Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Opið mánud.–föstud. kl. 9–18 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rúnar Einarsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Fensalir - 4ra herb. Glæsileg 125 fm íbúð á útsýnisstað í Salahverfinu í Kópavogi. Íbúðin er sem ný, vandaðar innréttingar. Vel skipulögð íbúð. Suð-vest- ursvalir með miklu útsýni. Laus fljótlega. Hvassaleiti - Bílskúr Falleg 5 herb. íbúð á góðum stað. Aukaherb. í kjall- ara - útleigumöguleikar. Stutt í alla þjón- ustu. Vesturbær - 5 herb. Glæsileg ca 135 fm íbúð ásamt stæði í bílageymslu. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Laus fljótlega. Fellsmúli - 6 herb. Falleg 6 herb. íbúð á góðum stað. Herb. á hæð með sér- inngangi, útleigumöguleikar. Mjög stór stofa. Hefur verið endurnýjað að hluta. Verð 14,9 millj. 2ja-3ja herbergja Flétturimi - 3ja herb. Skemmtileg 3ja herb. íbúð á vinsælum stað í Grafar- vogi. Tvö rúmgóð herb. Leiksvæði með tækjum. Stutt í skóla og alla þjónustu. Seltjarnarnes - 2ja herb. Vorum að fá í einkasölu 62,0 fm íbúð á þessum vinsæla stað. Snyrtileg íbúð. Til sölu vandaðar og rúmgóðar 3ja og 4ra herb. íbúðir í 10 og 12 hæða ál- klæddum lyftuhúsum. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla verslun og þjónustu. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum. Ársalir 1-3 - Glæsileg álklædd lyftuhús Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar stærðir og gerðir eigna á skrá Skoðum samdægurs - Ekkert skoðunargjald Einbýlishús og raðhús Funafold - Einbýli m. tvöföld- um bílskúr Vorum að fá í sölu tæp- lega 300 fm einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Vandaðar beykiinnréttingar og gólfefni. Fullfrágenginn garður og sól- verönd. Bláskógar - Einbýlishús Sér- lega glæsilegt einbýlishús fyrir vandláta. Parket og flísar á gólfum, nóg skápapláss. Nýbúið að endurnýja eldhús. Arinnstofa. Innangengt í bílskúr, heilsárs sólstofa. Verð tilboð. Staðarbakki - Raðhús Fallegt 215 fm raðhús á góðum stað í Bökkunum. Innbyggður bílskúr. Fjögur svefnherb. og þrjár stofur. Verð 19,3 millj. Langholtsvegur - Raðhús Vor- um að fá í sölu mjög gott raðhús á þess- um vinsæla stað. Stórar samliggjandi stof- ur, fjögur svefnherbergi og sólstofa. Vel skipulagt hús á vinsælum stað. Góður inn- byggður bílskúr. Laus fljótlega. Hnjúkasel - Einbýlishús Mjög gott einbýlishús innst í botnlanga. Vand- aðar innréttingar. Innbyggður bílskúr. Rauðagerði - Einbýli með innbyggðum bílskúr Einstaklega glæsilegt tæplega 300 fm einbýli ásamt 46 fm innbyggðum bílskúr. Allar innréttingar og gólfefni eru vandaðar. Stór og fallegur garður. Þverársel - Einbýlishús Mjög gott einbýlishús í botnlanga. Vandaðar innréttingar. Möguleiki á 2 aukaíbúðum. Tvöfaldur bílskúr. Bessastaðahreppur - Einbýli Fallegt 177 fm einbýlishús með bílskúr sem er innréttaður sem séríbúð. 3 svefn- herb. og rúmgóð og björt stofa. Fallegt umhverfi með fallegum gönguleiðum og fjölbreyttu fuglalífi. Verð 19,9 millj. Jöklalind - Einbýlishús á einni hæð Vorum að fá í sölu einstak- lega glæsilegt hús. Vandaðar innréttingar, arinn, hornbaðkar, sólpallur, halogen- ljós o.s.frv. Góður 32 fm bílskúr. Eign fyrir vandláta. Sérhæðir Goðheimar - Sérinngangur Góð 100 fm íbúð á jarðhæð. Tvö stór her- bergi, stórar stofur og góð suðurverönd. Skemmtileg staðsetning. Í Hlíðunum - Sérhæð Til sölu 152 fm hæð með sérinngangi. Stórar stofur og rúmgóð herbergi. Verð 16,5 millj. Bergstaðastræti - NÝTT Reynihvammur - Sérinn- gangur Falleg 106 fm 4ra herb. sér- hæð í rólegu hverfi í hjarta Kópavogs. Skemmtileg íbúð á góðum stað. Stutt í alla þjónustu. Kópavogsbraut - Sérhæð + bílskúr Til sölu 124 fm hæð ásamt rúmlega 24 fm bílskúr, með sérinngangi á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Fjögur herbergi, stórar samliggjandi stofur. Bakkastaðir - Bílskúr Mjög glæsileg, fallega innréttuð 5 herb. íbúð m. sérinngangi. Stórar stofur. Allar innrétt- ingar eru fallegar og mikið skápapláss. Parket og flísar á gólfum. Þvottaherb. í íbúð. Góður bílskúr. Espigerði - Á tveimur hæð- um Vorum að fá afar glæsilega íbúð á þessum vinsæla stað. Flísar og parket á gólfum, góðar innréttingar, tvennar svalir. Sjón er sögu ríkari. Mikið útsýni, lyftu- blokk. 4-7 herbergja íbúðir Álftamýri - Með bílskúr Vorum að fá í sölu 4ra herb. íbúð með bílskúr. Stór stofa, nýleg eldhúsinn- rétting. Stór geymsla í kjallara og rúmgóður bílskúr með hillum. Barðastaðir 7 - „Penthouse“-íb. Glæsileg 165 fm íbúð á tveimur hæðum. Íbúðin er afhent fullbúin með glæsilegum inn- réttingum, en án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flís- ar. Fallegt umhverfi og falleg fjallasýn. Stutt á golfvöllinn. Teikningar og nán- ari upplýsingar hjá sölumönnum. Vorum að fá í sölu nokkrar nýjar 2ja- 4ra herb. íbúðir á besta stað í miðbæ Rvíkur. Íbúðirnar verða afhentar full- búnar með vönduðum innréttingum og flísum á baði, en án gólfefna að öðru leyti. Lyftuhús. Húsið verður klætt að mestu leyti að utan með járni og Duropal-plötum. Sameign verður frágengin. Möguleiki á við- bótarláni frá byggingaraðila á eftir húsbréfum. Breiðholt - 3ja herb. Rúmgóð 3ja herb. íbúð. Tvö góð herbergi. Suð-vestur- svalir. Ný eldhúsinnrétting. Gott útsýni úr íbúð. Góð fyrstu kaup. Naustabryggja - 3ja herb. Rúmgóð tæplega 100 fm íbúð með stæði í bílageymslu. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás og vönduð tæki. Stór og mikill sólpallur. Laus nú þegar. ELDRI BORGARAR Árskógar - Útsýni Vorum að fá í sölu fallega 4ra herbergja íbúð í húsi fyrir eldri borgara. Fallegt útsýni. Margvísleg þjónusta í húsinu. Laus strax. Árskógar - 3ja herb. Falleg 3ja herb. íbúð ásamt stæði í bílageymslu. Glæsilegt útsýni. Öll þjónusta innan seil- ingar. Öryggishnappur í íbúð. Nýjar íbúðir Maríubaugur - Keðjuhús/ein- býli Skemmtilega hönnuð ca 200 fm keðjuhús á einni hæð með innbyggðum 25 fm bílskúr. Húsin standa á útsýnisstað og afhendast fulleinangruð. Fullfrágengið að utan og lóð verður grófjöfnuð. Glæsi- legt útsýni. Teikningar og nánari upplýs- ingar er hægt að nálgast á skrifstofu. Naustabryggja 21-29 - Frá- bær staðsetning Nýjar og glæsi- legar 3-6 herb. íbúðir á þessum skemmti- lega stað. 3-4 herb. Íbúðirnar verða af- hentar fullbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og þvottahúsi verða flísar. Íbúð- irnar verða með vönduðum innréttingum. „Penthouse“-íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum. Að utan verða húsin ál- klædd. Afhending fljótlega. Byggingarað- ili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölu- mönnum. Ólafsgeisli - Raðhús með út- sýni Skemmtilega hönnuð rúmlega 200 fm raðhús á tveimur hæðum og innbyggð- um bílskúr. Afhendist einangrað að innan og frágengið að utan með grófjafnaðri lóð. Glæsilegt útsýni. Teikningar og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrif- stofu. UM MIÐJA síðustu öld varömurlegt um að litast ííslensku þjóðlífi. Erlend-ur gjaldeyrir nánast ekki til, vöruskortur og skömmtun, at- vinnuleysi. Þetta voru harðir tímar hjá nýríkri þjóð, sem fyrst hafði kynnst góðæri meðan hildarleikur og ógn síðari heimsstyrjaldar gekk yfir, sú ógn náði upp að Íslands- ströndum. Hrikaleg orusta milli bryndrek- anna Bismarck og Hood hófst á halamiðum og endaði við Frakk- landsstrendur, sem frægt er í sög- unni. En góðærið hvarf fljótlega eftir stríðið þrátt fyrir að safnast hefði í sjóði hjá Íslendingum meðan öðrum þjóðum blæddi nánast út. Það er raunar lífseigasta sagnfræðivilla síð- ari tíma að nýsköpunarstjórn Ólafs Thors, sem tók við stjórnartaum- unum skömmu eftir lýðveldis- stofnun, hafi sólundað stríðsgróð- anum í vitleysu og lúxusvörur. Með stríðsgróðanum var tog- araflotinn endurnýjaður og byggðar síldarbræðslur, þangað fór hann fyrst og fremst. Ef það hefði ekki verið gert hefði íslenska þjóðin orðið gjaldþrota því þrátt fyrir þessa end- urnýjun í sjávarútvegi stóð þjóð- arbúið völtum fótum og við tók tími fjárhagsráðs og mestu hafta og op- inberra afskipta sem yfir þessa þjóð hafa gengið. En það voru flestir bjartsýnir í stríðslok og það voru frammámenn í byggingariðnaði ekki síður en aðrir. Byggingaráðstefnan 1946 Eitt af þeim stórhýsum sem ráðist var í að byggja á bjartsýnisárum seinni heimsstyrjaldarinnar, var Sjómannaskólinn. Í þeirri byggingu var haldin mikil byggingasýning 1946 sem stóð frá laugardegi 8. júni til sunnudagsins 16. júní eða í rúma viku og það er meira en fróðlegt að fá í hendur sýningarskrá þessara at- burða, það er eins og að fá nið sög- unnar beint í æð. Þarna var ekki aðeins hægt að skoða, sýna sig og sjá aðra, þarna voru haldnir fyrirlestrar alla daga af þeim sem voru fremstir og mesta þekkingu höfðu á byggingariðn- aðinum. Auglýsingar í sýning- arskránni segja líka mikla sögu. Meirihluti þeirra fyrirtækja, sem þar auglýsa, er kominn undir græna torfu, en það er merkilegt að nokkur lifa enn góðu lífi, sum öflugri nú en nokkurn tíma áður. Landsbanki Íslands auglýsir að hann reki hvorki meira né minna en fimm útibú, við Klapparstíginn, á Ísafirði, Akureyri, Eskifirði og Sel- fossi. Byggingavöruversl- un Ísleifs Jónssonar, sem enn er í fullu fjöri, auglýsir Classic-miðstöðvarofna, þeir eldri í stétt pípulagn- ingamanna muna enn eftir þeim þungu hnöllum, og þarna auglýsir Ellingsen og Mjólkurfélag Reykja- víkur og munu þá upp talin þau fyrirtæki sem auglýsa og enn eru á lífi. Byggingarraáðstefnan var sett af fomanni framkvæmda- ráðs, sem var sá merki iðnfrömuður Sveinbjörn Jónsson alltaf kenndur við Ofnasmiðjuna, Emil Jónsson iðn- aðarráðherra flutti ávarp, hann varð síðar formaður Alþýðuflokksins og ráðherra í fjöldamörg ár. Alla sýningardaga eru fyr- irlestrar, kvikmyndasýningar og umræður auk þess er augljóslega drukkið mikið kaffi. Fyrirlesarar eru íslenskir utan einn sænskur verkfræðingur sem flytur nokkur erindi, m.a. um merka nýjung, strengjasteypu. Sjá má á umræðuefnum að ekki eru þau öll leyst vandamálin sem þarna voru rædd fyrir rúmum 55 ár- um. Ólafur Pálsson mælingafulltrúi flytur erindi um hvort við getum aukið afköst í byggingaiðnaði, Ólaf- ur Björnsson hagfræðingur ræddi um vandamálið óendanlega, fjár- mögnun bygginga, svo nokkuð sé nefnt. Enginn bannar öðrum að draga fisk úr sjó Í tengslum við sýn- inguna var gefin út bók undir heitinu „Bygg- ingaráðstefnan 1944“ og þar með augljóst að þetta var ekki fyrsta stóra byggingarsýningin, í þessari bók eru greini- lega þau erindi sem flutt voru á þeirri ráðstefnu sem efnt var til á lýðveldisárinu, en valdir kaflar úr bókinni eru birtir í sýningarskrá. Arnór Sigurjónsson hafði áhyggj- ur af því að mannafla skorti í fram- tíðinni til að byggja hús, hann sá ekki fyrir frekar en aðrir að atvínnu- leysi skylli á nokkrum árum síðar. Ragnhildur Pétursdóttir vill nýta hraunið til að hlaða hús, sú fengi lík- lega orð í eyra í dag ef menn færu um allt að rífa upp hraunhellur. Hörður Bjarnason, síðar húsa- meistari ríkisins, segir: „Eitt af því sem torveldar allar skipulagsbreyt- ingar í hinum stærri bæjum eru eldri hús – og svo hin furðulegu bráðabirgðaleyfi á lóðum, sem til annars eru ætlaðar skv. skipulags- uppdrætti.“ Freistandi væri að birta allan kaflann úr fyrirlestri Jóhanns Sæ- mundssonar læknis en hann vildi láta ríkið kaupa allar bújarðir lands- ins, bændur sætu þær áfram og not- uðu andvirði jarðanna til að byggja yfir menn og málleysingja. Jóhann sagði m. a: „Engir sérstakir menn eiga loftið, né láta sér detta í hug að leggja skatt á leiðir loftsins. Slíkur Eyr- arsundstollur er ekki til. Enginn bannar öðrum að draga fisk úr sjó, því að sjórinn er ekki einstakra manna eign. En hvers á jörðin að gjalda?“ Já, sú var tíðin að enginn bannaði öðrum að draga fisk úr sjó, en það var fyrir daga kvótabrasks og þeirr- ar spillingar sem af því braski leiðir. En hverjir sýndu á þessari merku sýningu? Öll helstu fyrirtæki þeirra tíma í byggingaiðnaði, þau eru öll horfin nema hin lífseiga Brynja sem enn er á Laugaveginum, Ofnasmiðjan við Háteigsveg og Ormsson þá við Vest- urgötu, en nefna má J. þorláksson & Norðmann, Hörpu sem lifir að vísu í samlífi, Jón Loftsson, Sænsk- Íslenska, Pípuverksmiðjuna á Rauð- arárstíg, svo nokkur séu nefnd. Þarna voru einnig tvær „Svíþjóð- arstofur“, þar sýndu sjö sænsk fyr- irtæki og þar er eldhús með fullum búnaði frá H.S.B., sænska sam- vinnubyggingarfélaginu, en eldhúsið var hingað komið fyrir tilverknað þeirrar merku konu, Halldóru Briem arkitekts, sem lærði og lifði í Svíþjóð. Stórhugur í stríðslok Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.