Morgunblaðið - 01.02.2002, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
FRAMTÍÐARUPPBYGGING LANDSPÍTALA
AÐFÖR AÐ VERÐBÓLGUNNI
Ríkisstjórn Íslands kynnti í gæraðgerðir til þess að stuðla aðlækkun vísitölu neysluverðs.
Komugjald á dagvinnutíma á heilsu-
gæslustöðvum verður lækkað og hækk-
un komugjalda utan dagvinnutíma dreg-
in til baka. Fastagjald til sérfræðilækna
verður lækkað og hækkun á afnotagjöld-
um ríkisútvarpsins um 7% verður dregin
til baka. Samanlagt munu þessar að-
gerðir lækka vísitölu neysluverðs í febr-
úar um 0,14% en gjaldskrárhækkanir
ríkisins um áramót hækkuðu janúarvísi-
töluna um 0,16%.
Jafnframt verður fallið frá hækkun
áfengisgjalds en ekki var komin tíma-
setning á þá hækkun. Þessar aðgerðir
munu kosta ríkissjóð 750 milljónir króna
miðað við heilt ár og eru heildaráhrifin
til lækkunar vísitölunnar 0,2%.
Frá því að Hagstofa Íslands kynnti
0,9% hækkun vísitölu neysluverðs milli
desember og janúar hefur forysta ASÍ
beitt sér fyrir því með virkum hætti að
ríki, sveitarfélög og fyrirtæki taki þátt í
að berjast við verðbólgudrauginn. Ár-
angurinn af þessu starfi ASÍ er veruleg-
ur. Sveitarfélög hafa dregið gjaldskrár-
hækkanir til baka og fyrirtæki lækkað
vöruverð. Á ASÍ hrós skilið fyrir þetta
framtak.
Nú hefur ríkisstjórn Íslands staðið við
fyrirheit sitt um að draga til baka að
verulegu leyti þann hlut sem ríkið átti í
hækkun vísitölu neysluverðs í janúar og
gott betur. Því ber að fagna að ríkis-
stjórnin hefur lagt sitt af mörkum til
þess að samkomulag aðila vinnumarkað-
arins frá lokum síðasta árs standi. Vísi-
tala neysluverðs stóð í 221,5 stigum við
síðustu mælingu en í samkomulagi aðila
vinnumarkaðar er sett sem verðbólgu-
viðmið að vísitala neysluverðs verði ekki
hærri en 222,5 stig í maí. Standist sú for-
senda ekki, eru launaliðir kjarasamn-
inga uppsegjanlegir með þriggja mán-
aða fyrirvara. Því má vísitalan ekki
hækka nema um tæplega hálft prósentu-
stig á næstu fjórum mánuðum svo ekki
komi til uppsagnar kjarasamninga.
Óhætt er að taka undir orð utanríkisráð-
herra, Halldórs Ásgrímssonar, frá því
fyrr í mánuðinum að það skiptir höfuð-
máli að það standi og miða aðgerðirnar
nú að því að svo verði.
Í dag mun Seðlabanki Íslands kynna
verðbólguspá sína og eru væntingar um
að hann muni einnig boða vaxtalækkun.
Ljóst er að bankinn er undir miklum
þrýstingi um að lækka stýrivexti í dag og
verður fróðlegt að sjá hvort stjórn bank-
ans telji það tímabært nú eins og flestir
gera sér vonir um. Það væri mikilvægt
framlag Seðlabankans til þeirra aðgerða
sem rík samstaða er um í þjóðfélaginu.
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri
segir að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að afturkalla 7% hækkun á afnotagjöld-
um RÚV komi ekki til með að hafa áhrif
á rekstur ríkisútvarpsins á þessu ári. Í
Morgunblaðinu í dag kemur fram hjá
Davíð Oddssyni forsætisráðherra að
stjórnvöld muni bæta RÚV upp hækk-
unina með sérstakri fjárveitingu úr rík-
issjóði. Ekki skal gert lítið úr rekstrar-
vanda RÚV. Hins vegar hefði verið
eðlilegra, þegar tekin var ákvörðun á
sínum tíma um hækkun afnotagjalda, að
knýja forráðamenn stofnunarinnar til
róttækra sparnaðaraðgerða. Það á að
gera nú áður en gripið er til sérstakra
fjárveitinga úr ríkissjóði.
Starfsnefnd um framtíðaruppbygginguháskólasjúkrahúss hefur nú skilað
frá sér áliti þar sem lagt er til að öll starf-
semi Landspítala - háskólasjúkrahúss
verði á einum stað í framtíðinni. Af þeim
þremur stöðum, sem verið hafa til athug-
unar, leggur nefndin til að Hringbraut
verði fyrir valinu, enda muni þar rísa
þungamiðja þekkingar og rannsókna, svo
vitnað sé í Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra. Hann lýsti yfir því um leið og
hann kynnti tillögur nefndarinnar, sem
hann skipaði í maí á liðnu ári, að hann
hefði þegar gert þær að sínum og yrði
næsta skrefið að kynna málið í ríkisstjórn
og fá heimild til að skipa starfshóp til að
undirbúa frekari vinnu.
Starfsnefndin kannaði fjóra kosti, tvær
útfærslur af því hvernig byggja mætti
spítalinn upp við Hringbraut og framtíð-
arstæði í Fossvogi annars vegar og á Víf-
ilsstöðum hins vegar. Hallaðist nefndin
helst að kosti, sem nefndur er Hringbraut
II. Þar er gert ráð fyrir því að meginupp-
bygging fari fram á suðurhluta lóðarinnar
við Hringbraut en núverandi mannvirki
verði notuð að mestu óbreytt á norður-
hlutanum. Áætlaður kostnaður við þann
kost er 31,1 milljarður, sem er rétt rúm-
um milljarði meira en sá kostur, sem
nefnist Hringbraut I og gerir ráð fyrir
meiri uppbyggingu á norðurhluta lóðar-
innar. Sýnu meiri kostnaður yrði við upp-
byggingu í Fossvogi og á Vífilsstöðum eða
38,6 milljarðar og 40,2 milljarðar.
Öllum þeim kostum, sem ræddir hafa
verið, fylgja bæði kostir og gallar. Í Foss-
vogi og á Vífilsstöðum er mikið land og
svigrúm. Það kann að vera þrengra um
sjúkrahússtarfsemina við Hringbraut, en
þar eru þó einnig miklir möguleikar.
Rökstuðningur nefndarinnar fyrir því
að hafa starfsemina á einum stað var rak-
inn í Morgunblaðinu í gær. Nefndin telur
að þannig aukist skilvirkni þegar spítal-
inn verði allur á afmörkuðu landsvæði,
það komi sjúklingum til góða að geta
gengið að allri þjónustu á einum stað,
samvinna innan sérgreina og milli þeirra
eflist, meiri árangur náist í faglegu starfi
og samþjöppun sérþekkingar leiði til
betri þjónustu við sjúklinga, meiri virkni í
vísindastarfi og markvissari kennslu heil-
brigðisstétta. Í skýrslu nefndarinnar um
þá niðurstöðu að sjúkrahúsið eigi að vera
við Hringbraut segir að aðgengi verði
gott að loknum fyrirhuguðum fram-
kvæmdum, lóðin liggi vel við almennings-
samgöngum auk þess sem fyrirhugað sé
að reisa umferðarmiðstöð í næsta ná-
grenni og nálægð við Háskóla Íslands,
sem hyggist efla mjög vísindi og rann-
sóknir, veiti kennslu- og fræðahlutverki
Landspítala - háskólasjúkrahúss stuðn-
ing og efli samtímis þjónustu við sjúk-
linga. Talað er um mikla möguleika á
áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.
Allt eru þetta sannfærandi röksemdir.
Um leið er mikilvægt að komin sé nið-
urstaða. Miklar vangaveltur hafa verið
um framtíð sjúkrahúsmála á höfuðborg-
arsvæðinu, enda skiptir hún máli fyrir
landið allt. Nú er aflétt ákveðinni óvissu.
Því má hins vegar ekki gleyma að fram-
kvæmdatími við þann kost, sem nefndin
valdi, er 14 ár og það er ugglaust nokkuð í
það að framkvæmdir hefjist. Það þarf því
að tryggja að á meðan á framkvæmdum
stendur verði ekki slakað á kröfum hjá
þeim stofnunum, sem þegar þar að kemur
munu flytja starfsemi sína að Hringbraut,
en um leið verði, eins og heilbrigðisráð-
herra hyggst kappkosta, allar ákvarðanir
teknar í samræmi við þessar tillögur.
KOLBRÚN Halldórsdótt-ir, þingmaður Reykvík-inga, er fyrsti flutnings-maður þingsálykt-
unartillögu Vinstri hreyfingarinnar
– græns framboðs, en að henni
standa þó allir þingmenn flokksins.
Í henni felst að Alþingi álykti að
fram skuli fara þjóðaratkvæða-
greiðsla um framtíð hálendisins
norðan Vatnajökuls. Kjósendur geti
valið milli tveggja kosta, annars
vegar núverandi áforma um Kára-
hnjúkavirkjun með virkjun Jökuls-
ár á Dal og Jökulsár í Fljótsdal
ásamt tilheyrandi stíflum, vatna-
flutningum, veitum og öðrum
tengdum framkvæmdum, og hins
vegar frestun ákvarðana um fram-
tíðarnýtingu svæðisins uns tekin
hefur verið afstaða til verndunar
þess og stofnunar þjóðgarðs með
einu stærsta ósnortna víðerni Evr-
ópu. Einnig liggi þá fyrir endanleg
rammaáætlun um nýtingu vatnsafls
og jarðvarma með flokkun virkj-
anakosta, stefnumótun um framtíð-
arskipan orkumála og áætlun um
orkunýtingu til lengri tíma.
Gerð er tillaga um að atkvæða-
greiðslan fari fram samhliða sveit-
arstjórnarkosningum 25. maí 2002.
Dómsmálaráðherra setji nánari
reglur um atkvæðagreiðsluna í
samráði við allsherjarnefnd, um-
hverfisnefnd og iðnaðarnefnd Al-
þingis. Heimilt verði að verja allt að
20 millj. kr. til að kynna þau meg-
insjónarmið sem um verði kosið og
skal upphæðinni skipt jafnt milli
málsvara fyrrgreindra meginsjón-
armiða enda sé um að ræða heildar-
samtök eða samstarfsvettvang aðila
sem deila sjónarmiðum í málinu.
Mestu framkvæmdir sem ráð-
gerðar hafa verið hérlendis
Kolbrún mælti fyrir tillögunni
með þeim orðum að nái hún fram að
ganga fari samhliða sveitarstjórn-
arkosningum fram þjóðaratkvæða-
greiðsla um mestu framkvæmdir
sem ráðgerðar hafi verið hérlendis
og hafa myndu óafturkræf áhrif á
náttúru landsins á stóru svæði. Að
baki liggi harðar deilur um Kára-
hnjúkavirkjun og hugmyndir um
aðrar virkjanir á þessu svæði og úr-
skurður umhverfisráðherra frá 20.
desember sl. sem flestir viðurkenni
að byggður sé á „þröngum pólitísk-
um viðhorfum“.
Sagði hún fjölmargar ástæður
renna stoðum undir þá hugmynd að
frekari framvinda málsins verði
ráðin í lýðræðislegri atkvæða-
greiðslu sem allir atkvæðisbærir
landsmenn geti tekið þátt í. „Sam-
hliða sveitarstjórnarkosningum
innan fárra mánaða gefst kostur á
að framkvæma slíka atkvæða-
greiðslu án mikils umstangs og til-
kostnaðar og áður en fyrirhugað er
að teknar verði ákvarðanir um
framkvæmdir.“
Vísaði hún einnig til þess að með
úrskurði sínum hefði umhverfisráð-
herra hafnað því að taka afstöðu til
hugmyndarinnar um stofnun þjóð-
garðs norðan Vatnajökuls og einnig
hafnað alfarið kröfunni um það að
landið, sem færi undir fyrirhugaða
Kárahnjúkavirkjun, verði metið til
fjár með þeim aðferðum sem hag-
fræðingar hafa þróað til slíkra nota
og kallaðar eru skilyrt verðmæta-
mat.
„Kannanir, sem gerðar hafa verið
um afstöðu almennings til Kára-
hnjúkavirkjunar, hafa sýnt að and-
stæðar skoðanir eru uppi um fram-
kvæmdina og að þjóðin skiptist í
fylkingar í afstöðu sinni,“ sagði Kol-
brún ennfremur og sagði ljóst að al-
menningur láti sig þessi mál miklu
skipta. Hér væri um óafturkræfar
aðgerðir að ræða sem kæmu til með
að hafa áhrif löngu eftir daga þeirra
sem nú bera ábyrgð á náttúru Ís-
lands og byggja íslenskt samfélag.
„Flutningsmenn tillögunnar eru
andvígir stóriðjuáformum ríkis-
stjórnarinnar og byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar og hafa ítrekað
gert grein fyrir afstöðu sinni til
málsins. Í ljósi eðlis þessa máls og
hversu afdrifarík niðurstaða í því
getur orðið fyrir nútíð og komandi
kynslóðir telja flutningsmenn full
rök standa til að gefa öllum kosn-
ingabærum mönnum tækifæri til að
taka afstöðu til framhalds þess í al-
mennri atkvæðagreiðslu. Með
kosningunni yrði tryggt að ekki
yrði af byggingu Kárahnjúkavirkj-
unar í andstöðu við vilja meirihluta
þjóðarinnar,“ sagði Kolbrún Hall-
dórsdóttir ennfremur í framsögu-
ræðu sinni.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, vitnaði í
gamlan afrískan málshátt sem orðið
hefur fleygur um heim allan á síðari
árum í tengslum við vakningu í um-
hverfismálum og gengur út á að
minna okkur á að við höfum ekki
erft jörðina frá forfeðrum okkar,
heldur höfum við hana að láni frá
börnum okkar. „Og það sem maður
hefur að láni, því á maður að skila
aftur jafngóðu,“ sagði hann.
Sagði hann vilja Vinstri hreyfing-
arinnar – græns framboðs standa til
þess að leggja hin gríðarstóru, um-
deildu og afdrifaríku áform um
stórvirkjun á hálendinu norðan
Vatnajökuls í dóm þjóðarinnar
sjálfrar og landsmönnum verði gef-
inn kostur á að kynna sér betur
helstu staðreyndir málsins gegnum
málflutning talsmanna meginsjón-
armiða í málinu. Þannig verði lýð-
ræðið virkjað beint og milliliðalaust
og þjóðin taki sjálf af skarið um
framhaldið.
Umhverfisráðherra andvígur
tillögu um þjóðaratkvæði
Siv Friðleifsdóttir (B) umhverf-
isráðherra sagðist ekki telja eðli-
legt að samþykkja tillöguna og
nefndi hún fjórar ástæður helstar
fyrir þeirri afstöðu sinni. Í fyrsta
lagi væru valkostirnir sem kjósa
ætti um óskýrir, í öðru lagi teldi hún
tillöguna óþarfa þar sem líkur væru
á pólitískri samstöðu um virkjana-
heimild til Kárahnjúkavirkjunar
þegar alþingismenn greiði um hana
atkvæði síðar á þessu þingi. Í þriðja
lagi benti hún á að sú framkvæmd
sem um ræddi væri ekki ný af nál-
inni og gert hefði verið
henni í svæðisskipulagi m
isins um nokkurra ára s
allt frá síðasta kjörtímabili
almenningur haft „einstak
an aðgang“ að ákvarða
tengslum við þessi verke
aðgang en tíðkist gagnva
stjórnvaldsákvörðunum. B
á að margir hefðu nýtt sér
komu og sent inn athuga
ýmsum stigum sem tekið h
ið mark á. M.a. hafi þær
margra af þeim skilyrðum
ist hafi í úrskurði umhv
herra þar sem fallist var á
ismat virkjunarinnar.
Flokkssystir umhverfisr
Valgerður Sverrisdóttir
ráðherra, lýsti sig einnig
megininntaki tillögu
grænna. Sagði hún allt t
ætlunin sé að fórna hálend
úr lausu lofti gripið, enda
armál lóna Kárahnjúkav
ekki nema 66 ferkílómet
vart gæti talist stór hluti a
þúsund ferkílómetrum sem
ið teldi. „Við munum áfr
stærstu ósnortnu víðerni í
sagði hún.
„Orð mín má ekki skilja
að ég vantreysti þjóðinni e
niðurstöðu hennar. Tilla
Útvarpsumræða á Alþingi í gær um þjóðaratkv
Þjóðin fái að lá
sitt í þjóðaratkv
Skiptar skoðanir komu fram í umræðu um
þingsályktunartillögu Vinstri grænna um
Kárahnjúkavirkjun á Alþingi í gær. Í til-
lögunni er gert ráð fyrir að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð há-
lendisins norðan Vatnajökuls, þar sem
m.a. er áformað að reisa Kárahnjúkavirkj-
un og mynda uppistöðulón.
Kolbrún Halldórsdó
STEINGRÍMUR J. Sigfúss
maður Vinstri grænna, va
aður af Halldóri Blöndal, f
Alþingis, fyrir ummæli sem
lét falla um Össur Skarphé
formann Samfylkingarinn
ræðunni um framtíð hálen
norðan Vatnajökuls á Alþi
gær.
Steingrímur hafði í ræð
beinni útsendingu útvarps
varps sagt þetta um afstöð
urar Skarphéðinssonar til
hnjúkavirkjunar: „Ég verð
segja alveg eins og er, her
seti, að mér fannst formað
fylkingarinnar með málflu
sínum hér áðan gera sig en
anlega að skoffíni í umfjöl
þetta mál, eins og hann sti
unum upp.“
Forseti Alþingis beið me
sínar þar til útsendingu í ú
var lokið, en sagði þá að þ
Formaðu
ur fyrir u