Morgunblaðið - 26.01.2002, Page 38
MINNINGAR
38 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
verður í Seltjarnarneskirkju sunnu-
daginn 27. janúar kl. 11. Stundin er
sniðin að þörfum barnanna með
léttu og notalegu andrúmslofti.
Í upphafi stundarinnar mun sr.
Sigurður Grétar Helgason taka við
Biblíu sem afhent hefur verið kirkj-
unni til varðveislu fyrir hönd Ástu
Sigríðar Þorkelsdóttur og hennar
afkomenda. Ætíð hefur verið geng-
ið um Biblíuna sem mikinn helgi-
grip og hún hefur alltaf verið nefnd
sem „Biblían úr Nesi á Seltjarn-
arnesi“.
Stoppleikhópurinn mun sýna nýtt
íslenskt barnaleikrit sem heitir
„Ævintýri Kuggs og Málfríðar“. Er
leikgerðin byggð á hinum vinsælu
barnabókum Sigrúnar Eldjárn um
Kugg og Málfríði. Ætlunin er að síð-
asta sunnudag hvers mánaðar verði
fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni
þar sem börnin í kirkjuskólanum
eiga sína stund í kirkjuskipinu
ásamt fjölskyldu sinni.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Starfsfólk Seltjarnarneskirkju.
Sunnudagurinn
í Hallgrímskirkju
MESSA og barnastarf verður kl. 11.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Jóni Bjarman. Barna- og unglinga-
kór Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Magneu Gunnarsdóttur. Org-
anisti verður Hörður Áskelsson,
kantor.
Magnea Sverrisdóttir stýrir
barnastarfinu, en börnin fara fyrir
prédikun og fá fræðslu við sitt hæfi
í safnaðarsal kirkjunnar. Eftir
messu er söfnuðinum boðið upp á
molasopa í safnaðarsalnum.
Ensk messa kl. 14.
Síðdegis kl. 17.00 verða tónleikar
í tónleikaröð Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Tónleikarnir nefnast
Nadda-kross, Miðaldaspuni. Raf-
magnaðir tónleikar með íslenskri
tónlist frá 21. öldinni og miðöldum.
Þátttakendur verða: Matthías
M.D.Hemstock slagverksleikari,
Hörður Áskelsson orgelleikari,
Hugi Guðmundsson tónskáld og
sönghópurinn Voces Thules.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
ENSK messa verður haldin í Hall-
grímskirkju sunnudag kl. 14. Prest-
ur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason
og organisti Ágúst Ingi Ágústsson.
Guðrún Finnbjarnardóttir mun
leiða almennan safnaðarsöng.
Á þessu ári verður boðið upp á
enska messu í Hallgrímskirkju síð-
asta sunnudag hvers mánaðar.
Fjölskylduhátíð í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 27. jan-
úar, verður haldin mikil fjöl-
skylduhátíð í Hafnarfjarðarkirkju.
Það er komin löng hefð fyrir því að
halda slíka hátíð einu sinni í mánuði
í kirkjunni. Hátíðin hefst að venju
með fjölskylduguðsþjónustu
kl.11.00. Þá sameinast báðir sunnu-
dagaskólar kirkjunnar, en Hafn-
arfjarðarkirkja starfrækir sunnu-
dagaskóla bæði í Hvaleyrarskóla og
safnaðarheimilinu. Allir leiðtogar
taka þátt í því að annast stundina.
Barna- og unglingakór kirkjunnar
kemur í heimsókn og syngur undir
stjórn Lindu Margrétar Sigfúsdótt-
ur. Leiðtogar mynda hljómsveit að
venju og stjórna almennum söng.
Farið verður í leiki og sögð glæru-
myndasaga. Prestar eru sr. Þórhall-
ur Heimisson og sr. Þórhildur Ólafs.
Eftir fjölskylduguðsþjónustuna
er boðið upp á góðgæti í safn-
aðarheimilinu. Þar verða einnig
myndir dagsins afhentar. Sunnu-
dagaskólarútan ekur eins og venju-
lega, en auk þess mun rúta fara frá
Hvaleyrarskóla kl.10.55 og heim
aftur eftir veisluna í safnaðarheim-
ilinu. Allir eru velkomnir.
Hafnarfjarðarkirkja –
Þjóðkirkja í þína þágu.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði. Þess vegna er hægt að fara
út úr kirkjubyggingunum með
helgihald og fagnaðarerindið og
mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af
því bjóðum við til messu í Kolaport-
inu sunnudaginn 27. janúar kl.
14:00.
Ragnheiður Sverrisdóttir djákni
predikar og þjónar ásamt Jónu
Hrönn Bolladóttur miðborg-
arpresti.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina. Áður en Kolaportsmessan
hefst mun Þorvaldur Halldórsson
flytja þekktar dægurperlur eins og
honum er einum lagið. Þá er hægt
að leggja inn fyrirbænarefni til
þeirra sem þjóna í messunni.
Í lok stundarinnar verður fyr-
irbæn og blessun með olíu. Messan
fer fram á kaffistofunni hennar
Jónu í Kolaportinu sem ber heitið
Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér
kaffi og dýrindis meðlæti og eiga
gott samfélag við Guð og menn. All-
ir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM&K.
Heiðmar
í Óháða söfnuðinum
KRISTINN Á. Friðfinnsson, sókn-
arprestur í Hraungerðisprestakalli,
mætir nk. sunnudag kl. 14, ásamt
organistanum, Heiðmari Jónssyni
og kór, í messu í Óháða söfnuðinum.
Heiðmar var organisti í Óháða söfn-
uðinum fyrir nokkrum árum.
Geta menn heilsað upp á Heiðmar
að lokinni messu þar sem heill fer-
metri af rjómatertu verður til áts í
kirkjukaffinu. Kristinn prédikar og
barnastarfið er á sama tíma. Allir
velkomnir.
Fjölskylduguðs-
þjónusta í Sel-
tjarnarneskirkju
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 13.
Þorrafagnaður. Allir velkomnir. Umsjón sr.
Frank M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir,
spurt og svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
KFUM&K, Sunnuhlíð, Akureyri. Almenn
samkoma kl. 20.30 sunnudagskvöld.
Katrín Möller Eiríksdóttir talar og sýnir
myndir frá Kenýa. Fundur í yngri deild á
mánudag kl. 17.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
segja sögu sína og draga ekkert und-
an þá gat hún vikið sér undan, á ein-
hvern óútskýranlegan hátt, að gefa
upplýsingar um sinn innri heim þótt
knúð væri dyra af vinum. Þennan
heim hafði hún fyrir sig. Grunar mig
að þar hafi togast á andstæð öfl. Þau
sem beindust út á við snerust um að
sýna samkennd og veita styrk. Hin
sem leituðu inn fóru stundum um
hana ómjúkum höndum og gátu
hindrað bata og framfarir á veikinda-
tímum.
Við, vinir hennar og aðstandendur,
sem heimsóttum hana reglulega síð-
ustu árin, eigum sennilega aldrei eftir
að skilja til fulls hin flóknu fyrirbæri
mannlegs atferlis sem birtust í vin-
konu okkar. En það er eins og það sé
nóg að vita núna, að hún var okkur
svo kær á margan hátt.
Ég votta Haraldi Darra, Önnu
Margréti, Halldóri litla Alexander,
móður hennar Herdísi, systkinum
hennar og öðrum vinum og vanda-
mönnum mína dýpstu samúð.
Far þú í friði, góða vinkona. Minn-
ingin lifir.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Nú, þegar Auður vinkona mín hef-
ur kvatt þetta jarðlíf er gott að láta
hugann reika til baka og minnast allra
skemmtilegu stundanna sem ég hef
átt með henni.
Við Auður kynntumst í gegnum
eiginmenn okkar fyrir rúmum aldar-
fjórðungi. Það var á þeim tímum þeg-
ar við vorum ung og róttæk og mikið
að gera í vinstri pólitíkinni. Auður
hafði nú engan sérstakan áhuga á
þessum róttæku samtökum en hún
hafði mikinn áhuga á tónlist og svo
sannarlega gerði hún vinstri pólitík-
inni gott með tónlist sinni. Auður var
nefnilega tónskáld og gerði þónokkur
lög m.a. við ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum og Guðmund Böðvarsson.
Einnig söng Auður vel og kom oft
fram á hinum ýmsu baráttukvöldum
og söng þá stundum tvísöng með Þor-
valdi, sem lék undir á gítar. Auður
söng í nokkur ár með kór alþýðu-
menningar, allt frá 1976. Það þótti
merkilegur kór á þessum árum. Upp
úr kór alþýðumenningar varð til
söngsveitin Kjarabót. Þar voru sung-
in baráttulög inn á plötu sem nefndist
„Baráttusöngvar fyrir friði og þjóð-
frelsi.“ Þar eru nokkur lög eftir Auði.
Á þessum árum komum við oft
saman í heimahúsum og var þá mikið
sungið og spilað. Með þeim Auði og
Þorvaldi fannst mér fylgja menning-
arblær ljóðasöngsins, sem á einhvern
hátt mildaði hráslagalegan rútubíla-
söng okkar hinna.
Það er eins og sumum sé meira til
lista lagt en öðrum og var Auður ein
af þeim. Auður gat ekki bara sungið,
hún var einnig vel hagmælt og oft var
leitað í smiðju hennar eftir textum
sem þurfti að syngja eða flytja við
sérstök tækifæri. Ég minnist árshá-
tíðar þegar við unnum saman á barna-
geðdeild Landspítalans þar sem Auð-
ur átti stóran þátt í skemmtidagskrá
sem tókst afar vel og kímnigáfa henn-
ar gladdi samstarfsfólkið. Einnig var
Auður listakokkur og var það ætíð til-
hlökkunarefni ef hún bauð heim í mat
og það var gott að fá hana til aðstoðar
þegar halda átti veislur. Nokkur
haust gerðum við saman slátur eins
og „góðar húsmæður“ gera og eitt er
víst að ég fékk ekki að koma nærri
hrærunni þegar hún var að krydda,
en gott var slátrið og vel borðað.
Auður var alla tíð ljóðelsk kona.
Ósjaldan fór hún með ljóð og vildi
kryfja merkingu þeirra og þar var
ekki komið að tómum kofunum.
Röndóttir ullarsokkar og skrautleg
teppi sem Auður prjónaði og heklaði
og voru sérgrein hennar hafa glatt
augu okkar og haldið hita á bæði
börnum og fullorðnum.
Eins og vera ber á löngum tíma
hafa mörg málefnin verið rædd og þá
allt milli himins og jarðar. Oft vorum
við Auður ósammála en það var bara
gaman að vera ósammála Auði því þá
tókumst við á og hafði það ekki nokk-
ur áhrif á vináttu okkar.
Auður var ung þegar hún fékk
krabbamein og óneitanlega hafði
sjúkdómurinn mikil áhrif á líf hennar,
en ég man eftir óbilandi kjarki hennar
og bjartsýni. Hún hafði betur í bar-
áttu sinni við sjúkdóminn en hann fór
illa með hana og var Auður veikbyggð
síðustu árin, þannig að hún var mest
heima við. Fyrir vikið varð ég bara að
vera duglegri að heimsækja hana og
færa henni fréttir af vinum og kunn-
ingjum. Auður varð svo lánsöm að
Haraldur sonur hennar og tengda-
dóttir eignuðust dásamlegan son fyrir
tæpu ári. Mikið gátum við spjallað um
barnabörnin okkar og sagt „grobb-
sögur“, það er eins gott að enginn
heyrði þetta ömmuhjal.
Innilegar samúðarkveðjur til Har-
aldar Darra og fjölskyldu hans, til
móður, systkina og allra ættingja
Auðar.
Unnur Jónsdóttir.
Hugur minn hvarflar til mennta-
skólaáranna. Það var haustið 1965
sem við Auja kynntumst þegar við
hófum nám í fjórða bekk í Mennta-
skólanum í Reykjavík. Ég hafði ekki
séð hana fyrr, þessa dökkhærðu,
grönnu stúlku með brún, stór augu og
alvörugefinn svip.
Hún settist við hlið mér fyrsta
skóladaginn úti í Þrúðvangi. Ég var
reyndar að bíða eftir Viktoríu vinkonu
minni, sem kölluð var Itta, en ég hafði
ætlað henni sæti við hlið mér. Þegar
ég lét í ljós athugasemdir sagði Auja
einfaldlega að hún þyrfti að sitja í
þessari fjarlægð frá skólatöflunni.
Henni varð ekki haggað. Þegar að frí-
mínútum kom gerðum við Itta okkur
klárar í göngutúr og Auja spurði ein-
faldlega hvort hún mætti ekki slást í
för. Okkur Ittu fannst Auja með af-
brigðum afdráttarlaus og huguð. Við
þrjár urðum óaðskiljanlegar upp frá
því og sátum gjarnan hver við hliðina
á annarri í kennslustofunni.
Árin okkar í menntaskóla voru
yndisleg. Það sem við gátum hlegið og
æ síðan þegar við hittumst. Við vorum
afar heppnar að lenda í blönduðum
máladeildarbekk með góðum bekkj-
arfélögum sem enn halda hópinn.
Auja var trygg og heilsteypt vin-
kona. Hún var ekki allra. Hún var
mjög sjálfstæð og hreinskilin og hafði
til að bera einkar sterkan persónu-
leika. Hún var mjög greinandi í hugs-
un, jákvæð og úrræðagóð og bjó yfir
einhvers konar dulúð. Hún var óspart
hvött til að spá fyrir okkur, sem hún
gerði en fór vel með. Auja var alltaf
með eitthvað á prjónunum í orðsins
fyllstu merkingu. Ég hins vegar hafði
lítinn áhuga á prjónaskap og hekli þar
til ég sá afurðir elju hennar. Hún
sneri áhugaleysi mínu umsvifalaust
yfir í áhuga á handavinnu. Á ung-
dómsárunum var ég mjög feimin og
dul. Hún var fljót að átta sig á því og
studdi mig í því að vera opnari og að
geta horfst í augu við mínar sterku og
veiku hliðar. Síðar fór hún til náms í
félagsráðgjöf til Noregs.
Ekki get ég látið hjá líða að minn-
ast þess hve vel Herdís, mamma
Auju, hlúði að okkur þegar við vorum
heima hjá henni að lesa fyrir próf. Allt
það besta borið á borð nýbakað og
ilmandi.
Við kvöddum Ittu, vinkonu okkar,
fyrir nærri 15 árum. Nú er komið að
því að kveðja þig, mín kæra vinkona,
eftir langa og hetjulega baráttu við
veikindi.
Í huga mínum geymi ég fallega
minningu um þig sem komst mörgu
góðu í verk og hafðir áhrif á sam-
ferðafólk þitt. Við Axel sendum ást-
vinum Auju okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning Auðar
Haraldsdóttur.
Stefanía V. Sigurjónsdóttir.
AUÐUR HARALDSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Auði
Haraldsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Erfisdrykkjur
Fóstbræðraheimilið
Langholtsvegi
Ný uppgerður veitingasalur
Upplýsingar í síma 861 4243 og 568 5206
7 '
'&
0 =)(' *+$5
%!>>
4 ;&
( # % & ( ! 9
&
) !
8" 4 5 #5
&
-" # &
'
& '
&
) $
. 2
# &
%&6+
2 ! % 2;
% $ !5
"
5 % % =J *
7 6+ % 15%
=K$ 42 17 +
! ! &
7
'
&
' &
=
L =
)
*+ 4<&
5" /&
*5 5" *+ 2 !
2+$+4
! ! &