Morgunblaðið - 26.01.2002, Page 26

Morgunblaðið - 26.01.2002, Page 26
26 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SAMÞJÖPPUN á sviði mat-vöruverslunar kom til um-ræðu á Alþingi í vikunni.Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sagði að fylgja þyrfti því eftir að stórir aðilar væru ekki að misnota aðstöðu sína. „Auðvitað er það þannig að 60% eignaraðild á verslunarfyrirtækjum í matvæla- iðnaði er allt of há hlutdeild. Auðvit- að er það uggvænlegt og sérstak- lega þegar menn hafa á tilfinningunni að menn taki ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi. Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþing- is að skipta upp slíkum eignum ef þær eru misnotaðar,“ sagði for- sætisráðherra. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði við sama tækifæri að stóru matvörukeðjurn- ar hefðu í skjóli einokunar keyrt upp matarverð. „Hreðjatak þeirra á markaðnum hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur,“ sagði Össur. Hann sagði ríkisstjórninni bera skylda til að feta í fótspor verka- lýðshreyfingarinnar og fara í við- ræður við stærstu verslunarrisana og krefjast þess í nafni þjóðarheillar að þeir sýni ábyrgð og lækki mat- arverð. „Ef fortölur duga ekki til þá er það skoðun okkar í Samfylking- unni að Samkeppnisstofnum eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breyting- ar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda.“ Ummælin um hugsanlega upp- skiptingu verslunarfyrirtækja í matvælaiðnaði hafa vakið verð- skuldaða athygli. Þótt forsætisráð- herra hafi ekki nefnt nein fyrirtæki á nafn er ljóst að hann er að vísa til Baugs hf., sem er talið hafa hátt í 60% markaðshlutdeild á höfuðborg- arsvæðinu með rekstri verslana Nýkaupa, Hagkaupa, Bónuss og 10–11, en yfir 40% hlutdeild á land- inu öllu. Annar stór aðili á mark- aðnum er Kaupás, sem er talinn hafa um 26–27% markaðshlutdeild á höfuðborgarsvæðinu og um 22– 23% á landinu öllu með verslunum Nóatúns, 11–11 og KÁ, auk Krónu- verslana sinna. Stjórnarformenn þessara fyrir- tækja tóku ummælum forsætisráð- herra þunglega og telja ekki ástæðu til að skipta fyrirtækjum upp af þeirri ástæðu einni að þau hafi mikla markaðshlutdeild. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, benti á að ef litið væri svo á yrði einnig að hluta í sundur önnur markaðsráðandi fyrirtæki, til dæm- is í flugi eða sjóflutningum, en hann efaðist stórlega um að slíkt leiddi til lægra verðs á vöru þeirra eða þjón- ustu. Enga beina heimild er að finna í íslenskum lögum til að skipta upp fyrirtækjum, teljist markaðshlut- deild þeirra of há, miðað við ein- hverjar skilgreindar forsendur, og að því gefnu að þau misnoti stöðu sína. Einn viðmælandi Morgun- blaðsins sagði hugsanlegt að sam- keppnisyfirvöld gætu látið reyna á uppskiptingu fyrir dómstólum sam- kvæmt 17. grein samkeppnislag- anna, sem kveður á um að aðgerðir gegn samkeppnishömlum geti falið í sér bann, fyrirmæli eða heimild með ákveðnu skilyrði. Greinin er hins vegar mjög almennt orðuð, upp- skipting hvergi nefnd á nafn og lög- fróðir menn telja hæpið að dómstól- ar samþykktu jafnalvarlega aðgerð og uppskiptingu fyrirtækis, væri 17. greinin ein til grundvallar. Árni Vil- hjálmsson hæstaréttarlögmaður segist t.d. ekki telja greinina næga stoð fyrir slíkri aðgerð. Annaðhvort þurfi að breyta samkeppnislögun- um eða setja sérstök lög. Árni segir að ákvæði um upp- skiptingu markaðsráðandi fyrir- tækja vegna misnotkunar á stöðu verði að vera almenn; ekki komi til greina að setja slík lög til höfuðs einum þætti atvinnulífsins öðrum fremur. Við lagasetninguna verði hins vegar að taka mið af ákvæðum stjórnarskrárinnar um eignarrétt og atvinnufrelsi, en hann geti ekki lagt mat á hvort slík lög fengju stað- ist samkvæmt stjórnarskránni. „Samkeppnislögin eiga að duga til að koma í veg fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu,“ segir Árni. „Slík misnotkun er bönnuð sam- kvæmt lögunum, sem hafa að geyma ákvæði um viðurlög við brot- um á þeim.“ Sigurður Líndal lagaprófessor er sammála Árna að við hugsanlega lagasetningu verði að hafa jafnræð- isregluna í huga, þ.e. að eitt skuli yf- ir alla ganga. Stærð fyrirtækis ein saman geti ekki talist næg ástæða til slíkrar lagasetningar, heldur þurfi að sýna fram á misnotkun að- stöðu, til dæmis undirboð fyrirtæk- isins til að koma í veg fyrir að önnur fyrirtæki nái að hasla sér völl á sama sviði, eða eitthvað annað sem flokka mætti undir óréttmæta við- skiptahætti. Allt slíkt verði auðvitað að rannsaka gaumgæfilega. Aukin markaðsyfirráð geta verið ólögmæt Við endurskoðun samkeppnis- laga í desember árið 2000 var hnykkt á ýmsum ákvæðum laganna, til dæmis lagðar sérstakar skyldur á herðar þeim fyrirtækjum sem teljast markaðsráðandi og tekið fram hvers konar aðgerðir slíkra fyrirtækja fela í sér misnotkun. Önnur mikilvæg breyting var gerð á lögunum, sem lýtur að því að nú er alveg ljóst að samruni getur verið ólögmætur þegar fyrirtæki sem er markaðsráðandi eykur markaðsyf- irráð sín. Ef þessi regla hefði verið lögfest fyrr má ætla að samkeppn- isyfirvöld hefðu t.d. gert athuga- semdir við kaup Baugs á Vöruvelt- unni, sem rak 10–11 verslanirnar. Þá hafði Hæstiréttur hins vegar túlkað samkeppnislög á þann hátt, að samkeppnisyfirvöld töldu sér ekki fært að koma í veg fyrir kaup- in. Við kaup Baugs á 10–11 verslun- unum árið 1999 var staðan sú, að því er fram kemur í úrskurði sam- keppnisráðs 6. júlí það ár, að Baug- ur rak verslanakeðjurnar Hagkaup, Bónus, Nýkaup og Hraðkaup, en Vöruveltan rak þrettán 10–11 versl- anir. Miðað við veltu árið Baugur með rúmlega 50% á matvörumarkaði á höfu svæðinu. Eftir yfirtökuna verslununum var mark deildin komin upp í 57–58 fyrir að Baugur seldi tv kaupaverslanir til Kaupáss Nóatúnsverslanirnar, 11– anirnar og KÁ, en nú haf verslanir Kaupáss bæst í Samkeppnisráð mat mark deild Kaupáss á höfuðbor inu 25% eftir kaupin á N verslununum. Samanlag Baugur og Kaupás því með matvörumarkaðarins á hö arsvæðinu, en aðrir kep með 2–5% hlutdeild. Í úrskurði sínum vegna unnar sá samkeppnisráð á að vísa í túlkun og beitin runareglna í erlendum r kom fram, að samkvæmt Evrópusambandsins um eða yfirtöku fyrirtækja ski hvort um sköpun markað stöðu er að ræða eða sty markaðsráðandi stöðu sem Ef samruninn hefur annað för með sér og sýnt þykir hljótist röskun á virkri sam markaðnum ber að banna ann eða yfirtökuna. Svipaðar reglur gilda í B Noregi, Svíþjóð og Finnlan er fram kemur í þessari sa samkeppnisráðs, en í D eru ekki í gildi reglur sem stjórnvöldum að grípa til í vegna samruna eða yfirtö hægt sé að grípa til aðger telji stjórnvöld um misn markaðsráðandi stöðu að r Upptalningu samkeppn reglum nágrannaþjóða í var að líkindum ætlað að hygli á að íslensk samke kváðu ekki nægilega sterk til að ráðinu væri stætt á a yfirtöku Baugs á 10–11 ve um. Enda segir samkepp Hugsanleg misnotkun fy SEKTARHEI – UPPSKI Ummæli forsætisráðherra um að til greina komi að skipta upp eignum mark- aðsráðandi verslunarfyrirtækja hafa vakið athygli. Í grein Ragnhildar Sverrisdóttur kemur fram að í samkeppnislögum eru ýmis úrræði til að koma í veg fyrir misnotkun markaðsráðandi stöðu. FORDÆMI BESSASTAÐAHREPPS OFBELDI GEGN BÖRNUM Í gær var grein um illa meðferðá börnum hér í blaðinu, en fyr-irsögn hennar; „Barnið njóti vafans“, setur siðferðislegar skyld- ur okkar hvað öryggi og vellíðan barna viðkemur í hnotskurn. Í greininni kemur fram að Gestur Pálsson og Jón R. Kristinsson, barnalæknar á Barnaspítala Hringsins, telja vandamálið van- greint líkt og kynferðislegt ofbeldi var áður. Í kjölfar vakningar í þeim málum upp úr 1986 jókst um- ræða um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum mikið sem vissulega hefur leitt til aukinnar meðvitund- ar um vandann, afleiðingar hans og ábyrgð allra þeirra sem börnin annast. Í ljósi þeirrar reynslu er full ástæða til að beina sjónum samfélagsins að annars konar of- beldi sem börn eru beitt. Brýnt er að ráðast einnig gegn þeim dulda vanda sem þar er að finna, læra að greina hann og leita uppbyggilegra úrlausna til að draga úr þeim skaða sem ofbeldið veldur. Í skýrslu Barnaverndarstofu fyr- ir árið 2000 kemur fram að barna- verndarnefndir tóku á því ári sam- tals við 2.728 tilkynningum vegna barna í vanda og í 84% tilvika var talin þörf á afskiptum. Eftir að til- fellin höfðu verið könnuð var talið að 31 barn hefði verið beitt lík- amlegu ofbeldi. Af þessum tölum má sjá að börnum hér á landi, rétt eins og annars staðar, er misþyrmt af sínum nánustu. Þegar tölur frá árunum 1980–1999 eru skoðaðar kemur í ljós að flest þeirra eru mjög ung, en 80% eru undir 7 ára aldri. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að ofbeldi gagnvart börn- um er hluti af íslenskum veru- leika,“ segir Gestur Pálsson. „Þess vegna verða læknar og annað heil- brigðisstarfsfólk alltaf að hafa þennan möguleika í huga þegar börn eru skoðuð.“ Af orðum hans má ráða að ábyrgð fólks í heil- brigðisgeiranum er mikil þegar að því kemur að greina áverka og taka afstöðu til þess hvort þeir geti hugsanlega verið afleiðing mis- þyrminga, en jafnframt benda báð- ir læknarnir á að ábyrgð annarra sem umgangast barnið er einnig mikil, því samkvæmt barnavernd- arlögum er almenningi beinlínis skylt að tilkynna barnaverndaryf- irvöldum ef grunur vaknar um van- rækslu eða ofbeldi gagnvart þeim. Í máli Gests kemur fram að erf- itt sé að meta tíðni ofbeldis gagn- vart börnum þar sem vandinn fari leynt. Hann telur þó ekki að um jafnvíðtækt vandamál sé að ræða og t.d. í Bretlandi, þar sem mennt- unarstig hér er hærra, velferð al- mennari og eftirfylgni í ungbarna- vernd betri, auk þess sem fjölskyldutengsl eru sterkari. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að algengustu áhættuþættirnir, svo sem streita, fjárhagslegir erfiðleik- ar, veikindi og atvinnuleysi eru all- ir þeir sömu hér og annars staðar og við verðum að vera vakandi fyr- ir því álagi sem þeir valda í sam- skiptum foreldra og barna. Í okkar samfélagi hefur sem betur fer ekki verið jafnsterk hefð fyrir líkamleg- um refsingum og víða annars stað- ar og því vonandi að auðveldara verði að búa þannig um hnútana að börn geti notið þess andlega og lík- amlega öryggis sem þau eiga skil- yrðislausan rétt á í uppvexti sínum. Bessastaðahreppur hefur ákveðiðað falla frá tæplega 6,7% hækkun leikskólagjalda, sem taka átti gildi frá síðustu áramótum. Jafnframt hefur hreppurinn ákveð- ið að fresta hækkun á gjaldskrá Frístundar Álftanesskóla til 1. ágúst nk. og lagt verður til við hreppsnefnd að gjaldskrár fé- lagsþjónustu, sundlaugar og gæzlu- vallar verði ekki hækkaðar. Með þessum ákvörðunum hefur Bessastaðahreppur sýnt öðrum sveitarfélögum gott fordæmi, sem ætti að verða þeim hvatning til þess að fylgja í kjölfarið. Rekstur sveitarfélaga eða fyrir- tækja og stofnana á þeirra vegum er í sjálfu sér ekki frábrugðinn rekstri almennra fyrirtækja að því leyti til að það er hægt að mæta út- gjaldaauka á tvo vegu. Annaðhvort að hækka gjöld eða draga úr öðrum kostnaði. Fyrirtæki sem starfa í samkeppni á markaði eru oft tilneydd að skera niður kostnað í stað þess að hækka verð. Sú aðstaða stuðlar að betri rekstri fyrirtækjanna. Ríki og sveitarfélög hafa sterka tilhneig- ingu til þess að hækka gjöld í stað þess að draga úr kostnaði. Til þess að allrar sanngirni sé gætt ber auð- vitað að taka fram, að oft er þeim skylt samkvæmt lögum að veita ákveðna þjónustu. Engu að síður er svigrúm hjá þessum aðilum eins og öðrum að draga úr kostnaði. Ákvörðun Byko um lækkun á vöruverði í verzlunum fyrirtækisins hefur hrundið af stað verðlækkun- arskriðu í verzlunum. Það kom skýrt í ljós í samtölum, sem Morg- unblaðið átti við viðskiptavini Fjarðarkaupa á dögunum, að fólk vill sýna samstöðu með þeim sem lækka verð og beina viðskiptum sínum þangað. Þess er að vænta að ákvörðun Bessastaðahrepps hafi áþekk áhrif hjá sveitarfélögunum. Frumkvæði forystumanna Al- þýðusambands Íslands að því að eiga viðræður við forsvarsmenn sveitarfélaga um möguleika á lækk- unum er til fyrirmyndar. Með að- gerðum þessara aðila hefur smátt og smátt skapazt almenn hreyfing fyrir því í landinu að knýja fram verðlækkanir. Sú hreyfing þarf að eflast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.