Morgunblaðið - 01.02.2002, Page 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 19
UM áramótin urðu eigendaskipti að
eignum Alþýðuskólans á Eiðum, þeg-
ar Eiðar ehf. tóku formlega við eign-
unum af sveitarfélaginu Austur–Hér-
aði. Í stjórn Eiða ehf. sitja eigendur
félagsins, þeir Sigurjón Sighvatsson
og Sigurður Gísli Pálmason, auk Árna
Páls Árnasonar lögmanns.
Að hálfu eigenda Eiða hefur verið
mörkuð sú stefna að skapa Eiðum
sess sem alþjóðlegu mennta- og
menningarsetri. Sett hefur verið á
laggirnar nefnd sem verður eigend-
um til ráðuneytis um framtíðar-
stefnumörkun fyrir Eiða. Í nefndinni
eiga sæti þau Vilhjálmur Egilsson al-
þingismaður, Vilhjálmur Einarsson,
fyrrum skólameistari, Þórunn Sig-
urðardóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík, Einar Örn
Benediktsson fjölmiðlafræðingur,
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
gerðarmaður, Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, aðstoðamaður fjármálaráð-
herra, Steinar Berg Ísleifsson
hljómplötuútgefandi, Steve Christer
arkitekt, Freyr Einarsson kvik-
myndagerðarmaður, Skúli Björn
Gunnarsson, forstöðumaður Gunn-
arsstofnunar á Skriðuklaustri, og
Örnólfur Thorsson, sérfræðingur á
skrifstofu forseta Íslands, sem jafn-
framt er formaður. Nefndin hefur
þegar haldið sinn fyrsta fund. „Að
hálfu Eiða er lögð áhersla á að vandað
verði sem kostur er til undirbúnings
þeirrar starfsemi sem fram mun fara
á Eiðum. Svanhildur Konráðsdóttir
hefur tekið að sér að vinna frum-
skýrlsu um starfsemi á Eiðum í sam-
ráði við nefndina og gert er ráð fyrir
að hún liggi fyrir um mánaðamót
febrúar/mars. Í kjölfarið er gert ráð
fyrir að unnin verði nánari viðskipta-
áætlun sem verði tilbúin á hausti
komanda,“ segir í fréttatilkynningu
frá eigendum.
Gerður hefur verið samningur til
þriggja ára við Flughótel um áfram-
haldandi rekstur sumarhótels undir
merkjum Hótels Eddu á Eiðum.
Nýir eigendur tóku formlega við Alþýðuskólanum á Eiðum um áramótin
Nefnd vinnur að
framtíðar-
stefnumótun
Eiðar
♦ ♦ ♦
ÞÓ að þorrinn sé kaldur þessa
dagana halda fururnar sínum
dökkgræna lit eins og önnur
barrtré og þar sem þær eru lífga
þær upp á annars litfátæka jörðina
sem bíður eftir vorinu. Á þessum
árstíma, þegar kuldi og klaki eru
allsráðandi, geta ýmsir smámunir
lífgað upp á umhverfið eins og t.d.
grýlukertabunkar sem myndast
alls staðar þar sem vatn seytlar út
úr bergi eða rörum og útbýr alls
konar myndir sem geta verið fljót-
ar að breytast í einhverja aðra
mynd.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Andrés Pálmason virðir fyrir sér
grýlukertin milli grænna furutrjáa.
Grænn og
kaldur vetur
Fagridalur
SVEITARSTJÓRN Norður-Héraðs
samþykkti eftir tvær umræður að
fækkað yrði í sveitarstjórn sveitarfé-
lagsins þegar kosið verður til sveit-
arstjórnar í vor.
Nú eru sjö fulltrúar í sveitar-
stjórninni en þeim verður fækkað í
fimm. Ákveðið var að vera með sjö
fulltrúa í sveitarstjórninni í fram-
haldi af sameiningu þriggja hreppa
sem nú mynda Norður-Hérað, Jök-
uldals,- Hlíðar- og Tunguhreppa.
Einnig var samþykkt að leggja
niður hreppsráð, sem starfað hefur
þetta kjörtímabil. Í hreppsráðinu
voru þrír fulltrúar úr sveitarstjórn-
inni sem funduðu milli sveitarstjórn-
arfunda. Með því að fækka hrepps-
nefndarmönnum í fimm er talið að
stjórnsýslan verði öll skilvirkari auk
þess sem það lækkar stjórnunar-
kostnað.
Samþykkt að
fækka í
sveitarstjórn
Norður-Hérað