Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 18

Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 18
LANDIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Litlar heildsölur Höfum litlar heildverslarnir til sölu sem eru mjög áhugaverðar og margir eru sífellt að spyrja um. Fyrst er það lítil heildverslun með sælgæti og kex sem er að velta að meðaltali einni millj. pr. mán. Er í heimahúsi og þarf lítið pláss og einn starfskraft eins og er. Mjög gott verð. Svo er það heildverslun með mikið úrval af leikföngum frá sterkum aðila. Einnig hægt að hafa í bílskúr ef vill. Falleg og fjölbreytileg leik- föng, mikið úrval. Gott verð. Að lokum er það lítil heildverslun með plastvörur í mjög fjölbreyti- legu úrvali: Búsáhöld, ker, sorptunnur og endalaust vöruúrval. Nýtt fyrirtæki á súpergóðu verði með endalausa möguleika. Hafið strax samband því þær seljast fljótt. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. EINAR ÖRN REYNISSON, LÖGG. FASTEIGNASALI. ÍBÚUM Stykkishólms fjölgaði um 6 á árinu 2001 og voru hinn 1. des- ember sl. 1.235 manns. Í Stykk- ishólmi er mikill húsnæðisskortur og segir Óli Jón Gunnarsson bæj- arstjóri að ef nægilegt framboð væri á húsnæði væri mun meiri fólksfjölgun. Óli segist hafa orðið var við mik- inn áhuga hjá fólki á að flytja til Stykkishólms. Hann segir húsnæð- isskortinn vera eitt versta vanda- málið sem hann hefur þurft að tak- ast á við síðan hann tók við starfi bæjarstjóra fyrir tveimur og hálfu ári. Þrátt fyrir að fjölgun milli ára sé ekki meiri, segir Óli Jón, má þó þakka fyrir að um fjölgun sé að ræða, því sveitarfélögum á lands- byggðinni hefur reynst erfitt að halda í fólkið sitt þar sem höfuð- borgarsvæðið togar sterklega. Unnið að bygginga- framkvæmdum Í Stykkishólmi er ein trésmiðja sem er deild innan Skipasmíða- stöðvarinnar Skipavíkur. Auk þess starfa 6 smiðir sem sjálfstæðir at- vinnurekendur. Hjá Skipavík er nóg að gera þessa stundina við byggingaframkvæmdir. Verið er að innrétta fjórar íbúðir í raðhúsi og eru þrjár af þeim íbúðum seldar. Þá er fyrirtækið að byggja eitt ein- býlishús og hús fyrir björgunar- sveitina Berserki. Í vor hyggst Skipavík byggja tvö til þrjú raðhús í Stykkishólmi. Þessi verkefni Skipavíkur ættu að draga úr þeim húsnæðisskorti sem er í Stykkis- hólmi. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Sævar Harðarson, framkvæmdastjóri Skipavíkur, fyrir fram húsið við Ásklif þar sem 4 íbúðir verða teknar í notkun á fyrri hluta þessa árs. Íbúum fjölgaði um sex á síðasta ári Stykkishólmur Húsnæðisskortur stendur fjölgun fyrir þrifum UNGMENNAFÉLAG Íslands hef- ur gert samning við héraðssambönd um rekstur og uppbyggingu þjón- ustumiðstöðva UMFÍ á landsbyggð- inni. „Þetta er stór dagur hjá UMFÍ þar sem við erum með þessum samn- ingum að styrkja landsbyggðina og ganga frá samningum sem efla munu ungmennafélagsstarfið,“ sagði Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ. Skrifað var undir samningana 17. janúar í Selinu, þjónustumiðstöð HSK. Samningurinn er gerður í kjölfar þess að UMFÍ fékk aukna fjárveitingu á fjárlögum ríkisins sem meðal annars átti að fara í uppbygg- ingu þjónustumiðstöðva úti á landi. Héraðssamböndin sem um ræðir eru; Héraðssambandið Skarphéðinn, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Héraðssamband Vestfirðinga, Ung- mennasamband Eyjafjarðar og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands. UMFÍ greiðir sam- böndunum eina milljón króna á samningstímanum, samtals 5 millj- ónir. Hlutverk þjónustumiðstöðvanna verður að fylgja eftir og aðstoða við framkvæmd á verkefnum landssam- takanna á þjónustusvæðinu. Einnig að auka upplýsingastreymi frá félög- unum til þjónustumiðstöðvar UMFÍ í Reykjavík og öfugt, ásamt því að koma kynningarefni áleiðis til hreyf- ingarinnar. Þá munu þjónustumið- stöðvarnar koma fram sem talsmenn hreyfingarinnar og kynna verkefni samtakanna á þjónustusvæðinu. Auk þessa munu þjónustumiðstöðv- arnar taka að sér ákveðin verkefni samtakanna á landsvísu sem unnin hafa verið í þjónustumiðstöðinni í Reykjavík. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Ásdís Helga Bjarnadóttir, sambandsstjóri UMSB, og Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, handsala samninginn. Með þeim eru Gestur Hauksson, varaformaður UMSE, Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Jóhann Tryggvason, formaður ÚÍA, og Árni Þorgilsson, formaður HSK. Samið um 5 þjónustu- miðstöðvar UMFÍ Selfoss SUÐURNES „ÞETTA er að mörgu leyti fyr- irmyndarskóli, en engu að síður eru mörg mjög spennandi verkefni sem bíða sem ég hlakka til að tak- ast á við,“ segir Erna M. Svein- bjarnardóttir sem tók við starfi skólastjóra Gerðaskóla í Garði um áramótin. Erna er uppalin í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu, en fluttist til Patreksfjarðar árið 1973, þar sem hún starfaði sem kennari til 1990, þegar hún tók við skólastjórastöðu við skólann þar í bæ. Árið 1995 flutti hún til Reykjavíkur og hóf störf við sérkennslu í Langholts- skóla. Ári síðar varð hún skóla- stjóri Langholtsskóla. Eiginmaður Ernu er Jón S. Garð- arsson mjólkurfræðingur, en hann starfar sem leigubílstjóri í Reykja- vík. Erna lauk kennaraprófi árið 1967, en bætti við það eins árs námi í Menntaskólanum við Hamrahlíð til að ljúka stúdentsprófi, 1983, en kennaraskólinn var sem kunnugt er ekki á háskólastigi þá eins og nú. „Svo fór ég til Danmerkur í tveggja ára sérkennaranám í Dan- marks Lærerhöjskole í Óðinsvéum, en þaðan útskrifaðist ég árið 1988. Síðan tók ég mastersgráðu frá Kennaraháskólanum 2001, með áherslu á stjórnun, en lokaritgerð mín fjallaði um mat á skólastarfi.“ Erna hefur mikinn áhuga á skólamálum, eins og glögglega má sjá á starfs- og námsferli hennar, en hún nýtir einnig hluta frítíma síns í að lesa og fræðast um slík mál. Saknaði skólastarfsins – Hvers vegna Gerðaskóli? „Þegar ég var að ljúka mast- ersprófinu langaði mig til að prófa eitthvað nýtt, og vann verkefni fyr- ir menntamálaráðuneytið. Verk- efnið var að gera úttektir á sjálfs- matsaðferðum skóla, eins og kveðið er á um í grunnskólalögum og var að hefjast. Ég saknaði þó skólastarfsins og langaði að fara aftur út í það. Garðurinn sameinar ýmsa kosti sjávarbyggða og sveita og fellur landsbyggðarkonu eins og mér það vel en er auk þess stutt frá höf- uðborginni. Mér hefur verið tekið afar vel bæði af börnum og full- orðnum,“ segir Erna og bætir við: „Hér er góður skólabragur og sveitarfélaginu til sóma hvernig búið er að sérkennslu og þeim mál- um sem snúa að nemendum sem minna mega sín í námi. Þetta er að mörgu leyti fyrirmyndarskóli, en engu að síður eru mörg mjög spennandi verkefni sem bíða og ég hlakka til að takast á við. Ég get nefnt fjárhagsáætlun skólans en mikil vinna er fólgin í að forgangs- raða þar, einnig má nefna áætlun um sjálfsmat í skólastarfinu, frek- ari vinna við skólanámskrá og ým- islegt varðandi faglega skipulagn- ingu.“ – Ertu með einhverjar áherslu- breytingar í huga varðandi skóla- starfið í Gerðaskóla? „Það verða nú alltaf einhverjar breytingar þegar nýir yfirmenn taka við og ég á nú von á að svo verði hér einnig. Breytingar verða heilmiklar í skólaum- hverfinu frá og með næsta hausti, en þá stend- ur til að einsetja skólann. Það eitt og sér breytir miklu, en þar fyrir utan á ég eftir að koma með mín- ar áherslur og fá þær ræddar meðal kennara og annars starfsfólks skól- ans.“ Næstelsti grunnskóli landsins „Það er gaman að segja frá því að skólinn verður 130 ára 7. október á þessu ári og er næstelsti starf- andi grunnskóli á landinu. Nemendur eru 220 og starfsmenn 36. Húsnæði skólans er ekki nægilega stórt eins og er til að hægt sé að einsetja hann, en í haust verður tekinn í notkun hluti af nýrri við- byggingu, sem nægir til einsetningar. Einnig er í byggingu samkomusalur og bætt aðstaða fyr- ir starfsfólk, en einnig eru á teikn- ingu enn frekari byggingar. Aðstaða til íþróttaiðkunar í Garðinum er feikilega góð. Hér er góð 25 metra sundlaug og fínt íþróttahús með ýmsum þrek- og lyftingatækjum í kjallara. Allt er þetta á litlu svæði við skólann og er því eins og best verður á kosið.“ –Hefur þú einhver áhugamál ut- an skólastarfsins? „Ég hef mjög gaman af því að ferðast bæði hér heima og erlendis, en við eigum sumarbústað í Fljóts- hlíðinni ásamt fjölskyldu minni og við reynum að fara þangað eins oft og við getum. Þá finnst okkur afar gaman að koma á Vestfirði og reynum að komast þangað eins oft og við getum. Mér finnst einnig gaman að lesa góðar bækur og hlusta á góða tónlist,“ segir Erna og bætir því við að hún sé í sókn- arnefnd Langholtskirkju og í Reykjavíkurdeild Norræna félags- ins. Þá reyni hún að sinna fjöl- skyldunni og ömmustrákunum eft- ir megni. Erna M. Sveinbjarnardóttir nýr skólastjóri Gerðaskóla Mörg spennandi verkefni bíða Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Erna M. Sveinbjarnardóttir er tekin við starfi skólastjóra í Garðinum. Garður TÆPLEGA 5% aukning varð í að- sókn að íþróttamannvirkjum Reykjanesbæjar á síðasta ári. Bæði jókst aðsókn að sundlaugum og íþróttasölum. Í íþróttasali Reykjanesbæjar komu tæplega 275 þúsund manns á árinu, á móti 257 þúsund á árinu 2000. Aukning varð í aðsókn að Reykjaneshöllinni, en þangað sóttu 66 þúsund iðkendur, og íþróttasal Heiðarskóla en bæði þessi mannvirki voru tekin í notk- un á árinu, einnig í íþróttasal Myllubakkaskóla. Svipað margir komu í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur en iðkendum í Íþróttahúsi Kefla- víkur fækkaði úr 108 þúsund í tæplega 96 þúsund. Inni í þessum tölum eru þeir sem æfa á vegum íþróttafélaganna, skólanemendur og almennir bæjarbúar en ekki áhorfendur á íþróttaviðburði, þeir eru á vegum íþróttafélaganna sjálfra. Aukið íþróttastarf Í sundlaugarnar komu 162 þús- und manns á móti 159 þúsund á árinu 2000. Flestir komu í Sund- miðstöðina, 92 þúsund. Í heildina var aðsókn í íþrótta- sali og sundlaugar Reykjanesbæj- ar því tæplega 437 þúsund manns á árinu, á móti 416 þúsund á árinu á undan. Aukningin er því rúmlega 20 þúsund manns eða tæplega 5% frá fyrra ári. Stefán Bjarkason íþrótta- og tómstundafulltrúi segir að greinileg aukning sé í íþrótta- starfi almennt í bæjarfélaginu. Það komi meðal annars fram í þessum tölum. Einnig séu að koma fram áhrif af nýjum sölum, bæði Reykjaneshöllinni og íþróttasal Heiðarskóla. Aukning í aðsókn að íþróttamannvirkjum Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.