Morgunblaðið - 26.01.2002, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.01.2002, Qupperneq 22
NEYTENDUR 22 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SNORRAVERKEFNIÐ í Vest- urheimi varð að veruleika í fyrrasumar, þegar tvær íslensk- ar stúlkur fóru til Manitoba til að taka þátt í verkefninu. Það stendur í um sex vikur og er skipulagt með það í huga að þátttakendur kynnist Nýja Ís- landi, menningu, tungumáli og sögu svæðisins. Ennfremur er það hugsað sem tækifæri fyrir Íslendinga á aldrinum 18 til 23 ára til að miðla menningu Ís- lendinga og styrkja böndin milli Íslands og Kanada. Bæklingur og veggspjald Ernest Stefanson var á Ís- landi á dögunum, m.a. í þeim til- gangi að vekja athygli á Snorra- verkefninu í Vesturheimi. Hann kom með bæklinga og vegg- spjöld um verkefnið til dreif- ingar hér á landi og ræddi m.a. við Atla Ásmundsson, blaðafull- trúa utanríkisráðuneytisins, og Skarphéðin B. Steinarsson, skrifstofustjóra í forsætisráðu- neytinu, um málið. Að sögn Ernest Stefanson tókst verkefnið vel á liðnu sumri og segir hann að samfara því hafi áhuginn á því aukist. Marg- ar fjölskyldur séu tilbúnar að taka á móti íslensku ungmenn- unum frá Íslandi og fjöldi fólks vestra sé í viðbragðsstöðu vegna dagskrárinnar. Umsóknarfrestur til 15. mars Gert er ráð fyrir að Snorra- verkefnið í sumar standi yfir frá því í lok júní til 10. ágúst eða þar um bil, en sækja þarf um fyrir 15. mars nk. Þátttakendur eru í gistingu og fæði hjá fjölskyldum af ís- lenskum uppruna og taka þátt í daglegu lífi auk þess sem þeir sinna léttri vinnu í sjálfboðal- iðsstarfi tvær til þrjár vikur, ferðast um Íslendingaslóðir og taka þátt í Íslendingadeginum á Gimli í byrjun ágúst. Eigi þeir ættingja í Vesturheimi verður þeim veitt aðstoð við að hafa uppi á þeim. Sannkölluð fjöl- þjóðamenning ríkir í Manitoba og eru íbúarnir ættaðir frá mörgum löndum eins og t.d. Úkraínu, Póllandi, Rússlandi, Þýskalandi og Skotlandi auk þess sem frumbyggjar indjána búa á svæðinu. Ernest Stefan- son bendir á að þessi þjóðabrot búi í sátt og samlyndi sem ein þjóð og þátttakendur í Snorra- verkefninu kynnist því af eigin raun. Snorraverkefnið hefur verið í gangi á Íslandi undanfarin þrjú ár en síðan sumarið 1999 hafa komið 44 ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum til sex vikna dvalar víða á Íslandi. Skipulagið á verkefninu í Kanada er byggt á reynslunni á Íslandi og ytra er nú auglýst eftir ungmennum sem hafa áhuga á því að taka þátt í Snorraverkefninu á Ís- landi í sumar. Tengiliðir Fjáröflunarnefndin Sameinað íslenskt átak, United Icelandic Appeal, starfar með nefnd Snorraverkefnisins í Vestur- heimi en ýmsar stofnanir og fyr- irtæki, þar á meðal Flugleiðir, koma að verkefninu og styrkja það. Upplýsingar um verkefnið er að finna á slóðinni snorri- west.ca, en tengiliðir verkefn- isins eru Ásta Sól Kristjánsdótt- ir, framkvæmdastjóri Snorra- verkefnisins á Íslandi, (snorri- @norden.is) og Penny Sigmund- son (sigmundson20@hotmail.- com) og Wanda Anderson (tander@mts.net) í Kanada. Snorraverkefnið í Vesturheimi Morgunblaðið/Árni Sæberg Ernest Stefanson og Claire Gillis, sambýliskona hans. „Eflum sam- skipti og vin- áttutengsl“ Íslenskum ungmennum stendur til boða að taka þátt í svonefndu Snorraverkefni á Nýja Íslandi í sumar eins og í fyrrasumar. Steinþór Guð- bjartsson hitti Ernest Stefanson, formann rekstrarstjórnar elliheimilisins Betel í Gimli, en hann er í framkvæmdastjórn verkefnisins.     NEYTENDASAMTÖKIN segja „stórlega vanta á þyngd brauða og bökunarvara“ í verslunum. Samtökin gerðu skyndikönnun á uppgefinni þyngd bökunarvöru hinn 15. janúar síðastliðinn í Nóatúni í Austurveri og Nýkaupum í Kringlunni og segir í frétt frá samtökunum að vantað hafi upp á uppgefna þyngd í „flestum til- vikum“. Var borin saman uppgefin þyngd og niðurstaða úr vigtun starfs- manna Neytendasamtakanna. „Í stuttu máli kom niðurstaða þeirra mælinga okkur verulega á óvart. Í flestum tilvikum vantar stór- lega á þyngd brauða og bökunar- vara,“ segja Neytendasamtökin. Er tekið fram að umræddar vörur komi pakkaðar frá bakaríunum og því beri þau ábyrgð á því að uppgefin þyngd standist. Einnig segir að Neyt- endasamtökunum sé kunnugt um að Nóatún og Nýkaup hafi skrifað bak- aríum sem í hlut eiga bréf og farið þess á leit að „þessu verði komið í lag svo uppgefin þyngd standist“. Jafnframt segir að samkvæmt lög- um og reglum skuli geta um nettó- þyngd og geymsluþol á pökkuðum brauðvörum. „Þar með er ljóst að um- búðir beri frá að draga svo vitnað sé í reglugerðina. Í ljós kom að það er að jafnaði ekki gert.“ Fram kemur að „umtalsverð und- irvigt hafi verið á fjölda vörutegunda frá Myllunni, nema í einni tegund af níu því marsipanrúllan var með um 13% yfirvigt. Tvö hamborgarabrauð af þremur stóðust vigt. Annars vant- aði um 7% á rúgbrauðið og var algeng undirvigt á brauðum um 1%, þó oftar um 3%.“ Rúm 3% vantaði upp á á kleinur, segir ennfremur, og „ábyggilega“ um 6% upp „á vínartertuna ef umbúðir eru áætlaðar 10 grömm.“ Í könnuninni varð vart við yfirvigt og segja Neytendasamtökin að hún hafi verið allt að þriðjungur, eða 33% á hvítum samlokubrauðum hjá Sam- sölubakaríinu. „Ráðskonubrauðið þeirra var að meðaltali með rúmlega 13% yfirvigt. Þessi niðurstaða kom okkur hins vegar skemmtilega á óvart,“ segja Neytendasamtökin. Einnig segir að „risasamloku- brauð“ frá Nýbrauði, sem framleitt er fyrir Aðföng og selt í Nýkaupum hafi verið rúmum 6% undir auglýstri vigt en „samlokubrauð“ frá Nýbrauði sem fást í Nóatúni hafi verið um 5% undir vigt. „Minna vantaði á önnur brauð frá Nýbrauði,“ segir jafnframt. Umbúðir reiknaðar með og undirvigtin því enn meiri „Meira en fjórðung vantaði á Korn- brauð frá Bakaríinu Austurveri“ en þriggja korna brauð frá sama bakaríi með um fjórðung í yfirvigt. „Engar geymsluþolsmerkingar fundust og einnig vantaði þyngdina á normal- brauðið þeirra sem er ólöglegt,“ segja NS. Flatkökur og kleinur frá Gæða- bakstri voru rúm 15% og 6% yfir aug- lýstri vigt en flatkökur frá Ömmu- bakstri allt að 5,6% undir vigt. Hjá Kökugerð HP á Selfossi vant- aði um 27% upp á flatkökupakkann, sem jafngildir „rúmlega einni flat- köku í pakkanum“ samkvæmt út- reikningum Neytendasamtakanna. Einnig vantaði geymsluþolsmerk- ingu. „Árbak framleiðir Ragnars marm- arakökur, sem eru allt að 10% undir vigt ef tekið er tillit til álbakkans sem er um 10 grömm. Sveinsbakarí við Arnarbakka gefur ekki upp þyngd á sínum bökunarvörum.“ „Þetta er afleit niðurstaða,“ segja Neytendasamtökin ennfremur. Fram kemur að umbúðir hafi verið vigtaðar með í könnuninni. „En þær eru stundum umtalsverð- ur hluti af þyngdinni ... Undirvigtin er því meiri en hér kemur fram, eða sem nemur þyngd umbúða, nema annað sé tekið fram. Frávik geta verið eðlileg, hvað varðar til dæmis kleinur eða flatkökur, þó má ætla að séu til dæmis tíu pokar vigtaðir standist þeir upp- gefna þyngd, að meðaltali. Almennt skal gera ráð fyrir því að vara stand- ist vigt þegar hún er keypt. Til að tryggja slíkt þurfa framleiðendur að hafa eilitla yfirvigt og skal fylgjast reglulega með að vigt standist,“ segja Neytendasamtökin að endingu. Neytendasamtökin segja mun á uppgefinni og raunverulegri vigt brauðmetis „afleita niðurstöðu“. „Vantar stórlega á þyngd brauða og brauðmetis“ Neytendasam- tökin gera skyndi- könnun á uppgef- inni þyngd bökunarvöru í verslunum                            !  "   #$" % &  !"# $  #   % % % '   (    '   (    '   (    ) *+,$  ./ #  ./ #  0 #  ' ( $"                                      )! *  $   # 1  & # 2 #  ##  # # * # ) &# !  # 3    & #   4    ./  &   +, $"  $                                         +, ( #             ,-. /-0 ,-1 , ,. ,- / 0 ,21 / 2 / 2 ,3     % % % % % % $  #   !"# 5 --( & 6 !"# !"# 7 # 8 $ &#   ' ( $"                                     )! *   &  -#  &  -# * # # ) & 9& 5  #2 6 %  & 2 $   # ,8     # :.;  <,8 8-# - $   # ,8  &     5 - -#-  1#  +, $"  $                                          +, ( #             , 1 , / , ,- /32 /0- ,3- ,3 ,- ,. =& & &  &  =& & &  & 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.