Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isNorska liðið Lyn vill fá Heiðar Helguson frá Watford / B3 Íslendingar mæta heimsmeisturum Frakka í dag á EM í Svíþjóð / B1 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM SANNIR Íslendingar borða súrmeti og baða sig í heitum laugum. Þar sem þorrinn er nýgenginn í garð er ekki úr vegi að slá þessu tvennu saman. Það er einmitt það sem hraustir menn af báðum kynjum gerðu á Suðureyri við Súganda- fjörð á dögunum í tilefni af 10 ára afmæli laugarinnar þar. Menn létu samkvæmisklæðnaðinn ekki vanta fremur en vera ber á betri þorra- blótum heldur skrýddust fjörlegum höfuðfötum og báru hálstau þrátt fyrir vætuna. Er ekki nokkur vafi á að súrmetið og harðfiskurinn hafi bragðast einstaklega vel í funheitri lauginni og frostköldum andvar- anum. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Buslað og blótað í frosti og funa degi en síðdegis varð að fljúga til Húsavíkur í stað Akureyrar þar sem flugvöllurinn var lokaður. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flug- félags Íslands, segir félagið hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna yfirvinnu- banns flugumferðarstjóra og telur hann það nálgast 10 milljónir króna. Þar sem fáir flugumferðarstjórar voru á vakt í flugstjórnarmiðstöðinni var gefin út viðvörun um að ekki yrði hægt að anna fullum afköstum á út- hafssvæðinu. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, segir að truflanir þar hafi verið í lág- marki. Ekki hafi verið hægt að verða við óskum um hæðarbreytingar. LITLAR truflanir voru í gær á innan- lands- og millilandafluginu en veik- indi flugumferðarstjóra á sunnudag trufluðu nokkuð flugumferð þar sem ekki var unnt að kalla út menn á auka- vaktir vegna yfirvinnubanns flugum- ferðarstjóra. Ríkissáttasemjari hefur boðað fulltrúa Félags ísl. flugumferð- arstjóra og samninganefndar ríkisins til fundar næstkomandi föstudag en þá verður hálfur mánuður liðinn frá síðasta fundi. Alls tilkynntu 15 flugumferðar- stjórar veikindi á sunnudag af 24 sem vera áttu á vakt og vantaði því menn á vaktir í flugturnana á Akureyrarflug- velli, Keflavíkurflugvelli og Reykja- víkurflugvelli og í flugstjórnarmið- stöðina í Reykjavík. Þetta olli töfum á brottför nokkurra véla Flugleiða og síðdegis voru felldar niður ferðir til Minneapolis, Boston og Kaupmanna- hafnar. Þá urðu nokkrar truflanir á innanlandsflugi þar sem ekki var unnt að fljúga blindflug vegna mannfæðar í flugstjórn. Veður var þó skaplegt þannig að flogið var til allra áfanga- staða Flugfélags Íslands fram eftir Heimir Már kvaðst ekki draga í efa að flugumferðarstjórar hefðu veikst en þegar veikindin hefðu verið orðin þetta víðtæk hefði trúnaðarlæknir stofnunarinnar verið beðinn að hafa samband við þá veiku. Samkvæmt kjarasamningi við flugumferðarstjóra ákveður yfirmaður hvort hann krefur starfsmenn sem tilkynna veikindi um læknisvottorð og ákveður yfirmaður líka hvort slíkt vottorð skuli vera frá trúnaðarlækni stofnunarinnar, segir m.a. í frétt frá Flugmálastjórn í gær. Þar segir einnig: „Flugmálastjórn telur sig þurfa að gera allt sem í henn- ar valdi stendur til að tryggja þá þjónustu sem hún er skuldbundin til að veita bæði innanlands og á al- þjóðavettvangi. Eftir að trúnaðar- læknir hafði haft samband við nokkra þeirra sem tilkynnt höfðu veikindi í gær komst hann að þeirri niðurstöðu að fjórir einstaklingar hefðu jafnað sig á veikindum sínum. Þessum upplýsingum kom hann umbeðinn áleiðis til yfirflugumferðarstjóra án þess að tilgreina á nokkurn hátt hver veikindi fólksins hefðu verið né hvað honum og þessum einstaklingum fór á milli. Þegar þessar upplýsingar lágu fyrir hafði yfirflugumferðarstjóri samband við þrjá af þeim fjórum sem læknirinn taldi hafa jafnað sig. Tveir af þeim komu svo til starfa og kláruðu þann tíma sem eftir var af vöktum þeirra. Það dugði til þess að hægt var að aflétta takmörkunum í alþjóðaflug- inu á íslenska flugstjórnarsvæðinu.“ Telur trúnað hafa brostið Loftur Jóhannsson, formaður Fé- lags ísl. flugumferðarstjóra, tjáði Morgunblaðinu í gær að það væri ein- skær tilviljun að svo margir flug- umferðarstjórar hefðu veikst sl. sunnudag. Slíkt hefði komið fyrir áður og ekki valdið vandræðum. Það kæmi niður á afköstum nú þar sem ekki væri unnt að kalla menn á auka- vaktir vegna yfirvinnubannsins. Heldur færri væru líka á vakt um helgar og þá væri ekki heldur unnt að flytja til menn sem sinntu öðrum störfum og væru unnin á dagvinnu- tíma. Loftur sagði það skoðun sína að brotinn hefði verið trúnaður á flug- umferðarstjórunum með því að trún- aðarlæknir hefði veitt Flugmála- stjórn upplýsingar um heilsufar þeirra. Truflanir á flugi á sunnudag vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra Fundur boðaður næsta föstudag VERÐ á grænmeti og ávöxtum lækkaði um 7–8% í verslunum Nóatúns í gær. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að með þess- ari verðlækkun sé Nóatún að sýna fulla samstöðu með þeim sem hafa lækkað verð til að draga úr nei- kvæðum áhrifum verðbólgu á þró- un efnahagsmála. „Forráðamenn Nóatúns gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem hvílir á versluninni í þessum efn- um. Jafnframt er þess vænst að fleiri leggi hönd á plóginn og stuðli þannig að jafnvægi í þjóðarbú- skapnum,“ segir í fréttatilkynning- unni. Með þessu sé Nóatún að lækka matarreikning heimilanna og stuðla að neyslu á hollustuvöru. Þá kemur fram að undanfarna mánuði hefur Nóatún haft hjá sér erlendan ráðgjafa í framstillingu, innkaupum og meðhöndlun græn- metis og ávaxta. Hefur sú vinna skilað sér í formi nýrra vinnu- bragða og minni rýrnunar sem alla- jafna er mikil í þessum vöruflokk- um. Vegna þessa og fyrirsjáanlegra nýrra leiða í innkaupum treystir fyrirtækið sér í þessa lækkun. Nóatún lækkar verð á grænmeti og ávöxtum HREINN Loftsson hæstaréttar- lögmaður hefur sagt af sér for- mennsku í framkvæmdanefnd um einkavæðingu, að því er fram kemur í yfirlýsingu sem dagsett er í Reykjavík í gær. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Ég undirritaður hef í dag sagt af mér formennsku í framkvæmdanefnd um einkavæðingu. Á fundi sem ég átti með Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra sl. laugardag greindi ég honum frá þessari ákvörðun minni og forsendum hennar. Auk formennsku í nefndinni hef ég jafnframt starfað undanfarin ár sem stjórnarfor- maður Baugs hf. Í utandagskrár- umræðum á Al- þingi í sl. viku deildi forsætis- ráðherra hart á fyrirtækið og stjórnendur þess og hafa þau ummæli orðið til þess að ég tel mér í raun ókleift að sinna áfram formennsku í nefndinni. Því hef ég tekið framangreinda ákvörðun.“ Hættir sem for- maður í einka- væðingarnefnd Hreinn Loftsson hrl. FJÓRIR menn voru stungnir með hnífi í samkvæmi í húsi við Skemmuveg í Kópavogi á sunnu- dagsmorgun. Hnífslögin komu ým- ist í handleggi eða fætur og voru mennirnir fluttir á slysadeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss. Meiðsl þeirra reyndust ekki alvarleg og fengu þeir að fara heim að lokinni læknisskoðun. Einn maður var handtekinn, grunaður um að hafa valdið áverk- unum. Maðurinn, sem var undir áhrifum áfengis, var látinn sofa úr sér vímuna og honum var svo sleppt um kvöldið eftir yfirheyrslur. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi var lögreglan kvödd að húsi við Skemmuveg klukkan 7.04 um morguninn. Svo virðist sem fólk hafi verið að skemmta sér eftir þorrablót. Kom þar óboðinn gestur og þeg- ar vísa átti honum út endaði það með átökum á milli hans og gesta í samkvæminu. Maðurinn dró upp lítinn en beittan hníf og eins og fyrr segir urðu fjórir sárir. Maðurinn var að lokum yfirbugaður og flutti lögregla hann á stöðina. Dró upp lítinn en beittan hníf Fjórir hlutu stungusár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.