Morgunblaðið - 22.01.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VEÐRIÐ hefur sannarlega leikiðvið íbúa á höfuðborgarsvæðinu
undanfarið og nú þegar daginn er
tekið að lengja hefur margur getað
notfært sér veðurblíðuna til útivistar
af ýmsu tagi þótt aðstaða til hefð-
bundinna vetraríþrótta hafi ekki ver-
ið til staðar. Víkverji var einn fjöl-
margra sem nýtti sér góða veðrið um
helgina til gönguferða. Á laugardag-
inn fékk hann sér góðan göngutúr
um miðbæ Reykjavíkur og kom hon-
um nokkuð á óvart hve margt var um
manninn í miðbænum. Fólk á öllum
aldri var þar á rölti og sérstaklega
fannst Víkverja ánægjulegt að sjá
margt ungt fólk á ferðinni með börn
sín í kerrum eða gangandi. Vakti það
athygli Víkverja hve mikið var um
tvíburakerrur og jafnvel þríbura-
kerrur á gangstéttunum, en á því
munu víst vera ákveðnar skýringar.
Á sunnudeginum fór Víkverji svo í
Heiðmörkina í blíðskaparveðri en
nokkuð er um liðið síðan Víkverji
kom þar síðast. Þaðan er sömu sögu
að segja, allir göngustígar voru nán-
ast þéttskipaðir spræku fólki á öllum
aldri og unga fólkið með barnakerr-
urnar lét sig ekki vanta þarna frekar
en í miðbænum. Heiðmörkin er kjör-
in til gönguferða, en á undanförnum
árum hefur verið komið þar upp vel-
heppnuðu kerfi mislangra göngu-
leiða sem hægt er að velja um. Leið-
irnar eru vel merktar og telur
Víkverji fátt jafnast á við að fá sér
góðan göngutúr í góðu veðri í þessari
fallegu og vel hirtu útivistarparadís.
x x x
Á DÖGUNUM var Víkverji aðfletta fróðlegu blaði sem
Menntafélag byggingariðnaðarins
gefur út og þar rakst hann á athygl-
isverða grein um ungt fólk í starfs-
námi. Þar var fjallað um könnun sem
Rannsóknir og greining ehf. fram-
kvæmdi haustið 2000 meðal nem-
enda í öllum framhaldsskólum á Ís-
landi, en það var í annað sinn sem
slík könnun var gerð meðal nemenda
í framhaldsskólum. Meðal annars er
í könnuninni að finna upplýsingar
um áhuga ungs fólks á að stunda iðn-
eða verknám og að vinna við slík
störf í framtíðinni. Athygli vekur að
um 44% stráka á aldrinum 16-19 ára
segjast hafa áhuga á því að vinna við
faglærð iðnstörf sem aðalstarf í
framtíðinni, og þrátt fyrir að áhug-
inn virðist almennt vera minni hjá
stelpunum segist um þriðjungur
þeirra hafa frekar eða mikinn áhuga
á að sinna slíku framtíðarstarfi.
Meðal þeirra sem áhuga hafa á fag-
lærðum iðnstörfum kemur í ljós að
rúmlega helmingur þeirra telur
mjög eða frekar líklegt að þeir muni
fara í nám við iðn- eða sérskóla á Ís-
landi í framhaldi af núverandi námi,
og af þeim sem ekki segjast hafa
áhuga á að vinna við faglærð iðnstörf
í framtíðinni telja engu að síður 14%
þeirra frekar eða mjög líklegt að þeir
muni fara í slíkt framhaldsnám. Þá
kemur meðal annars fram í könnun-
inni að þegar athugað er hvað þeim
nemendum sem segjast hafa áhuga á
faglærðum iðnstörfum sem framtíð-
arstarfi finnst skipta mestu máli við
val þeirra á framhaldsskóla kemur í
ljós að möguleikinn á starfsnámi og
vinnu með námi vegur þar þungt.
Þykja þessar grunnniðurstöður
benda til þess að sá hópur sem hefur
áhuga á iðn- eða verknámi sé að ein-
hverju leyti frábrugðinn þeim hópi
framhaldsskólanema sem ekki hefur
áhuga á slíku námi.
Þegar bændur
riðu suður
MIG langar að leiðrétta þó
seint sé þá rangtúlkun að
bændur hafi verið að mót-
mæla símanum. Það er al-
rangt. Bændur riðu suður
til að mótmæla samningn-
um sem ríkið ætlaði og
gerði við norræna síma-
félagið. Enda kom það á
daginn að þetta er versti
samningur sem gerður
hefur verið og ætlum við
aldrei að losna undan hon-
um. Hann hefur kostað
okkur óhemju fé. Ég veit
ekki hvort við erum lausir
við hann ennþá. Hann
virðist vera óuppsegjan-
legur.
Þetta er það sem bænd-
ur voru að mótmæla. Þeir
vildu loftskeyti sem var
miklu ódýrara og var í
mikilli þróun og framför.
100727-3319.
Hvernig er
það hægt?
LAUN öryrkja og ellilaun
eru um 65 þúsund kr. á
mánuði. Félagsþjónustan
slær öll met og býður
þegnum sínum 58 þúsund
kr. á mánuði, eftir að búið
er að taka af skatta. Hver
getur framfleytt sér – og
jafnvel börnum – á þessum
launum? Hvernig á það að
vera hægt? Ég held að í
flestum tilfellum dugi
þetta ekki einu sinni fyrir
húsaleigu hvað þá fyrir
mat, eins og hann er nú
orðinn dýr. Þetta hlýtur
einfaldlega að vera hallær-
islegur brandari – eða ein-
faldlega þrælahald. Eitt
veit ég og það er að þetta
fólk sveltur heima hjá sér
með lokaðan síma og ekki
kemst það til læknis eða í
klippingu. Og það er nokk-
uð ljóst að fötin fær það
gefins. Við verðum að snúa
bökum saman og berja í
borðið fyrir litla manninn,
það er nokkuð ljóst.
Einn umhyggjusamur.
Tapað/fundið
Kvenúr
týndist
GYLLT kvenúr með
svartri skífu og svartri leð-
uról týndist í Skerjafirði, á
göngustígnum eða í ná-
grenni, sl. sunnudag. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 552 0879.
Skinntrefill
í óskilum
SKINNTREFILL, lilla-
blár á litinn, fannst sl.
sunnudag á Gunnarsbraut.
Uppl. í síma 552 5465.
Dýrahald
Ilma er
týnd
HÚN Ilma okkar er týnd
og hennar er sárt saknað.
Ilma er af smáhundakyn-
inu Chuihawa. Hún er ljós
á lit með svarta leðuról um
hálsinn. Þeir sem eitthvað
kynnu að vita um hana
Ilmu vinsamlega hringi í
síma 848 9098 eða
587 4483.
Kettlingar
fást gefins
TVEIR átta vikna kett-
lingar fást gefins. Þeir eru
kassavanir og þrifnir.
Annar er svartur fress og
hinn dökkbröndótt læða.
Upplýsingar í síma
849 0579.
Gulur páfagaukur
týndist
GULUR, lítill páfagaukur
týndist í Hlíðunum sl.
laugardag. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 552 0199 eða
848 1280.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Skógafoss væntan-
legur og Trinket út fer.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær kom Selfoss til
Straumsvíkur.
Fréttir
Kattholt. Flóamark-
aður þriðju- og fimmtu-
daga kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl .9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl. 10 enska,
kl. 11 enska og dans,
kl. 13 bað, vinnustofa,
postulínsmálning.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. All-
ar uppl. í síma 535–
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna,
kl. 10–17 fótaaðgerð, kl.
10 sund, kl. 13 leirlist,
kl. 14. dans.
Eldri borgarar, Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 11. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum á fimmtudög-
um kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna. Kl. 14.45 söng-
stund í borðsal með
Jónu Bjarnadóttur.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag er saumur kl. 13.30
og brids kl 13.30. Á
morgun línudans kl. 11,
pílukast kl 13.30 og
myndlist kl. 13. Skrán-
ing í þorrablótið í
Hraunseli í síma 555
0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Leik-
félagið Snúður og
Snælda sýnir söng- og
gamanleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ og leikritið
„Fugl í búri“. Frum-
sýning 3. febr. Sýn-
ingar: sunnud. kl. 16,
miðvikud. kl. 14 og
föstud. kl. 14. Miða-
pantanir í síma 588-
2111, 568-8092 og 551-
2203. Þriðjudagur:
Skák kl. 13 og alkort
spilað kl. 13.30. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennsla Sigvalda
kl. 19. Fimmtudagur:
Brids kl. 13. Brids fyrir
byrjendur hefst í febr-
úar. Stjórn Ólafur Lár-
usson. Silfurlínan er
opin á mánu- og
miðvikudögum kl. 10–
12. Skrifstofan er flutt
að Faxafeni 12 sama
símanúmer og áður.
Félagsstarfið er áfram
í Ásgarði, Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB.
kl. 10–16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Garðabær. Opið hús í
Kirkjuhvoli í dag kl 13–
16. Spilað og spjallað.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar. M.a. glerskurð-
ur. Umsjón Helga Vil-
mundardóttir. Kl. 13
boccia. Fimmtudaginn
24. janúar er félagsvist
kl. 13.15 í samstarfi við
Seljaskóla. Vegleg
verðlaun, allir velkomn-
ir. Veitingar í veit-
ingabúð Gerðubergs.
Uppl. um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum,
leikfimihópur I kl. 9.05
og hópur II kl. 9.50.
Námskeið í glerlist kl.
9.30. Þriðjudagsgangan
fer frá Gjábakka kl. 14.
Boccia kl. 14. Spænsku-
hópur kl. 15.30. Kín-
versk leikfimi kl. 16.20
og 17.15. Byrjað verður
að selja miða á þorra-
blótið 26. jan. kl. 13.
Ath. Borðin eru núm-
eruð og fólk velur borð
þegar það greiðir fyrir
miðana. Hæg stóla-
leikfimi byrjar 30. jan. í
Gjábakka. Uppl. í síma
554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð,
handsnyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–17 hár-
greiðsla, kl. 13 mynd-
list.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, samvera,
fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi. kl. 13 spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
11 boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð. kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Bandalag kvenna í
Reykjavík. Formanna-
og nefndarfundur verð-
ur á Hallveigarstöðum
fimmtudaginn 24. jan-
úar kl. 20. Bryndís Víg-
lundsdóttir kynnir
Feng-shui. Kaffiveit-
ingar.
Bústaðakirkja. Sam-
vera eldri borgara í
dag kl. 13–16.30. Spil-
að, föndrað, gáta og
helgistund. Gestir
verða úr barnakórum
kirkjunnar. Þeir sem
vilja láta sækja sig láti
kirkjuverði vita í síma
553-8500 eða Sigrúnu í
síma 553-0448 og 864-
1448. Allir velkomnir.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimin fellur niður þessa
viku.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
Kvenfélag Kópavogs,
fundur fimmtudaginn
24. jan kl. 20.30 í
Hamraborg 10,
Fyrirlesarar frá Gigt-
arfélagi Íslands, Svala
Björgvinsdóttir og Jón-
ína Guðmundsdóttir.
Hláturklúbbur Hana-
nú. Fundur í Gullsmára
kl. 20 í kvöld. Takið
með ykkur góða skapið,
skondar gamansagnir
eða skrítlur úr daglega
lífinu til að ýta undir
heilsusamleg hlátra-
sköll okkur til heilsu-
bótar. Uppl. í síma 564-
5261.
Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Þorrablótið
verður 24. jan. kl.
19.30 í Fjölbrautaskóla
Garðabæjar. Rúta frá
Hleinum og Kirkju-
hvoli og Holtsbúð.
Þriðjud. 22. jan. kl. 9
vinnuhópur gler, kl. 13
málun, kl. 13.30 opið
hús spilað brids, vist
og lomber, kl. 16 búta-
saumur.
Í dag er þriðjudagur 22. janúar, 22.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: En
hann svaraði þeim: Sá sem á tvo
kyrtla, gefi þeim, sem engan á, og
eins gjöri sá er matföng hefur.
(Lúk. 3,11.)
LÁRÉTT:
1 kvenfjandi, 4 brjósts, 7
álítur, 8 skolli, 9 ummæli,
11 grassvörður, 13 eftir-
tekt, 14 blanda eitri, 15
bæli, 17 hvítur klútur, 20
mál, 22 haldast, 23 blóma,
24 lagvopn, 25 kaka.
LÓÐRÉTT:
1 bjart, 2 ávinnur sér, 3
munntóbak, 4 bakki á
landi, 5 klofna, 6 skerð-
um, 10 valska, 12 lengd-
areining, 13 op, 15 snauð,
16 styrkir, 18 magrar, 19
þunnt stykki, 20 týni, 21
ófríð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 manndómur, 8 síðar, 9 angur, 10 róg, 11
megna, 13 aurum, 15 sötra, 18 staka, 21 ull, 22 talið, 23
Íraks, 24 mannvitið.
Lóðrétt: 2 auðug, 3 narra, 4 óraga, 5 uggur, 6 ósum, 7
árum, 12 nýr, 14 urt, 15 sótt, 16 tolla, 17 auðan, 18 slíti,
19 ataði, 20 assa.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
ÉG heyrði og las í fjöl-
miðlum á mánudag, að
verslunin BYKO ætli að
lækka hjá sér vöruverð
um 2% og ekki að
hækka verð hjá sér fyrir
1. maí. Í kjölfar þessa
ákvað Húsasmiðjan að
lækka verð hjá sér um
3%. Skildist mér að þetta
væri þeirra framlag í að
halda verðbólgu niðri.
Finnst mér þetta gott
framtak hjá þessum
verslunum og vil ég
hvetja eigendur annarra
verslana til að taka þetta
sér til fyrirmyndar.
Manni er farið að
blöskra allar þær verð-
hækkanir sem yfir þjóð-
ina dynja og vil ég sér-
staklega taka fram
hversu dýr matvaran er
orðin.
Ég vil nefna, sem
dæmi um verðhækkanir
sem mér hafa ofboðið,
að í apóteki sem ég
versla reglulega í hefur
smásölulyf eitt hækkað á
rúmum mánuði úr tæp-
um fjögur hundruð
krónum í tæpar fimm
hundruð krónur. Hvern-
ig getur svona hækkun
staðist?
Helga.
Gott framtak