Morgunblaðið - 22.01.2002, Síða 51

Morgunblaðið - 22.01.2002, Síða 51
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7. Bg2 Bg7 8. Rf3 0-0 9. 0-0 a6 10. a4 He8 11. Rd2 Rbd7 12. h3 Hb8 13. Rc4 Re5 14. Ra3 Rh5 15. e4 Hf8 16. Kh2 f5 17. f4 Sjávarþorpið í Hollandi, Wijk aan Zee, hefur hýst marga skákviðburði. Á síð- ustu árum hefur álrisinn Corus styrkt mótið og er þetta árið engin undan- tekning. Staðan kom upp í A- flokknum á milli tveggja heimamanna. Gamla brýnið Jan Timman (2.605) hafði svart gegn Loek Van Wely (2.697). 17. ...b5!? 18. axb5 axb5 19. fxe5?! Fróð- legt hefði verið að sjá hvað svartur myndi til bragðs taka eftir 19. Raxb5. Í framhaldinu reynist svarta sóknin afar skeinuhætt. 19. ...Rxg3! 20. Hf3 Bxe5 21. Raxb5 Dh4 22. exf5 Bxf5 23. Ha4 Be4 24. Hxf8+ Hxf8 25. Kg1 Re2+! 26. Dxe2 Dg3 27. Bf4 Dxf4 28. Bxe4 Dg3+ 29. Kh1 Hf1+! og hvítur gafst upp enda mát í næsta leik. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 51 DAGBÓK Kennsla í byrjenda- og framhalds- flokkum hefst dagana 21. til 26. janúar n.k. 10 vikna nám- skeið. Alþjóðlegir titilhafar annast alla kennslu. Kennt verður frá kl. 17.00–19.00 alla virka daga og frá kl. 11.00–12.30, 12.30–14.00 og 14.00–16.00 um helgar. Kennslubækur innifaldar í öllum flokkum. Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga frá kl. 10.00-13.00 í síma 568 9141. Athugið systkinaafsláttinn Útsala Útsala Kringlunni, sími 588 1680 Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun Nú 20% aukaafsláttur STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert tilfinningaríkur, hvatvís og kraftmikill og lað- ar að þér fólk. Margt mun taka enda í lífi þínu á þessu ári þannig að rými skapist fyrir nýja hluti. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú öðlast betri skilning á framtíðardraumum þínum. Þetta gerir þig ánægðari því það er gott að vita að hverju maður stefnir. Naut (20. apríl - 20. maí)  Jarðbundna hlið þín er í svo- litlu uppnámi í dag. Þú sérð að ójafnvægi þitt hefur bein áhrif á tekjur þínar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú öðlast nýjan skilning á um- hverfi þínu í dag. Heimspeki- legar eða trúarlegar umræður vekja þig til umhugsunar um hluti sem þú hugsar annars lít- ið um. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur óvenjusterka til- hneigingu til góðverka í dag. Þig langar til að draga úr þjáningum þeirra sem eru ekki jafn lánsamir og þú. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú gætir gengið til liðs við hóp sem starfar að mannúðar- eða samfélagsmálum í dag. Þú ert að leita leiða til að gera gott í samstarfi við aðra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur alltaf notið þess að veita öðrum mikilvæga þjón- ustu. Yfirmaður eða foreldri veitir þesum eiginleika þínum athygli í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Dagurinn hentar vel til að kenna ungmennum nokkrar grundvallarreglur um lífið. Sýndu þeim fram á að þau muni uppskera eins og þau sái. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert að leita leiða til að tryggja framtíðaröryggi þitt og fjölskyldu þinnar. Þú veist að ávöxtun morgundagsins veltur á skipulagningu dags- ins í dag. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert heimspekingur í eðli þínu og í dag muntu dragast inn í alvarlegar samræður. Þú þarft að ræða skoðanir þínar við einhvern til að sannreyna þær. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Fjárfestingar sem tengjast plasti, snyrtivörum, ljósmynd- un, kvikmyndum og skemmt- anaiðnaðinum geta borgað sig. Það mun taka nokkurn tíma en þær munu reynast öruggar til lengri tíma litið. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Listræn sköpun getur veitt þér ánægju í dag. Ekki dæma verk þín af því hvort þau falli öðrum í geð heldur hvort sköpun þeirra veiti þér ánægju. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gerðu áætlanir sem tryggja afkomu þína í framtíðinni. Vanmettu ekki vald drauma þinna. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT KVÖLDVÍSUR Kvölda tekur, setzt er sól, sveimar þoka um dalinn, komið er heim á kvíaból: kýrnar, féð og smalinn. Dagrinn líður, dimma fer, dregst að nóttin svala; myrkrið gerir mér og þér marga byltu fala. Kvöldúlfur er kominn hér kunnugr innan gátta, sólin rennur, sýnist mér, senn er mál að hátta. Það er frekar fágætt að fá áttlit við spilaborðið og nílit- ur er fréttaefni. En keppend- ur í Reykjavíkurmótinu urðu vitni að raunverulegu undri á laugardaginn, þegar suður tók upp þéttan tílit í hjarta: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ ÁK6 ♥ 9 ♦ 1032 ♣ÁG10876 Vestur Austur ♠ D974 ♠ G532 ♥ 7 ♥ 10 ♦ ÁD84 ♦ KG9765 ♣KD93 ♣42 Suður ♠ 108 ♥ ÁKDG865432 ♦ – ♣5 Engar bækur geta sagt mönnum hvernig eigi að melda á slík spil. Þorlákur Jónsson í sveit Subaru vakti á fjórum laufum, sem lofar átta slaga hendi með hjarta sem trompi – svokölluð Na- myats-sagnvenja. Hin dæmi- gerðu spil eru þéttur áttlitur eða þéttur sjölitur með ás til hliðar. Félagi Þorláks, Matt- hías Þorvaldsson, sagði fjóra tígla, sem er gervisögn og lýsir yfir slemmuáhuga. Austur doblaði til að benda á útspil og Þorlákur lét þá vaða í sjö hjörtu, því hann þóttist vita að Matthías ætti a.m.k. þrjú höggspil í svörtu litunum. Vel heppnað. Til voru þeir sem opnuðu á fjórum hjörtum og spiluðu þann samning. Sigurður B. Þorsteinsson í sveit Roche gekk hreint til verks og vakti á sex hjörtum! Haukur Inga- son var í norðursætinu og hækkaði í sjö – það er að segja sjö GRÖND! Í AV voru Sigurður Vilhjálmsson og Einar Jónsson. Sigurður hélt á tígulásnum í vestur og doblaði. Doblið var yfirlýsing um að vörnin ætti ás, en Ein- ar vissi ekki hvort hann væri í spaða, tígli eða laufi. Eftir 5 mínútna yfirlegu kom hann út með lauf og Gylfi lagði upp þrettán slagi. Einar tók þessu létt og setti fram þumalfingurs- reglu fyrir framtíðina: „Þeg- ar ekki er vitað hvað eigi að koma út gegn dobluðu spili, ber að velja þann lit sem gef- ur mest í aðra hönd ef útspil- ið heppnast.“ Í þessu tilfelli hefði tígulútspil gefið AV 1.700, en þess í stað fengu NS 2.490. Sveit Þriggja frakka er langefst eftir 17 umferðir með 356 stig. Subaru-sveitin er í öðru sæti með 337 og sveit Spron í því þriðja með 329. Nokkuð bil er í fjórða sætið, en það skipa Páll Valdimarsson og félagar með 307 stig. Reykjavíkur- mótinu lýkur í kvöld í Hreyf- ilshúsinu við Grensásveg, en þá verða tvær síðustu um- ferðirnar spilaðar. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 22. janúar er áttræð Oddný Gísladóttir, Miðleiti 7, Reykjavík. Oddný er að heiman í dag. 50 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 22. janúar er fimmtugur Árni Halldórsson, rekstrar- stjóri Fiskiðjunnar Skag- firðings og ríkisstjóri ÁTVR, Sæbóli 29, Grund- arfirði. Eiginkona hans er María Gunnarsdóttir. Þau verða að heiman á afmæl- isdaginn. 50 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 22. janúar er fimmtugur Þor- valdur Árnason, lyfja- fræðingur, Starmóa 15, Reykjanesbæ. Í tilefni af- mælisins munu hann og eiginkona hans, Auður Harðardóttir, taka á móti ættingjum og vinum nk. laugardag 26. janúar kl. 20 í sal Matarlistar, Iðavöll- um 1, Keflavík. Ljósmyndarinn í Mjódd BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 22. september sl. í Lágafellskirkju af sr. Jóni Þor- steinssyni Val- borg Guðlaugs- dóttir og Hlynur Harðarson. Með þeim á myndinni eru Davíð Freyr, Tómas Ingi og Guðlaugur Már.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.