Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 C 27HeimiliFasteignir Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteigna- og skipasali Ásmundur Skeggjason. lögg. fasteigna- og skipasali. 4-6 HERB. Suðurhvammur, Hf. -PENTHOU- SE -Útsýni! Stórglæsileg 160 fm 6-7 herb. PENTHOUSE íbúð á 3. og 4. hæð (tveimur efstu hæðunum) ásamt 29 fm bílskúr í fjölbýlishúsi. Meiriháttar, útsýni til vesturs yfir Fjörðinn, glæsilegt samfellt parket á gólfum, svalir út frá stofu frá báðum hæðum, sér- smíðaðar 1. flokks innréttingar með halogenlýs- ingu, stór og góður bílskúr. V. 16,0 millj. (2176) HÆÐIR Hringbraut, Hf. - Glæsilegt út- sýni! Björt og falleg rishæð í reisulegu þríbýlishúsi á góðum stað við Hringbrautina í Hafnarfirði. GLÆSILEGT ÚTSÝNI YFIR FJÖRÐINN OG VÍÐAR. Þrjú svefnherb., svalir til suðurs. Hafðu samband við sölumenn Höfða. (2372) Sérhæð í Öldutúni, Hf. Vorum að fá á skrá 4ra herb. sérhæð með sérinn- gangi í Öldutúni í Hf. Snarstutt í skólann! Hafðu samband! (2375) Grænakinn, Hf. - Sérhæð m. sér- inngangi! Vel staðsett efri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlis- húsi íkinnunum. Góðir möguleikar á breytingum innandyra. Sjón er sögu ríkari. V. 10,5 millj. (2361) SÉRBÝLI Hringbraut, Hf. - Kósí einbýli í hjarta Hafnarfjarðar! Vorum að fá á skrá þetta fallega klassíska ein- býlishús ásamt bílskúr í hjarta Hafnarfjarðar. Íbúðin er mikið endurnýjuð m.a. parket og flísar á gólfum, nýlegt eldhús og baðherbergi. Þrjú svefnherb., þrjúbaðherb. og þrjár stofur. Stórt nýtanlegt rými í risi. Húsið stendur á óvenju stórri lóð, gróinn garður allt í kringum húsið ásamt verönd. V. 19,2 millj. Hafðu samband og fáðu að skoða. (2298) TIL LEIGU ,,Penthouse“ íbúð í Bæjar- hrauni Hf. - toppstaður Til leigu íbúð í risi á góðum stað í Bæjarhrauni Hf. Hátt tillofts og vítt til veggja. Stórar svalir til vesturs. Talaðu við Guðjón áskrifstofu Höfða. 2JA HERB. Öldugata, Hf. - Óvenju góð! Vorum að fá á skrá 2ja herb. ósamþ. íbúð á jarð- hæð með sérinngangi á frábærum stað. Fallegt hús á stórri lóð. Mikið endurnýjað m.a. gler og póstar. V. 5,8 millj. (2296) Reykjavíkurvegur, Hf.-Lítil og snotur! Snotur 2ja herb.íbúð á jarðhæð með sérinn- gangi, bakatil í þekktu fjöleignarhúsi á ágætis stað í Hafnarfirði. Góður suðausturgarður fyrir framan inngang. Gluggar íbúðar snúa einungis út í garðinn. Rúmgóð stofa, t.f. þvottavél á baði. V. 6,2 millj. (2315) 3JA HERB. Háholt, Hf. - Glæsieign!! Sérlega falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á fallegumútsýnisstað í Hafnarfirði. Fjölbýlið er ný- lega tekið í gegn, stutt í skóla og leikskóla. Eign sem vert er að skoða.(2371-2) Álfaskeið, Hf. - Mikið endurnýj- uð! Glæsileg 87 fm 3ja herbergja íbúð í góðu við- haldi. Allt endurnýjað á baði. Vel með farin eign sem vert er að skoða. V. 10,3 millj. (2336) Kríuás 15, Hf. - Tvær 3ja herb. eftir! Eigum eftir tvær 3ja herb. íbúðir á 2. hæð í litlu lyftufjölbýlishúsi á þessum vaxandi stað. Húsið er klætt að utan meðfallegri álklæðningu. Teikn. á skrifstofu. Hafðu samband sem fyrst! Fjarðargata, Hf.-Glæsiíbúð! Glæsileg 3-4ra herb. íbúð í þessu vinsæla húsi í miðbæ Hf. Héðan er stutt í allt! Lyfta í húsi. Topp innréttingar. Þessi er 1. flokks! V. 15,4 millj. (2208) Hverfisgata, Hf.-2ja íbúða hús! Vorum að fá í sölu gullfallegt og mikið endurnýjað tæplega 300 fm tveggja íbúða ein- býli. Á jarðhæð er tæpl. 100 fm 3-4ra herbergja íbúð með sérinngangi. Á 1. og 2. hæð er tæplega 200 fm íbúð. Búið er að endurnýja innréttingar og gólfefni. Sjón er sögu ríkari. Verð 22,9 millj. (2334) Lyfta, stór bílskúr og ÚTSÝNI! - Kríuás Hf Eigum eftir nokkrar 3ja og 4ra herb. íbúðir á 2. og 3. hæð í þessu fallega húsi. Húsið hefur upp á að bjóða það helsta sem fólk leitar eftir í hverfinu þ.e. lyftu, stóran bílskúr og frábært útsýni. Auk þess eru íbúðirnar vel hannaðar með topp innréttingum og á góðu verði. Tilbúnar til afhendingar í feb. nk. Afhendast fullbúnar án gólfefna. Verð- dæmi: 3ja herb. m. bílskúr ásett verð kr. 13,1 millj. 4ra herb.m. bílskúr ásett verð kr. 14,8 millj. Guðjón Guðmundsson, viðskiptafræðingur, sölustjóri. Guðmundur Karlsson, sölumaður. Þórey Thorlacius, skjalavarsla. Hafnarfjörður Hraunhvammur, Hf. - SKIPTI Á 2-3JA Í HF.! Kósí og töluvert endurnýjað einbýlishús á tveim- ur hæðum í götu sem lokuð er í annan endann á góðum stað í Hafnarfirði. „Rómantískar”gólffja- lir og flísar á gólfum, stórt eldhús, opin stofa, fjögursvefnherb., sérinng. á jarðhæð, stór gróinn lóð allt í kringum húsið, bílskúrsréttur. Frábært tækifæri fyrir þá sem eru að stækka við sig í Firðinum! V. 15,0 millj. (2359) Víðiberg, Hf. - Glæsieinbýli á einni hæð! Glæsilegt einbýli á einni hæð ásamt 35 fm bíl- skúr á góðum stað í Hafnarfirði. Glæsilegar sér- smíðaðar innréttingar, nýlegt samfellt parket á gólfum, hitalögn undir steinflísum í íbúð, 1. flokks tæki og ,,alvöru“. (þ.e. stór) svefnherb. Timbur verönd til suðurs og fallegur gróinn garð- ur allt í kringum húsið. (2313) NÝBYGGINGAR Áslandið, Hf.-Mikið úrval! Við erum með á skrá fjöldan allan af íbúðum til sölu í þessu nýjasta hverfi Hf. Mikið úrval af 2-5 herb.íbúðum í fjölbýli, raðhúsum og parhúsum. Renndu við hjá okkur og fáðu teikningar og allar nánari upplýsingar. Svöluás, Hf. Erum með til sölu fjögur parhús á frábærum stað í Svöluásnum íÁslandinu í Hf. Glæsilegt útsýni til norðurs og vestur. Afhendast fokheld eða tilbúin til innréttingar í vor. Þetta er örugglega einn- flottasti staðurinn í hverfinu! Teikningar og allar nánari upplýsingará skrifstofu. Kórsalir, Hf. - 85% lán! 3ja, 4ra herb.íbúðir í 7 hæða lyftufjölbýli. Glæsi- legarinnréttingar. Tilbúnar án gólfefna. Teikning- ar á skrifstofu. LÓÐIR Ein flottasta einbýlishúsalóðin í Áslandinu Hf. Byggingarlóð með sökkli og plötu til sölu. Gert ráð f. 266 fm einbýlishúsi á tveimur hæðum, þ.a. 40 fm tvöfaldur innbyggður skúr. Lóðin er í tölu- verðum bratta í suðurhlíð hverfisins og er útsýni því frábært. Teikn.á skrifstofu. (2386) ATVINNUHÚSNÆÐI Iðnaðar-og/eða lagerhúsn.til sölu: Hvaleyrarbraut Hf.-105-600 fm- v. 65 þús. m2- LAUST Gjótuhraun Hf.-100-600 fm-LAUST Kaplahraun Hf.-100 fm-ÍBÚÐ FYLGIR- v.8,0 millj. Hvaleyrarbraut Hf.-430 fm-ER Í LEIGU Verslunarhúsn. til sölu: Lækjargata Hf.-150 fm-jarðhæð-LAUST Skrifstofuhúsn. til sölu: Bæjarhraun Hf.-2.h.-130 fm- v.10,8 millj.-LAUST Flatarhraun Hf.-2.h.-61 fm- v. 4,5 millj.-LAUST K í k t u á h e i m a s í ð u n a o k k a r w w w . h o f d i . i s Bæjarhraun 22 Fax 565 8013 Sími 565 8000 Opið kl. 9-17 virka daga  www.hofdi.is Fyrir fólk í Firðinum eigninni lýst rækilega byggingarefni hennar og byggingartíma, stærð í flatarmáli og rúmmáli, svo og skipan herbergja og annarra rýma og sér- staklega tekið fram, ef breytt hefur verið frá því sem fram kemur á sam- þykktum teikningum. Lýsa á hvort og þá hvaða hlutar eignarinnar hafi verið endurnýjaðir og hvenær það var gert. Ástandi eignarinnar ber að lýsa með hliðsjón af aldri hennar o.fl., auk þess sem sérstaklega á að taka fram hvort á eign séu raka- eða lekaskemmdir eða aðrir gallar sem eru umfram það sem telja má til eðlilegs slits á henni. Það er ljóst að til þess að ástand- sskýrsla nái tilgangi sínum verður að gera til hennar miklar kröfur. Kaup- andi verður að geta verið alveg viss um að skýrslan lýsi eigninni réttilega og í henni komi fram hvert ástand eignarinnar er og hvort á henni séu einhverjir gallar. Ef ekki eru gerðar svo ríkar kröfur til ástandsskýrslna skapast óvissa um hver á að bera ábyrgðina ef út af ber og hætt er við að réttarstöðu kaupandans sé stefnt í tvísýnu. Miklar kröfur gerðar til skoðunarmanna Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að til þess að geta samið ástands- skýrslur þurfi menn opinbert leyfi og til að fá slíkt leyfi er gert ráð fyrir þremur meginskilyrðum, þ.e. í fyrsta lagi að viðkomandi sé byggingar- fróður fyrir og í öðru lagi að hann hafi lokið námskeiði sem dómsmála- ráðherra getur ákveðið að verði haldið. Í þriðja lagi þarf viðkomandi að hafa tekið ábyrgðartryggingu hjá vátryggingarfélagi, sem tryggir þá kaupendur sem verða kunna fyrir tjóni vegna mistaka, sem hann kann að gera í starfi sínu. Gert er ráð fyrir að ábyrgð skoðunarmannsins verði hlutlæg, þ.e. ekki þarf að vera um saknæma vanrækslu að ræða af hans hálfu. Seljandinn þarf að kosta ástands- skýrsluna og leggja hana fram og hún má ekki vera eldri en sex mán- aða þegar kauptilboð er gert. – Ávinningur seljanda felst í því að í þessum tilvikum er hann endanlega laus, því að kaupandi getur ekki bor- ið fyrir sig galla á eigninni gagnvart honum, segir Viðar Már. – Það er nokkuð víst að margir seljendur eru tilbúnir að greiða fyrir gerð ástand- sskýrslu og leggja hana fram gegn því að vera alveg öruggir um að þeir séu endanlega lausir, þ.e. viðskipt- unum sé lokið af þeirra hálfu. Þetta á ekki bara við um einstak- linga. Bankar og sparisjóðir selja mikið af eignum, sem þeir þurfa að yfirtaka. Sala þeirra á slíkum eign- um yrði talin neytendakaup í skiln- ingi frumvarpsins, þannig að þeir gætu ekki samið sig undan ákvæðum þess, en það hafa þeir iðulega gert á undanförnum árum, þ.e. gert fyrir- vara um ábyrgð sína. Þeir gætu að- eins losnað undan ábyrgð samkvæmt reglum frumvarpsins með því að leggja fram slíkar ástandsskýrslur. Færri deilumál En á hverjum hvílir þá ábyrgðin? – Þótt seljandi losni undan ábyrgð felst ekki í því, að henni sé velt yfir á kaupanda, segir Viðar Már. – Kaup- andinn hefur fengið skýrslu um ástand eignarinnar og á að vita ná- kvæmlega hvað hann er að kaupa. Af þessum ástæðum verða deilumál óhjákvæmilega færri því kaupandi á ekki að þurfa að velkjast í neinum vafa um eignina. Ef svo vill þó til að eignin sé göll- uð, án þess að slíks hafi verið getið í ástandsskýrslu, er ljóst að skoðunar- maðurinn hefur ekki sinnt skyldum sínum og kaupandinn getur gert kröfur á hendur honum eða vátrygg- ingafélagi hans. Hver er þá ávinningurinn? – Ávinningurinn er þríþættur, segir Viðar Már. – Í fyrsta lagi meira öryggi í fasteignakaupum. Í öðru lagi færri ágreiningsmál. Í þriðja lagi er deilan milli kaupanda og skoðunarmanns eða öllu heldur vá- tryggingafélags hans og því má ætla að sá, sem krafan beinist gegn, taki faglegri afstöðu til kröfunnar, en byggi viðhorf sitt ekki á tilfinninga- rökum, eins og svo oft vill verða í deilumálum vegna fasteignakaupa. Það er sorglegt að sjá hvað samn- ingsaðiljar eru tilbúnir að fara langt með ágreining sinn og kosta miklu til vegna smávægilegra ágalla, eins og hæstaréttardómurinn, sem getið er að framan, er glöggt dæmi um. Gert er ráð fyrir að einn maður annist gerð ástandsskýrslu. – En það er ekkert sem bannar að þeir séu fleiri, en slíkt yrði væntanlegra dýr- ara og því ekki fýsilegt fyrir seljand- ann, segir Viðar Már. – Hafa verður í huga að aðeins þeir, sem eru bygg- ingarfróðir fyrir, geta fengið leyfi til að gera slíkar skýrslur. Ef þeir við skoðun telja ástæðu til að rannsaka einstaka þætti nánar, t.d. rafmagn og gera úttekt á því, en geta það ekki sjálfir, þá fá þeir einfaldlega raf- magnsmann til að gera það en það verður samt að vera á ábyrgð skoð- unarmannsins. Þörf fyrir staðlaðar skýrslur Viðar Már segir erfitt að svo komnu að gera sér grein fyrir kostn- aði af gerð ástandsskýrslna. – Það fer m.a. eftir því hvernig til tekst með samningu reglugerðar og eyðu- blaða, segir hann. – Nauðsynlegt er að reyna að staðla efni slíkra skýrslna í eins miklum mæli og kostur er, bæði til að tryggja að tekið sé á öllum atrið- um sem þörf er á og líka til að staðla vinnubrögð og gera vinnuna þannig markvissari og ódýrari. Það verður þó að horfast í augu við það strax að ástandsskýrslur hljóta að kosta nokkuð enda eru gerðar til þeirrar og skoðunarmanna ríkar kröfur og þær hafa mikil réttaráhrif. Einn kostnaðarliður sem líka er óljós eru iðgjöld þeirra ábyrgðartrygg- inga sem taka þarf. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að verði það afgreitt á þessu þingi þá geti það tekið gildi næsta sumar en reglurnar um ástandsskýrslur þó ekki fyrr en um mitt ár 2003. – Ástæðan er sú að það tekur tíma að undirbúa framkvæmd þeirra reglna, m.a. með samningu reglu- gerðar og eyðublaða, undirbúningi námskeiðs o.fl., segir Viðar Már. – Það er mjög mikilvægt að vanda til verka því hér eru miklir hagsmunir í húfi og viðfangsefnið ekki einfalt, og það verður ekki unnið svo vel sé nema með þátttöku sérfróðra manna úr byggingageiranum. – Ekki má heldur gleyma því að reglurnar um ástandsskýrslur eru valkvæðar, þ.e. þær eiga ekki við nema í þeim tilvikum, sem seljandi leggur fram ástandsskýrslu, segir Viðar Már Matthíasson lagaprófess- or að lokum. – Gera verður ráð fyrir að notkun þeirra fari rólega af stað, en vonandi verða þau tilvik æ fleiri með tímanum sem ástandsskýrslur verða notaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.