Morgunblaðið - 29.01.2002, Side 41
Talaði í síma
og hlustaði á
háværa tónlist
UM helgina var tilkynnt
um 28 umferðaróhöpp til
lögreglunnar í Reykja-
vík, 11 voru teknir grun-
aðir um ölvun við akstur, 52 voru
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Á laugardagskvöld var tvisvar til-
kynnt til lögreglu um ógætilegan
akstur sama ökumanns á Kringlu-
mýrarbraut. Í öðru tilfellinu kvaðst
tilkynnandi hafa orðið að aka upp á
umferðareyju til að koma í veg fyrir
árekstur við ökumanninn, sem að
sögn hans ók ekki aðeins ógætilega
heldur var einnig að að tala í síma og
hlusta á svo háværa tónlist að heyrð-
ist á milli bíla. Lögreglan er að kanna
málið.
Tóku bensín og stungu af
Fremur rólegt var í miðborginni
bæði aðfaranótt laugardags og
sunnudags. Ekki var mikil ölvun og
unglingar undir 16 ára sáust nánast
ekki. Veður var fremur kalt og setti
það svip á miðbæinn. Eftirlit var
einnig með útivistartíma ungmenna í
úthverfum. Í Mosfellsbæ voru höfð
afskipti af fjórum ungmennum sem
ekið var heim til sín. Í Breiðholts-
hverfi voru höfð afskipti af hópi ung-
menna sem safnast hafði saman við
Seljakirkju. Haft var samband við
foreldra sem komu og sóttu ung-
mennin.
Um helgina var tilkynnt til lög-
reglu um 30 innbrot og þjófnaði. Að-
faranótt föstudags var brotist inn í
grunnskóla í austurborginni. Rúða
var brotin til að komast inn, hljóm-
flutningstækjum stolið og skemmdir
unnar á innanstokksmunum. Á föstu-
dagskvöld stöðvuðu lögreglumenn
bifreið í Faxafeni. Við athugun fund-
ust ýmsir hlutir í bifreiðinni sem öku-
maður gat ekki gert grein fyrir. Í ljós
kom að ökumaður og félagi hans voru
nýkomnir úr innbroti í íbúð í Safa-
mýri þar sem þeir höfðu stolið tölu-
verðum verðmætum. Mennirnir
gistu fangageymslur.
Aðfaranótt laugardags var brotist
inn í ljósmyndavöruverslun í austur-
borginni þar sem nokkrum verðmæt-
um var stolið.
Á sunnudag var tilkynnt um inn-
brot í hús í Fossvogi, farið var inn um
glugga á baðherbergi með því að
brjóta stormjárn. Þjófarnir höfðu á
brott með sér áfengi, farsíma o.fl.
Óvanalega mörg mál komu upp um
helgina þar sem tilkynnt var til lög-
reglu að fólk hafi dælt bensíni á bif-
reiðir sínar á bensínstöðvum og
stungið af án þess að greiða. Í sum-
um tilfellanna náðust hinir seku en
annarra er leitað.
Féll milli hæða í grunnskóla
Um miðjan dag á föstudag var til-
kynnt að ung stúlka hefði fallið milli
hæða í skóla í austurborginni. Stúlk-
an var flutt með sjúkrabifreið á
slysadeild til aðhlynningar en meiðsli
hennar reyndust ekki alvarleg.
Á laugardagsmorgun fékk lög-
regla tilkynningu um að ráðist hafi
verið á leigubifreiðastjóra á Rauðar-
árstíg. Í ljós kom að farþegi hafði
ráðist á bifreiðastjórann í akstri.
Farþeginn var færður í fanga-
geymslu og vistaður þar.
Á laugardagsmorgun var óskað
aðstoðar lögreglu til að opna bifreið í
austurborginni en ungt barn hafði
læst sig inni í henni. Lögreglan brást
skjótt við og tókst að opna bifreiðina
fljótt og vel. Á laugardag var tilkynnt
til lögreglu að hurð á íbúð hefði
skellst aftur og að níu mánaða gam-
alt barn væri eitt inni í íbúðinni. Lög-
regla brá við og fór á staðinn. Með
aðstoð lásasmiðs tókst að opna íbúð-
ina. Ekkert amaði að barninu þegar
inn var komið.
Á fjórða tímanum aðfaranótt
sunnudags var tilkynnt til lögreglu
að pizzasendill hafi verið rændur við
Krummahóla í Breiðholti. Ekki
höfðu ræningjarnir, sem voru tveir,
mikið upp úr krafsinu. Nokkuð góð
lýsing er á gerendunum og leitar lög-
regla þeirra nú.
Um helgina var tvisvar óskað að-
stoðar lögreglu vegna fólks sem sat
fast í lyftum. Í öðru tilvikanna sat
fólk fast í lyftu í háhýsi nálægt mið-
borginni en í hinu tilfellinu voru þrír
drengir fastir í lyftu í austurborg-
inni. Með aðstoð góðra manna tókst
að ná fólkinu úr lyftunum og beið það
ekki skaða af svo lögreglu sé kunn-
ugt.
Nokkuð var um kvartanir til lög-
reglu vegna sprenginga. Virðist sem
ekki sé öllum ljóst að áramótin eru
liðin. Nokkrar tilkynningar bárust
lögreglu vegna sinubruna um
helgina. Lögreglu og slökkviliði tókst
að slökkva eldana vandræðalaust.
Úr dagbók lögreglu – 25.–28. janúar
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 41
Góðar vörur
– betra um-
hverfi
LANDVERND, Norræna umhverf-
ismerkið á Íslandi og Hollustuvernd-
ar ríkisins boða fulltrúa fyrirtækja og
verslana til ráðstefnu 1. febrúar kl. 9 á
Grand hóteli, Reykjavík.
Fyrir hádegi verður fjallað um
framleiðslu á vörum og eftir hádegi
verður fjallað um verslunina. Það er
vaxandi skilningur á því að fram-
leiðsla, sala og neysla á vörum og
þjónustu hafa mikil áhrif á umhverfi
og náttúru. Nýtni, skipulag og upp-
lýsingamiðlun eru lykilatriði í góðri
umhverfisvernd.
Meðal fyrirlesara verða Davíð Eg-
ilsson, forstjóri Hollustuverndar rík-
isins, Johan Ununger, ráðgjafi Gröna
Konsum í Svíþjóð, Bryndís Skúladótt-
ir, Iðntæknistofnun, Guðmundur
Friðriksson, Línuhönnun, Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, Ketill Magnússon, starf-
maður Símans og Háskólans í
Reykjavík Sigrún Guðmundsdóttir,
starfsmaður umhverfismerkisráðs Ís-
lands, og Stefán Gíslason, ráðgjafi í
umhverfismálum. Þá munu fulltrúar
fjölmargra fyrirtækja taka þátt í pall-
borðsumræðum um reynslu og tæki-
færi. Dagskrá ráðstefnunnar er að
finna á slóðinni www.landvernd.is.
Þátttökugjald í heild er 7.000 kr.
(5.000 fyrir einstaklinga sem eru fé-
lagar í Landvernd) – hádegisverður
innifalinn. Þátttökugjald fyrir annan
hvorn hluta ráðstefnunnar eingöngu
er 5.000 kr. með hádegisverði (4.000
fyrir einstaklinga sem eru félagar í
Landvernd). Skráið þátttöku með
bréfi til landvernd@landvernd.is eigi
síðar en 30. janúar, segir í fréttatil-
kynningu.
L a u f á s v e g i 4 9 - 5 1 • S í m i 5 1 1 4 3 3 0 • F a x 5 1 1 4 3 3 3
K l u k k a n 1 7 : 0 0 f i m m t u d a g i n n 3 1 . j a n ú a r
e r u s í ð u s t u f o r v ö ð a ð p a n t a a u g l ý s i n g u
í S í m a s k r á 2 0 0 2 .
F o r ð i s t b i ð r a ð i r o g g a n g i ð f r á
a u g l ý s i n g a p ö n t u n u m t í m a n l e g a .
31
Þorrablót
Hornfirðinga
ÞORRABLÓT Hornfirðinga á höf-
uðborgarsvæðinu verður haldið í
Veislusal Valsheimilisins laugardag-
inn 2. febrúar kl. 20.
Húsið opnar kl. 19. Sælusveitin
spilar fyrir dansi fram undir morg-
un. Hægt er að nálgast miða hjá
Eygló Eymundsdóttur í Hversdags-
höllinni, Laugavegi 33.
Nánari upplýsingar á www.vatna-
jokull.com/blot, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að árekstri sem varð klukkan
15.44, föstudaginn 25. janúar sl., á
Laugavegi, skammt vestan við
Kringlumýrarbraut. Þar rákust sam-
an bifreiðarnar UP-722 og VB-293.
Þá er lýst eftir vitnum að því þegar
ekið var utan í nýja ljósbrúna Toyota
Rav 4, jeppabifreið, þar sem hún stóð
fyrir utan ferðaskrifstofuna Heims-
ferðir í Skógarhlíð 18 þann 18. janúar
sl. um kl. 14.00. Tjónvaldur ók á brott
en hugsanlegt er að hann hafi ekið
MMC Pajero-jeppa.
Námskeið í
meðvirkni
NÁMSKEIÐ um meðvirkni, sam-
skipti og tilfinningar verður haldið
föstudaginn 1. febrúar, kl. 8 – 22 og
fram haldið laugardaginn 2. febrúar,
kl. 9.30 – 16. Fjallað er um að verða
góður ráðgjafi í eigin lífi með því að
auka sína tilfinningalegu meðvitund,
bæta tjáskipti og samskipti við sína
nánustu og samstarfsfólk.
Kenndar eru leiðir til að skilja,
þroska og bæta þær kringumstæður
sem fyrir eru. Vinnumappa til að
þjálfa þessar leiðir fylgir.
Allar nánari upplýsingar og
skráning er hjá Stefáni Jóhannssyni
fjölskylduráðgjafa, segir í fréttatil-
kynningu.
Foreldrafélag
misþroska barna
Fyrirlestur
um einelti
BRYNJÓLFUR G. Brynjólfsson
sálfræðingur heldur fyrirlestur um
einelti, hvernig foreldrar bera
kennsl á einkennin og til hvaða ráða
þeir geta gripið gegn vandanum.
Fyrirlesturinn er haldinn í aðalsal
safnaðarheimilis Háteigskirkju,
gengið inn frá bílastæðinu, miðviku-
daginn 31. janúar kl. 20.
Að fyrirlestri loknum svarar
Brynjólfur spurningum og almennar
umræður verða.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill, segir í frétt frá Foreldra-
félagi misþroska barna.
Fagna nýja laga-
frumvarpinu
STJÓRN félags tækniskólakennara
boðaði til félagsfundar 23. janúar sl.
til að ræða stöðu skólans. Fjölmenni
sótti fundinn og var eftirfarandi
ályktun samþykkt með öllum at-
kvæðum:
„Félagsfundur FTK, haldinn 23.
janúar, fagnar þeirri ákvörðun
menntamálaráðherra að hefja að
nýju vinnu við lagafrumvarp um
Tækniskóla Íslands. Fundurinn
hvetur eindregið til þess að vinnu við
lagafrumvarpið verði hraðað svo að
leggja megi það fram á komandi vor-
þingi. Brýnt er að binda enda á þá
óvissu sem ríkt hefur um framtíð
skólans.“
Félagsdeild VG
stofnuð á Ísafirði
FÉLAGAR Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Ísafjarðarbæ stofn-
uðu sérstaka félagsdeild 24. janúar sl.
Stjórn félagsins skipa: Lilja Rafney
Magnúsdóttir, Suðureyri, formaður
og aðrir í stjórn Kjartan Ágústsson,
Ísafirði, Gígja Sigríður Tómasdóttir,
Ísafirði, Jón Fanndal Þórðarson,
Hnífsdal, og Anton Torfi Bergsson,
Felli, Dýrafirði.
Fram kom í almennum umræðum
að Vinstri grænir í Ísafjarðarbæ hafa
fullan hug á að láta til sín taka í kosn-
ingum til sveitarstjórna á vori kom-
anda. Fundurinn fól nýkjörinni stjórn
að kanna möguleika á framboði VG í
Ísafjarðarbæ við kosningarnar í vor.
Gestir fundarins voru alþingis-
mennirnir Jón Bjarnason og Árni
Steinar Jóhannsson og Gunnar Sig-
urðsson, Bolungarvík, formaður
Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs á Vestfjörðum,
segir í frétt frá Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði í Ísafjarðarbæ.