Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ RíkharðurSveinn Kristjáns- son fæddist á Vestur- götu 35a í Reykjavík 15. febrúar 1931. Hann lést á heimili sínu, Vesturgötu 35a, 16. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Kristján Guð- mundsson frá Vill- ingadal, kaupmaður í Krónunni, f. 28.5. 1892, d. 30.8. 1977, og Sigrún Sveinsdóttir frá Skagaströnd, húsmóðir, f. 24.8. 1905, d. 15.6. 1971. Bræður Rík- harðs eru Guðmundur H., fyrrver- andi kaupmaður í Krónunni í Mávahlíð, f. 14.10. 1926, d. 14.8. 1974, Sigurður Jón, fyrrv. báts- maður, f. 18.8. 1928, og Björn B., fyrrv. kaupmaður, f. 25.3. 1933. Ríkharður kvæntist Erlu Emils- dóttur, þau skildu. Börn þeirra eru: Hulda, f. 27.9. 1955, hjúkrun- arfræðingur. Hulda giftist Hall- dóri Pétri Þorsteinssyni, þau skildu. Sonur þeirra er Örvar, f. 6.8. 1978; Gunnar, f. 24.12. 1956, bóndi á Þingeyrum. Gunnar er kvæntur Helgu Thoroddsen og eiga þau synina Andra, f. 14.1. 1983, og Helga, f. 23.6. 1985; Hörður, f. 29.12. 1962, lög- reglumaður á Blönduósi. Hörður er kvæntur Sigríði Aadnegard og eiga þau dæturnar Elvu Björk, f. 27.8. 1984, Erlu Hrönn, f. 16.4. 1992, og Elínu Huldu, f. 22.8. 1993. Ríkharður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og hóf nám við læknadeild Háskóla Íslands en hvarf frá námi. Eftir ýmis störf tók hann við versl- unarrekstri af föður sínum árið 1956 í Krónunni Vesturgötu 35a og rak hann þá verslun til ársins 1983. Frá 1984 til 1998 starfaði hann á öldrunardeild Landspítal- ans í Hátúni og þar af síðustu árin á Landakoti. Útför Ríkharðs verð- ur gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mig langar í örfáum orðum að minnast fyrrverandi tengdaföður míns, Ríkharðs Sveins Kristjáns- sonar, eða Denna eins og hann var oftast kallaður. Denni fæddist á heimili foreldra sinna á Vesturgötu 35a í Reykjavík og lést á sama stað tæplega 71 árs að aldri. Árið 1955 kvæntist hann Erlu Emilsdóttur og eignuðust þau þrjú börn. Þau bjuggu lengst af á Tunguvegi 9, í húsi sem Denni byggði að mestu leyti sjálfur. Erla og Denni slitu samvistir árið 1983. Á fyrrum æskuheimili sínu, á Vesturgötu 35a, rak Denni um ára- bil verslunina Krónuna. Hann ætl- aði sér þó aldrei að verða kaup- maður, enda hafði hann hafið nám í læknisfræði, en tók eigi að síður við verslunarrekstrinum af föður sín- um og ílengdist þar í heil 27 ár. Hann var kaupmaðurinn á horninu, sem átti vörur á gamla verðinu, skrifaði hjá viðskiptavinum sínum, tók niður pantanir í síma og keyrði heim að dyrum, já, og jafnvel raðaði upp í hillurnar hjá viðskiptavinun- um. Það breytti engu þótt fólk flytti úr Vesturbænum upp í Breiðholt, það fékk áfram sent heim. Árið 1975 kynntist ég því að vera innan- búðar í Krónunni þegar Denni átti ekki heimangengt. Þótt ég væri reynslulaus hafðist þetta með þol- inmæði og hjálp viðskiptavinanna, sem vissu nákvæmlega hvar hlut- irnir voru. Þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki einvörðungu verslun heldur einnig félagsmiðstöð fólks- ins í hverfinu þar sem öll heimsins mál voru rædd og leyst. Í umræð- unum var ekki komið að tómum kofunum hjá Denna, hann var skarpgreindur maður og margar snarpar pólitískar umræður fóru fram yfir búðarborðið. Það var líka ósjaldan eftir lokun á föstudögum að hann tók nokkrar skákir á búð- arborðinu við kunningja sína. Ásamt skákíþróttinni var óperu- tónlist Denna mjög hugleikin alla tíð og einnig má geta þess að á ung- lingsárum stundaði hann handbolta. Á tímabili tók hann þátt í hrað- skákmóti TR alla þriðjudaga og náði þar góðum árangri. Hann lá tímunum saman yfir skáktímaritum og fór á skákmót þegar færi gafst. Það má e.t.v. segja að í Denna hafi búið tveir menn, annar var op- inn og hress með spaugsyrði á vörum, einkum í búðinni, og hló dátt og mikið og reytti af sér brandarana, knúsaði hvert einasta barn og dekraði við þau, keypti græjur og bíla og fór í utanlands- ferðir. Hin hliðin á Denna var al- gjör andstæða. Hann virtist loka sig af frá umheiminum og gaf þá ekkert færi á sér, fjölskyldu sinni til mikilla sárinda. Síðustu tíu ár ævi sinnar ein- angraði hann sig æ meir, fór aldrei á samkomur, mannamót eða í heim- sóknir. Hann hafði í kringum sig skákblöðin, sjónvarpið, óperutón- listina og myndir af barnabörnun- um og myndir af litlum frænkum og frændum sem fylgt höfðu jólakort- um í gegnum árin. Maður gæti spurt sig hvort Denni hafi viljað hafa lífshlaup sitt eins og það var. Ég veit að svo var ekki. Hann barðist alla ævi við þunglyndi og leitaði huggunar hjá Bakkusi eins og oft virðist vera um svo marga menn sem hafa mikið til brunns að bera. Ég vil þakka Denna góða við- kynningu, ekki síst það að kenna mér að njóta óperutónlistar. Bless- uð sé minning hans. Sendi aðstandendum öllum inni- legar samúðarkveðjur. Halldór Pétur Þorsteinsson. Kaupmaðurinn á horninu er dá- inn. Í áratugi rak Ríkharður Krist- jánsson verslunina Krónuna við Vesturgötu. Þessi verslun var ekki aðeins nýlenduvöruverslun heldur sannkölluð menningarmiðstöð. Þarna versluðu allir sem bjuggu í nágrenninu, í þessu gamla og rót- gróna hverfi. Allir þekktust og tóku sameiginlega ábyrgð á barnaskar- anum, sem ólst upp í hverfinu. Og í Krónunni hittist fólk og skiptist á tíðindum, jafnt almæltum og þeim sem færri vissu. Í Krónunni fréttu menn gjarnan stórtíðindi í stjórn- málaheiminum áður en þau gerð- ust. Innan búðarborðsins stóð Denni, örvaði umræður og reytti af sér brandarana þegar sá var gállinn á honum. Þá var oft hlegið hátt svo undir tók í hverfinu. Margir þeirra sem áttu vinnustað í nágrenninu komu reglulega í Krónuna sér til andlegrar hvíldar og upplyftingar, drukku eina kók eða svo og tóku púlsinn á þjóðfélag- inu. Börnin voru send í búðina með miða í buddu, Denni leysti greið- lega úr málum og valdi vöruna af kostgæfni, ávexti jafnt sem bökun- arvörur. Úttektina var hægt að skrifa, ef illa áraði hjá kaupand- anum. Margir kúnnarnir gátu ekki hugsað sér að versla við annan, þótt þeir flyttu austur fyrir Læk, vestur á Nes, eða jafnvel upp í Breiðholt. Þeir hringdu í Denna sem sendi þeim vörurnar seint á föstudögum. Við bræðurnir bjuggum við Stýrimannastíginn, í næsta húsi á bak við Krónuna. Allir gerðumst við lausamenn hjá Denna og keyrðum út vörur, fyrst á forláta reiðhjóli með körfu á stýrinu, en seinna á eðal-jeppum kaupmannsins og þótti ekki slæmt. Aukaskildingurinn kom sér vel á námsárunum. Denni var afar slyngur skákmað- ur og í Krónunni var tefld mörg skákin að lokunum vinnudegi. Oft var þá glatt á hjalla. Þarna tefldu stundum sumir af bestu skákmönn- um þjóðarinnar og þá var betra að hafa sig hægan. Ef á þurfti að halda sá einhver okkar um aksturinn heim. Verslunarhættir tóku örum breytingum um það bil sem sá síð- asti okkar í röðinni keyrði vörur um allan bæinn hvert föstudagskvöld. Kaupmaðurinn á horninu vék smám saman fyrir verslunarmiðstöðvum og þar kom að Denni brá búi. En hann var rótfastur á Vesturgötunni og þar bjó hann öll sín síðustu ár. Denni reyndist fjölskyldu okkar alla tíð mjög vel og hann var mikill og góður vinur okkar bræðranna allra. Hann var ráðagóður hagleiks- maður og gott að leita til hans um margt. Denni var stórlyndur dreng- skaparmaður og mikill húmoristi. Seinna fluttum við úr hverfinu og sumir dvöldu langdvölum erlendis. Tengslin við Denna dofnuðu smám saman eins og gengur, en aldrei gleymdist þó þessi góði drengur sem var okkur haukur í horni á yngri árunum. Við sendum fjölskyldu Ríkharðs Kristjánssonar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurður, Andrés, Einar og Ólafur Arnalds. Fyrir u.þ.b. 15 árum kom aldeilis skemmtilegur maður til starfa á öldrunarlækningadeild Landspítal- ans í Hátúni 10b. Ríkharður Krist- jánsson, sem lengi hafði verið vin- sæll matvörukaupmaður á Vest- urgötunni, hafði ákveðið að söðla um, hætta verslunarrekstri og vinna sem vaktmaður á sjúkrahúsi. Innti hann af hendi margvísleg störf á deildunum en vissan sama- stað átti hann á Dagspítalanum á 9. hæð, þar sem hann gekk jafnvel í feiri verk en til var ætlast. Hann var ævinlega boðinn og búinn til að hjálpa stelpunum, átti það til að leggja á borð og ganga um beina eða liðsinna sjúklingunum. Var hann einstaklega natinn og nær- gætinn við þá. Fyrst og fremst var Ríkharður þó mikill gleðigjafi, húmoristi af Guðs náð, kunni ógrynni af sögum, tilsvör hans voru hnyttin og hlát- urinn óborganlegur. Sumarið 1997 fluttist öldrunar- lækningadeildin vestur á Landakot. Ríkharður hafði verið heilsutæpur í nokkur ár og lét af störfum árið 1998. Áfram hélt hann þó sambandi við okkur, kom öðru hvoru í heim- sókn, alltaf jafnnotalegur. Nú er hann allur, hláturinn þagn- aður. Við söknum góðs vinar og fé- laga. Börnum hans og fjölskyldum þeirra sendum við samúðarkveðjur. Starfsfólk Dagspítala, Landakoti. RÍKHARÐUR SVEINN KRISTJÁNSSON ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmti- ganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12 í kirkj- unni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Létt- ur hádegisverður að stundinni lokinni. Samvera foreldra unga barna kl. 14–16 í neðri safnaðarsal. 12 spora starf kl. 19 í kirkjunni. Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sigrúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin og alltaf hægt að bætast í hópinn. Unglingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga í um- sjón Gunnfríðar og Jóhönnu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05 alla virka daga nema mánudaga. TTT-fundur kl. 16 fyrir krakka í 5.–7. bekk. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Yfirskrift námskeiðsins er Líf og dauði, sorg og gleði. Í kvöld fræðir sr. Bjarni Karlsson um sorg og sorgarviðbrögð. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Gengið inn um merktar dyr á austurgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörð- arstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng og sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá bænahóps kirkjunnar und- ir stjórn Margrétar Scheving og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í Texta- varpi). Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir félagar velkomnir. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Starf fyrir 7–9 ára kl. 16 og fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna- stund í dag þriðjudag kl. 12 í kapellu safnaðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkjunnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til þátttöku. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT- klúbburinn í Ártúnsskóla kl. 1 . Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Léttur málsverð- ur. Helgistund, samvera og kaffi. Æsku- lýðsstarf fyrir 10–12 ára á vegum KFUM&K og Digraneskirkju kl. 16.30– 18.15. Fella- og Hólakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 12. Bænarefnum má koma til djákna í síma 557-3280 og í sama síma er hægt að panta keyrslu til og frá kirkju. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir stundina og húsið opið áfram til kl. 15. Starf fyrir 11–12 ára drengi kl. 17. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og allt- af eitthvað gott með kaffinu. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju, eldri deild, kl. 20–22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstundir kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjallað. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í Kirkjuhvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK. Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æsku- lýðsstarf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börn- unum heim. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17– 18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðs- félag yngri félaga. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lágafellsskóla frá kl. 13.15–14.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 17.30 TTT-kirkjustarf 10–12 ára krakka. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur opinn kl. 14–16 með aðgengi í kirkjuna og kapellu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Aðgengi frá Kirkjuteig. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarund- irbúningur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8.A&B í Holtaskóla, kl. 15.15–15.55, 8. ST í Myllubakkaskóla, kl. 16–16.40, 8. IM Myllubakkaskóla. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Biblíulestrar þriðju- dag 29. janúar kl. 19.30 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur guðfræðings. Farið verður í Jóhannessarguðspjall. Sóknar- prestur. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30. Í dag spjallar Gyða Þ. Halldórsdóttir tónlistar- kennari um börn og tónlist. Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í Hrakhólum í kvöld kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Fíladelfía. Samvera eldri borgara kl. 15. Allir velkomnir. Glerárkirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 18.10. Leitum innri friðar í faðmi guðs. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Hjálparflokk- ur fyrir konur kl. 20. Safnaðarstarf FORELDRAR athugið. Á morg- un, miðvikudaginn 30. janúar kl. 11, kemur Anna María Snorra- dóttir í heimsókn til okkar í safn- aðarheimilið. Hún mun ræða um svefn barna, en svefn barna get- ur orðið vandamál í sumum til- fellum. Allir foreldrar velkomn- ir. Selfosskirkja. Foreldramorgnar í Selfosskirkju Morgunblaðið/Ómar Selfosskirkja KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.