Morgunblaðið - 22.01.2002, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 27
Útsalan
er hafin
Hlíðasmára 17,
Kópavogi, sími 564 6610
verslun.strik.is/allirkrakkar
Barnarúm, baðborð, kommóður,
tvíburavagnar og kerrur
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frá-
bærar aðstæður á suðurströnd Spánar í 3 eða 4 vikur á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um
spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Vorin eru fal-
legasti tími ársins á suður-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í
þessum yndislega heimshluta og á báðum áfangastöðum bjóðum
við þér okkar bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 43.005
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flugsæti eingöngu.
Verð kr. 59.900
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Pinar, 3 vikur, 7. apríl.
Skattar ekki innifaldir.
Verð kr. 77.000
M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 7.
apríl, 3 vikur. Völ um aukaviku.
Skattar kr. 2.950, ekki innifaldir.
Vorferðir Heimsferða til
Costa del Sol
og Benidorm
7. og 10 apríl
frá kr. 43.005
Costa del Sol
Verð kr. 51.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Faro, 2 vikur, 8. maí.
Verð kr. 66.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Faro, 10. apríl, 4 vikur.
Verð kr. 86.900
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 4 vikur,
10. apríl. Skattar kr. 2.950, ekki
innifaldir.
Benidorm
TALSMENN Bandaríkjahers sögðu
í gær að ekkert benti til þess að
bandarísk herþyrla, sem fórst í Afg-
anistan á sunnudag, hefði verið skot-
in niður. Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sagði
að svo virtist sem vélarbilun hefði
valdið slysinu.
Sjö bandarískir hermenn voru um
borð í þyrlunni og fórust tveir þeirra.
Líðan þeirra fimm sem komust lífs af
var í gær sögð „stöðug“.
Vélarbilun
olli líklega
þyrluslysi
Bagram, Kabúl. AFP, AP.
STJÓRNVÖLD í Argentínu unnu að
því um síðustu helgi að fínpússa áætl-
anir um efnahagslega viðreisn lands-
ins og talið er víst, að með þeim verði
endanlega skorið á tengingu gjald-
miðilsins, pesósins, við Bandaríkja-
dollara.
Efnahagsáætlun stjórnarinnar
verður lögð fyrir Alþjóðagjaldeyr-
isjóðinn, IMF, undir næstu mánaða-
mót en vonast er til, að sjóðurinn
komi Argentínumönnum til hjálpar
með 1.500 til 2.000 milljörðum ísl. kr.
Áætlunin er raunar unnin í sam-
ráði við sjóðinn, byggist einkum á
miklu aðhaldi í útgjöldum ríkisins og
í peningamálum, og hafa ýmsir
frammámenn sjóðsins og George W.
Bush Bandaríkjaforseti þegar gefið
til kynna góðar viðtökur í Wash-
ington síðar í þessum mánuði.
Sparifé gert upptækt
að hluta
Eduardo Duhalde, forseti Argent-
ínu, hefur gefið til kynna, að öll
tengsl við dollarann verði slitin og nú
má á honum skilja, öfugt við það, sem
hann lofaði er hann tók við embætti
1. janúar, að allar dollarainneignir í
bönkum verði greiddar út í pesóum
og öllum dollaraskráðum lánum og
skuldum verði breytt í pesóa. Ekki er
enn ljóst með hvaða hætti þessi um-
skráning verður en líklegt talið, að
hún verði á genginu 1,40 pesóar á
móti dollara. Síðastliðinn föstudag
mátti hins vegar fá 2,10 pesóa fyrir
dollarann þannig að ljóst er, að um
verulega fjárupptöku verður að
ræða.
Alþjóðlega greiðslumatsfyrirtækið
Moody’s sagði í síðustu viku, að arg-
entínsku bankarnir væru í raun
gjaldþrota við núverandi aðstæður
og hætta væri á, að allt fjármálakerf-
ið í landinu hryndi ef þeim yrði ekki
leyft að afskrifa skuldirnar að hluta.
Bankarnir gætu ekki greitt dollara-
inneignir í dollurum og það gæti rík-
isstjórnin ekki heldur.
Mikil ólga hefur verið í Argentínu
vegna efnahagsóreiðunnar og ekki er
búist við, að sparifjáreigendur muni
taka því með þegjandi þögninni,
verði inneignir þeirra skornar niður.
Áætlun Argentínustjórnar um endurreisn efnahagslífsins
Reuters
Sparifjáreigendur í Argentínu mótmæla því daglega, að þeim skuli ekki
leyft að taka út inneignir sínar í bönkum en þær eru yfirleitt skráðar í
dollurum. Nú er talað um, að þær verðir greiddar í verðlitlum pesóum
og hluti inneignarinnar þannig gerður upptækur.
Aukið aðhald
og tengsl við
dollara rofin
Buenos Aires. AFP.
TÖLVULEIKURINN „Grand Theft
Auto 3“ hefur vakið hörð viðbrögð
í Noregi og þar hefur verið lögð
fram kæra gegn danska fyrirtæk-
inu KE Media, sem annast dreif-
ingu hans. Að mati neytendaráðs-
ins, umboðsmanns barna og Lailu
Dåvøy fjölskylduráðherra er leik-
urinn svo ofbeldisfullur og ósið-
legur, að hann brýtur beinlínis
gegn refsilögunum. Kom þetta
fram á vefsíðu danska blaðsins
Politiken.
„Lögfræðingar okkar hafa skoð-
að leikinn og komist að þeirri nið-
urstöðu, að hann brjóti gegn
ákvæðum refsilaga um gróft of-
beldi í kvikmyndum, myndböndum
og öðrum slíkum miðlum,“ sagði
Tom Bolstad, deildarstjóri hjá
norska neytendaráðinu, í viðtali
við Dagbladet. Laila Dåvøy kvaðst
vona, að foreldrar fylgdust al-
mennt vel með því, sem börnin
þeirra hefðu undir höndum.
Tölvuleikurinn „Grand Theft
Auto 3“ er nú sá vinsælasti í Dan-
mörk en í honum er leikmaðurinn í
hlutverki bílþjófs og gefst til dæm-
is kostur á að aka niður gangandi
vegfarendur og berja aðra með
kylfu. Fyrri útgáfur af þessum leik
hafa einnig verið gagnrýndar, til
dæmis af stjórnmálamönnum í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Noregur
Tölvuleik-
ur kærður
vegna
ofbeldisAUKIN ferðalög til fjarlægra
heimshluta, vaxandi innflutningur
fólks og hlýnandi veðurfar hafa
orðið þess valdandi að ýmsir hita-
beltissjúkdómar hafa skotið upp
kollinum í Bretlandi, að því er
BBC hefur eftir helsta ráðunaut
bresku ríkisstjórnarinnar í heil-
brigðismálum.
Prófessorinn Sir Liam Donald-
son fullyrðir í nýrri skýrslu sinni
að nauðsynlegt sé að grípa til að-
gerða til að forða útbreiðslu hita-
beltissjúkdóma í Bretlandi. Legg-
ur hann til að sett verði á fót
sérstök stofnun í þessu skyni, sem
hefði meðal annars það hlutverk
að upplýsa almenning um hættuna
og tilkynna heilbrigðisstarfsfólki
um óvenjuleg tilfelli.
Talið er að „ævintýraferðir“ til
framandi heimsálfa, sem notið
hafa mikilla vinsælda undanfarin
ár, hafi aukið mjög hættuna á út-
breiðslu hitabeltissjúkdóma í
Bretlandi og öðrum norðlægum
löndum. Á síðasta ári ferðuðust til
dæmis um 750.000 Bretar til
Norður-Afríku og nær tvær millj-
ónir til Suður-Ameríku. Kannanir
sýna að margir ferðalanganna
virða að vettugi tilmæli um að láta
bólusetja sig við sjúkdómum á
borð við malaríu, lifrarbólgu og
taugaveiki.
Sir Liam nefnir í skýrslu sinni
að a.m.k. eitt tilfelli sé þekkt þar
sem maður komst í snertingu við
ebóla-sjúklinga í Úganda og varð
svo sjálfur sjúkur eftir komuna til
Bretlands. Hann varar einnig við
því að hlýnandi veðurfar geri að
verkum að ýmis skordýr sem hýsa
sýkla eigi auðveldara með að þríf-
ast á norðlægum slóðum og það
auki hættuna á sjúkdómsfaröldr-
um. Dæmi um það eru tilfelli af
völdum Vestur-Nílarveirunnar,
sem komið hafa upp í Bandaríkj-
unum og Kanada á síðustu árum.
Veiran er borin af fuglum en smit-
ast í menn með biti moskítóflugna.
Í skýrslu Sir Liams segir að til
að vernda almenning fyrir smit-
sjúkdómum verði að leggja mikla
áherslu á gott eftirlit og skjót við-
brögð við sýkingum.
Malaría sérstakt
vandamál
BBC hefur jafnframt eftir Peter
Chiodini, sérfræðingi við hitabelt-
issjúkdómastofnun í Lundúnum,
að malaría sé sérstakt vandamál,
enda líkist fyrstu einkenni hennar
að mörgu leyti venjulegri flensu.
Sagði Chiodini að á hverju ári léti
nokkur fjöldi Breta lífið af völdum
sjúkdómsins, þótt hægt hefði verið
að komast hjá dauðsföllum ef við-
komandi hefðu fengið rétta ráð-
gjöf og farið eftir henni.
Hitabeltis-
sjúkdómar
í Bretlandi
JAPAN, Evrópusambandið og
Bandaríkin og fleiri ríki hétu því í
gær á fundi í Japan að leggja fram
alls um 3,9 milljarða dollara, um 400
milljarða króna, til að reisa efnahag
Afgana úr rústum. Hamid Karzai,
leiðtogi bráðabirgðastjórnar Afgan-
istans, lýsti þakklæti þjóðarinnar en
hvatti til þess að féð yrði reitt af
hendi sem allra fyrst.
Karzai sagði að ef ekki tækist að
koma á ró myndi Afganistan geta
orðið áfram uppspretta óstöðugleika
í heiminum. Afganska fréttastofan
AIP sagði að liðsmenn stríðsherrans
Rashids Dostums og Tadjíkar úr
herjum Burhanuddins Rabbanis,
fyrrverandi forseta landsins, hefðu
barist undanfarna tvo daga í norður-
héraðinu Kunduz. Var sagt að ellefu
hefðu fallið. Dostum er aðstoðar-
varnarmálaráðherra í stjórn Karzais
og flokkur Rabbanis á einnig ráð-
herra í henni.
Afgönum
heitið fjár-
hagsaðstoð
Átök milli Norður-
bandalagsherja
Kabúl. AFP.