Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 23
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
N
M
0
5
1
0
1
/
S
ÍA
„Ég er með léleg hné. Sem krakki óx ég mjög hratt og hnén
fylgdu ekki alveg með. Mér var ráðlagt að fara í greiningu
hjá Stoðtækni og fá innlegg. Eftir að ég fékk innleggin er
ég orðinn góður í hnjánum og þau hafa hjálpað mjög mikið,
bæði þegar ég er á þrekæfingum og daglega, ég er alltaf
með þau í skónum.“
Hlaupa- og göngugreining
Ertu með þreytu eða verki í fótum eða baki?
Komdu og láttu skoða niðurstigið þitt í
göngugreiningu.
Rétt undirstaða getur skipt sköpum til að
ná árangri.
Tímapantanir í síma 581 4711
Kringlan 8 -12, 3. hæð, Reykjavík
Örn Arnarson, sundmaður
Örn Arnarson
íþróttamaður ársins 2001
Leikskóli 5-6 ára
Enskunámskeið 7-12 ára
Unglinganámskeið 13-14 ára
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
Opið hús 26. janúar kl. 10 til 14
Hringdu í síma
588 0303
Faxafeni 8
ENSKA FYRIR BÖRN
Námskeiðin hefjast
2. febrúar
FISHERY Products International
Ltd. (FPI), stærsta sjávarútvegsfyr-
irtæki Nýfundnalands, hefur látið af
áformum um að segja upp 580 starfs-
mönnum í tengslum við endurskipu-
lagningu á starfsemi fyrirtækisins.
Stjórnvöld á Nýfundnalandi sögðust
tilbúin til að setja lög til að koma í veg
fyrir uppsagnirnar. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna á 15% hlut í FPI.
Kanadískir fjölmiðlar greindu frá
því fyrir skömmu að FPI hygðist
segja upp helmingi starfsfólks í fisk-
vinnsluhúsum félagsins í Marystown,
Fortune og Harbour Breton á Ný-
fundnalandi, alls um 580 manns. Upp-
sagnirnar mættu þegar mikilli and-
stöðu meðal verkalýðsforystunnar á
Nýfundnalandi og forsætisráðherra
Nýfundnalands, Roger Grimes, lýsti
því yfir að fyrirhugaðar uppsagnir
væru með öllu óviðunandi og að
stjórnvöld myndu þvinga fyrirtækið
til að standa við skuldbindingar sínar
um atvinnuuppbyggingu á jaðar-
svæðum í Nýfundnalandi. FPI starf-
ar undir sérstökum lögum í Ný-
fundnalandi vegna mikilvægi
félagsins í atvinnulífi landsins.
Í kanadíska dagblaðinu The Globe
and Mail er haft eftir Derrick Rowe,
forstjóra FPI, að stjórnvöld hafi með
þessu bundið hendur fyrirtækisins.
Hann sagði það ólíkindum að stjórn-
völd skuli með þessum hætti skipta
sér af endurskipulagningu á starf-
semi fyrirtækisins en hún hafi miðað
að því að nútímavæða fiskvinnslur og
skapa þannig vinnu í umræddum
byggðum allt árið.
Hallarbylting síðastliðið vor
Endurskipulagningin kemur í kjöl-
farið á samrunaáætlun FPI við Clear-
water Fine Foods sl. vor þegar gerð
var hallarbylting í stjórn FPI, undir
stjórn John Risley, forstjóra Clear-
water, sem nú á 13% hlut í FPI. Ris-
ley naut m.a. stuðnings SH sem áður
hafði tekið þátt í misheppnaðri yfir-
tökutilraun á FPI. Nýsjálenska sjáv-
arútvegsfyrirtækið Sanford Seafood
tók einnig þátt í hallarbyltingunni.
Þessi þrjú félög náðu yfirhöndinni í
FPI, steyptu stjórninni og skipuðu
nýja. M.a. var Victor Young, forstjóri
FPI til 17 ára, látinn taka pokann
sinn. Kaupin voru fjármögnuð með
lántöku og sölu hlutafjár.
Markmið nýju stjórnarinnar var að
auka hagnað fyrirtækisins. Á fyrstu
tveimur ársfjórðungunum eftir að ný
stjórn tók við FPI hefur dregið úr
sölu, tekjum og hagnaði. Á þriðja árs-
fjórðungi síðasta árs námu tekjur
FPI um 3,7 milljónum kanadískra
dollara, af um 179 milljóna dollara
sölu. Á sama tíma árið 2000 námu
tekjurnar um 4,1 milljón dollara, af
um 188 milljóna dollara sölu.
Á síðastliðnu ári hefur verð á hluta-
bréfum FPI farið hæst í 11,95 dollara
hluturinn en lægst í 8,1 dollara. Verð-
ið er núna um 9,8 dollarar í kauphöll-
inni í Toronto í Kanada. SH á 15%
hlut í FPI eða um 2,2 milljónir hluta
en á ekki fulltrúa í stjórn félagsins.
SH keypti hluti sína á genginu 10,15.
Verður langstærsta
sjávarútvegsfyrirtæki Kanada
Síðastliðið haust gaf FPI út til-
kynningu þess efnis að félagið hefði
skrifað undir samning um kaup á öllu
hlutafé keppinautarins, Clearwater
Fine Foods á Nova Scotia. Með því
verður til langstærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki Kanada og sennilega í
Norður-Ameríku.
Derrick Rowe, framkvæmdastjóri
FPI, sagði í samtali við Morgunblaðið
í október að stefnt væri á ríflega 65
milljarða króna ársveltu eftir sam-
runann við Clearwater. Gert væri ráð
fyrir að kaupin á Clearwater færðu
FPI hagnað að upphæð 4,9 milljarðar
króna fyrir fjármagnsliði og skatta og
að viðbættum áætluðum tekjum FPI
yrði hagnaðurinn ríflega 6,5 milljarð-
ar króna.
Frá því að samingurinn um kaupin
á Clearwater var gerður hefur sam-
runinn m.a. verið kynntur samkeppn-
isstofnun Kanada. Búist er við að
samruninn verði lagður fyrir hlut-
hafafund í febrúar og tekur hann þá
afstöðu til málsins. Á þeim fundi verð-
ur Clearwater ekki leyft að greiða at-
kvæði, en hlutur þeirra í FPI er 13%.
Tveir aðrir stærstu hluthafarnir eru
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og
Sanford Seafood á Nýja-Sjálandi,
bæði fyrirtækin með um 15% hlut.
Samtök framleiðenda á frystum fiski
á Nýfundnalandi eiga um 10% í FPI
og um 35% eru í eigu fjármálastofn-
ana, sem að mestu leyti eru í Kanada.
Verði sameiningin að veruleika mun
John Risley að öllum líkindum taka
við stjórnarformennsku í FPI og þá
er áætlað að fyrirtækið selji fyrir um
1 milljarð kanadískra dollara á ári.
FPI hættir við að
segja upp 580 manns
Stjórnvöld á
Nýfundnalandi
gripu í taumana
SÍLDARVINNSLAN í Neskaupstað
hefur nú hafið frystingu á loðnu
fyrir Rússlandsmarkað. Björgólfur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
SVN og framkvæmdastjóri sölufyr-
irtækisins Sæblikans, segir að þeir
séu hóflega bjartsýnir á þokka-
legan markað.
„Þetta er ekkert léttur mark-
aður, en það er heldur ekkert kol-
svart framundan eins og sumir
virðast halda fram. Við teljum góða
möguleika á að selja þessa loðnu á
viðunandi verði í gegn um Sæblik-
ann, en SÍF og SH geta líka fengið
þetta á réttu verði. Það er svo alltaf
spurningin hvað menn telja við-
unandi verð. Í fyrra voru menn að
selja frysta loðnu á allt niður 18
krónur kílóið, en við erum með
hærra verð og ætlum okkur að
frysta töluvert og ætlum ekki að
tapa á því,“ segir Björgólfur Jó-
hannsson.
Ljósmynd/Krístín Ágústsdóttir
Matthildur Sigursveinsdóttir vinnur við loðnufrystingu í fiskiðju-
veri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Hóflega bjartsýnir
TÁLKNI ehf., útgerð Bjarma BA frá
Tálknafirði, hefur áveðið að selja
skipið með öllum veiðiheimildum, alls
um 407 þorskígildistonnum. Ætla má
að verðmæti kvótans sé um 275 millj-
ónir króna. Níels Ársælsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður Bjarma, seg-
ir ástæðu þessa fyrst og fremst
valdníðslu sjávarútvegsráðherra.
Bjarmi BA komst mjög í sviðsljósið
á síðasta ári þegar birtar voru myndir
í fjölmiðlum, sem teknar voru um
borð í Bjarma, og sýndu brottkast á
fiski. Í kjölfarið svipti Fiskistofa
Bjarma veiðileyfi í átta vikur, frá og
með 1. desember 2001 til og með 25.
janúar 2002. Útgerð Bjarma BA
kærði niðurstöðu Fiskistofu en sjáv-
arútvegsráðuneytið staðfesti niður-
stöðuna og hafnaði auk þess kröfu út-
gerðarinnar um frestun réttaráhrifa.
Níels segir að með veiðileyfissvipt-
ingunni hafi útgerðin verið svipt rétt-
indum til að afla sér tekna í tvo mán-
uði. Á meðan hafi áhöfn skipsins verið
á fullum launum og því hafi útgerðinni
verið nauðugur einn kostur að selja
bæði skip og kvóta en verða gjald-
þrota ella. Hann segist vera hættur í
útgerð fyrir fullt og allt. „Okkur var
synjað um flýtimeðferð fyrir héraðs-
dómi og þess vegna var þessu sjálf-
hætt. Kostirnir voru annaðhvort að fá
eitthvað fyrir ævistarfið eða láta kné-
setja sig í eitt skipti fyrir öll. Hér með
lýkur útgerðarsögu minni og reyndar
fjölskyldu minnar, því forfeður mínir
hafa um aldir stundað sjómennsku og
útgerð og fengið til þess frið. Það er
engu að síður ákveðinn léttir að hætta
afskiptum af útgerð, því það hefur síð-
ur en svo verið skemmtilegt að standa
í þessu frá því að kvótakerfið var sett
á. Kerfið er ómannúðlegt og ég hef
fengið nóg af sautján ára kúgun.“
Alls eru níu skipverjar í áhöfn
Bjarma BA, flestir frá Tálknafirði að
sögn Níelsar. Því sé ljóst að sala skips
og kvóta hafi veruleg áhrif í byggð-
inni. Afla Bjarma BA hefur einkum
verið landað til vinnslu á Flateyri og
segir Níels ljóst að þar missi fjöldi
fólks einnig spón úr aski sínum.
Bjarmi BA hefur yfir um 450 þorsk-
ígildistonna kvóta að ráða en Níels
segir að alls hafi skipið veitt um 1.200
til 1.400 tonn á ári. „Við höfum leigt til
okkar kvóta af stóru útgerðunum fyr-
ir um einn milljarð króna í gegnum
tíðina og því hljóta þær að eiga pen-
inga til að kaupa af okkur skipið og
kvótann,“ segir Níels.
Bjarmi BA til sölu