Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 57
Sýnd kl. 3.45.
Ísl. tal. Vit 320
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 325
Sýnd kl. 8 og 10.20. Vit 332
DV
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
B. i. 16. Vit 329
Rás 2
Sýnd kl. 4.
Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2 DV
Frá leikstjóra
Blue Streak.
Hasarstuð frá
byrjun til enda.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. b.I. 14 ára Vit340
FRUMSÝNING
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. Vit 319 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16. Vit329
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i 12 ára. Vit 339.
Hann er gæddur þeim hæfileika að geta séð
fortíðina, að geta spáð fyrir um framtíðina og að geta látið
hæfileika sína öðrum í te.
FRUMSÝNING
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Drepfyndin mynd um
vináttu, stinningarvandamál
og aðrar bráðskemmtilegar
uppákomur! Framlag Svía til Óskarsverðlauna.
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Something
About Mary“ og „Me
myself & Irene“ kemur
Feitasta gamanmynd
allra tíma
Ó.H.T. Rás2
„Frábær og bráðskemmtileg“
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
SV Mbl
DV
Empire
SV Mbl
DV
Rás 2
Kvikmyndir.com
Golden Globe
verðlaun
besta mynd, besta leikkona og
besta tónlist.
Missið ekki af þessari.
3
DV
MBL
Sjúklegt ferðalag
tilfinningalausrar konu sem
haldin er bældum masókisma.
ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ
ANNAÐ EINS!
FRUMSÝNING
Aðalverðlaun
dómnefndar í
Cannes og
besti leikari
og leikkona.
Í MENNINGARBLAÐI Sunday
Times, dagsettu 27. janúar, er grein
um aukin umsvif hinna ýmsu fyr-
irtækja í útgáfu á eldri tónlist. Svo
sem ekki í frásögur færandi ef ekki
væri fyrir þá staðreynd að aðalum-
fjöllunarefnið er íslenska hljóm-
sveitin Hljómar og diskurinn Thor’s
Hammer - From Keflavik, ... with
love. Það er Ace Records, útgáfa
sem sérhæfir sig í endurútgáfum,
sem gefur plötuna út og byggist hún
á gömlum lögum Hljóma og Thor’s
Hammer, nafn það sem sveitin tók
sér er hún reyndi fyrir sér erlendis.
Í greininni er rakið hvernig áhugi
almennings á eldri tónlist hefur vax-
ið jafnt og þétt síðustu ár, ekki hvað
síst með tilkomu geisladiskanna.
Áður fyrr var popptónlist gær-
dagsins svo gott sem gleymd og
menn biðu einfaldlega eftir næsta
„æðinu“. En í dag er „ný“ gömul
tónlist reglubundið að skjóta upp
kolli, tónlistaráhugamönnum til
ómældrar ánægju.
Þegar bítlaæðið stóð sem hæst
spruttu upp bítlabönd bókstaflega
um alla jarðarkringluna. Nýverið
hafa t.d. komið út söfn með asískri,
tyrkneskri og japanskri bítlatónlist.
Maðurinn sem á heiðurinn af
safnplötu Thor’s Hammer er Alec
Palao, en einnig sá hann um útgáfu
á kassanum Nuggets II sem inni-
heldur safn sjaldgæfra sýrurokks-
laga og diskinum Let’s Go Spiders,
sem á eru lög eftir japönsku bítla-
sveitina Spiders.
„Hljómgæði geisladiska gera
kröfur um að menn leiti eftir bestu
segulböndum sem fáanleg eru, þeg-
ar um endurútgáfu á gömlu efni er
að ræða,“ segir Palao. „Sá frábæri
hængur er á að þá rekst maður
gjarnan á efni sem legið hefur í
kassa í fjöldamörg ár, sem býr oft
yfir sagnfræðilegu mikilvægi.“
Aðspurður hvort markaður sé
fyrir heilum geisladisk, tileinkuðum
hljómsveit sem enginn þekkir segir
Palao. „Thor’s Hammer er frábært
dæmi um hljómsveit sem býr yfir
miklum krafti en náði aldrei hylli al-
mennings. Starfsmenn Ace eru allir
ástríðufullir áhugamenn um tónlist
og auk þess að gefa út plötur sem
mætti álíta sem söluvænlegar vitum
við að það er til markaður fyrir plöt-
um álíka og Thoŕs Hammers – þótt
lítill sé.“
Þá var hann spurður um þá óhjá-
kvæmilegu rómantík sem hlýtur að
fylgja því að grafa eftir sjaldgæfum,
týndum lögum.
„Vissulega getur þetta verið lýj-
andi,“ segir Palao. „En unaðurinn
sem fylgir því að uppgötva áður
óþekkta gimsteina gerir þetta allt
þess virði. Vandfýsnin borgar sig
hér. Eins og t.d þegar ég fann upp-
runalegu upptökurnar með hinu sí-
gilda sálarlagi Bob & Earl, „Harlem
Shuffle“, geymt en gleymt í bílskúr í
Norður-Kaliforníu!“
Í lok greinarinnar er minnst á
tónleika Hljóma sem fram fara á
Kaffi Reykjavík í kvöld og annað-
kvöld. Og klykkt er út með því að
lýsa því yfir að allir aðdáendur um
íslenska bítlatónlist eigi engan kost
annan en að drífa sig yfir!
Grafið eftir hljómum fortíðar
Thor’s
Hamm-
er.
Grein um Hljóma í Sunday Times
ANDRÉ Bachman er að keyra leið 7
þegar blaðamaður hringir í hann. Hann
er samur við sig, alltaf eitthvað að bar-
dúsa, ef ekki að
spila í einkasam-
kvæmum, eða gefa
út diska til styrkt-
ar börnum, þá í
markaðsmálunum.
Og nú syngur
hann á Kringlukr-
ánni föstudags- og
laugardagskvöld,
sem gestasöngvari
hjá Furstunum og
Geir Ólafs.
„Ég er voðalega ánægður og ætla að
reyna að skapa Mímisbarstemmningu.
Ég var þar í sex ár, og það var kjaftfullt
út úr dyrum seinasta skiptið sem ég
spilaði þar. Nú verða óskalögin tekin
aftur.“
– Hvaða lög voru vinsælust?
„„Quando, Quando, Quando“,
„Bamboleo“, „All of Me“ og svo lög með
Björgvini Halldórs. Ég vona að Geir fá-
ist til að taka með mér eitt lag eða svo,
kannski inni í góðri syrpu.
Ég hlakka til að sjá aftur fólkið sem
var með mér á barnum og hér og þar.
Að það komi að njóta og gleðjast með
mér. Furstarnir eru mjög færir tónlist-
armenn.“
– Hvað kemur fólki í stuð?
„Ég byrja á því að lesa salinn. Svo má
ekki taka bara ástarsöngva út í gegn
heldur vera lifandi og skemmtilegur og
keyra alveg áfram. Það eru lögin sem
hafa lengi hljómað á öldum ljósvakans
og þau nýjustu sem fólk vill heyra.“
– Og þú ert ekkert orðinn þreyttur
eftir 30 ára feril?
„Nei, það er alveg ofboðslega gaman
að þessu og alltaf eitthvað skemmtilegt
að gerast. Við Birgir Jóhann Birgisson
förum bráðum að spila á þorrablóti í
Los Angeles og San Fransisco,“ segir
André Bachmann að lokum og keyrir
sína leið.
Vill sjá
fólkið sitt
André
Bachmann
hilo@mbl.is
AÐSTANDENDUR næstu Austin
Powers myndar New Line Cinema
neyðast til að afturkalla öll sýn-
ishorn og kynningarefni.
Ástæðan er undirtitill mynd-
arinnar Goldmember sem forsvars-
menn James Bond-myndanna hjá
MGM þykir of líkur titli Bond-
myndarinnar frá 1964 Goldfinger.
MGM lagði því fram formlega
kvörtun til Bandarísku kvikmynda-
samtakanna (MPAA) sem féllust á
að nöfn myndanna væru of lík.
Þeir hjá New Line Cinema eru
ekki af baki dottnir og ætla að berj-
ast fyrir nafninu Goldmember, sem
vísar til samnefndrar nýrrar per-
sónu nýju myndarinnar um leyni-
þjónustumanninn illtennta. Reynt
verður til þrautar að fá MGM til að
sjá af sér og falla frá kærunni en
ólíklegt þykir að sú tilraun beri ár-
angur. Þangað til neyðast menn til
að kalla myndina „Þriðju Austin
Powers-
myndina“.
Þetta er
ekki í fyrsta
sinn sem nafn
á Austin Pow-
ers-mynd
veldur usla
því nafnið á
þeirri síðustu
The Spy Who Shagged Me fór einn-
ig fyrir brjóstið á aðstandendum
Bonds vegna þess hve nærri það
var titli myndarinnar The Spy Who
Loved Me. Málið gekk reyndar svo
langt að MGM lagði fram kæru líkt
og nú en henni var synjað. Nýir
stjórnendur hjá MGM taka hins
vegar á máli sem þessu af mun
meiri hörku og undirbjuggu kæru
sína mun betur en síðast.
Væntanleg „Þriðja Austin Po-
wers-mynd“ mun skarta þeim
Michael Caine og Beyonce Know-
les, aðalsöngkonu Destiny’s Child,
auk Mike Myers að sjálfsögðu sem
verður í fjórum hlutverkum. Mynd-
in verður frumsýnd í júlí ná menn
að leysa þetta hvimleiða nafna-
vandamál.
Undirtitillinn Goldmember bannaður