Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 47
TÆKNISKÓLI Íslands útskrifaði
166 nemendur laugardaginn 26.
janúar síðast liðinn, langfjölmenn-
asta hópinn frá upphafi. Nem-
endur voru frá öllum 6 deildum
skólans, þ.e. frumgreinadeild,
byggingadeild, heilbrigðisdeild,
rafmagnsdeild, rekstrardeild og
véladeild. Útskriftin fór fram í
Grafarvogskirkju.
Rekstrardeild er stærsta deild
Tækniskólans og þaðan voru út-
skrifaðir alls 107 nemendur. Þar
af voru 61 með diploma ýmist af
rekstrar-eða markaðssviði og einn
sem lauk prófi af báðum sér-
sviðum. Námið tekur tvö ár. Einn-
ig útskrifuðust 46 nemendur með
B.Sc. gráðu, þar af 15 vörustjórn-
unarfræðingar og 31 alþjóðamark-
aðsfræðingur.
Frumgreinadeild TÍ útskrifaði
11 nemendur með raungreina-
deildarpróf sem veitir þeim rétt til
frekara náms á háskólastigi, hér-
lendis sem erlendis.
Tveir nemendur, Magnús Krist-
inn Sigurðsson og Stefán Ómar
Sigurðsson, fengu viðurkenningar
fyrir mjög góðan námsárangur í
deildinni.
Frá byggingadeild útskrifuðust
15 nemendur. Af þeim eru 8 bygg-
ingatæknifræðingar og 7 sem lokið
hafa námi í byggingaiðnfræði, þar
af 2 sem byggingaiðnfræðingar.
5 iðnaðartæknifræðingar út-
skrifuðust með sérhæfða B.Sc.
gráðu ýmist á sviði þróunar og
sjálfvirkni eða á sviði iðn-
vörumarkaðs. Frá rafmagnsdeild
luku 6 rafiðnfræðingar prófi og úr
véladeild luku 12 manns námi, 7
véliðnfræðingar, 2 orkutæknifræð-
ingur og 3 véltæknifræðingar.
Frá heilbrigðisdeild útskrifuðust
12 meinatæknar. Tók einn úr
þeirra hópi lokaverkefni sitt, sem
Nordplus nemandi, við Malmö
Högskola og 8 unnu lokaverkefni
sín á rannsóknastofum utan
sjúkrahúsanna.
Viðurkenningar veittar
Jóhannes Benediktsson formað-
ur Tæknifræðingafélags Íslands
færði nýjum tæknifræðingum við-
urkenningu félagsins fyrir loka-
verkefni og hagnýtt gildi þeirra.
Einar Rafn Guðmundsson og
Steinar Jens Gíslason, véltækni-
fræðingar, hlutu viðurkenningu
TFÍ fyrir verkefni sitt „Ísgámur
með sjálfvirkum losunarbúnaði“
sem og byggingatæknifræðing-
arnir Birgir Leo Ólafsson fyrir
lokaverkefni sitt „Brú yfir Ölfusá,
þrír valkostir“ og Sævar Þór
Ólafsson fyrir lokaverkefnið
„Magnskrúfan, – prófanir og notk-
unarmöguleikar“.
Forstjóri Iðntæknistofnunar,
Hallgrímur Jónasson, afhenti verð-
laun og viðurkenningu fyrir loka-
verkefni í iðnrekstrarfræði. Þær
Anna Karen Arnarsdóttir, Auður
Kristín Þorgeirsdóttir og Guðfinna
Helgadóttir hlutu þau fyrir mark-
aðsverkefni sem unnið var fyrir
Sláturfélag Suðurlands. Þær könn-
uðu stöðu 1944 réttanna á neyt-
endamarkaði. Fulltrúi SS færði
þeim einnig viðurkenningu fyr-
irtækisins.
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
afhenti þeim Ingólfi Péturssyni og
Kristjáni Kristjánssyni farand-
styttu og viðurkenningarskjal fyrir
hagnýtt gildi lokaverkefnis í vöru-
stjórnun sem þeir unnu fyrir Aust-
urbakka en frá fyrirtækinu kom
Ágúst Þórðarson, aðstoðarforstjóri
og færði þeim þakkir fyrirtæk-
isins. Verkefnið heitir „Vöru-
stjórnun og hagkvæmni strika-
merkja“. Útflutningsráð veitir
nýjum alþjóðamarkaðsfræðingum
farandbikar og viðurkenningu fyr-
ir vel unnið lokaverkefni. Jón Ás-
bergsson, framkvæmdstjóri Út-
flutningsráðs, sá um afhendinguna
til þeirra Hildar Helgu Lúth-
ersdóttur og Þórhalls Há-
konarsonar fyrir verkefni þeirra
„Innkoma Össurar á Kínamarkað“.
Frá Össuri kom Kolbeinn Björns-
son, sölu- og markaðsstjóri og
þakkaði þeim fyrir hönd fyrirtæk-
isins. Allir nemar rekstrardeildar
hlutu jafnframt viðurkenningu og
styrk frá deildinni.
Morgunblaðið/Ómar
Tækniskólinn útskrifaði 166 nemendur í Grafarvogskirkju laugardaginn 26. janúar 2002.
Brautskráning frá Tækniskóla Íslands
Friðun hrygningarþorsks
Í korti með frétt í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær um veiðibann
vegna friðunar hrygningarþorsks
kom ranglega fram að allar veiðar
innan 3ja sjómílna frá Gjögurtá aust-
ur um að Stokksnesi, innan 3ja sjó-
mílna við Grímsey og í Ísafjarðar-
djúpi, bannaðar frá 15. apríl til 21.
apríl. Hið rétta er að veiðar á um-
ræddum svæðum eru bannaðar frá
15. apríl til loka aprílmánaðar og
leiðréttist það hér með. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
FRÆÐSLUFUNDIR verða
haldnir á vegum Félags eldri
borgara í Reykjavík og ná-
grenni í Ásgarði, Glæsibæ, fé-
lagsheimili Félags eldri borg-
ara og nágrenni, sem hér segir:
Laugardaginn 9. febrúar kl.
13.30. Minnkandi heyrn hjá
öldruðum, flytjandi, Hannes
Petersen yfirlæknir Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi og íslenskar lækningajurt-
ir, flytjandi, Sigmundur
Guðbjarnason, prófessor Há-
skóla Íslands. Laugardaginn
16. mars kl. 13.30. Krabbamein
í brjóstum eldri kvenna, flytj-
andi, Helgi Sigurðsson, yfir-
læknir Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss v. Hringbraut, og
Alzheimer-sjúkdómar og minn-
istap, flytjandi, Jón Snædal, yf-
irlæknir Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, Landakoti.
Laugardaginn 13. apríl kl.
13.30. Hóprannsóknir á vegum
Hjartaverndar, flytjandi, Vil-
mundur Guðnason, forstöðu-
læknir Hjartaverndar. Á eftir
hverju erindi gefst tækifæri til
spurninga og umræðna.
Aðgangseyrir er kr. 300 og
er kaffi innifalið. Allir velkomn-
ir, segir í frétt frá Fræðslu- og
kynningarnefnd Félags eldri
borgara í Reykjavík og ná-
grenni.
Fræðslu-
fundir fyrir
aldraða
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá menntahópi
Samtaka atvinnulífsins:
„Menntakerfið er ein af megin-
stoðum atvinnulífsins og þess vegna
til baga að lengd grunn- og fram-
haldsskóla sé ósambærileg við helstu
samkeppnislönd okkar. Aukin hag-
ræðing í menntakerfinu er mikil-
vægur liður í að auka alþjóðlega
samkeppnishæfni skóla og fyrir-
tækja.
Samtök atvinnulífsins hafa bent á
það í áhersluatriðum sínum að fækka
beri grunnskólaárum í níu og fram-
haldsskólaárum í þrjú og að tíma-
bært sé að innleiða samkeppnishugs-
un í skólakerfið, gera árangur skóla
sýnilegan og bjóða út rekstrarþætti
á grundvelli gæða.
Menntahópur SA fagnar þess
vegna því framtaki VR að fá Hag-
fræðistofnun HÍ til að vinna skýrslu
um styttingu grunn- og framhalds-
skóla. Skýrslan styður við það sam-
eiginlega álit samtakanna að ríki og
sveitarfélögum beri að hefja vinnu
við að hagræða í skólakerfinu.“
SA vilja styttingu
í skólakerfinu
NÁMSKEIÐ um leikritun hefst hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ þriðju-
daginn 5. febrúar. Námskeiðið er
haldið í samstarfi við Þjóðleikhúsið
og er ætlað öllum sem hafa áhuga á
því að skrifa fyrir leikhús.
Aðalkennarar eru Karl Ágúst
Úlfsson leikari, Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri, Melkorka Tekla
Ólafsdóttir leiklistarráðunautur,
Þórhallur Sigurðsson leikstjóri og
Hlín Agnarsdóttir leikskáld og leik-
stjóri. Þá munu leikarar Þjóðleik-
hússins, í samvinnu við höfunda og
kennara, túlka þá leiktexta sem
verða til í verklegum æfingum. Einn-
ig fá þátttakendur tækifæri til að
vera viðstaddir æfingar í Þjóðleik-
húsinu og ræða við ýmsa þá sem
koma að uppsetningu leiksýningar.
Kennt verður tíu kvöld og lýkur
námskeiðinu 9. apríl.
Frekari upplýsingar og skráning
eru á vefsíðunni www.endurmennt-
un.is og í síma segir í fréttatilkynn-
ingu.
Námskeið
um leikritun
LÖGREGLAN lýsir eftir vitnum að
háskaakstri aðfaranótt sunnudags-
ins 12. ágúst sl.
Vitni bera að þá hafi Volkswagen
Golf bifreið verið ekið með ofsahraða
afturábak niður Ingólfsstræti og
munaði hársbreidd að tvær stúlkur
yrðu fyrir bifreiðinni. Þrír piltar
stóðu við gangstéttarbrún og kipptu
stúlkunum upp á gangstéttina til að
forða þeim frá bifreiðinni. Í geðs-
hræringu sinni mun önnur stúlkan
hafa sparkað í bifreiðina. Ágreining-
ur er um atvik.
Áður en lögregla kom á vettvang
fóru þessir þrír piltar af vettvangi og
óskar lögreglan í Reykjavík eftir að
viðkomandi hafi samband við lög-
regluna í síma 569-9104.
Lýst eftir vitnum
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 2. febrúar kl. 11 og
verður gengið frá húsakynnum fé-
lagsins í Ármúla 5.
Gert er ráð fyrir klukkutíma
göngu sem ætti að henta flestum.
Einn af kennurum hópþjálfunar
gengur með hópnum og sér um létta
upphitun í byrjun og teygjur í lokin.
Gönguferð um
Laugardalinn
VAKA heldur hádegisfund í
Læknagarði í dag, föstudaginn
1. febrúar, kl. 12. Fundurinn
ber yfirskriftina: „Inntökupróf
í læknadeild – til góðs eða ills?“
Fundarmenn verða: Kristján
Erlendsson, formaður kennslu-
ráðs læknadeildar, Stefán B.
Sigurðsson, varadeildarforseti
læknadeildar, Gísli Engilbert
Haraldsson, formaður félags
læknanema, og Sigríður Anna
Þórðardóttir, formaður
menntamálanefndar Alþingis.
Að loknum framsögum fund-
armanna verður opnað fyrir
spurningar úr sal.
Fundur um
inntökupróf
í læknadeild
TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur
atkvöld mánudaginn 4. febrúar
kl. 20. Fyrst eru tefldar þrjár
hraðskákir þar sem hvor kepp-
andi hefur 5 mínútur til að ljúka
skákinni og síðan þrjár atskák-
ir, með tuttugu mínútna um-
hugsun.
Sigurvegarinn fær mat fyrir
tvo frá Dominos-pizzum og
einnig einn keppandi sem dreg-
inn verður út.
Þátttökugjöld eru 300 kr.
fyrir félagsmenn, 200 kr. fyrir
15 ára og yngri og 500 kr. fyrir
aðra, 300 kr. fyrir 15 ára og
yngri. Allir velkomnir.
Atkvöld
Taflfélagsins
Hellis
ÍSLANDSPÓSTUR sendi kynning-
arefni til allra heimila á landinu í
desember síðastliðnum. Þar var
kynntur jólaleikur Íslandspósts og
Rásar 2, ásamt helstu upplýsingum
um jólapóstinn. Margir sendu inn
svarsendingar til og var dregið úr
lukkupottinum á Rás 2 hinn 17. des-
ember sl.
Tíu einstaklingar unnu sér inn
bókina Höll minningana frá Vöku-
Helgafelli, en þeir voru; Svanhildur
Eyjólfsdóttir, Sigmundur Eiríksson,
Sigríður Hálfdánsdóttir, Ragnheið-
ur Björnsdóttir, Andrés Ari Ott-
ósson, Þorsteinn Magnússon, Magn-
ea Baldursdóttir, Guðmann
Skæringsson, Valdimar Einarsson
og Rósa Andersen.
Það var síðan Freyja Ösp Burkna-
dóttir frá Suðureyri sem hlaut 1.
vinninginn og fékk hún í verðlaun
helgarferð fyrir tvo til borgar í Evr-
ópu með Flugleiðum frá Íslands-
pósti, segir í fréttatilkynningu.
Freyja Ösp tekur við gjafabréfi
fyrir ferðinni úr hendi Hörpu
Helgadóttur, markaðs- og kynn-
ingarfulltrúa hjá Íslandspósti.
Vinningshafar
í jólaleik SÓLARKAFFI og aðalfundur Norð-firðingafélagsins í Reykjavík og ná-
grenni verða haldin sunnudaginn 3.
febrúar í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju kl. 15.30. Kaffihlaðborð, að-
gangeyrir er kr. 1.000.
Lesið verður upp úr nýútkominni
bók eftir Júlíus Þórðarson Skorra-
stað, segir í frétt frá stjórn Norðfirð-
ingafélagsins.
Sólarkaffi
Norðfirðinga-
félagsins
„VIÐSKIPTAVINUM Tals hf.
býðst nú að fá stjörnuspá frá vef-
svæðinu Spámaður.is beint í GSM-
símann sinn. Spáin hefur notið mik-
illa vinsælda á vefnum, en Spámað-
ur.is er orðinn 13. vinsælasta
vefsvæði landsins samkvæmt sam-
ræmdri vefmælingu. Íslensku spá-
dómsspilin sem komu út fyrir síð-
ustu jól eiga einmitt rætur að rekja
til þessa vefsvæðis,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá Tali.
Hægt er að kynna sér spána á vef-
svæðinu www.spamadur.is en skrán-
ing fer fram á heimasíðu Tals,
www.tal.is.
Stjörnuspáin
í farsímann