Morgunblaðið - 22.01.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 22.01.2002, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 39 ✝ Una S. Berg-mann fæddist í Fuglavík á Miðnesi 12. júní 1917. Hún lést á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund 14. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Vigdís Sigurðardóttir, fædd 4.8. 1891, d. 6.10. 1960, og Sigurður M. Bergmann, f. 24.7. 1880, d. 11.8. 1965. Systkini Unu eru Sigurður Bjartmar, f. 15.7. 1914, d. 18.12. 1936; Jóhanna, f. 23.10. 1915, d. 2.9. 1990; Magnús, f. 20.2. 1919, d. 29.1. 2000; Björn, f. 18.7. 1920, d. 25.2. 1977; Ólafía, f. 27.1. 1922; Guðríður, f. 10.2. 1925; Jón- ína, f. 22.11. 1926; Sigríður, f. 23.7. 1928; Haukur, f. 22.5. 1932. Una ólst upp í Fuglavík fram á unglingsár. Hún stundaði síðan ýmsa vinnu, fór í kaupavinnu á sumr- in eins og algengt var á þeim árum en lengst af vann hún sem saumakona í Reykjavík. Una hafði mikið yndi af ferðalögum og var virkur félagi í Ferðafélagi Íslands svo og í Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna. Seinustu tvö árin dvaldi hún á Elliheimilinu Grund. Útför Unu fer fram frá Hvals- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Á klettum brýtur. Kvöldi fer að halla og kulið blæs úr loftsins opnu gátt. Nú leggur rökkurreyk um tinda alla frá rauðum sólarkyndli í vesturátt. Á öðrum ströndum, handan hafs og fjalla, í heiði sólin skín um loftið blátt. (Jakob Jóh. Smári.) Mig langar að minnast Unu móð- ursystur minnar með örfáum orðum. Ég minnist þín fyrst er ég var barn að aldri og fjölskyldan kom saman í Fuglavík, þá lékst þú á als oddi við okkur krakkana, svo létt á fæti og full af fjöri með orðaleiki á vörum. Þá var oft tekið í spil og sagðar sögur. Þú fórst með heilu kvæðin enda víð- lesin og fróð um flesta hluti. Þú varst víðförul innan lands sem utan og í ferðum fjölskyldunnar um landið fræddir þú okkur fúslega. Þú varst órög og hátt á áttræðisaldri lagðir þú land undir fót og fórst alla leið til Kína. Um tíma hafðirðu brennandi áhuga á þjóðfélagsmálum og leiðir okkar lágu oft saman er við þrömm- uðum niður Laugaveginn hinn 1. maí, þar sem þú gekkst undir Sókn- arfána. Þú varst ákveðin í skoðunum og vildir leggja þitt af mörkum í barátt- unni fyrir betri heimi. Umhverfismálin voru þér líka hjartfólgin. Þú ræktaðir skóg og lagðir hönd á plóg í orðsins fyllstu merkingu. Eitt sinn tókstu mig með þér í grasaferð og glæddir hjá mér áhuga á jurtum. Mína fyrstu skíða- ferð fór ég líka með þér en hún var milli Kópavogs og Reykjavíkur. Oft fékk ég líka að fljóta með þegar þið systurnar fóruð í ykkar árvissu leik- húsferð. Elsku Una, ég vil þakka þér fyrir samfylgdina. Ég veit að seinustu ár- in voru þér erfið er heilsunni hrakaði og krafturinn þvarr. Hvíl í guðs friði. Ingibjörg. UNA S. BERGMANN Það var í Hraðfrystistöðinni niðri við Granda sem leiðir okkar Helgu lágu fyrst saman. Þá 14 ára ung- lingsstúlkur með framtíðardrauma og lífið var svo létt. Hlegið var að öllu, Presley-lögin sungin og spiluð og sumarið var bjart. Farið var á völlinn og stutt við bakið á sínum mönnum, á rúntinn og svo litið inn á Langabar og spáð í spilin. Að hausti settumst við Helga svo á skólabekk. Ákváðum að fara í nýstofnaða versl- unardeild í Hagaskóla og útskrifuð- umst við þaðan árið 1958. Þá var haldið út í heim í leit að ævintýrum og er sá tími er við dvöldumst í Kóngsins Kaupmannahöfn kafli í bók minninganna sem gott er að minnast. Fljótlega kynntist Helga mannsefni sínu, en það var á Gull- fossi á heimleiðinni. Sigurður Ægir og Helga gengu brátt í hjónaband. Ægir var alltaf fljótur í allri fram- göngu og vissi hvað hann vildi. Hann beið ekki með hlutina, var KR-ingur og vesturbæingur og við vinir henn- ar Helgu sérlega ánægðir með KR- inginn sem var alltaf með brandara á vörunum og kom okkur í gott skap. Ægir var dugnaðarforkur, vann hjá heildversluninni Skagfjörð og þjálf- aði unglingsstráka í fótbolta og var mjög vinsæll. Ægir lést fyrir aldur fram, aðeins 44 ára gamall. Helga og Ægir voru samhent hjón og ætíð nefnd í sömu hendingu. Góð heim að sækja, félagslynd og vinir í raun. Benedikt Bjarki, sonur þeirra hjóna, reyndist móður sinni vel, enda mikið í hann spunnið. Helga hefur nú kvatt þessa jarðvist, umvafin kærleika fjölskyldu sinnar, bestu vinkonu sinnar Öldu móður sinnar, Bene- dikts Bjarka, Unnar og barna- barnanna, bræðra sinna sem hún mat ávallt mikils og eiginkvenna þeirra. Guð blessi Helgu vinkonu mína. Jónína H. Jónsdóttir (Nína). Hvenær sem kallið kemur kaupir sig enginn frí, þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (Hallgr. Pét.) Elsku Helga frænka. Nú ertu far- in, farin yfir í betri heim. Heim laus- an við kvalir og erfiða sjúkdóma sem gerðu þér lífið erfitt síðustu árin en samt kvartaðirðu aldrei. Ég talaði við þig í símann í meira en klukku- stund í byrjun desember. Þá hringd- irðu og varst að óska okkur til ham- ingju með nýja fjölskyldumeðliminn, fyrsta stórfrænda okkar systranna og fyrsta afa- og ömmu strákinn. Sjálf hafðir þú eignast þitt fyrsta barnabarn fyrir sjö árum og nú átt- irðu orðið heil þrjú stykki. Þú talaðir um þau heillengi og varst svo stolt að segja hinar ýmsu prakkarasögur af þeim. Við minnumst þess þegar þú og Ægir heitinn voruð að passa okk- ur. Þá var dekrað við okkur á allan hátt og leikið endalaust. Cocoa puffs og önnur sætindi gleymast seint. Við eigum einnig margar góðar minningar úr jólaboðunum hjá Öblu ömmu, utanlandsferðum til Spánar og sumarbústaðarferðum í Húsafell sem og heimsóknum upp í Skorra- dal. Elsku amma, Benni, Unnur og börn, við sendum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Svo er hver ferð sem henni lýkur. Anna Kristín, Guðmundur Örn, Alda Gyða. Þótt meir en 30 ár séu liðin er það mér ennþá í fersku minni. Lítill drengur valhopp- aði heim og trítlaði glaðlegur stigann uppí eldhús til að fá svalað mesta þorstanum. Dreng- inn rak í rogastans þegar við honum blasti frú ein frekar óárennileg, nokkuð mikil um sig og svipmiklir andlitsdrættirnir reyndust óræðir fyrir ungan, óreyndan drenginn sem þurfti að skáskjóta sér framhjá til að komast að borðinu. „Mamma – hver er þetta ?“ „Ja – ég heiti nú Grýla,“ sagði konan og hló nokkuð ísmeygi- lega þannig að drengnum rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Þó var einnig í hlátrinum einhver blíðlegur tónn og vinalegur sem mér ungum drengnum þótti bersýnilegt merki um að þessa konu þyrfti aldrei að ótt- ast. Ég efast um að Imba hafi þá gert sér grein fyrir því merkilega sem í lífi mínu gerðist þennan dag, að ég stein- hætti að óttast Grýlur, tröll eða því- umlíkt og kynntist jafnframt mann- eskju sem mér hefur alla tíð þótt vera alveg einstök í sinni röð. Imba var miklum gáfum gædd og geysilega fróð enda hafði hún áhuga á flestu milli himins og jarðar, þó var hún ekki að flíka þekkingu sinni nema eft- ir því væri leitað. Henni lét einkar vel að fræða aðra þrátt fyrir að vera ein- att hógværðin sjálf. Ljóðlistin lék í INGIBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR ✝ Ingibjörg Sig-fúsdóttir fæddist í Forsæludal í A- Hún. 24. janúar 1909. Hún lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi 10. janúar síðastliðinn og var hún jarðsungin frá Blönduóskirkju 19. janúar. höndum hennar alla tíð en ekki á ég von á að hún hafi komið nema broti af því á pappír og prent, því suma hluti vildi hún eiga fyrir sjálfa sig. Imba var ávallt ljúf í skapi og ein- staklega bóngóð og urðu foreldrar mínir hjálpsemi hennar að- njótandi árum saman. Hún bar hag lítilmagn- ans sérstaklega fyrir brjósti og tók ávallt upp hanskann fyrir þá sem stóðu höllum fæti í líf- inu. Náttúra Íslands var henni sér- stakt yndi, þannig tók hún sig til á gamals aldri og fór í slarkferðir með erlendum ferðalöngum um hálendi landsins þar sem gist var í tjöldum og haldnar kvöldvökur í rökkrinu. Trúi ég að þar í ómældri víðáttu fjallanna við birtu og yl varðeldanna hafi hún notið sín til fullnustu. Það voru alger forréttindi að fá að kynnast slíkri manneskju – blessuð sé minning hennar. Sigurður Ívarsson. - .         /   )  3  ( #(A           !"#! $ )   /1/  ) ! )'"# ' #% %%&5()'  ' (( )'!   % ' (( &!)' ' (( &%; 2 $ #% &  %)' #% )'  B%')' #%          3)) 33    )"#)      &(!"#! $  ,  ! ! 2 % #% )'  !  #% 3%6'! C # +4 ! ' (( /5(6$ #% ! ! ' (( &%)' ) 0%0,%#&0%0%0,%                +   21 81 ) 0(>> )$%$   +!"#!  6 4 ' (( *% %'D 0& #% 2' &5( %% 0& ' (( 2 %+%'( #% 5(E  0& #% 0%0,%#&0%0%0% 2  1     1    ,   ) ,)   #               +2   1  1 ,  %'9F   ! 3   1               4 /.  < (!%2 % ' ((  %'2 % #% +%  ' (( %&  2 % #% ) ,'!  &0& ' (( " *%2 % #% + %$!6 4 ' ((   0%0,%#&0%0%0,% 2 1/  # ) ,)   # "#   1G2 3 =  $4  ! 3  1       " # &0 ,&6 %' ' (( 2 %6 %' #% #&$ , '              21)* 1 81 ( ,%? $#         5!"#    6)   /1/! 3   1 .         /   ) ,"     &%#%'-( (%&' %#&0%0,% ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.