Morgunblaðið - 26.01.2002, Qupperneq 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 41
eva
Útsalan
Enn meiri
verðlækkun
um helgina
...Ekki missa af þessari útsölu
...Vandaður fatnaður
...Mikill afsláttur
Nicole Farhi
Virmani
DKNY
Gerard Darel
Joseph
BZR
Laugavegi 91,
2. hæð, s. 562 0625
GERARD DAREL
...verið velkomin
Opið til kl. 16 í dag, laugardag
FRÍÐA Rún Þórðardóttir frjáls-
íþróttakona og Eiríkur Önund-
arson körfuknattleiksmaður voru
útnefnd íþróttamaður ÍR 2001 og
fór útnefningin fram við athöfn í
ÍR-heimilinu 21. janúar sl.
Fríða Rún Þórðardóttir varð
sigursælust íslenskra hlaupa-
kvenna í millivegalengdahlaupum
á árinu. Hún vann góða sigra á Ís-
landsmótum, í bikarkeppni og
stigamótum FRÍ, í víðavangshlaupi
Íslands og 10 km hlaupi Reykja-
víkurmaraþonsins. Auk þess náði
hún góðum árangri í keppni er-
lendis og ber þar hæst sigur í
3.000 m hlaupi á danska meist-
aramótinu innanhúss. Hún á besta
árangur ársins í þremur greinum
utanhúss: 1.500 m, 3.000 og 5.000
m hlaupi og í þremur greinum inn-
ahúss: 800 m, 1.500 m og 3.000 m.
Fríða Rún hefur verið driffjöður í
keppnisliði ÍR og hvatt félaga sína
til dáða með baráttuvilja, vinnu-
semi og góðu fordæmi.
Eiríkur Önundarson hlýtur til-
nefningu sína sem leiðtogi meist-
araflokksliðs ÍR á árinu. Eiríkur
leiddi lið ÍR til fyrsta bikarmeist-
aratitils í sögu félagsins og var
ennfremur valinn í úrvalslið Ís-
landsmótsins í körfuknattleik
2000-2001. Það sem liðið er af
þessu keppnistimabili hefur hann
staðið sig vel sem lykilmaður liðs-
ins og er tvímælalaust í hópi
þeirra bestu í íslenskum körfu-
knattleik. Prúðmennska Eiríkis í
leik er öðrum til fyrirmyndar og
er hann mög góður fulltrúi félags-
ins innan vallar sem utan.
Tilnefning deilda til íþrótta-
manns ÍR 2001: dansdeildin: Karen
Björk Björgvinsdóttir og Adam
Reeve, frjálsíþróttadeildin: Fríða
Rún Þórðardóttir og Einar Karl
Hjartarson, handknattleiksdeildin:
Einar Friðrik Hólmgeirsson, keilu-
deildin: Guðný Gunnarsdóttir og
Ásgeir Þór Þórðarson, körfuknatt-
leiksdeildin: Gunnur Ósk Bjarna-
dóttir og Eiríkur Önundarson,
skíðadeildin: Agnes Þorsteins-
dóttir og Ragnar Valberg Sig-
urjónsson, taekwondo-deildin:
Þóra Kjarval og Gústaf Halldór
Gústafsson.
Fríða Rún Þórðardóttir frjáls-
íþróttakona og Eiríkur Önund-
arson körfuknattleiksmaður.
Íþróttamaður ÍR 2001
ALÞJÓÐLEGRI bænaviku lýkur
með sameiginlegri samkomu krist-
inna trúfélaga í Fíladelfíu, Hátúni 2, í
kvöld, laugardaginn 26. janúar kl. 20.
Alþjóðlegar bænavikur hafa verið
haldnar frá 1968. Í ár er bænavikan
haldin undir yfirskrift Sálms 36:10:
„Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu
ljósi sjáum vér ljós.“
Fram koma: 15 manna unglinga-
kór frá kaþólsku kirkjunni, hljóm-
sveitin Godspeed frá hvítasunnu-
kirkjunni, Mirjam Óskarsdóttir frá
Hjálpræðishernum, biskup Íslands,
Karl Sigurbjörnsson, Högni Valsson
frá Fríkirkjunni Veginum, Lofgjörð-
arhópur Fíladelfíu leiðir almennan
söng, stjórnandi Vörður Leví
Traustason forstöðumaður. Allir vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
Sameiginleg
samkoma krist-
inna trúfélaga
FLUGDISKUR Landmælinga, þar
sem hægt er að skoða Ísland úr lofti í
þrívídd í tölvu, hefur nú selst í yfir
5.000 eintökum.
Flugdiskurinn kom út í september
síðastliðnum og var fyrst um sinn að-
eins fáanlegur á vefsíðu Landmæl-
inga. Hann kom í verslanir fyrir jól.
Um þriðjungur af heildarsölunni fór
í gegnum vefsíðu Landmælinga,
www.lmi.is.
Á flugdiski Landmælinga er þrí-
víddarlíkan af Íslandi í raunlitum og
er hægt að fljúga yfir landið í tölv-
unni og skoða frá öllum sjónarhorn-
um. Diskurinn fæst bæði á íslensku
og ensku, segir í fréttatilkynningu
frá Landmælingum.
Yfir 5.000
eintaka sala
á flugdiski
BRAUTSKRÁNING fer fram frá
Tækniskóla Íslands, í dag, laugar-
daginn 26. janúar, kl. 13 í Grafar-
vogskirkju. Aldrei hafa jafnmargir
nemendur útskrifast frá skólanum
sem nú, alls 165 frá öllum 6 deild-
um skólans, þ.e. frumgreinadeild,
byggingadeild, heilbrigðisdeild,
rafmagnsdeild, rekstrardeild og
véladeild. Nemendur eru að ljúka
námi af 13 mismunandi náms-
brautum.
Rekstrardeildin, sem er sú fjöl-
mennasta við skólann, útskrifar 60
iðnrekstrarfræðinga, 15 nemendur
með B.Sc.-gráðu í vörustjórnun og
31 með B.Sc.-gráðu í alþjóðamark-
aðsfræði en þessar viðskiptagrein-
ar eru eingöngu kenndar við
Tækniskóla Íslands. Þá útskrifast í
dag nemendur með raungreina-
deildarpróf sem er ígildi stúdents-
prófs af raungreinabrautum fram-
haldsskólans. Bygginga-, vél- og
orkutæknifræðingar fá afhent
skírteini hér í dag auk iðnaðar-
tæknifræðinga, þ.m.t. 100. iðnaðar-
tæknifræðingsins, sem útskrifast
frá TÍ. Þá fá 12 nýir meinatæknar
brautskráningu auk 14 nemenda
sem eru að ljúka námi í bygginga-,
vél- og rafiðnfræði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Birni Bjarnasyni menntamálaráð-
herra mun stefnt að því að leggja
fyrir Alþingi frumvarp til laga um
nýjan Tækniháskóla Íslands nú á
vorþingi. Ef allt gengur að óskum
mun því næsta brautskráning fara
fram frá Tækniháskóla Íslands,
segir í frétt frá Tækniskóla Ís-
lands.
Brautskráning frá
Tækniskóla Íslands
VEGNA bilunar í söguvagninum er
fyrirhugaðri sýningu á Lækjartorgi í
dag, laugardag, frestað til laugar-
dagsins 3. febrúar kl. 13-17 og verð-
ur það jafnframt lokadagur sýning-
arinnar sem farið hefur um
Reykjavík og nágrenni síðastliðna
tvo mánuði.
Þá mun strætókórinn syngja og
Elísabet Jökulsdóttir lesa úr verkum
sínum.
Þá eru allir velkomnir á sögusýn-
inguna „Strætó í 70 ár“ og er að-
gangur ókeypis, segir í fréttatil-
kynningu.
Sögusýning
í strætó!
AÐALFUNDUR Kjördæmafélags
Samfylkingarinnar í Reykjavík verð-
ur haldinn fimmtudaginn 31. janúar
kl. 20 á Kornhlöðuloftinu í Banka-
stræti.
Dagskrá samkvæmt lögum félags-
ins, segir í fréttatilkynningu.
Samfylkingin
Aðalfundur
kjördæma-
félags
FRAMTÍÐIN í innkaupakörfunni er
heiti ráðstefnu sem Landvernd, Nor-
ræna umhverfismerkið á Íslandi og
Hollustuvernd ríkisins boða til laug-
ardaginn 2. febrúar nk. kl. 12–16.30 í
Gerðubergi í Reykjavík. Ráðstefnan
verður vettvangur umræðu um um-
hverfismál heimilisins.
Hvaðan koma vörurnar sem eru í
innkaupakörfunni þinni? Veistu
hvaða valkostir eru fyrir hendi? Get-
ur þú greint eðli og áhrif vöru á
grundvelli þeirra umhverfismerkja
sem eru í notkun? Um þetta og fjöl-
margt annað verður fjallað á ráð-
stefnunni. Sérstök dagskrá verður
fyrir börn í umsjón Náttúruleikskól-
ans Krakkakots. Nánari upplýsingar
um ráðstefnuna er að finna á
www.landvernd.is.
Þátttökugjald er 2.000 kr. fyrir
fyrsta fjölskyldumeðlim, en 1.000 kr.
fyrir þann næsta, hádegisverður er
innifalinn. Börn undir 12 ára aldri fá
ókeypis aðgang. Vinsamlegast skrá-
ið þátttöku með bréfi til landvernd-
@landvernd.is eða í síma, eigi síðar
en miðvikudag 30. janúar, segir í
fréttatilkynningu.
Innkaup og
umhverfi;
ráðstefna fyrir
fjölskyldunaFERÐAFÉLAG Íslands efnir til
göngu milli Skógarkots og Vatnskots
norðan við Þingvallavatn sunnudag-
inn 27. janúar.
Á þessa staði er ekki bílfært en
ágætis göngufæri. Áætlað er að
gangan taki 4–6 klst. Fararstjóri er
Gunnar Sæmundsson. Brottför frá
BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörk-
inni 6.
Gengið milli
Skógarkots
og Vatnskots
NÁMSKEIÐIÐ Öflugt sjálfs-
traust verður haldið í Foreldra-
húsinu í Vonarstræti 4b
fimmtud. 31. janúar kl. 18–21 og
laugardaginn 2. febrúar kl. 11–
14. Námskeiðið er fyrir foreldra
sem vilja styrkja sig í að verða
sterkar fyrirmyndir fyrir börnin
sín.
Kenndar eru aðferðir til að
efla sjálfstraust, hvað einkennir
mikið/lítið sjálfstraust. Fjallað
verður um áhrif hugarfars, við-
horfa og hugsunar á hegðun og
líðan. Einnig verður fjallað um
leiðir til að byggja sig upp og
taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu.
Höfundar námskeiðsins eru
Jóhann Ingi Gunnarsson og Sæ-
mundur Hafsteinsson sálfræð-
ingar. Þeir hafa þjálfað starfs-
fólk Foreldrahússins til að hafa
umsjón með námskeiðunum.
Námskeiðsform gefur foreldr-
um tækifæri á að halda áfram
þjálfuninni þegar heim er kom-
ið. Allar nánari upplýsingar eru
í Foreldrahúsinu, segir í frétta-
tilkynningu.
Öflugt
sjálfstraust
FRÆÐSLUERINDI á vegum Hins
íslenska náttúrufræðifélags (HÍN)
verður haldið mánudag, 28. janúar,
kl. 20.30 í stofu 101 í Lögbergi, húsi
Háskóla Íslands.
Fuglafræðingarnir Kristinn H.
Skarphéðinsson, dr. Guðmundur A.
Guðmundsson og dr. Ólafur K. Níel-
sen, sem allir starfa á Náttúrufræði-
stofnun Íslands, fjalla um álitamál,
sem er samspil skógræktar og fugla-
fánu á landinu. Meginefni fyrirlestr-
arins fjallar um hugsanleg áhrif stór-
felldrar nytjaskógræktar á
fuglafánu landsins. Fjallað verður
um útbreiðslu og stofnstærð þessara
fugla í landinu.
Fræðsluerindi HÍN eru ætluð öll-
um áhugasömum og er aðgangur
ókeypis, segir í fréttatilkynningu.
Erindi um
fugla og
skógrækt
Nafn misritaðist
Rangt var farið með nafn Hróbjart-
ar Jónatanssonar hrl. í frétt í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á því.
Röng tala
Ranghermt var í frétt í blaðinu á
fimmtudag að leikskólagjöld í Stykk-
ishólmi væru nú kr. 27.400. Hið rétta
er að þau eru kr. 25.440. Hins vegar
munu gjöldin hækka í krónur 27.400
1. febrúar nk. Þetta leiðréttist hér
með.
Ófelía í Íslensku óperunni
Rangt var farið með í sýningarstað
barnaóperunnar Skuggaleikhús Ófe-
líu í blaðinu í gær. Sýningin verður í
dag, kl. 15, í Íslensku óperunni. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT