Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 13
AAlfa-námskeið verður haldiðí Glerárkirkju
* Alfanámskeið hafa verið haldin á Íslandi í
nokkur ár og hefur þátttaka aukist á hverju ári.
* Alfa er ódýrt, skemmtilegt og
uppbyggjandi námskeið um
grundvallaratriði kristinnar trúar.
* Kynningarfundur um námskeiðið verður í
Glerárkirkju nk. þriðjudag, 19. febrúar kl.
20:00. Þar verður sagt frá innihaldi
og tillögum þess.
* Skráning og upplýsingar í síma
461 2391 frá kl. 11-16 virka
daga.
Námskeiðið mun standa yfir í
tíu vikur, eitt kvöld í viku.
Leiðbeinandi sr. Guðmundur
Guðmundsson.
Kynntu þér alfa
námskeið á vefnum www.alfa.is
veg, S: 588-8899
1620
564-2355
869 6215
delfía, S: 552-1111
S: 567-8800
3987
1-4337
431 1745
rkjunnar
skei› hefjast í janúar
rtöldum stö›um:
AKUREYRARBÆR hlaut Staðar-
dagskrárverðlaunin 2002 en Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
afhenti þau við upphaf Staðardag-
skrár ráðstefnu sem hófst í Ket-
ilhúsinu á Akureyri í gær. Verðlaun-
in eru veitt því sveitarfélagi sem
þykir hafa skarað fram úr hvað
varðar framkvæmd Staðardagskrár
21.
Stefán Gíslasson, framkvæmda-
stjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi,
sagði það ævintýri líkast hversu
hratt Staðardagskráin hefði breiðst
út, en nú væru 12 sveitarfélög aðilar
að henni, sem næðu til 64% íbúa
landsins. Hann sagði vanda hafa
blasað við valnefndarmönnum þegar
velja átti það sveitarfélag sem hlyti
viðurkenninguna, en að lokinni ná-
kvæmri greiningu, sem tók til 13
þátta, hafi Akureyri orðið fyrir val-
inu. Verðlaunin hlaut bærinn fyrir
vönduð og markviss vinnubrögð við
gerð Staðardagskrár 21, en þau hafi
að sögn Stefáns orðið fyrirmynd
fleiri sveitarfélaga.
Borgarbyggð hlaut
hvatningarverðlaun
Borgarbyggð hlaut hvatningar-
verðlaun Staðardagskrár 21 að
þessu sinni, en þessum verðlaunum
er ætlað að vera hvatning til þeirra
sveitarfélaga sem ekki hafa starfað
lengi að Staðardagskrárverkefninu.
Ýmist er um að ræða sveitarfélög
sem sýnt hafa framfarir í starfinu
eða vinna að afmörkuðum verkefn-
um sem stuðla að sjálfbærri þróun.
Stefán sagði að starfið í Borgar-
byggð hefði farið hægt af stað, en
fyrir þremur mánuðum var verk-
efnastjóri ráðinn til starfa og nú er
stefnt að því að dagskráin verði
tilbúin næsta haust.
Loks var fulltrúum nokkurra
sveitarfélaga sem undirritað hafa
svonefndar Ólafsvíkuryfirlýsingu af-
hent viðurkenning. Um er að ræða
Hornafjörð, Grundarfjarðarbæ,
Reykhólahrepp, Stykkishólmsbæ,
Skagafjörð, Seltjarnarnes, Kirkju-
bólshrepp, Akranes og Eyjafjarðar-
sveit, sem nú síðast undirritaði yf-
irlýsinguna og varð þar með 27.
sveitarfélagið sem það gerir.
Guðmundur Sigvaldason verkefnisstjóri og
Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar,
með Staðardagskrárverðlaunin 2002.
Hólmfríður Sveinsdóttir, fulltrúi Borgarbyggðar, tók við
hvatningarverðlaunum Staðardagskrár 21 úr hendi Sivjar
Friðleifsdóttur umhverfisráðherra.
Morgunblaðið/Kristján
Um 100 manns sitja Staðardagskrá 21 sem haldin er í Ketilhúsinu.
Viðurkenningar veittar á ráðstefnu Staðardagskrár 21
Fagmennska í fyrirrúmi
RAFN Kjartansson, lektor við Há-
skólann á Akureyri, kennir á nám-
skeiði um viðskiptaensku sem hefst
18. febrúar næstkomandi en það er á
vegum símenntunar Rannsókna-
stofnunar Háskólans á Akureyri.
Meginmarkmið námskeiðsins er
þjálfun í að kynna og ræða efni við-
skiptalegs eðlis til að efla samskipta-
hæfni og auka orðaforða tengdan
viðskiptum. Kennsla verður í formi
hópvinnu þar sem teknir verða til
umræðu textar um viðskiptatengd
efni úr tímaritum. Einnig verður
fjallað um grunnatriði í samninga-
tækni með tilvísun til mismunandi
menningarheima. Kennt verður í
litlum hópum.
Enska fyrir er-
lend viðskipti
GUÐMUNDUR Sigvaldason, verk-
efnisstjóri Staðardagskrár 21 á Ak-
ureyri, flytur erindi í tengslum við
sýninguna Rusl? sem nú stendur yfir
á handverksmiðstöðinni Punktinum
á Akureyri næstkomandi mánudags-
kvöld, 18. febrúar kl. 20.
Sýningarmunir eru allir að meira
eða minna leyti unnir úr verðlausu
efni sem lent hefur á ruslahaugum
nútímamannsins. Þar má m.a. líta
uppgerð húsgögn, áklæði á borð-
stofustólum sem ofið er með bandi af
brunalager Heklu sem legið hafði í
30 ár á háalofti í saltskemmu Kaup-
félagsins.
Erindi um rusl
ALLS hafa verið flutt um 5.400
þorskseiði frá útibúi Hafrann-
sóknastofnunar í Grindavík í seiða-
eldisstöð Útgerðarfélags Akureyr-
inga á Hauganesi. Seiðin voru flutt í
sérútbúnum kerum á vörubíl norður
í land og kom seinni skammturinn í
síðustu viku. Seiðin eru í 9 kerum,
um 600 stykki í hverju þeirra.
Ásgeir Guðnason, stöðvarstjóri á
Hauganesi, sagði seiðin hafa bragg-
ast mjög vel og þau tækju orðið vel
við fóðri. „Þetta hefur gengið vel og
samkvæmt áætlun en við erum alltaf
að læra,“ sagði Ásgeir.
Seiðin eru úr klaki frá því í sumar
og eru því um 7 mánaða gömul. Þau
verða alin á Hauganesi fram á næsta
sumar en þá verða þau flutt í sjókví-
ar á Eyjafirði til áframeldis næstu
tvö árin. Á Hauganesi fer fram sam-
anburðarrannsókn á áhrifum mis-
munandi fituinnihalds fóðurs á seið-
in.
Þorskseiðin
braggast
mjög vel
PÁLL Viðar Gíslason var kjörinn
íþróttamaður Þórs fyrir árið 2001
en útnefningin fór fram í hófi í
Hamri, félagsheimili Þórs nýlega.
Páll Viðar var jafnframt kjörinn
handknattleiksmaður ársins.
Ásta Árnadóttir var kjörin knatt-
spyrnumaður ársins en hún varð
önnur í kjöri íþróttamanns ársins.
Óðinn Ásgeirsson var kjörinn körfu-
knattleiksmaður ársins og Þórdís
Úlfarsdóttir taekwondo-maður árs-
ins.
Páll Viðar leikur lykilhlutverk í
handknattleiksliði Þórs, sem nú
leikur í efstu deild og er einn af
markahæstu mönnum deildarinnar.
Þá er hann einnig lykilmaður í
knattspyrnuliði félagsins, sem vann
sér sæti á meðal þeirra bestu sl.
haust. Ásta Árnadóttir var fyrirliði
U-19 ára landsliðs kvenna í knatt-
spyrnu sem komst í 16 liða úrslit
Evrópukeppninnar á síðasta ári.
Ásta lék alla 9 leiki liðsins á árinu og
hún lék einnig alla sex leikina með
U-21 árs landsliðinu á árinu. Þá er
Ásta lykilmaður í liði Þórs/KA/KS.
Óðinn Ásgeirsson hefur verið
kjölfestan í körfuknattleiksliði Þórs
sem náð hefur góðum árangri í úr-
valsdeildinni. Hann var valinn í
landsliðshóp Íslands á vormánuðum
en gat ekki leikið með liðinu vegna
prófanna. Þá var hann valinn í fimm
manna úrvalslið ársins í úrvals-
deildinni sl. vor. Þórdís Úlfarsdóttir
er landsliðskona í taekwondo og
hefur verið að gera góða hluti í
íþróttinni. Hún varð m.a. í þriðja
sæti í sínum flokki á Norður-
landamótinu og hlaut einnig brons-
verðlaun á Íslandsmótinu á síðasta
ári. Þá krækti hún sér í gullverðlaun
á Nýársmóti Ármanns í byrjun síð-
asta árs. Allir fengu þessir íþrótta-
menn eignarbikara fyrir árangur
sinn, auk þess sem Páll Viðar fékk
afhentan glæsilegan farandbikar
sem íþróttamaður ársins. Það er
Ragnar Sverrisson kaupmaður í
JMJ sem gefur öll verðlaunin sem
fyrr.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
var gestum boðið upp á kaffiveit-
ingar.
Morgunblaðið/Kristján
Páll Viðar Gíslason og Ásta Árnadóttir með viðurkenningar sínar.
Páll Viðar íþróttamaður Þórs
SKRIFSTOFA Neytendasamtak-
anna á Akureyri, Skipagötu 14, 3.
hæð, hefur verið opnuð aftur eftir
stutt hlé. Nýr starfsmaður, Bryn-
hildur Pétursdóttir, hefur hafið störf
og er skrifstofan opin alla virka daga
kl. 13–16.
Neytendasamtökin sinna marg-
víslegum störfum í þágu neytenda og
öllum er heimilt að leita til samtak-
anna og fá upplýsingar og ráðgjöf.
Helstu verkefni samtakanna eru
m.a. að gæta réttar neytenda, auka
verð- og vöruþekkingu neytenda og
stunda rannsóknir á neysluvörum og
viðskiptaháttum.
Neytendasamtökin gefa einnig út
Neytendablaðið.
Rekstur samtakanna er að mestu
háður árgjaldi félagsmanna og vilja
þau því hvetja sem flesta til að ganga
til liðs við samtökin.
Nýr starfsmaður
hjá Neytenda-
samtökunum
ÞEKKING-Tristan og Höldur ehf.
hafa gert með sér samning um
hönnun, smíði og hýsingu á vefnum
www.holdur.is en vefurinn skiptist
í tvær einingar. Önnur er fyrir
Höld en hin fyrir Bílaleigu Akur-
eyrar. Starfsmenn Hölds munu svo
viðhalda síðunni eftir að hún er
komin í loftið, en Þekking-Tristan
býður upp á einfalt og þægilegt
vefsýslukerfi sem gerir hverjum
sem er kleift að uppfæra vefsetur
sitt án kunnáttu í vefsmíði eða for-
ritun og án þess að nota þurfi sér-
stakan hugbúnað. Auglýsingastof-
an Norðan 2 á Akureyri mun sjá
um útlit síðunnar.
Þekking-Tristan
og Höldur
Samningur
um vefsíðu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦