Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÍFDÍSIL er orkugjafi sem vinna
má úr dýrafitu, matarolíu og lýsi en
Kjötmjöl ehf. og Iðntæknistofnun
Íslands standa nú að tilraunaverk-
efni á því sviði. Unnt er að nota líf-
dísil á sama hátt og hefðbundna dís-
ilolíu hvort sem er óblandaða eða
blandaða. Ekki þarf að breyta dísil-
vélum til að knýja þær með lífdísil-
olíu.
Guðmundur Tryggvi Ólafsson,
umhverfisfræðingur hjá Kjötmjöli,
kynnti verkefnið á ráðstefnunni Bíll
og borg fyrir helgi. Samstarfsaðilar
Kjötmjöls ehf. eru Orkustofnun,
Mjólkurbú Flóamanna, Kaupfélag
Árnesinga, Gámaþjónustan, Olís, S.
Hólm og Hamar hf. Verkefnið er
styrkt af Orkusjóði og Nýsköpunar-
sjóði og nema styrkir alls um 7 millj-
ónum króna en kostnaður við til-
raunaverkefnið segir Guðmundur að
verði milli 9 og 10 milljónir króna.
Hráefni í lífdísil eru dýrafita, mat-
arolía og lýsi en við vinnsluna er et-
anóli blandað saman við. Guðmund-
ur sagði árlega falla til 800 til 1.000
tonn af dýrafitu hjá Kjötmjöli ehf.
og um 200 tonn af matarolíu frá
matvælafyrirtækjum og veitinga-
húsum. Úr þessu hráefni, auk lýsis,
sé unnt að framleiða álíka mikið af
orkugjafanum lífdísil en þá er etan-
óli blandað í hráefnið. Tilraunafram-
leiðsla stendur nú yfir en Guðmund-
ur sagði í samtali við Morgunblaðið
að þessi framleiðsla væri þekkt er-
lendis. Í vor er ráðgert að prófa
framleiðsluna á mjólkurbílum MBF,
sorpbílum Gámaþjónustunnar og
fóðurbílum KÁ. Segir hann best að
gera tilraunirnar á nýlegum bílum
og þeim sem aka nokkuð fastar leið-
ir til að mælingar og samanburður
verði sem nákvæmust. Ekki sagði
Guðmundur Tryggvi ljóst hvar sjálf
framleiðslan færi fram þegar þar að
kæmi, vonandi yrði það á Selfossi
eða nágrenni.
Hreinni útblástur
Kostina við lífdísil sagði Guð-
mundur Tryggvi vera hreinni út-
blástur en frá venjulegri dísilolíu,
framleiðslan væri sjálfbær og minni
skaði væri við óhöpp, t.d. ef eitthvað
færi niður. Galla sagði hann helsta
þá að storknunarhitastig væri
hærra og borið hefði á tæringu ein-
stakra plasttegunda. Lífdísilolían
þykknar nokkuð strax við frostmark
og sagði hann unnt að eyða þessum
áhrifum með því að blanda dísilolíu
saman við. Segir hann ekki skipta
máli hver hlutföllin eru hvað varðar
orkunýtingu. Með þúsund tonna
framleiðslu á ári segir Guðmundur
það geta samsvarað ársnotkun 1.000
til 5.000 dísilfólksbíla eftir því
hversu mikið lífdísilolían yrði blönd-
uð.
Í lok erindis síns sagði Guðmund-
ur Tryggvi það ábyrgðarhluta að
nýta ekki þetta hráefni sem til félli
og að fyrir hendi væri tækjakostur
og fjárhagslegur grundvöllur. Sagði
hann fyrstu athuganir benda til að
lífdísil væri fjárhagslega samkeppn-
ishæfur orkugjafi við jarðefnadísil-
olíu.
Vinnur að tilraun með
orkugjafa úr dýrafitu
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra opnaði formlega í gær nýj-
an kosningavef sem tileinkaður er
komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum. Vefurinn er samstarfs-
verkefni félagsmálaráðuneytisins
og Sambands íslenskra sveitarfé-
laga og er slóðin: www.kosning-
ar2002.is.
Meðal þess sem finna má á
vefnum eru leiðbeiningar til kjós-
enda um t.d. kosningarétt og
kjörgengi. Þá má finna þar leið-
beiningar til frambjóðenda um
frágang framboðslista og upplýs-
ingar um sveitarstjórnarkosning-
arnar 1998, svo fátt eitt sé nefnt.
Stefnt er að því að nýtt efni bæt-
ist á vefinn í viku hverri og verða
framboðslistar m.a. birtir eins
fljótt og unnt er eftir að fram-
boðsfrestur rennur út. Að auki er
stefnt að því að úrslit kosninga í
hverju sveitarfélagi og nöfn kjör-
inna fulltrúa birtist á kosn-
ingavefnum að kosningunum
loknum.
Morgunblaðið/Ásdís
Við opnun nýs kosningavefjar vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Fremstur á myndinni er Páll Pétursson
félagsmálaráðherra. Fyrir aftan hann standa f.v.: Gísli Sverrir Árnason, forseti bæjarstjórnar sveitarfélagsins
Hornafjarðar, Valgarður Hilmarsson, oddviti Engihlíðarhrepps, og Ingunn Guðmundsdóttir, formaður bæj-
arráðs sveitarfélagsins Árborgar. Við hlið ráðherra situr María Sæmundsdóttir, ritari ráðuneytisstjóra.
Kosningavefur vegna sveit-
arstjórnarkosninganna
Í TÆKNIÞÆTTI á fréttavef
bresku sjónvarpsstöðvarinnar
BBC er greint frá notkun andlits-
eftirlitskerfis á Keflavíkurflugvelli
en segja má að kerfið lesi „and-
litsför“ manna.
Íslendingar eru fyrstir þjóða til
þess að taka upp slíkt eftirlit en
það var meðal annars gert vegna
tilslakana á eftirliti með farþegum
sem ferðast innan Schengen-svæð-
isins. Haft er eftir lögreglustjóran-
um á Keflavíkurflugvelli að ef slíkt
kerfi hefði verið notað á flugvöllum
í Bandaríkjunum hefði það aukið
mjög líkurnar á að hægt hefði verið
að koma í veg fyrir hryðjuverkin
11. september.
Kerfið greinir um áttatíu and-
litssérkenni hjá einstaklingum og
eru þau síðan borin saman við
„andlitsför“ grunaðra hryðju-
verkamanna og glæpamanna í sér-
stöku gagnasafni. Kerfinu hefur
ekki enn tekist að „koma auga“ á
nokkurn glæpa- eða hryðjuverka-
menn sem kynni að hafa farið um
Keflavík.
Nokkurra efasemda gætir um
gagnsemi eftirlitskerfisins. Svipað
kerfi var prófað í tvo mánuði í Flór-
ída í Bandaríkjunum og bar það
ekki kennsl á einn einasta misynd-
ismann en hins vegar var allnokk-
uð um það að kerfið bæri ranglega
kennsl á glæpamenn.
Íslendingar fyrstir til þess
að nota andlitseftirlitskerfi
ELLEFU sóttu um embætti
sýslumanns á Blönduósi og 10
um embætti sýslumanns á Ísa-
firði en umsóknarfrestur er
runninn út. Dómsmálaráðherra
veitir embættin.
Um sýslumannsembættið á
Ísafirði sóttu eftirtalin:
Árni Múli Jónasson, aðstoð-
arfiskistofustjóri, Ásdís Ár-
mannsdóttir, fulltrúi sýslu-
mannsins á Sauðárkróki,
Áslaug Þórarinsdóttir, lög-
fræðingur, Ásta Stefánsdóttir,
fulltrúi sýslumannsins á Sel-
fossi, Bjarni Stefánsson, sýslu-
maður á Hólmavík, Björn
Jónsson, hrl., Guðmundur
Björnsson, Helga Leifsdóttir,
hdl., Jónas Guðmundsson,
sýslumaður í Bolungarvík, Sig-
ríður Björk Guðjónsdóttir,
skattstjóri Vestfjarðaumdæm-
is.
Um sýslumannsembættið á
Blönduósi sóttu eftirtalin:
Áslaug Þórarinsdóttir, lög-
fræðingur, Ásta Stefánsdóttir,
fulltrúi sýslumannsins á Sel-
fossi, Bjarni Stefánsson, sýslu-
maður á Hólmavík, Björn Jóns-
son, hrl., Guðgeir Eyjólfsson,
sýslumaður á Siglufirði, Guð-
mundur Björnsson, Helga
Leifsdóttir, hdl., Hjördís Stef-
ánsdóttir, fulltrúi sýslumanns-
ins í Borgarnesi, Leó Eiríkur
Löve, hrl., Margrét María Sig-
urðardóttir, hdl., Þorsteinn
Pétursson, fulltrúi sýslumanns-
ins á Selfossi.
Margar
umsóknir
um sýslu-
manns-
embætti
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti sl.
föstudag tillögu dóms- og kirkju-
málaráðherra um að verja 500 þús-
und krónum af ráðstöfunarfé rík-
isstjórnar til að styrkja svokallað
V-dagsverkefni. Svonefndur V-
dagur (Vinnings-dagur) verður
haldinn í fyrsta skipti á Íslandi
hinn 14. febrúar nk. Verða þá
stofnuð samtök sem hafa það að
markmiði að vinna gegn ofbeldi á
konum á Íslandi.
V-dagurinn hefur verið haldinn
víða um heim en að honum standa
alþjóðleg samtök sem kennd eru
við hann og stofnuð voru í Banda-
ríkjunum 1998 fyrir tilstuðlan rit-
höfundarins Eve Ensler. Markmið
alþjóðlegu V-dagssamtakanna er
að binda enda á ofbeldi gegn kon-
um um allan heim og munu sam-
tökin starfa þar til því markmiði
hefur verið náð.
Markmiðið með hinum íslenska
V-degi er það sama og á hinum al-
þjóðlegu V-dögum, að vekja fólk til
umhugsunar um kynferðisofbeldi
gegn konum og breyta hugarfari
fólks varðandi nauðganir. Áhersla
er lögð á vinnu að forvörnum gegn
nauðgunum og hafa ýmsir þekktir
aðilar úr þjóðfélaginu lagt málefn-
inu lið.
Ennfremur munu samtökin
standa fyrir forvarnarsamkeppni
meðal framhaldsskólanema um
hvernig þeir telji að best sé að fyr-
irbyggja nauðganir. Nemendurnir
munu leggja fram hugmyndir og
áætlun um hvernig eigi að fram-
kvæma þær. Á V-deginum verður
svo besta hugmyndin kynnt og V-
dagssamtökin munu sjá um að
fjármagna og framkvæma hug-
myndirnar í samráði við sigurveg-
arana.
V-dagurinn
haldinn
á Íslandi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Ólafi F.
Magnússyni, borgarfulltrúa og
væntanlegum frambjóðanda F-lista
frjálslyndra og óháðra:
„Í þættinum Kastljós í ríkissjón-
varpinu sunnudaginn 27. janúar sl.
fullyrti hið nýja borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins, Björn Bjarna-
son, að undirritaður væri „á móti
virkjunum“ og „gegn því öllu á fram-
farasviðum sem snertir virkjanir og
nýtingu orkulinda“.
Hér er um grófar rangfærslur að
ræða af hálfu borgarstjóraefnisins
Björns Bjarnasonar. Andstaða und-
irritaðs við þátttöku Reykjavíkur-
borgar í Kárahnjúkavirkun felur
ekki í sér almenna andstöðu við
virkjanaframkvæmdir í landinu eða
nýtingu orkulinda yfirleitt. Þvert á
móti er undirritaður hlynntur skyn-
samlegri nýtingu á orkulindum
Reykvíkinga eins og fyrirætlanir um
nýtingu jarðvarma á Hellisheiði til
orkuframleiðslu eru gott dæmi um.
Þessar framkvæmdir og margar aðr-
ar orkuframkvæmdir virðast mun
umhverfisvænni og hagkvæmari en
fyrirætlanir um risavirkjanir á Aust-
urlandi, sem yrðu stórkostlegar um-
hverfinu og myndu skuldsetja
Reykjavíkurborg umfram heildar-
eignir borgarinnar.
Ég vænti þess að málflutningur
Björns Bjarnasonar í kosningabar-
áttunni vegna borgarstjórnarkosn-
inganna í vor muni ekki byggjast
fyrst og fremst á rangfærslum og út-
úrsnúningum eins og var raunin í áð-
urnefndum Kastljósþætti.“
Yfirlýsing
♦ ♦ ♦
KONA á þrítugsaldri slapp með lítil
meiðsl eftir að hún kastaðist út úr
jeppa sem valt skammt norðan við
Búðardal, á sunnudag.
Konan sat í aftursæti jeppans og
var ekki í bílbelti. Að sögn lögregl-
unnar í Búðardal virðist sem konan
hafi kastast út um topplúguna á jepp-
anum. Mikil mildi þykir að konan
stórslasaðist ekki því jeppinn valt
2–3 veltur á veginum áður en hann
staðnæmdist á réttum kili.
Tildrög slyssins eru ekki að fullu
ljós en lögreglan telur að annaðhvort
hafi ökumaður sofnað undir stýri eða
dekk hafi sprungið. Þegar ökumaður
hugðist rétta jeppann af valt hann og
hafnaði á réttum kili með afturdekk-
in fyrir utan veg. Jeppinn er ónýtur.
Í jeppanum voru hjón ásamt dótt-
ur sinni og tveimur konum. Konunni
sem kastaðist út var ekið með sjúkra-
bifreið á slysadeild Landspítalans –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Talin hafa
kastast út
um topplúgu