Morgunblaðið - 22.01.2002, Page 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 17
FLAGGAÐ var við Merkinessel
hið eldra á Hafnaheiði um
helgina en þar eru hundraðustu
selstóttirnar sem Ferlir, áhuga-
fólk um útivist, minjar og sögu,
skoðar á Reykjanesi.
Hópurinn á eftir að skoða ein
sjö sel af þeim sem skráð hafa
verið.
Selin á Hafnaheiði eru utan
alfaraleiðar og alls ekki auð-
fundin. Ferlisfélagar gengu með
Arnarbælisgjá að Möngu-
selsgjá, sem sker Hafnaheiðina
frá austri til vesturs, að því er
fram kemur í frásögn þeirra af
göngunni. Eftir um klukku-
stundar gang var komið að
Mönguselsgjá. Handan hárrar
vörðu (gömul sandgræðslugirð-
ing hefur legið skammt vestan
vörðunnar), í dalverpi er opnast
þar til norðurs, kúrði Möngusel.
Selið hefur verið fremur lítið og
er greinilega komið til ára sinna,
en hleðslur voru heillegar.
Þá var haldið til suðurs að
Merkinesseli hinu yngra. Selið
er undir lágum gjárbarmi og er
þar allt, sem prýtt getur fallegt
sel. Hleðslur húsa voru að hluta
til alveg heilar, sjá mátti meira
að segja gluggaop á einum
veggnum, stekkurinn var mjög
heillegur og brunnur var greini-
legur framan við selið. Það er
sjaldséð í seljum á Reykjanesi.
Húsin voru hlaðin utan í gjár-
vegginn. Þetta er eitt fallegasta
selið á svæðinu, sem enn hefur
verið skoðað.
Nokkur leit var gerð að
Merkinesseli hinu eldra. Það
fannst þó loks vestur undir hól,
skammt ofan við gróðurmörkin,
en landið er mikið fokið upp
sunnan til á Hafnaheiðinni. Um
er að ræða mjög gróið sel og er
það greinilega eldra en hið fyrr-
nefnda. Gróðurinn í selinu hefur
haldið sér þrátt fyrir jarðvegs-
eyðinguna. Þar hafa verið ein
þrjú hús og stekkur. Að þessu
seli fundnu var talin ástæða til
að flagga á staðnum – á tóttum
eitthundraðasta selsins.
Eftir gönguna til baka var
haldið að seli er vera átti við
Stampana utar á Reykjanesi.
Þar er landið algerlega fokið
upp og ekkert eftir. Haldið var
að Kirkjuvogskirkju og skoðað-
ur gamall letursteinn frá 1830,
er liggur flatur við norðvestur-
horn kirkjunnar. Á steininum er
mikið letur. Loks var litið á
Hunangshelluna við Hafnaveg-
inn, en henni tengist þjóðsagan
um finngálknið og Merkinessel.
Finngálknið var loks vegið á
hellunni eftir mikinn aðdrag-
anda, sem flestir Íslendingar
þekkja.
Flaggað
í hundr-
aðasta
selinu sem
skoðað er
Hafnaheiði
um 20 krónur á kílóið. Tvö fisk-
vinnslufyrirtæki í Garðinum, Nes-
fiskur og Fiskverkun Halldórs Pét-
urssonar, fengu skipin til að koma til
Íslands og munu hafa keypt aflann á
tvö- til þreföldu því verði sem út-
gerðin átti kost á heimafyrir. Fisk-
markaður Suðurnesja í Sandgerði
þjónustar skipin. Björn Björnsson
hjá Fiskmarkaðnum bjóst við því
síðdegis í gær að það drægist að
ljúka löndun þar til árdegis í dag,
þriðjudag.
Skipin taka ís í Sandgerði og halda
aftur á miðin í dag.
VERIÐ er að landa ufsa úr tveimur
færeyskum togurum í Sandgerði.
Erlendir togarar eru afar sjaldséðir
gestir þar í höfninni.
Togararnir, Vesturtúngva og
Grönnanes frá Vestmanna, lögðust
að bryggju í Sandgerðishöfn í fyrri-
nótt. Þeir voru með um 150 tonn af
ufsa sem þeir veiddu saman í troll
innan færeysku fiskveiðilögsögunn-
ar.
Mikið framboð hefur verið af ufsa í
Færeyjum og verðið lækkað niður í
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Færeysku tvílembingarnir komu til Sandgerðis í fyrrinótt með færeyskan ufsa.
Landað úr tveimur
færeyskum togurum
Sandgerði