Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 1
Þriðjudagur
12. febrúar 2002
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað C
Lykillinn að
sparnaði, öryggi
og þægindum
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Hús á stór-
um lóðum
Margir vilja komast
burt úr skarkalanum
26
Starhagi 5,
Túnsberg
Rýmið sett
í samhengi
Stílhreint hús
sem setur svip á
umhverfið 30
Húsagerð enska
arkitektsins Davids
Chipperfields 44
ENDANLEGUR fjöldi kaupsamn-
inga á árinu 2001 liggur ekki fyrir. Af
bráðabirgðatölum má áætla að gerðir
hafi verið á milli 9.400 og 9.500 kaup-
samningar á árinu. Það er 700-800
kaupsamningum færra en árið 2000
eða fækkun um um það bil 7%.
Þetta er mun minni fækkun en milli
áranna 1999 og 2000. Þá dróst fjöld-
inn saman um 12% eða tæplega 1.400
samninga. Árið 1999 var metár á fast-
eignamarkaði og voru gerðir hátt í
11.600 kaupsamningar á landinu en
voru tæplega 10.200 árið 2000.
Fyrirliggjandi gögn benda til að
dregið hafi úr viðskiptum með eignir í
sérbýli um 8-9% en mun minna hafi
dregið úr viðskiptum með eignir í fjöl-
býli eða um það bil 3%. Langmestur
samdráttur hefur hins vegar orðið í
viðskiptum með atvinnuhúsnæði og
aðrar eignir en íbúðarhús eða allt að
30%.
Hlutfall útborgunar lækkar
Fjármögnun íbúðarhúsnæðis hefur
tekið nokkrum breytingum síðustu
misseri. Hlutfall útborgunar, þ.e. sá
hluti kaupverðs sem inntur er af
hendi með beinhörðum peningum á
fyrsta ári frá undirritun kaupsamn-
ings, lækkaði á árinu 2001. Útborg-
unarhlutfallið var komið niður fyrir
40% í árslok 2001 en var rúmlega 50%
við lok árs 2000.
Það er annmarki á þessum upplýs-
ingum að ekki er unnt að vita hvort
eða að hve miklu leyti kaupandi fær
lán til að greiða útborgunina. Þannig
má til dæmis nefna að fasteignakaup-
andi sem hlýtur viðbótarlán frá
Íbúðalánasjóði fær það greitt í reiðufé
sem hann greiðir beint til seljanda og
er það því talið með útborgun.
En ótvírætt er að reiðufé gegnir
smærra hlutverki í fasteignaviðskipt-
um nú en fyrir ári. Líta þarf aftur til
ársins 1998 til að sjá minna vægi út-
borgunar í fasteignaviðskiptum.
Á árinu 2000 var það svo gott sem
hætt að tíðkast að fasteignir (eða
lausafé) væru notaðar sem gjaldmiðill
upp í aðra fasteign. En á árinu 2001
fór aftur að bera á því og var hlutfallið
um 4% í árslok.
Enn er hlutdeild fasteigna og
lausafjár af veltunni þó hverfandi
samanborið við miðjan tíunda áratug-
inn en hún fór í 20% árið 1995. Á þeim
tíma ríkti deyfð yfir fasteignamark-
aðnum og gat reynst erfitt að selja
fasteignir öðru vísi en með því að taka
aðra ódýrari upp í sem þjónaði sem
skiptimynt í viðskiptunum.
Í árdaga húsbréfakerfisins tíðkað-
ist að húsbréf sem fólk fékk í skiptum
fyrir fasteignaveðbréf þegar það seldi
eign, gengi áfram eftir viðskiptakeðj-
unni og væru notuð sem greiðsla upp í
aðra eign. Milli áranna 1998 og 1999
féll hins vegar hlutfall húsbréfanna úr
6% í 1% af veltu.
Þetta skýrist af því að á árinu 1999
var ávöxtunarkrafa húsbréfa mjög
lág sem þýddi að bréfin seldust á yf-
irverði. Fólk hefur því séð hag sínum
best borgið með því að koma þeim í
reiðufé þegar í stað.
Á árinu hélst hlutfall húsbréfanna
enn mjög lágt þrátt fyrir að ávöxt-
unarkrafa hækkaði, líkast til hefur
fólk talið sig öruggara með reiðufé í
höndunum en bréf sem kunna að
sveiflast í verði. Á árinu 2001 óx hlut-
deild húsbréfanna nokkuð og var um
4% í árslok.
Hlutdeild fasteignaveðbréfa skipt-
anlegra fyrir húsbréf, eða svokallaðra
húsbréfalána, tók kippi upp á við á
liðnu ári.
Þar kemur til að í byrjun júní
hækkaði Íbúðalánasjóður hámarks-
upphæð lána sinna og að félagsmála-
ráðherra ákvað að frá og með 1. sept-
ember skyldi lánsviðmið húsbréfa-
lána vera 85% af brunabótamati í stað
65% eða 70% áður. Hlutdeild hús-
bréfalánanna lækkar þó aftur undir
lok árs.
(Heimild: Fasteignamat ríkisins.)
Meiri samdráttur í sölu á eignum
í sérbýli en á íbúðum í fjölbýli
!"#$%
#"&$'
#"((%
&)"&'(
&&"*((
&)"&#+
'"+*)
!
"# !$#%
*)
+)
%)
$)
&)
)
,
)'"(&!"(
& & '*
%&(
'*"
!"##"
+%,*-*
%-""%&
&$%&.
/01
2$"$-3
4.
5%&&&6(
!&
7!(*(8
%7!(*(8
(
$
2%'!'#9
&%'"!*'&'"&
:%&-$&%'"9;;;($!('&
:&' -"<=>>? !"(
!"(
!"(
!"(
@
@
(
(>
( %
"## "##"
-<=?
( ( (
&
"###
"##
A<&( ""
>
#
#
'
(
)
(
#
**
("+
(,(
>>