 1999. „Það var ljóst í upp- hafi að kerfið var mjög öflugt, en að ákveðin atriði yrði erfitt að leysa,“ segir Hallur. „Seinnipart sumars sáum við að það yrði verulega erfitt að leysa þessi atriði. Síðan hafa þær leiðir sem í boði voru verið full- reyndar. Við erum því hætt við að byggja á þessu kerfi.“ Þau atriði sem ekki var unnt að leysa án grundvallarbreytinga á hugbúnaðinum eru greiðslujöfnun- arlán og sérstaða vanskilainnheimtu sjóðsins. Í greiðslujöfnunarlánum eru greiðslujöfnunarákvæði vegna misgengis láns- og launavísitalna peningalána Íbúðalánasjóðs. Reglur sjóðsins gera ráð fyrir að inn- heimtukostnaður taki ekki mið af fjölda skuldabréfa heldur takmark- ast innheimtukostnaður af fjölda lánshluta í vanskilum á tilteknum gjalddaga. Vinnsla skuldabréfa Íbúðalána- sjóðs verður því áfram hjá Reikni- stofu bankanna eins og verið hefur. Hallur undirstrikar að þar sem enginn þáttur Flexcube-kerfisins hafi verið tekinn í notkun hafi þessi ákvörðun ekki áhrif á núverandi innheimtu og umsýslu skuldabréfa Íbúðalánasjóðs. Greiðir tæpar 13 milljónir Samkvæmt samkomulagi Íbúða- lánasjóðs og Fjárvaka vegna þessa máls mun Íbúðalánasjóður greiða Fjárvaka kr. 12.875.000 vegna vinnu Fjárvaka við gagnagreiningu og skilgreiningarvinnu á þeim tíma sem verkefnið hefur staðið. Gegn greiðslunni eignast Íbúðalánasjóður höfundarrétt á greiningarvinnunni og heldur öllum greiningargögnum. „Íbúðalánasjóður mun í kjölfar þessa endurmeta stöðu hugbúnaðar- og tölvumála sjóðsins áður en tekin verður ákvörðun um frekari þróun þeirra mála,“ segir í frétt Íbúða- lánasjóðs. Íbúðalánasjóður hættir við innleiðingu skuldabréfakerfis Breytingar á sölu áfengis hjá ÁTVR                                                                      Sala léttari vínteg- unda jókst um 64% DRENGUR um fermingu hlaut ann- ars og þriðja stigs brunasár á fótum er hann ásamt félögum sínum var að fikta með bensín og eld í undirgöng- um í Garðabæ um helgina. Bálið fór úr böndunum og var drengurinn fluttur á slysadeild. Ekki var um það að ræða að stálp- aðir piltar hefðu veist að yngri dreng í undirgöngunum og skvett á hann bensíni og kveikt í með þeim afleið- ingum að hann hefði hlotið brunasár á fótum, eins og talið var í fyrstu. Að sögn lögreglu var um fikt að ræða af hálfu drengsins og vina hans, en þeir eru á aldrinum 13-14 ára. Hlaut brunasár á fótum vegna fikts HLÝINDIN undanfarnar vikur hafa ekki aðeins gert það að verk- um að trjágróður hefur tekið við sér líkt og um vor væri að ræða, heldur hafa hjólreiðamenn notað tækifærið og þeyst á fákum sínum um höfuðborgina. Hið óvenjulega janúarveður, með hlýjum vindum og snjólausri jörð, fellur þó vænt- anlega ekki eins vel í kramið hjá skíðafólki sem hugsað hafði sér gott til glóðarinnar í vetur. Hjól- reiðastígurinn í Skerjafirði hlykkj- ast eins og slanga um landslagið og hver veit nema hjólagarpurinn láti sig dreyma um stórsvig og brun meðan hann lætur sig renna til móts við vetrarsólina. Morgunblaðið/Þorkell Hjólað um hávetur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.