Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 24
ERLENT
24 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BLAÐ var brotið í baráttu Banda-
ríkjamanna gegn alþjóðlegum
hryðjuverkum í gær þegar hófust á
Filippseyjum heræf-
ingar sem bandarískir
hermenn taka þátt í
ásamt liðsmönnum fil-
ippeyska stjórnar-
hersins. Allt að sex
hundruð Bandaríkja-
menn taka þátt í æf-
ingunum, flestir
þeirra sérsveitar-
menn, en þær fara
fram í vel vörðum her-
búðum í borginni
Zamboanga í suður-
hluta landsins. Er til-
gangur æfinganna að
undirbúa stjórnarher-
inn fyrir það verk að
takast á við samtökin
Abu Sayyaf en þau halda nú í gísl-
ingu tveimur Bandaríkjamönnum og
filippeyskri hjúkrunarkonu á eynni
Basilian.
Bandarísku hermennirnir eru full-
búnir vopnum en ekki stendur þó til
að þeir taki beinan þátt í aðgerðum
gegn Abu Sayyaf, að sögn banda-
rískra stjórnarerindreka. „Ég vil
segja við þá sem vilja íbúum Filipps-
eyja ekkert nema illt og hafa í und-
irbúningi hryðjuverk að við stjórn-
arher landsins sé meira en fullfær
um að ráða niðurlögum ykkar,“
sagði Robert Fitts, sendifulltrúi
Bandaríkjanna þegar æfingarnar
hófust í gær.
Sagði hann að heræfingarnar
væru hluti af baráttunni sem George
W. Bush Bandaríkjaforseti hefði
skipulagt gegn hryðju-
verkum og sem yrði
háð víðs vegar um
heiminn í samstarfi við
bandamenn Bandaríkj-
anna uns sigur væri
unninn.
Þátttaka Banda-
ríkjahers í heræfingum
filippeyska stjórnar-
hersins er til marks um
þá trú manna að helstu
vígi alþjóðlegra hryðju-
verkasamtaka, eins og
al-Qaeda samtaka
Sádí-Arabans Osama
bin Laden, verði í
framtíðinni í Suðaust-
ur-Asíu. Uppljóstranir
síðustu daga og vikur um umfangs-
miklar ráðagerðir, sem m.a. fólu í sér
að gera ætti árásir á bandarísk her-
skip, fyrirtæki í eigu Bandaríkja-
manna í Singapore og sendiráð
Bandaríkjanna, Bretlands, Ástralíu
og Ísraels í löndum Suðaustur-Asíu
þykja hafa rennt stoðum undir
áhyggjur manna þar að lútandi.
Angelo Reyes, varnarmálaráð-
herra Filippseyja, segir að handtaka
Indónesans Fathurs Rohmans al-
Ghozi í Manila, höfuðborg Filipps-
eyja, sýni og sanni að hópar manna í
ríkjum Suðaustur-Asíu séu í sam-
krulli við al-Qaeda-samtökin.
„Ég held að eftir því sem við köf-
um betur ofan í málin muni verða æ
ljósara að ógnin, sem stafar af al-
þjóðlegum hryðjuverkasamtökum,
sé raunveruleg,“ sagði Reyes.
Al-Ghozi, sem sagður er sprengju-
sérfræðingur Jemaah Islam-
iyah-samtakanna, var handtekinn
eftir ábendingu frá yfirvöldum í
Singapore en í kjölfarið voru síðan
þrír filippeyskir samverkamenn al-
Ghozi hnepptir í varðhald og hald
lagt á mikið magn sprengiefna í
Santos í suðurhluta Filippseyja.
Sagði Reyes að al-Ghozi hefði við-
urkennt aðild að nokkrum nýlegum
hryðjuverkum, s.s. sprengjuárás 30.
desember 2000 í Mindanao og Man-
ila á Filippseyjum sem varð 22 að
bana.
Lúta yfirstjórn al-Qaeda
Menn hafa einkum áhyggjur af
því að öfgahópar reki umfangsmikla
starfsemi í Malasíu, Indónesíu og
Singapore en íbúar beggja fyrr-
nefndu landanna eru að miklum
hluta til íslamstrúar. Segja rann-
sóknarmenn að hryðjuverkamenn-
irnir í ríkjum Suðaustur-Asíu tengist
allir innbyrðis undir regnhlíf Jem-
aah Islamiyah en að þeir lúti yfir-
stjórn forystumanna úr al-Qaeda
sem séu í Kuala Lumpur, höfuðborg
Malasíu.
Reyes sagði að hlutfall múslima á
Filippseyjum væri minna en öfga-
samtök hefðu sig þar samt talsvert í
frammi. „Ég get t.d. nefnt Abu
Sayyaf-samtökin sem hafa sýnt að
þau hika ekki við að taka gísla, háls-
höggva þá og hreykja sér af því,“
sagði Reyes.
Varði hann þá ákvörðun stjórn-
valda á Filippseyjum að fá aðstoð
bandaríska hersins til þess verks að
ráða niðurlögum Abu Sayyaf.
Frá því snemma í desember hafa
alls 13 verið handteknir í Singapore,
22 í Malasíu og fjórir á Filippseyjum
í tengslum við rannsókn á starfi
hryðjuverkasamtaka. Reiknað er
með að fleiri handtökur fylgi í kjöl-
farið en fundist hafa gögn sem gefa
til kynna að net hryðjuverkamann-
anna nái víða.
Hefur m.a. verið lagt hald á tölvu-
gögn, ljósmyndir og myndbönd af
stöðum sem hryðjuverkamennirnir
hafa hugsanlega ætlað að gera árásir
á, hernaðarlandakort, nætursjón-
auka, handbækur um sprengjugerð,
auk mikils safns vopna.
Voru skotmörkin sem fyrr segir
mörg og margvísleg en tengdust í
flestum tilfellum Bandaríkjunum
með einum eða öðrum hætti. Rann-
sókn á ráðagerðum hryðjuverka-
manna í Singapore þykir t.d. hafa
leitt í ljós að áform hafi verið uppi
um hryðjuverk þar.
Segja sérfræðingar að starfsemi
og skipulagi al-Qaeda-sellunnar í
Singapore svipi mjög til þess sem á
daginn hefur komið um hryðju-
verkamennina sem stóðu fyrir árás-
unum á Bandaríkin 11. september sl.
Liðsmenn sellunnar í Singapore
munu t.d. hafa sótt þjálfunarbúðir í
Afganistan og eytt miklum tíma í að
skoða hugsanleg skotmörk sín vel og
vandlega. Líklegt þykir að þeir hafi
haft í hyggju að ráðast að mörgum
skotmörkum samtímis en þó er ekki
vitað hvenær þeir hugðust láta til
skarar skríða. Fyrri áform þeirra
miðuðust, að sögn stjórnarerindreka
í Singapore, m.a. við árás á rútu sem
notuð er til að ferja bandaríska sjó-
menn milli borgarhluta. Yfirmenn
al-Qaeda ku hins vegar hafa neitað
heimamönnunum um leyfi til að
hrinda verkefninu í framkvæmd.
Reuters
Bandarískir og filippeyskir hermenn við athöfn er markaði upphaf æfinga í Zamboanga á Filippseyjum.
Nýr kafli í
baráttunni
gegn hryðju-
verkum
600 bandarískir hermenn taka þátt
í þjálfun filippeyska stjórnarhersins
Fathur Rohman
al-Ghozi
Zamboanga, Manila, Singapore. AFP, The Los Angeles Times.
’ Stjórnarherlandsins verður
meira en fullfær um
að ráða niðurlögum
ykkar ‘
EINN af þekktustu ljósmyndurum
heims úr röðum kvenna, Inge
Morath, lést í New York í gær, 78
ára að aldri. Hún var jafnvíg á að
myndavélina og pennann og rit-
aði marga texta fyrir vin sinn,
ljósmyndarann Ernst Haas.
Morath giftist leikritaskáldinu
Arthur Miller árið 1962 en áður
hafði hún tekið ljósmyndir af
Miller og Marilyn Monroe er leik-
konan lék í kvikmyndinni The
Misfits árið 1960.
Miller sagði í gær að Morath
hefði „laðað fram ljóðið“ í fólkinu
og hlutunum sem hún tók myndir
af. Morath neitaði að gerast nas-
isti og var neydd til að starfa í
vopnaverksmiðju í heimsstyrjöld-
inni síðari en gerðist blaðamaður
eftir stríð. Robert Capa bauð á
sínum tíma Morath og Haas að
vinna fyrir Magnum-ljósmynd-
arasamtökin í París, skömmu eft-
ir að þau voru stofnuð.
Morath, sem var fædd 1923 í
Graz í Austurríki, hóf að taka
myndir í London 1951 og aðstoð-
aði Henri Cartier-Bresson við
heimildaöflun 1953–1954. Hún
varð félagi í Magnum 1955 og
ferðaðist næstu árin víða um
heim til að taka myndir og skrifa
greinar, þ. á m. í Evrópu, Norður-
Afríku og Miðausturlöndum. Eftir
að hún giftist Miller settist hún
að í Bandaríkjunum og samstarf
þeirra hjóna bar góðan árangur,
hún tók myndir en hann ritaði
fyrir hana texta og eru sum af
ritum þeirra nú talin sígild. Hún
sótti Sovétríkin heim en hóf árið
1972 að læra kínversku og fór í
sína fyrstu af mörgum Kínaferð-
um með Miller árið 1978. Þau
hjón eignuðust eina dóttur.
Morath var þekkt fyrir por-
trett-myndir af ýmsu þekktu
fólki, einnig eru frægar myndir
sem hún tók á heimili Boris Past-
ernaks og bókasafni Alexanders
Púskíns, einnig myndir af svefn-
herbergi Mao Tse Tungs. En sum-
ar af bestu myndum hennar eru
af óþekktu fólki á götunni.
Reuters
Inge Morath með eiginmanni
sínum, Arthur Miller.
Morath
látin í
New York
KAÞÓLSKA kirkjan á Írlandi hefur
samþykkt að greiða um 11 milljarða
íslenskra króna í bætur til þeirra,
sem beittir hafa verið líkamlegu eða
kynferðislegu ofbeldi í stofnunum á
hennar vegum. Skýrði írska ríkis-
stjórnin frá þessu í gær.
Írska ríkisstjórnin hefur ákveðið
að greiða það, sem upp á vantar, en
talið er, að heildarbótakrafan sé ein-
hvers staðar á bilinu 22 til 45 millj-
arðar króna. Á þingi er nú verið að
ræða stofnun sérstaks sjóðs í þessu
skyni.
Viðræður við fulltrúa kirkjunnar
um hennar hlut í skaðabótunum hafa
staðið í eitt ár en í tæp tvö ár hefur
sérstök nefnd verið að kanna mis-
notkun barna á írskum uppeldis-
stofnunum allt frá árinu 1940. Hafa
meira en 3.000 manns boðist til að
bera vitni fyrir nefndinni.
Nefndin var skipuð eftir að Bertie
Ahern, forsætisráðherra Írlands, bað
fórnarlömbin afsökunar fyrir hönd
þjóðarinnar í maí 1999 en þau búa
flest á Írlandi og í Bretlandi. Auk
þess hafa margir, sem nú búa utan
landsteinanna, til dæmis í öðrum
Evrópuríkjum, Kanada, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi og Suður-Afríku, gefið
sig fram.
Umfangsmikil lögreglurannsókn
stendur nú yfir á sumum stærstu
stofnununum og hafa meira en 20
manns í ýmsum kirkjufélögum verið
fangelsaðir. Hafa sum þessara
kirkjufélaga beðið fórnarlömbin af-
sökunar en mörg þeirra hafa höfðað
einkamál gegn viðkomandi stofnun-
um.
Um það samdist milli ríkis og
kirkju, að tæki hún þátt í bótagreiðsl-
unum, þyrfti hún ekki að óttast frek-
ari málshöfðanir af þessu tagi. Þá
fylgir það líka með, að taki einhver
við bótum, þá skuldbindur hann sig
til að falla frá málshöfðunum.
Almenningur borgar
Eamonn Walsh biskup, sem situr í
sérstakri barnaverndarnefnd kaþ-
ólskra biskupa, segir að kirkjan sé
mjög örlát í greiðslum sínum en sam-
tök þeirra, sem berjast gegn kynferð-
islegri misnotkun, og stjórnarand-
stæðingar á þingi, segja að hún hafi
sloppið vel. Almenningur í landinu
eigi ekki að borga fyrir misgerðir
kirkjunnar manna.
Virðing manna fyrir kaþólsku
kirkjunni á Írlandi hefur minnkað
mikið enda má segja að hvert
hneykslismálið hafi rekið annað allan
síðasta áratug. Eamonn Casey bisk-
up varð uppvís að því 1992 að eiga
óskilgetinn son í Bandaríkjunum og
hafði hann greitt með honum af fé
kirkjunnar. Flýði hann þá land og
settist að í Suður-Ameríku. Finnst
Írum raunar lítið til þessa koma nú
enda fylgdu mörg á eftir miklu alvar-
legri.
Bannhelgin rofin
Árið 1994 féll írska ríkisstjórnin
vegna ásakana um að hún hefði huns-
að kröfu um að presturinn Brendan
Smyth yrði framseldur til Norður-Ír-
lands þar sem hann var sakaður um
að hafa nauðgað kórdrengjum. Var
hann að lokum dæmdur í báðum ríkj-
unum fyrir að hafa misnotað meira en
30 börn allt frá árinu 1958. Leiðtogar
kirkjunnar viðurkenndu að þeir
hefðu fyrir löngu vitað um ásakanirn-
ar á hendur honum en kosið að færa
hann á milli sókna fremur en að af-
henda hann lögreglunni.
Málið gegn Smyth varð til að rjúfa
þá bannhelgi, sem hvílt hefur yfir
þessum málum á Írlandi, og máls-
höfðanirnar gegn kirkjunni urðu
brátt að mikilli skriðu. Ein afleiðing
þessa er sú að á síðustu árum hefur
kirkjusókn minnkað ár frá ári.
Misnotkun barna á kaþólskum stofnunum á Írlandi
Kirkjan fellst á
greiðslu skaðabóta
Dyflinni. AP, AFP.