Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Playa de Rodas kemur í dag. Mánafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Hvilvtenni kom í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl. 12.45 dans, kl. 13 bókband. Bingó fellur niður vegna þorrablóts- ins í dag, húsið opnað kl. 18. Árskógar 4. Kl. 13– 16.30 opin smíðastofan. Allar upplýsingar í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–12 bók- band, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 10–17 fótaað- gerð, kl. 13 frjálst að spila og glerlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Jóga á föstudögum kl. 11. Púttkennsla í íþrótta- húsinu kl. 11 á sunnu- dögum. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara í Kópavogi. Bingó í dag kl. 14. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjá- bakka) kl. 20.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10.30 guðþjónusta, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13. „Opið hús“, spil- að á spil. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Í dag kl. 14 koma gestir í heimsókn frá Hrafnistu í Hafn- arfirði. Kórsöngur, kín- versk leikfimi, hring- dansar og fleira. Kaffiveitingar. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Myndlist kl. 13, bridge kl. 13.30. Fimmtud. 7. feb. Verður farið í heimsókn í Menningar- miðstöðina Gerðuberg að skoða þýskar tísku- ljósmyndir frá 1945– 1995. Kaffi og óvæntar uppákomur. Rúta frá Hraunseli kl. 13.30. Skráning í Hraunseli, s. 555-0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádeginu. Sunnudagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyr- ir dansi. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara Söng og gam- anleikinn „Í lífsins ólgu- sjó“, minningar frá ár- um síldarævintýranna í samantekt: Guðlaugar Hróbjartsdóttur, Bryn- hildar Olgeirsdóttur, Bjarna Ingvarssonar og leikhópsins. Og “Fugl í búri“, dramatískan gamanleik eftir syst- urnar Iðunni og Krist- ínu Steinsdætur. Frum- sýning sunnudaginn 3. febrúar. Sýningar sunnudaga kl. 16, mið- vikudaga kl. 14 og föstudaga kl. 14. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Miðapantanir í síma: 588-2111, 568- 8092 og 551-2203. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10–16, s. 588-2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14. brids. Op- ið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi, spila- salur opinn. Miðviku- daginn 6. feb. þorra- hlaðborð í veitingabúð í hádeginu, skráning haf- in. Föstudaginn 8. feb. kl. 16 opnuð myndlist- arsýning Braga Þórs Guðjónssonar. Veitingar í veitingabúð. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 rammavefnaður, kl. 13 bókband, kl. 13.15 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 glerlist, bingó kl. 14. Hraunbær 105. Kl. 9– 12 baðþjónusta, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 9 handa- vinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, leikfimi og postulín, kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð og hársnyrting. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10 boccia. Þorrablót verð- ur haldið föstud. 8. feb. kl. 19. Ásta Bjarnadótt- ir leikur létt lög, Upp- lestur, fjöldasöngur, veislustjóri Gunnar Þorláksson, hljómsveit Ragnars Levi leikur fyrir dansi. Aðgangs- miði gildir sem happ- drættismiði. Skráning í s. 568-6960. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl. 13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30 kaffi og dansað í að- alsal. Getum bætt við fleirum á bútasaums- námskeið. Þorrablót verður fimmtudaginn 7. febrúar. Húsið opnað kl. 17. Veislustjóri Gunnar Þorláksson. Ragnar Páll Einarsson verður við hljómborðið. Þorrahlaðborð. Maga- dansmeyjar koma í heimsókn kl. 19. Þor- valdur Halldórsson slær á létta strengi og syng- ur nokkur þekkt lög. K.K.K. syngja, fjölda- söngur og fleira. Hljóm- sveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi. Að- gangsmiði gildir sem happdrætti. Upplýs- ingar og skráning í af- greiðslu. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Háteigskirkja aldraðir. Samvera í Setrinu kl. 13–15. Söngur með Jónu kl. 13.30, vöfflur með kaffinu, Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (um 16–25 ára) með börnin sín á laugard. kl. 15–17 á Geysi, kakóbar, Að- alstræti 2 (gengið inn Vesturgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Úrvalsfólk. Vorfagn- aðurinn verður á Hótel Sögu, Súlnasal, föstud. 15. feb. kl. 19. Miðasala og borðapantanir hjá Rebekku og Valdísi í Lágmúla 4 mánud. 4. feb, í s. 585-4000. Gigtarfélag Íslands: Gönguferð um Laugar- dalinn á morgun, laug- ardag, kl. 11 frá húsa- kynnum félagsins í Ár- múla 5. Klukkutíma ganga sem hentar flest- um. Einn af kennurum hópþjálfunar gengur með og sér um upphit- un og teygjur. Allir vel- komnir. Ekkert gjald. Uppl. í s. 530 3600. Framarar. Þorrablótið verður haldið í íþrótta- húsi Fram, Safamýri 26, laugard. 2. feb. Hús- ið opnað kl. 19 miðasala í íþróttahúsinu í dag. Þorramatur, skemmti- atriði og dansað. Fram- arar fjölmennið. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykjavík. Aðalfund- urinn verður haldinn 7. feb. kl. 20 í Höllubúð. Þorramatur. Í dag er föstudagur 1. febrúar, 32. dagur ársins 2002, Brígidarmessa. Orð dagsins: Ég hefi losað hendur hans við byrðina, heldur hans eru sloppnar við burðarkörfuna. (Sálm. 81, 7.) LÁRÉTT: 1 brotsjór, 8 raddhæsi, 9 veglyndi, 10 mánaðar, 11 næstum því, 13 áflog, 15 framreiðslumanns, 18 ár- tala, 21 eldiviður, 22 batna, 23 drepum, 24 vandræðamann. LÓÐRÉTT: 2 meir, 3 harma, 4 eignir, 5 lúkum, 6 vansæmd, 7 varma, 12 gyðja, 14 reið, 15 ójafna, 16 dapra, 17 samfokin fönn, 18 full- komlega, 19 vökni, 20 beisk. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hrönn, 4 þegar, 7 fæddi, 8 rjúpu, 9 nem, 11 rúða, 13 Esja, 14 rýjan, 15 burt, 17 naum, 20 urt, 22 lýk- ur, 23 ískur, 24 rengi, 25 terta. Lóðrétt: 1 hífir, 2 önduð, 3 náin, 4 þarm, 5 grúts, 6 rausa, 10 emjar, 12 art, 13 enn, 15 bolur, 16 ríkan, 18 askur, 19 marra, 20 urgi, 21 tíst. K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur áður gert aðumtalsefni hina furðulegu og órökréttu verðlagningu á pilsner í stórmörkuðum, þar sem verð ein- stakra tegunda sveiflast oft um tugi króna á milli vikna. Halda mætti að uppskeruhorfur á byggökrum Evr- ópu hefðu svona mismunandi áhrif á hráefnisverðið eða þá að laun brugg- ara væru mjög mismunandi eftir vikum og það skilaði sér strax í verð- inu – a.m.k. eiga talsmenn stór- markaðanna yfirleitt ekki í vand- ræðum með að finna „rökréttar“ og „eðlilegar“ skýringar á sveiflum í verði ýmissa annarra vörutegunda. x x x SJÁUM þá hvort þeir hafa rök-rétta og eðlilega skýringu á þessu: Víkverji kaupir núorðið pilsn- erinn sinn í Bónusi rétt eins og ýmsa aðra nauðsynjavöru til heimilisins. Það kemur honum hins vegar á óvart að ódýrasti pilsnerinn í Bónusi er ævinlega Bjarnabrugg. Það getur munað 20–30 krónum á dósinni af Bjarnabruggi og t.d. gamla, góða Egils-pilsnernum. Ástæðan fyrir því að Víkverji er hissa á þessu er sú að Bjarnabruggið er innfluttur pilsner – það stendur a.m.k. skilmerkilega á umbúðunum, þar sem jafnframt er tilgreint að drykkurinn sé bruggað- ur og pakkaður hjá Harboes Brygg- eri AS í Skælskør í Danmörku. x x x NÚ FINNUR Víkverji engangæðamun á Bjarnabrugginu og þeim pilsner, sem framleiddur er hér á landi, og hann veltir því fyrir sér hvers vegna innflutta varan er svona ódýr. Pilsner er nú engin léttavara og flutningskostnaður hlýtur að vega miklu þyngra í verð- inu þegar varan kemur frá Skælskør heldur en þegar hún er keyrð ofan af Grjóthálsi. Talsmenn stórmarkað- anna eru duglegir að tilgreina flutn- ingskostnað, þegar fólki ofbýður verðlagningin á einhverri vöru eins og t.d. hinum margumtöluðu suður- afrísku vínberjum. Varla eru starfs- menn ölgerðarinnar í Danmörku á svona miklu lægri launum en starfs- menn Egils í Árbænum – eða hvað? Og tæplega geymist Egils-pilsner- inn verr en Bjarnabruggið, þannig að ekki þarf að gera ráð fyrir rýrnun í verðinu (sem er enn ein vinsæl skýring á háu verðlagi). Gaman þætti Víkverja að fá skýringu frá Baugsmönnum á þessu. Þeir eru reyndar að verða svo óvinsælir þessa dagana, bæði hjá almenningi og ráðamönnum, að þess er kannski skammt að bíða að þeir verði hálf- gerðir fjörbaugsmenn. ÞAÐ er erfitt að lenda í fjötrum fátæktar. Hjá sum- um er þetta tímabundið en aðrir losna ekki úr þessum viðjum. Það er þungur kross að draga að ganga veg örbirgðar og vonleysis. Það að geta ekki veitt sér neitt af því sem þeim efna- meiri þykir sjálfsagt reyn- ist mörgum erfitt. Ég er eldri kona og upplifði mikla fátækt á mínum æskuárum. Það voru skömmtunarseðl- ar þá og naumt skammtað. Maður fékk ekki alltaf nóg í sinn tóma maga. Ég byrjaði snemma að vinna og ól mín börn upp að mestu leyti ein og var þá oft þröngt í búi. Þess vegna finnst mér að ég ætti að hafa það betra núna. En það er nú aldeilis ekki svo. Fáækt hefur aukist hér mikið undanfarin ár og ef- laust á ástandið því miður eftir að versna. Ég var stödd inni í mat- vöruverslun einn daginn og horfði á glæsilegt ávaxta- borðið. Þegar ég var ung voru þessar hollu og góðu vörur ekki til. En núna hef ég ekki efni á því að kaupa þetta. Ég hef alla tíð verið fátæk og mun deyja fátæk ef ekki kemur það stjórn- málaafl til sem hefur áhuga á að eyða fátæktinni. Hún er illt mein í samfélaginu og skapar mörg óþarfa vanda- mál. Mér þætti gaman að sjá í borgarpólitíkinni hvaða flokkur hefði hug á að lagfæra þetta ástand. Það gengur ekki að fólk sem leitar til Félagsþjónustunn- ar sé sent áfram til hjálp- arstofnana. Þar með bregð- ast Félagsþjónustan og borgin sinni lagalegu skyldu gagnvart fólki. Ég vil að lokum hvetja fátækt fólk til að láta í sér heyra. Gyða Pálsdóttir, varaformaður Samtaka gegn fátækt. Gefum fuglunum smjör RANNVEIG hafði sam- band við Velvakanda og vildi hún benda fólki á að gefa smáfuglunum smjör eða feitmeti. Ofbýður lágkúran KRISTÍN hafði samband við Velvakanda og sagði að sér ofbyði stórlega þáttur- inn með Johnny National á Skjá 1. Sér fyndist þetta ekki til nokkurs sóma fyrir stöðina að sýna þetta. Finnst henni þetta ekki eiga erindi inn á heimili þar sem jafnvel smákrakkar horfa á. Segir hún að rudda- skapur og dónaskapur sé viðhafður í þessum þáttum, þeir séu algjör lágkúra og fyrir neðan allar hellur. Hún segir að hugsunin nái ekki upp fyrir mittið á um- sjónarmönnum margra þáttanna á Skjá einum, það sé eins og þáttastjórnendur hafi verið að uppgötva kyn- lífið. Segist hún ekki vita hvernig fólk hefur farið að í gamla daga. En Kristín segir að það megi vel hæla Skjá 1 fyrir marga góða þætti sem þeir bjóði uppá og séu fjölskylduvænir. Slæm breyting ÉG vil koma því á framfæri að breytingarnar sem gerð- ar voru á strætisvagnaleið- um (leið 14 og 15) í Graf- arvogi eru slæmar, þetta er verra en var áður og tekur mun lengri tíma að komast úr Grafarvoginum. Farþegi. Tapað/fundið Hringur týndist Trúlofunarhringur (þrír samfastir hringir) týndist við hesthúsin í Víðidal um miðjan janúar. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 823-2399. GSM-sími týndist NOKIA 3310 GSM-sími týndist í eða við Sundlaug Hafnarfjarðar. Símans er sárt saknað, er jólagjöf ungs drengs. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 555-4267 eða 555-4269. Gullhringur í óskilum GULLHRINGUR, gæti verið félagshringur, fannst í Tennishöllinni í Kópavogi fyrir tveimur vikum. Upp- lýsingar í síma 564-2582 eða 897-2582. Kventaska týndist SVÖRT kventaska týndist í miðbæ reykjavíkur sl. föstudagskvöld. Í töskunni voru veski, sími og skilríki sem er sárt saknað. Skilvís finnandi hafi samband við Öldu í síma 896-5973. Dýrahald Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar ellefu vikna, svartir og hvítir, fást gefins á gott heimili. Þeir eru kassavanir. Upplýsing- ar í síma 567-0410. Kanína í óskilum SVÖRT kanína fannst á Grettisgötu. Er mjög gæf. Uppl. í síma 697-8090. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Í fjötrum fátæktar Kossaleikur við Laugarnesskóla. Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.