Morgunblaðið - 26.01.2002, Side 21
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 21
Spurning: Mig langar að spyrjast
fyrir um teefni, sem nefnist
slöngujurt á íslensku, en Cimic-
fuga racemosa á latínu. Það hefur
verið ráðlagt fullorðnum konum í
sambandi við breytingaskeiðið,
en ég hef hvergi fundið upplýs-
ingar um þetta og vildi fá úr því
bætt með almennilegum hætti.
Hefur þetta verið rannsakað og
hvernig á að nota þetta ef ein-
hverjar upplýsingar liggja fyrir?
Þetta er selt í Heilsuhúsinu og er
sagt jafnvel virkara en estrogen.
Vitnað hefur verið í rannsóknir í
Þýskalandi, en ég hef ekki fundið
þær.
Svar: Óþægindi kvenna á breyt-
ingaskeiði, eins og hitakóf,
þreyta, pirringur og fleiri ein-
kenni, stafa af því að framleiðsla
kvenhormóna minnkar hratt á
þessum aldri. Mestu munar um
kynhormónið östrógen (estro-
gen). Samtímis þessu fara blæð-
ingar minnkandi og hverfa að
lokum alveg við tíðahvörf. Upp úr
þessu fer að bera á beinþynningu
hjá mörgum konum og hætta á
hjarta- og æðasjúkdómum eykst.
Á síðustu 10-20 árum hefur færst
mjög í vöxt að konur á þessum
aldri taki östrógen til að bæta
upp þverrandi magn kynhormóna
í líkamanum og við það losna
konurnar við flest eða öll lík-
amleg og andleg óþægindi og þar
að auki minnkar hættan á bein-
þynningu og hjarta- og æða-
sjúkdómum. Ef östrógen er gefið
á þennan hátt eykur það hættu á
legkrabbameini og þess vegna
verður að gefa aðra gerð horm-
óna (gestagen) með, nema legið
hafi verið fjarlægt. Östrógen má
ekki gefa konum sem hafa fengið
krabbamein í brjóst eða leg en
slík krabbamein eru oft háð
östrógeni og geta tekið sig upp ef
það er gefið. Það getur líka verið
varasamt að gefa östrógen kon-
um sem hafa fengið blóðtappa
eða eru með lifrarsjúkdóm. Eng-
inn veit með vissu hve lengi er
óhætt að gefa svona horm-
ónauppbótarmeðferð en eftir
meira en 10 ára notkun er talið
að hætta á brjóstakrabbameini
aukist lítillega. Nú er unnið að
rannsóknum á lyfjum sem gætu
hugsanlega gert þessa meðferð
áhrifaríkari og hættuminni en
það sem við getum boðið uppá í
dag en enginn veit hvað þær
kunna að leiða í ljós. Allir munu
fagna því, þegar einhver fleiri
efni finnast, úr náttúrunni eða
tilbúin, sem geta dregið úr and-
legum og líkamlegum óþægindum
breytingaskeiðsins og minnkað
hættu á beinþynningu og hjarta-
og æðasjúkdómum.
Hvort í slöngujurt leynast slík
efni er erfitt að segja því nið-
urstöður rannsókna eru mót-
sagnakenndar og rannsóknir sem
birtar hafa verið eru ekki miklar.
Þessi jurt hefur verið notuð gegn
óþægindum við tíðahvörf og eitt-
hvað við fyrirtíðaspennu. Af
dýratilraunum er ekki ljóst hvort
efni úr slöngujurt hafa verkanir
eins og östrógen, niðurstöður eru
misvísandi. Sama má segja um
rannsóknir á óþægindum kvenna
við tíðahvörf, í sumum rann-
sóknum hafa komið í ljós bætandi
áhrif á þessi óþægindi en í öðrum
fannst engin slík verkun. Ein
vandaðasta rannsóknin var gerð í
New York og niðurstöður birtar í
maí 2001. Í þessari rannsókn
tóku þátt 85 konur og fékk helm-
ingurinn slöngujurt en hinn
helmingurinn lyfleysu og í stuttu
máli var niðurstaðan sú að
slöngujurt hafði ekki meiri bæt-
andi áhrif á líðan (m.a. hitakóf)
en lyfleysa og var því dæmd
gagnslaus. Rannsóknir vantar á
fyrirtíðaspennu og þeim sjúk-
dómum sem fylgja í kjölfar tíða-
hvarfa. Við vitum hvorki hvort
óhætt er að nota slöngujurt árum
saman né hvort konum sem feng-
ið hafa krabbamein eða blóðtappa
er óhætt að neyta jurtarinnar.
Sterkar vísbendingar eru um að
slöngujurt geti haft skaðleg áhrif
á fóstur og ættu ófrískar konur
því að forðast jurtina.
Slöngujurt og breytingaskeiðið
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Óvíst um
gagnsemi
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið er á móti spurningum á virkum dög-
um milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok.
Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent
fyrirspurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
UPPHAF nýs árs er iðulega notað til
að hefja líkamsrækt og margir
steypa sér út í mikil átök og áreynslu
til að komast í form. Sérfræðingar í
líkamsæfingum eru hins vegar farnir
að hallast að því að mikil áreynsla á
borð við þá, sem boðið er upp á í lík-
amsræktarstöðvum, sé ekki eina
leiðin til að öðlast betri heilsu og
jafnvel ekki sú besta. Í nýlegri grein
í vikuritinu Time segir að það sé mat
sérfræðinganna að svo geti verið að
besta líkamsræktin sé að ganga
rösklega á milli fimm og sex kíló-
metra hraða á klukkustund í um
hálfa klukkustund í senn fimm til sex
sinnum á viku.
Í greininni segir að ávinningurinn
komi ekki fram samstundis en til
langs tíma hafi reglulegar göngu-
ferðir mikil áhrif til góðs, allt frá því
að draga úr hættunni á hjartaslagi,
sykursýki og beinþynningu til þess
að slá á gigt, háan blóðþrýsting og
jafnvel þunglyndi.
Hin fullkomna æfing?
Ganga er í blaðinu sögð nálgast
það að vera hin fullkomna æfing.
Bent er á að fátt sé öruggara, sýnu
minna álag sé á hnén heldur en við að
hlaupa og ekki sé vitað um neinar
aukaverkanir. Vitnað er í dr. JoAnn
Manson, sem er yfir deild fyrir-
byggjandi lækninga í Brigham and
Women’s spítalanum við Harvard-
háskóla, og segir hún að stunduðu
allir Bandaríkjamenn göngu 30 mín-
útur á dag mætti draga úr tíðni
margra krónískra sjúkdóma um 30
til 40 af hundraði. Talið er að tæp-
lega þriðjungur Bandaríkjamanna
fái næga hreyfingu daglega og um 40
af hundraði eru nánast algerir kyrr-
setumenn. Landlæknir Bandaríkj-
anna greindi frá því í desember að
offita yrði brátt algengari orsök
dauðsfalla, sem hefði mátt koma í
veg fyrir, en vindlingareykingar.
Sami ábati og af
erfiðari líkamsrækt
Í upphafi rannsókna á líkamsrækt
var megináhersla lögð á að kanna
kosti þess að leggja mikið á sig. Und-
anfarið hafa vísindamenn hins vegar
verið að skoða hver séu neðri mörk
þeirrar hreyfingar, sem sé nauðsyn-
leg til að hafa áhrif á heilsuna. Á
undanförnum fimm árum hefur kom-
ið fram fjöldi rannsókna, sem sýnir
að rösk ganga hafi marga af sömu
kostunum og meira erfiði á borð við
hlaup. Munurinn er fólginn í því að í
stað erfiðis tekur æfingin lengri
tíma.
Styrkir hjarta og bein og auð-
veldar baráttuna við aukakílóin
Sérstaklega hefur verið tekið til
þess að ganga hafi góð áhrif á hjart-
að. Hún örvar blóðrásina og styrkir
hjartað, mikilvægasta vöðva líkam-
ans. Blóðþrýstingurinn lækkar og
það dregur úr álagi á æða-
veggina. Talið er að þegar
allt er talið geti ganga
dregið úr líkum á hjarta-
áfalli um 50 af hundraði.
Ganga er einnig talin
auðvelda stjórn á líkams-
þyngd, en eftir því sem
aldurinn færist yfir verð-
ur erfiðara að gera það
eingöngu með mataræði.
Brennsla hitaeininga fer
ekki aðeins fram meðan á
göngunni stendur, heldur
örvast efnaskipti líkam-
ans það sem eftir lifir
dags.
Tvær rannsóknir frá
liðnu ári benda til þess að
hálftíma ganga daglega
geti seinkað og jafnvel
komið í veg fyrir sykur-
sýki tvö í fólki, sem er of
þungt eða á þegar í vand-
ræðum með að brjóta niður
sykur í líkamanum.
Sýnt hefur verið fram á að
ganga styrkir ekki aðeins
vöðvana heldur einnig beinin, sem
þeir eru fastir við, og vinnur þannig
gegn beinþynningu.
Þá eru komnar fram vísbendingar
um að ganga hafi áhrif á þunglyndi. Í
greininni í Time segir að gerð hafi
verið rannsókn sem sýnir að eftir tíu
mánaða tímabil voru þunglyndis-
sjúklingar sem aðeins tóku þung-
lyndislyf líklegri til að fá bakslag en
þeir sem fengu ekki lyf og stunduðu
æfingar.
Er ganga besta
líkamsræktin?
Morgunblaðið/RAX
Hollusta þess að ganga hefur mikið verið
rannsökuð á undanförnum árum.
H E I L B R I G Ð S K Y N S E M I
LÝSI&LIÐAMÍN
Allra liða
bót
án A og D vítamína
Hvað er
Liðamín?
Liðamín inniheldur
amínósýruna
glúkósamín, sem er
hráefni til viðgerðar á
brjóski, og kondróítín
sem er eitt algengasta
byggingarefnið í
liðbrjóski.
Hvers vegna
lýsi?
Lýsið í Lýsi & Liðamíni
inniheldur a.m.k. 30% af
omega-3 fitusýrum.
Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á liðagigt
benda til þess að við
reglubundna neyslu á
omega-3 fitusýrum dragi
úr einkennum eins og
stirðleika á morgnana,
verkjum og þreytu.
www.lysi.is
Y
D
D
A
/
SÍ
A
Nýskr. 5.2000, 7300cc, diesel vél, 234 hö, 4 dyra,
sjálfskiptur, blár, ekinn 9. þ. Fluttur inn af um-
boði, er í ábyrgð, einn eigandi, Alpine CD
m/skjá, NMT-sími, ABS, þægindastólar,
hús m/viftu, 35" dekk, upphækkaður,
brettakantar, stigbretti o.m.fl.
Ford F250 XL
V8TD Crewcab
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&L
Verð 5.550 þ.