Morgunblaðið - 26.01.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 26.01.2002, Síða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða samtals 2,9 milljónir í bætur og málskostnað þar sem utanríkis- ráðherra réð ekki konu sem var hæf- ari í starfið en sá sem hlaut það, þeg- ar skipað var í embætti sýslumanns á Keflavíkurflugvelli þann 1. apríl 1999. Utanríkisráðherra skipaði Jóhann R. Benediktsson sendiráðunaut sem sýslumann en í dómi héraðsdóms segir að Kolbrún Sævarsdóttir, sem einnig sótti um stöðuna, hafi verið hæfari umsækjandi. Var Kolbrún eina konan af þeim sex sem sóttu um starfið en hún var þá fulltrúi lög- reglustjórans í Reykjavík og hafði umsjón með rannsókn fíkniefna- mála. Í rökstuðningi sem hún fór fram á frá utanríkisráðuneytinu segir að nýr sýslumaður þurfi að hafa þekk- ingu á Schengen-samstarfinu. Þá væri reynsla af starfi við lögreglu- embætti veigamikill þáttur, sömu- leiðis góð tungumálakunnátta og reynsla af samskiptum við erlend stjórnvöld. Hélt ráðuneytið því fram að Jóhann hefði yfirburðaþekkingu á Schengen-samstarfinu og hefði það ráðið úrslitum um að hann var ráð- inn. Kolbrún vísaði málinu til kæru- nefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að hún hefði a.m.k. verið jafnhæf Jóhanni. Því hefði ut- anríkisráðherra brotið gegn jafn- réttislögum en samkvæmt þeim á að ráða konu sem er jafnhæf karlmanni ef fáar konur eru á tilteknu starfs- sviði. Þegar umrædd staða var veitt var ein kona í hópi 27 sýslumanna en önnur hafði verið skipuð tímabundið til starfa. Meira nám og hagnýtur starfsferill Bæði eru þau Kolbrún og Jóhann lögfræðingar en í dómnum segir að Kolbrún hafi stundað meira nám og megi ætla að framhaldsnámið nýtist henni vel við sýslumannsstörfin. Starfsferill hennar sé ennfremur nánast eingöngu á þeim sviðum sem nýtast sem undirbúningur fyrir störf sem sýslumenn gegna. Á starfsferli sínum hafi Jóhann á hinn bóginn ekki starfað við neitt það sem sýslu- menn fást við, „nema hvað sumar- störfin í lögreglunni munu ábyggi- lega reynast gagnleg,“ eins og segir í dómnum. Dómurinn hafnaði því að þekking Jóhanns á Schengen-samningnum ylli því að hann hefði yfirburði yfir Kolbrúnu. Frá því embættið hefði verið veitt og þar til Schengen-samn- ingurinn gekk í gildi hefðu liðið tvö ár og benti ekkert til annars en hún hefði getað náð fullum tökum á þeim verkefnum sem leiddu af Schengen- samningnum. Þegar allt væri virt hefði Kolbrún verið hæfari til að gegna starfi sýslumanns. Kolbrún fór fram á um sjö millj- ónir í bætur fyrir launatap og bætur fyrir miska. Dómurinn taldi bætur vegna fjártjóns hæfilegar tvær millj- ónir þar sem ekki væri séð að hún hefði reynt að takmarka tjónið, t.d. með því að sækja um aðrar sýslu- mannsstöður. Þá var upplýst að hún hefði látið af starfi sem saksóknari og legði nú stund á framhaldsnám og væri því ekki í launavinnu. Miska- bætur voru ákvarðaðar 300.000. Einnig var ríkinu gert að greiða málskostnað, 600.000 krónur. Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn. Kristján Thorla- cius hdl. sótti málið og Skarphéðinn Þórisson hrl. var til varnar. Hefur náð góðum árangri Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagðist telja að utanríkisráðu- neytið hefði staðið að þessu máli með eðlilegum hætti. „Jóhann Benedikts- son hefur verið sýslumaður á Kefla- víkurflugvelli í tæp þrjú ár. Hann er afskaplega vel látinn meðal starfs- manna sinna og hefur náð mjög góð- um árangri í starfi. Þetta tímabil hef- ur verið mikið breytingaskeið, ekki síst út af Schengen-málinu. Við höfum farið yfir dóm héraðs- dóms og höfum ákveðið, að höfðu samráði við ríkislögmann, að áfrýja málinu til Hæstaréttar.“ Héraðsdómur segir utanríkisráðherra hafa brotið gegn jafnréttislögum Segir kvenumsækjanda hafa verið hæfari í starfið Halldór Ásgrímsson segir að dómnum verði áfrýjað ÞÚSUNDIR dauðra langvía og stuttnefja hafa fundist á strand- lengjunni frá Langanesi í norðri til Arnarfjarðar á Vestfjörðum. Aðrar tegundir svartfugls hafa einnig fundist dauðar en í mun minni mæli. Svartfugladauðans varð fyrst vart í Þistilfirði seinnipartinn í desember og síðan þá hefur spurst um veikburða svartfugl í Eyja- firði, mikið magn hefur rekið á land í Skagafirði, við Húnaflóa hafa borist upplýsingar um rekna svartfugla og vestur í Arnarfirði rak tugi dauðra eða deyjandi svartfugla að landi. Fjöldi hræja hefur verið krufinn og segir Ólafur K. Nielsen, fugla- fræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands líklegast að fuglarnir hafi drepist úr hungri þó veirusýking sé ekki útilokuð. Sýni hafa verið send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum en óvíst er hvenær niðurstaða fæst úr þeirri rannsókn. Engin merki um olíu eða grút fundust á ham fuglana. Næstum helmingi léttari Fuglarnir sem fundust í reknir á lands vógu að meðaltali 631 gramm en heilbrigðir fuglar eiga að vega 1000-1200 grömm á þess- um árstíma. Allir voru þeir mjög rýrir, engin fita var innan á ham eða í kviðarholi og vöðvar á fótum og flugvöðvar voru upptærðir. Blæðingar voru í meltingarvegi en þær gætu hvort heldur sem er verið afleiðing veirusýkingar eða hungurdauða. „Ef þetta er hungurdauði þá hafa einhverjir stórir atburðir orðið norður í hafi. Annaðhvort hefur átan brugðist eða fuglinn nær ekki í átuna,“ segir Ólafur en bætir því við að Náttúru- fræðistofnun stundi reyndar ekki hafrannsóknir. Aðspurður segir hann að fuglarnir haldi sig að jafnaði ekki ýkjalangt frá landi. Langvíur og stuttnefjur eru ná- skyldar, lífshættir þeirra eru áþekkir og fuglarnir halda sig að mestu á svipuðum slóðum. Þá er fæða þeirra lík um margt. „Þetta eru fuglar sem kafa eftir æti og þeir geta kafað mjög djúpt, niður á 100 metra. Þar grípa þeir sand- síli og skyldar tegundir, loðnu- seiði og ljósátu,“ segir Ólafur. Helst hafa fullorðnar stuttn- efjur drepist og telur Ólafur að í flestum tilvikum sé um að ræða fugla sem koma hingað norður úr höfum til vetursetu. Obbinn af dauðu langvíunum er á hinn bóg- inn ókynþroska ungfugl úr vörp- um hér við land. Mikil náttúruleg afföll eru jafnan af ungunum og því hefur fugladauðinn nú ekki eins mikil áhrif á stofnstærð og ella. Höggið væri þyngra ef um væri að ræða fullorðinn kyn- þroska fugl. Toppurinn á ísjakanum Ólafur segir að fuglarnir sem fundist hafa í fjörum séu aðeins „toppurinn á ísjakanum.“ Mestur hlutinn berist aldrei að landi, heldur sé étinn eða týnist undir fjörusandi og því útlit fyrir að tugþúsundir fugla hafi drepist. Varpstofn langvíu við Ísland er áætlaður um milljón pör en alls er gert ráð fyrir að 4–5 milljónir langvía haldi til við landið. Stutt- nefjupör sem verpa hér á landi eru um 600.000. Mestur hluti þeirra heldur sig ekki hér á landi á veturna. Ólafur segir að þó að árlega drepist hundruð þúsunda fugla úr langvíustofninum af náttúrulegum ástæðum sé mjög afbrigðilegt að svo margir fuglar skuli falla á svo stuttum tíma. „Þetta er mjög óvanalegur atburður.“ Morgunblaðið/Sverrir Ólafur K. Nielsen, fuglafræðing- ur á Náttúrufræðistofnun, við krufningu á svartfuglum sem borist hafa dauðir að landi. Þúsundir svartfugla hefur rekið að landi „Stórir atburð- ir orðið norður í hafi“ KJÖRDÆMISÞING reykvískra sjálfstæðismanna verður haldið í Súlnasal á Hótel Sögu í dag. Þing- ið hefst kl. 13:15 með aðalfundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík. Á fundinum leggur stjórn fulltrúaráðsins fram tillögu sína um tilhögun við val á framboðslista sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Geir H. Haarde, fjármálaráð- herra og varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, flytur ræðu á fundin- um. Pallborðsumræður um borgarmál á opnum fundi Kl. 14.30 hefst svo opinn fundur á kjördæmisþinginu undir yfir- skriftinni: Framþróun í Reykjavík – brotist úr viðjum stöðnunar. Þar munu Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti borgarstjórnarflokksins, Júlíus Vífill Ingvarsson borgar- fulltrúi, Ásgeir Bolli Kristjánsson verslunarmaður, Eyþór Arnalds varaborgarfulltrúi, Jórunn Frí- mannsdóttir hjúkrunarfræðingur og Björn Bjarnason menntamála- ráðherra flytja framsöguræður. Að loknum framsöguræðum mun Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- fulltrúi stýra pallborðsumræðum. Þingforseti verður Sólveig Péturs- dóttir dómsmálaráðherra. Kjördæmisþing sjálfstæð- ismanna í Reykjavík Fjalla um framboðs- mál og kosningar PRENTSMIÐJAN Oddi á ekki aðild að kæru sem yfir þrjátíu hluthafar í eignarhaldsfélagi Dagblaðsins sendu embætti ríkislögreglustjóra á hendur Sveini R. Eyjólfssyni stjórnarfor- manni og aðaleiganda félagsins í vik- unni. Í kærunni var Oddi á lista yfir nöfn hluthafa sem að henni voru sagð- ir standa en Þorgeir Baldursson for- stjóri prentsmiðjunnar segir að þetta byggist á misskilningi og hafi verið óskað eftir leiðréttingu. Þorgeir sagði að Prentsmiðjan Oddi hefði veitt Gunnari Sturlusyni lögmanni umboð til að fara með at- kvæði sitt á síðasta aðalfundi DB en lengra hefði það umboð ekki náð og sér hefði ekki verið kunnugt um kær- una fyrr en hann sá hennar getið í fjölmiðlum og þar með að Oddi væri skráður á kæruskjalið. Þorgeir sagði að Prentsmiðjan Oddi hefði eignast lítinn hlut í DB við kaup á Steindórsprenti/Gutenberg en hefði ekki á neinn hátt tengst þeim málum sem fjallað er um í kærunni. Prentsmiðj- an Oddi ekki aðili að kæru STJÓRN Samtaka um kvennaat- hvarf hefur ákveðið, í samráði við lögmann sinn, að áfrýja til Hæsta- réttar Íslands úrskurði Héraðs- dóms Reykjavíkur þar sem fallist er á útburðarkröfu eigenda húsa- kynna Kvennaathvarfsins að Báru- götu 2 í Reykjavík. Forsaga málsins er sú að með dómi Hæstaréttar í september sl. var viðurkenndur forkaupsréttur erfingja Einars Sigurðssonar út- gerðarmanns í Vestmannaeyjum á fasteigninni Bárugötu 2 í Reykjavík og jafnframt var kveðið á um það í dóminum að St. Jósepssystrum, sem keyptu húsið á sínum tíma af erfingjunum, væri skylt að selja og afsala erfingjunum fasteigninni að uppfylltum tilgreindum skilyrðum. Það var gert með afsali dags. 7. nóvember sl. og var samtökunum gefinn frestur til 15. nóvember 2001 til að rýma húsið. Í kjölfarið kröfð- ust erfingjarnir þess að Samtök um kvennaathvarf yrðu borin út úr húsinu og sögðu samtökin dveljast þar í leyfisleysi. Héraðsdómur Reykjavíkur tók til greina útburð- arkröfu á hendur Samtökum um kvennaathvarf og heimilaði eigend- um hússins að bera samtökin út úr húsinu Þórlaug Jónsdóttir, rekstrarstjóri Kvennaathvarfsins, segir að úr- skurði Héraðsdóms sé áfrýjað á þeirri forsendu að í honum sé ekki nógu vel tekið á þeirri spurningu hvort athvarfinu hafi verið gefinn nægilegur frestur til að verða sér úti um nýtt húsnæði. Lögmaður Samtaka um kvennaathvarf, Jón Steinar Gunnlaugsson, hefur að sögn Þórlaugar ákveðið að taka ekki greiðslu fyrir áfrýjunina og er það að sögn Þórlaugar af „velvilja Jóns Steinars við samtökin.“ Samtök um kvennaathvarf Áfrýja úrskurði héraðsdóms ♦ ♦ ♦ DREGIÐ hefur úr nýskráningum hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins síðustu daga, eftir að kippur kom í skráningarnar eftir áramótin. Hug- rún Jóhannesdóttir, forstöðumaður Vinnumiðlunar HB, segir atvinnu- leysið hafa aukist síðustu mánuði og fjöldi þeirra sem leitað hafi til Vinnu- miðlunarinnar aukist jafnt og þétt í kjölfarið. „Síðan kom svolítill kippur eftir áramótin en það hefur reyndar verið að ganga til baka síðustu daga. Ný- skráningar eru 70-80 á dag, þegar mest lætur, en síðustu daga hefur verið áberandi að heldur hefur dregið úr nýskráningum,“ segir Hugrún, en segist ekki geta sagt til um hver þró- unin verði á næstu dögum eða vikum. Dregur aftur úr skráningum hjá Vinnu- miðlun HB ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.