Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 47

Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 47 UM helgina voru 17 ökumenn grunaðir um ölv- un við akstur og 62 um of hraðan akstur. Á föstu- dagsmorgun var tilkynnt um þjófnað á bílasölu í austurborginni. Þar var spenntur upp gluggi en ekki farið inn heldur hafði þjófurinn teygt sig inn um gluggann og tekið dýran tölvuskjá. Þá var tilkynnt um bifreið sem ekki hafði verið skilað eftir reynsluakst- ur fyrir sölu. Bifreiðin fannst skömmu síðar í miðbænum og voru tveir menn í henni sem báðir voru handteknir. Annar maðurinn veitti mótspyrnu og reyndi að slá lög- reglumann með flösku. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu en mikið var af ýmsum varningi í bif- reiðinni sem þurfti að kanna. Aðfaranótt laugardags var nokk- ur ölvun og talsverður erill hjá lög- reglu. Nokkuð var um stimpingar í miðborginni en engin alvarleg meiðsli. Tveir menn voru handtekn- ir þar og aðrir tveir fluttir á slysa- deild. Á laugardagsmorgun var til- kynnt um innbrot í kjallaraíbúð í vesturbænum. Þar var tölvu stolið. Tilkynnt var um innbrot í sum- arbústað við Heiðmerkurveg. Þar var brotin rúða við útidyrahurð og stolið sjónvarpi, tölvu og dekkjum. Eldboð komu bæði frá sjúkrahúsi og vistheimili aldraðra. Á öðrum staðnum var það brauðrist en á hin- um hamborgari á pönnu sem settu aðvörunarkerfi í gang. Eldur kom upp í bifreið á Lauf- engi á laugardagskvöld. Ökumaður mun hafa lagt bifreiðinni á bifreiða- stæði fyrr um kvöldið en bifreiðin er talin hafa startað sér sjálf og runnið á grindverk og eldur kom upp í bifreiðinni. Slökkvilið kom á vettvang og slökkti eldinn. Aðfaranótt sunnudags var tölu- vert af fólki í miðborginni og mikill erill hjá lögreglumönnum vegna slagsmála og minniháttar pústra. Tvær líkamsárásir voru við veit- ingastaði í miðborginni. Á öðrum staðnum hafði maður verið sleginn og rotast við það. Hann fluttur á slysadeild. Þá var kona handtekin á veitingahúsi vegna óláta og rúðu- brots. Tilkynnt var um rúðubrot í verslun í austurborginni. Þar var stolið sérhönnuðum úrum í gjafa- öskjum. Um nóttina var tilkynnt um innbrot í söluturn í austurborg- inni. Þar var m.a. stolið talsverðu af DVD-diskum. Vegfarandi varð var við mann sem virtist með barefli í belti. Höfð voru afskipti af honum og reyndist þetta vera víkingur að koma af grímudansleik og var hann með trésverð í beltinu. Snemma á sunnudagsmorgun ruddist maður inn um opna svalahurð í Hólahverfi og eyðilagði matarstell og fleiri eld- húsáhöld. Hafði hann einnig í hót- unum við íbúa sem sátu þarna að snæðingi. Vitað er hver maðurinn er en hann var farinn þegar lög- reglu bar að. Þá var tilkynnt um innbrot á skrifstofu í Breiðholts- hverfi. Rúða í neyðarútgangi var brotin og stolið ýmsum tölvubún- aði. Einnig var brotist inn í verslun og stolið myndavélum og fleiru. Fyrir hádegi á sunnudag var til- kynnt um innbrot í bifreið í Rima- hverfi. Stolið var debetkorti og ýmsum munum. Á sunnudagskvöld var tilkynnt um eld í bifreið í Máva- hlíð. Þarna hafði kviknað í vélar- rúmi bifreiðarinnar, talsvert miklar skemmdir urðu. Líklegt þykir að kviknað hafi í vegna slitinnar vift- ureimar. Nokkur erill vegna ölvunar í miðbænum Úr dagbók lögreglunnar/18. til 21. janúar GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Landbúnaðarháskólinn á Hvann- eyri og Félag íslenskra landslags- arkitekta (FÍLA) hafa gert með sér samkomulag um rannsóknir og ritun á sögu íslenska garðsins. Markmið samningsins er að fram fari heimildaskráning og úr- vinnsla gagna um garða sem varð- veittir eru frá því fyrir aldamótin 1900 og allt fram til síðustu alda- móta og að rannsóknir á heim- ildum og skráning þeirra verði til þess að kennsluefni fyrir skólana verði stóraukið. Þá er lögð áhersla á að rannsóknir og skrán- ing nýtist til almennrar fræðslu og fyrir ferðaþjónustuaðila. Einar E. Sæmundssen og Sam- son Harðarson, landslags- arkitektar hjá Landmótun hafa verið ráðnir til verksins. Þessar tvær menntastofnanir landbún- aðarins og FÍLA hafa einnig und- irritað samstarfssamning um rann- sóknir á sviði landslagsarkitektúrs, garðbyggingar og garðræktar. Markmið samningsins er m.a. að hefja samstarf þessara aðila með því að stuðla að því að fram fari heimildaskráning og úrvinnsla gagna um merkustu garða lands- ins og að stuðla að og styrkja rannsóknir á þáttum sem taka til ofangreindra atriða og heim- ildaskráningu á þessu sviði um garða á Íslandi í nútíð og úr for- tíð, segir í fréttatilkynningu. Frá undirritun samningsins á Hótel Borg, talið frá vinstri: Sveinn Að- alsteinsson, skólameistari Garðyrkjuskólans, Magnús B. Jónsson, rektor landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, og Finnur Kristinsson, formaður FÍLA. Fyrir aftan standa þeir Einar E. Sæmundsson og Samson Harðarson. Samningur um ritun sögu íslenska garðsins KERAMIKNÁMSKEIÐ hjá Ker- amik hefst þriðjudaginn 29. janúar og verður á þriðjudagskvöldum í fimm vikur. Í lok námskeiðs munu nemend- ur hafa kynnst mörgum mismunandi aðferðum við að mála keramik. Opið hús er á miðvikudagskvöld- um. Einkasamkvæmi fyrir vinahópa, starfsmannafélög eða bekki skóla- barna verða áfram í boði. Bókanir fyrir námskeið og einka- hópa eru hjá Keramik fyrir alla, síma og vefsíðu, keramik.is. Opið er mánu- daga til föstudaga kl. 11–18 og laug- ardaga kl. 13–17 fyrir þá sem vilja koma og mála muni, segir í fréttatil- kynningu. Keramiknámskeið ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinnar hefur sent frá sér eftirfarandi álykt- un: „Meira en helmingur matvöruversl- unarinnar í landinu öllu er á einni hendi og 60% slíkrar verslunar á höf- uðborgarsvæðinu. Í könnun sem birt er í Morgunblaðinu. 17.1. s.l. kemur fram að verð á sumum innfluttum matvörum hækkaði um tugi prósenta á síðasta ári. Langt umfram geng- islækkun krónunnar og verðbólgu í landinu. Háskaleg samþjöppun á smá- sölumarkaði hefur þannig stórskaðað neytendur með óhóflegu verði og eiga verðhækkanir hér á landi síðustu árin sér vart hliðstæðu erlendis. Samfylk- ingin tekur varðstöðu með almenningi gegn okri og einokun og mun ekki þola stjórnvöldum að skortur á virkri samkeppni þrengi að hagsmunum al- mennings. Þingflokkur Samfylkingar- innar vill þess vegna efla Sam- keppnisstofnun og fá henni þau vopn í hendur sem duga til að kljúfa í sundur stórfyrirtæki sem komin eru í fá- keppnisaðstöðu á markaði ef slíkt er nauðsynlegt til að tryggja hagsmuni neytenda.“ Samfylkingin ályktar gegn okri og einokun REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp í Fákaefni 11, 2. hæð, sem hefst fimmtudaginn 24. janúar Einnig verður kennt 28. og 30. jan- úar. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Meðal þess sem verður kennt er blástursmeðferðin, endurlífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna og bein- brotum, meðferð sára og fleira. Hægt er að fá námskeiðið metið í ýmsum skólum. Skráning í síma hjá Reykjavíkurdeild RKÍ. Önnur námskeið hjá Reykjavíkur- deildinni eru um sálræna skyndi- hjálp, slys á börnum og hvernig á að taka á móti þyrlu á slysstað. Barn- fóstrunámskeið eru haldin á tíma- bilinu mars–júní. Reykjavíkurdeild RKÍ útvegar leiðbeinendur til að halda þessi námskeið sé þess óskað, segir í fréttatilkynningu. Námskeið í skyndihjálp MÁLSTOFA verður haldin í tengslum við kennslu í stjórnskipun- arrétti í lagadeild Háskóla Íslands, í stofu L-101 í Lögbergi, miðvikudag- inn 23. janúar kl. 12.15–13.30. Umræðuefnið verður: Hver er stjórnskipuleg staða forseta Ís- lands? Málshefjendur verða: Sigurð- ur Líndal, prófessor við lagadeild og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við fé- lagsvísindadeild. Málstofan er opin öllu áhugafólki. Málstofa í lagadeild ALMENNUR baráttufundur Átaks- hóps öryrkja, haldinn laugardaginn 19. janúar, skorar á verkalýðshreyf- inguna að hvika ekki frá yfirlýstri stefnu sinni í velferðarmálum í þeim viðræðum sem framundan eru við ríkisstjórnina. Almenningur á Ís- landi þolir ekki lengur þá stefnu í skatta- og almannatryggingamálum sem framfylgt hefur verið af sífellt meiri óbilgirni á síðasta áratug, segir í ályktun átakshópsins. Átakshópur öryrkja mun fylgjast grannt með forgangsröðum stjórn- málaflokkanna í þeim tvennum kosn- ingum sem framundan eru og veita í þeim efnum virkara aðhald en áður, segir í ályktuninni. Ekki verði hvikað frá stefnu í vel- ferðarmálum MANNRÉTTINDASTOFA Íslands efnir til málstofu miðvikudaginn 23. janúar kl. 17, í Litlu-Brekku við Bankastræti. Magnfríður Júl- íusdóttir, lektor í landafræði við Há- skóla Íslands, flytur erindi sem hún nefnir „Réttindi kvenna og barna í Zimbabwe: Á mótum hefða og settra laga“. Segir hún þar frá rannsókn sinni á högum og réttindum kvenna og barna í Afríkuríkinu Zimbabwe. Rannsókn Magnfríðar er doktors- verkefni hennar við samfélagsvís- indadeild háskólans í Lundi í Sví- þjóð. Hún byggist á viðtölum Magnfríðar við konur í austurhluta Zimbabwe þar sem hún dvaldist á árunum 1996 og 1997, svo og á síð- asta ári. Mun hún fjalla um áhrif samfélagsbreytinganna sem orðið hafa frá því að landið fékk sjálfstæði árið 1980 á réttindi kvenna og mögu- leika ólíkra hópa þeirra til fram- færslu. Einkum verður fjallað um réttindi kvenna til lands, hjúskapar- eigna og forsjár barna sinna við skilnað eða dauðsfall maka, segir í fréttatilkynningu. Segir frá rétt- indum kvenna og barna í Zimbabwe FUNDUR í Hláturklúbbi Hana-nú í Kópavogi verður í Gullsmára í dag, þriðjudag 22 . janúar, kl. 20. Sagðar verða gamansagnir eða skrítlur úr daglega lífinu. Gerðar verða tækni- legar hláturæfingar. Upplýsingar í Gullsmára. Allir velkomnir, segir í fréttatil- kynningu. Fundur hjá Hana-nú VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, heldur málfund sem ber yfir- skriftina „Ísrael-Palestína: Er ein- hver leið til sátta?“ miðvikudaginn 23. janúar kl. 12.15 í Odda, stofu 101. Fundarmenn verða þau Óli Tynes fréttamaður, Jóhanna Kristjónsdótt- ir blaðamaður, og Viðar Þorsteins- son frá samtökunum Ísland-Palest- ína. Þau munu öll halda stuttar framsögur en að þeim loknum verð- ur opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á málefninu. Fundur um mál- efni Palestínu FÉLAG Þingeyinga í Reykjavík heldur sitt árlega þorrablót í Félags- heimili Seltjarnarness laugardaginn 26. janúar. Húsið verður opnað kl. 19 og borðhald hefst kl. 20. Menn koma með sinn þorramat sjálfir í þar til gerðum trogum. Fjöl- skyldur og vinahópar taka sig saman og eru „saman í trogi“. Ræðumaður kvöldsins verður Steingrímur J. Sigfússon, tónlistar- atriði flytja Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína. Reynir Jónasson stjórnar fjöldasöng og leikur undir á harmonikku og hljómsveitin Kross- field drengjakórinn kemur norðan úr Ljósavatnsskarði og leikur fyrir dansi. Veislustjóri verður Guðrún Sigurjónsdóttir.Þorrablót Þing- eyingafélagsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.