Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur segist hrærður
og fullur stolts/B1
Sigfús fór til Svíþjóðar
til að vinna/B4
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Einfalt og fyndið 1B
Sálin blómstrar 2B
Fluguhnýtingar 4B
Sársauki oft ekki umflúinn 4B
Dagur hjá dagmömmu 6B
Auðlesið efni 8B
Sérblöð í dag
ÁÆTLAÐAR lífeyrisskuldbindingar
ríkisins jukust á síðasta ári um 21,3
milljarða eða um 14%. Skuldbinding-
arnar hafa að jafnaði aukist um 13–
14% á ári síðustu þrjú ár. Árið 1998
hækkuðu skuldbindingarnar um 33%.
Þrátt fyrir að ríkið hafi borgað yfir 30
milljarða í Lífeyrissjóð starfsmanna
ríkisins (LSR) á síðustu þremur árum
umfram lögbundin iðgjöld hafa heild-
arskuldbindingarnar samt haldið
áfram að aukast.
Þessar upplýsingar komu fram á
Alþingi í svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn frá Pétri H. Blöndal al-
þingismanni.
Ríkissjóður ber ábyrgð á lífeyris-
skuldbindingum í B-deild LSR, Líf-
eyrissjóðs hjúkrunarfræðinga, Líf-
eyrissjóðs alþingismanna og
Lífeyrissjóðs ráðherra. A-deild LSR
og séreignardeild LSR eiga að standa
undir sér sjálfar, en ríkissjóður hefur
hins vegar ábyrgst að hækka ið-
gjaldagreiðslur í sjóðina ef eignir
duga ekki fyrir lífeyrisskuldbinding-
um.
Í lok ársins 2000 námu lífeyris-
skuldbindingar ríkisins 155,8 millj-
örðum en áætlað er að þær hafi numið
rúmum 177 milljörðum um síðustu
áramót. Frá þessari upphæð dragast
greiðslur sem inntar hafa verið af
hendi umfram lögbundið iðgjald, en
þær nema tæplega 34 milljörðum á
síðustu þremur árum. Heildarskuld-
bindingarnar um síðustu áramót
námu því 143,1 milljarði. Skuldbind-
ingarnar jukust um 3% á árinu þrátt
fyrir að 16,7 milljarðar hafi verið
greiddir í LSR á árinu umfram ið-
gjöld.
Helmingur fjárfestingar
í hlutabréfakaup
Pétur spurði líka hvernig þeim fjár-
munum sem ríkissjóður hefur greitt í
LSR á síðustu árum hefði verið varið.
Í svarinu kemur fram að af þeim 30,5
milljörðum sem ríkissjóður hefur
greitt í LSR og Lífeyrissjóð hjúkr-
unarfræðinga á síðustu þremur árum
hafa 5,7 milljarðar farið í kaup á rík-
isskuldabréfum og 10,5 milljarðar í
önnur skuldabréf. 4,1 milljarður fór í
kaup á innlendum hlutabréfum og
10,2 milljarðar í erlend hlutabréf.
Tæplega helmingur upphæðarinnar
hefur því farið í kaup á hlutabréfum.
Á síðasta ári voru gerðir gjaldmiðla-
skiptasamningar til að draga úr gjald-
miðlaáhættu og koma í veg fyrir að
erlendar fjárfestingar LSR hefðu
áhrif á gengi íslensku krónunnar. Alls
voru gerðir samningar fyrir 3,5 millj-
arða króna í þessu skyni.
Fram kemur í svari fjármálaráð-
herra að hrein raunávöxtun B-deildar
LSR á fyrstu sex mánuðum síðasta
árs var 2,6%, en ávöxtunin var 2,17%
árið 2000. Í svarinu kemur fram að
slök ávöxtun og mikil hækkun dag-
vinnulauna auki bakábyrgð ríkis-
sjóðs.
Lífeyrisskuldbindingar ríkisins hafa hækkað um 13–14% á ári síðustu ár
Skuldbindingar námu
143,1 milljarði í árslok
!
#
!
#!
$#
%
&
%
&
' ' '% ' ' '
(
)
*
+* LÖGREGLUYFIRVÖLD á Kefla-
víkurflugvelli ætla að taka mun
harðar á ólöglegum vopnainn-
flutningi en gert hefur verið til
þessa, í ljósi stóraukins innflutn-
ings á ólöglegum vopnum til
landsins síðastliðin 3 ár. Vopna-
innflutningur varðar upptöku
gripa og sektargreiðslum allt að
100 þúsund krónum.
Síðastliðna 20 mánuði hefur 720
sinnum verið lagt hald á ýmiss
konar ólögleg vopn sem flug-
farþegar hafa verið með í fórum
sínum. Er það tæpur fjórðungur
af fjölda annarskonar haldlagn-
inga á þessu tímabili. Vopnin hafa
einkum verið í fórum barna og
unglinga þótt aðrir aldurshópar
hafi einnig komið við sögu. Lang-
mestur hluti vopnanna, loftbyssur
af ýmsum gerðum, er keyptur á
Spáni þar sem aðgengi er auðvelt,
en þaðan koma einkum loftbyssur
og sverð, sem eru ólögleg hér-
lendis samkvæmt vopnalögum.
Fólki ekki vel
kunnugt um lögleysuna
Að sögn Sævars Lúðvíkssonar,
fulltrúa sýslumannsins á Keflavík-
urflugvelli, virðist sem fólki sé
ekki vel kunnugt um að loftbyssur
séu bannaðar og kemur með þær
til landsins í þeirri trú að um leik-
föng sé að ræða. Í mörgum til-
vikum er um að ræða stór-
hættuleg vopn, enda eru sumar
loftbyssurnar mjög öflugar. Að
meðaltali hafa 10 loftbyssur verið
teknar af farþegum í mánuði síð-
astliðna 20 mánuði. Jafnmargir
hnífar hafa verið teknir af fólki,
s.s. ýmiss konar kasthnífar, auk
margra sverða, handjárna, fót-
járna og hnúajárna.
Langflest hættulegustu vopn-
anna, sem tollgæslan á Keflavík-
urflugvelli leggur hald á, tengjast
meintum fíkniefnasmyglurum og
eru ætluð til nota meðal fólks í
fíkniefnaheiminum. Dæmi eru um
að ekta skammbyssur hafi verið
teknar af farþegum. Hættulegustu
vopnin eru í fórum farþega sem
koma frá Amsterdam að sögn
Kára Gunnlaugssonar, aðaldeild-
arstjóra tollgæslunnar á Keflavík-
urflugvelli. Meðal þess sem toll-
gæslan sýndi blaðamönnum í gær
var rafstuðbyssa sem gefur frá
sér 150 þúsund volta straum.
Tollgæslan segir þó að mestur
fjöldi brota varði þó umgmenni
sem gera sér yfirleitt ekki grein
fyrir því að loftbyssur og áþekk
vopn séu bönnuð. Vill Tollgæslan
því brýna fyrir foreldrum að fylgj-
ast vel með því hvort börn þeirra
hafi slíkan varning undir höndum.
Morgunblaðið/Ásdís
Hluti þeirra vopna sem fundist hafa við leit á Keflavíkurflugvelli.
Harðar tekið á ólögleg-
um vopnainnflutningi
Óvissa um framtíð Björns
Bjarnasonar í ríkisstjórn
Borgarstjóri
afsalaði sér ekki
þingmennsku
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir ekkert liggja fyrir um framtíð
Björns Bjarnasonar menntamála-
ráðherra í ríkisstjórninni, en Björn
hefur sem kunnugt er lýst vilja til að
vera í forystu fyrir Sjálfstæðis-
flokknum í borgarstjórnarkosning-
unum í vor. Hann minnir á að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri hefði ekki afsalað sér
þingmennsku 1994 fyrr en eftir að
hún hafði verið kjörin borgarstjóri.
„Björn er ekki formlega enn kom-
inn í framboð. Framboðslistinn hef-
ur ekki enn verið ákveðinn, en hann
hefur lýst yfir vilja til að standa að
slíku framboði og það er ljóst að það
er mikill vilji hjá fulltrúaráðinu í
Reykjavík fyrir því að hann verði þar
í forystu. Ég minnist þess að þegar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór í
borgarstjóraframboð á sínum tíma
þá hélt hún þingsætinu allan tímann,
væntanlega vegna þess að hún var að
bjóða sig fram í áttunda sætið og ef
hún yrði ekki borgarstjóri og þyrfti
ekki að sinna borgarmálum gat hún
haldið áfram í þinginu. Ég skil það
svo að menntamálaráðherra ætli sér,
hvernig sem fer, að sinna borgarmál-
um sem borgarfulltrúi.“
Davíð sagði að framtíð Björns inn-
an ríkisstjórnar og á þingi hefði ekki
verið ákveðin. „Út af fyrir sig eru
fordæmi fyrir því að menn hafi setið í
þinginu og verið borgarfulltrúar. Ég
gerði það og Albert Guðmundsson
gerði það einnig.“
Skilafrestur
framtala 25. mars
LANDSMENN mega búast við
því að fá skattframtölin send til
sín í kringum mánaðamótin febr-
úar/mars skv. upplýsingum frá
Ríkisskattstjóra. Er það svipaður
tími og í fyrra.
Almennur skilafrestur á fram-
tölum er til 25. mars nk. en þeir
sem skila á rafrænu formi í gegn-
um Netið hafa skilafrest til 8. apríl
nk. 65% allra framtala í fyrra var-
skilað með rafrænum hætti.
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar hf.
á Keflavíkurflugvelli hefur höfðað
mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness á
hendur Sandgerðisbæ vegna of-
greidds fasteignaskatts sem lagður
var á vegna reikningsskekkju Fast-
eignamats ríkisins.
Sandgerðisbær hefur innheimt
fasteignaskatta af flugstöðvarbygg-
ingunni sem er innan bæjarmark-
anna, á grundvelli fasteignamats
sem Fasteignamat ríkisins gefur
árlega út. Kom í ljós fyrir nokkru
og er viðurkennt af Fasteignamati
ríkisins, að matið var ranglega
hækkað árið 1989 og hefur verið
tæplega 37% of hátt þar til við end-
urmat sem framkvæmt var á síð-
asta ári.
Flugstöðin hefur krafið Sand-
gerðisbæ um endurgreiðslu vegna
ofgreiddra gjalda á árunum 1989 til
2000 en eldri gjöld eru talin fyrnd.
Nemur krafan tæplega 40 milljón-
um króna.
Flugstöðin höfðar mál
gegn Sandgerðisbæ
Krefst endur-
greiðslu fast-
eignaskatta
Krefjast/17