Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
FJÖLMIÐLA- og afþreyingarris-inn Norðurljós er með yfir-
burðamarkaðsstöðu á sínu sviði og
hafa menn kannski sökum þess lítið
verið gefnir fyrir að hæla því sem vel
er gert þar á bæ þrátt fyrir að oft og
tíðum hafi menn þar sýnt og sannað
að þeir eru allir af vilja gerðir til að
þjónusta viðskiptavini sína.
Síðasta dæmið er hið frábæra
framtak að bjarga HM í knattspyrnu.
Landsmenn kölluðu á hjálp og
Norðurljós komu á hvítum hesti og
svöruðu kallinu á ögurstundu og
skildu sjónvarpsstöðina „okkar“ eftir
með skottið milli lappana – enn og
aftur.
Önnur rós í hnappagat Norður-
ljósa kemur úr sama búntinu. Þannig
er nefnilega mál með vexti að á Euro-
sport, sem er ein af erlendu stöðv-
unum sem boðið er uppá í gegnum
Fjölvarpið, er hægt að sjá svipmynd-
ir frá vetrarólympíuleikunum í Salt
Lake City allan liðlangan sólarhring-
inn. Sannarlega kærkomin þjónusta
það þegar ríkið er einnig hætt að
sinna þessari áður sjálfsögðu skyldu
sinni.
EN Víkverji viðurkennir samt fús-lega að stundum fallast honum
hendur yfir því yfirþyrmandi stöðu
Norðurljósa á markaði útvarps. En
fyrirtækinu stafar nú einungis veik
og vafasöm ógn af ríkisreknu stöðv-
unum, einu stöðvunum sem ættu ekki
á nokkurn hátt að vera ógn við einka-
framtakið.
Auðvitað er það út af öruggum
rekstri sem Norðurljós hefur skapað
sér þessa góðu stöðu á útvarpsmark-
aðinum og verður að túlka hana sem
svo að stjórnendur útvarpssviðsins
viti hvað Íslendingar vilja hlýða á í
viðtækjum sínum. Þessir skeleggu
stjórnendur hafa reyndar verið dug-
legir að skera niður reksturinn und-
anfarið og fækka útvarpsstöðvum, „í
hagræðingaskyni“. Slökkt á þeim
sem vöktu ekki áhuga auglýsenda og
skiluðu af þeim sökum ekki hagnaði.
Nýjasta hagræðingaraðgerðin er
uppstokkun á RadíóX, tónlistarstöð
sem höfðað hefur til ungs fólks og
gefið sig út fyrir að vera „eina radíóið
sem rokkar“. Flestum starfsmönnum
stöðvarinnar hefur verið sagt upp,
þ.á m. dagskrárstjóranum honum
Þossa. Það að skipta um dagskrár-
stjóra er klárlega tilraun stjórnenda
til að breyta um áherslur. Það var
greinilega eitthvað við áherslur
gamla dagskrárstjórans og starfsliðs
hans sem ekki féll stjórnendum
stöðvarinnar í geð. Og það var víst
reksturinn. Reksturinn á RadióX hafi
einfaldlega ekki gengið nógu vel og
því verið kominn tími á áherslubreyt-
inga. Sömu stjórnendur lýstu því líka
yfir að nú ætti að reyna að höfða til
eldri hlustenda en áður og þannig
reyna að lokka að fleiri auglýsendur.
Víkverji hefur svo sem litla reynslu
af útvarpsrekstri en á samt afar bágt
með að skilja þessa hugmyndafræði
útvarpsmálasénía Norðurljósa, sem
virðist vera að hafa stöðvar sínar sem
allra keimlíkastar. Fyrir rekur Norð-
urljós t.a.m. Bylgjuna, Sögu og Létt
sem allar höfða til eldri hlustenda og
nú virðist eiga að færa RadíóX nær
þeim. Skilar það fleiri auglýsendum?
Rokkunnandinn Víkverji hefur þung-
ar áhyggjur af því að eina radíóið sem
rokkar muni með þessum breyting-
um hætta að rokka og fara að skalla-
poppa eins og hinar stöðvarnar. Und-
arlegur smekkur þessara blessaðra
auglýsenda!?!
Um smala
og smalamennsku
LEÓ M. Jónsson ritar
grein um smalamennsku á
Keflavíkurveginum í Mbl.
13. feb síðastliðinn. Ég get
verið hjartanlega sammála
efni greinarinnar að öllu
leyti nema neikvæðri notk-
un hans á smalaheitinu.
Leó veit margt um bíla og
umferð en ekki er að sjá að
hann viti nokkuð um smala
og smalamennsku. Sjálfur
er ég smali til margra ára í
Víknafjöllum við Skjálf-
anda og þar hafa menn að
leiðarljósi að skila fjár-
hópnum heilum heim en
ekki tvístra honum um all-
ar grundir eins og ökuníð-
ingar á Keflavíkurvegi
gera. Notaðu frekar hug-
takið hælbítur ef þú vilt
endilega skreyta greinina
með gömlu og góðu hugtaki
úr þjóðlífinu til forna.
Með smalakveðju.
Sigurður Bjarklind,
071247-2449.
Forritum börnin sjálf
MAÐUR er sífellt að heyra
oftar og oftar um ungt fólk,
sem verður vímuefnum að
bráð. Ég missti fimm af
æskuvinum mínum í
áfengið, það ýtti illilega við
mér. Ég hóf að skoða þessi
mál, til þess að minnsta
kosti, að koma í veg fyrir
að ég missti mín börn í
vímuefni, það er að segja,
ef það ætti fyrir mér að
liggja að eignast börn.
Til þess að gera langa
sögu stutta, þá eignaðist ég
þrjú börn með konu minni.
Þegar heilabrot mín stóðu
sem hæst, þá skaust eins
og leiftur í gegnum hug
minn „lausn“, er ég svo
vann eftir með mín börn,
hóf að kenna þeim þriggja
mánaða gömlum, og byggja
upp þeirra sjálfsmynd. Tvö
af börnum mínum eru há-
menntaðir vísindamenn í
dag, það þriðja er á loka-
stigi í sínu háskólanámi.
Ég vil bara segja þetta:
Farið snemma að kenna
börnum ykkar og hafa
áhrif á þau. Það er betra að
þið (foreldrarnir) forritið
börnin ykkar sjálf, heldur
en að láta götuna forrita
þau.
G.G.E.
Íslensk erfðagreining
ÍSLENSK erfðagreining
tilkynnir á 1–2 mánaða
fresti uppgötvanir í erfða-
greiningarmálunum en það
skrýtna er að á sama tíma
lækka bréfin í DeCode á
Nasdac-markaðnum í sama
hlutfalli og í sjálfbirgings-
hætti Kára Stefánssonar.
Er Ameríkaninn að gera
grín að okkur?
Guðmundur
Guðmundsson,
Hraunbæ 178.
Frábær þjónusta
SENDUM flugfreyjum á
flugi 653 til Minneapolis 11.
janúar sl. og afgreiðslu-
dömum í skartgripaverslun
Leonardo í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar kærar þakkir
fyrir frábæra þjónustu.
Ferðalangar.
Tapað/fundið
Úr týndist
í miðbænum
ÉG var svo óheppinn að
týna úrinu mínu síðasta
laugardagskvöld (9. febr-
úar). Þetta gerðist í miðbæ
Reykjavíkur, líklega ein-
hvers staðar á Laugaveg-
inum eða í Austurstrætinu,
eða á þeim slóðum. Úrið er
stálgrátt og af tegundinni
Delma. Fundvísir hafi sam-
band við Óskar í síma 698-
5752. Fundarlaun í boði.
Lyklakippa týndist
LYKLAKIPPA úr svörtu
leðri með 2 lyklum á týnd-
ist í fyrra-
sumar.
Skilvís
finnandi hafi
samband við
Ingibjörgu í
síma 588 1647.
Fundarlaun.
Hálsskinn týndist
GLJÁSVART hálsskinn
týndist fyrir ca. mánuði.
Þetta skinn hefur mikið til-
finningalegt gildi fyrir eig-
anda. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 552-3211.
Bíllyklar týndust
í Heiðmörk
BÍLLYKLAR á tusku-
dýrslyklakippu, húslyklar á
keðju og hundataumur
týndust á bílastæðinu eða á
gönguleiðinni við Búr-
fellsgjá í Heiðmörk, Hafn-
arfjarðarmegin. Rósa
saknar taumsins og eigand-
inn lyklanna. Finnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 898 1975. Fundar-
laun. Bland í poka og rós
frá Rósu.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Rich-
mond og Park Dornum
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Málmey fer á veiðar í
dag.
Mannamót
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á þriðju-
og fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Jóga á föstudögum kl 11.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mosfellsbæ á Hlaðhömr-
um fimmtudaga kl. 17–
19. Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnudög-
um. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 586 8014, kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag Pútti í Bæj-
arútgerð kl 10–11:30.
Leikhúsferð verður farin
fimmtudag 21. feb. í
Borgarleikhúsið að sjá
„Boðorðin níu“. Upplýs-
ingar í Hraunseli s. 555-
0142. Rúta frá Hraunseli
kl. 19.15. Félagsmið-
stöðin Hraunsel verður
lokuð vegna flutnings í
Flatahrauni 3 í næstu
viku 18.–22. feb. Vígsla
nýrrar félagsmiðstöðvar
verður laugardagin 23.
feb. kl 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Sunnud: Fé-
lagsvist kl. 13.30. Dans-
leikur kl. 20 Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánud: Brids kl. 13.30.
Danskennsla framhald
kl. 19. og byrjendur kl.
20.30. Þriðjud: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30. Leikfélagið Snúð-
ur og Snælda sýnir í Ás-
garði í Glæsibæ, Söng og
gamanleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í búri“,
dramatískan gamanleik.
Sýningar: Miðviku- og
föstudaga kl. 14 og
sunnud. kl. 16. Miðapant-
anir í s: 588-2111, 568-
8092 og 551-2203. Mið-
vikudagur: Göngu- hrólf-
ar fara í göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Árshá-
tíð FEB verður haldin 1.
mars í Versölum Hall-
veigarstíg 1, húsið opnað
kl. 19, borðhald hefst kl.
19.30. Setning: Ólafur
Ólafsson, form. FEB í
Reykjavík. Veislustjóri:
Gunnar Þorláksson
Skemmtiatriði:Almenn-
ur söngur við undirleik
Sigurbjargar Hólm-
grímsdóttur. Hátíðar-
ræða, Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra.
Gamanvísur, Brynhildur
Olgeirsdóttir og Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Happdrætti –
Sparidagar á Hótel Örk,
– innanlandsferðir á veg-
um FEB og gjafakort frá
ferðaskrifstofunni Úrval
Útsýn. Söngfélag Félags
eldri borgara syngur
undir stjórn Kristínar
Pjetursdóttur. Jóhannes
Kristjánsson með eft-
irhermur og gamanmál.
Hljómsveit Hjördísar
Geirs leikur fyrir dansi
til kl. 02. Miðapantanir á
skrifstofu FEB. Sími:
588-2111. Aðalfundur
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni,
verður haldinn í Ásgarði
Glæsibæ sunnud. 24. feb.
kl. 13.30
Norðurbrún 1. Fé-
lagsstarfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Þorrablótið
verður 22. febrúar, til-
kynna þarf þátttöku í
síma 568-3132.
Gerðuberg, félagsstarf,
Kl. 13–16 er opin mynd-
listasýning Braga Þórs
Guðjónssonar, veitingar í
veitingabúð. Fimmtu-
daginn 28. feb. leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið „Boðorðin níu“,
skráning hafin. Uppl. um
starfsemina á staðnum
og í s. 575- 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9 Krummakaffi, kl. 10
Hana-nú ganga.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Þriðju-
daginn 19. feb. leikfimi
kl. 11.15, kl. 12 verður
heimsókn í Hjallakirkju,
þar verður matur, helgi-
stund, bókmenntastund
og kaffi.
Átakshópur öryrkja
Verður með fund laug-
ardaginn 16. febrúar kl.
13 í Sal Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA Síðumúla 3–5
og í Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 að
Sólvallagötu 12. Stuðst
er við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást hjá
kirkjuverði Neskirkju, í
Úlfarsfelli, Hagamel 67
og í Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn s. 555 0104 og hjá
Ernu s. 565 0152.
Minningarkort Minning-
arkort ABC hjálp-
arstarfs eru afgreidd á
skrifstofu ABC hjálp-
arstarfs í Sóltúni 3,
Reykjavík í síma 561-
6117. Minningargjafir
greiðast með gíróseðli
eða greiðslukorti.
Allur ágóði fer til hjálpar
nauðstöddum börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Laugavegi
7 eða í síma 561-0545.
Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hringsins
í síma 551-4080. Kortin
fást í flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar og vina-
félag. Minningarkort til
stuðnings orlofsvikna
fyrir krabbameinssjúka
og langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyrir
hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu gíró-
seðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru til
sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551-3509.
Minningarspjöld
Kristniboðssambandsins
frást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla) sími
588-8899
Líknasjóður Dómkirkj-
unnar, minningaspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði
fást í Bókabúð Böðvars,
Pennanum í Hafnarfirði
og Blómabúðinni
Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjushúsinu
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju Vesturbrún 30
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588 8899
milli kl. 10 og 17 alla
virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er laugardagur 16. febrúar,
47. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
En hann sagði við þá: „Þér eruð þeir,
sem réttlætið sjálfa yður í augum
manna, en Guð þekkir hjörtu yðar.
Því það, sem hátt er að dómi manna,
er viðurstyggð í augum Guðs.“
(Lúk. 16, 15.)
LÁRÉTT:
1 fara sér hægt, 4 hrós-
um, 7 geigur, 8 setur, 9
duft, 11 vesælt, 13 púkar,
14 dapurt, 15 blýkúla, 17
sýll, 20 svifdýr, 22 gagns-
lítil, 23 varkár, 24 þula,
25 korn.
LÓÐRÉTT:
1 rándýr, 2 afkvæmum, 3
leðju, 4 ávöl hæð, 5 mynd-
tákn, 6 veggir, 10 margt,
12 áhald, 13 matur, 15
karldýr, 16 horfum, 18
dáin, 19 mannsnafn, 20
spil, 21 smáalda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 munntóbak, 8 linan, 9 eldar, 10 nei, 11 tyrfa, 13
tuðra, 15 klára, 18 ágang, 21 lóm, 22 stund, 23 ærðir, 24
mannvitið.
Lóðrétt: 2 unnur, 3 nunna, 4 óbeit, 5 andúð, 6 flot, 7
þráa, 12 far, 14 urg, 15 koss, 16 ámuna, 17 aldin, 18
ámæli, 19 auðri, 20 garg.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
UMFERÐARLJÓSIN á
gatnamótum Breiðholts-
brautar, Skógarsels og
Stekkjarbakka biluðu sl.
miðvikudag. Um þessi
gatnamót er talin fara
mest umferð í bænum. Ég
bý í blokk við Árskóga og
sé beint niður á gatnamót-
in og gat því vel fylgst með
lögreglunni sem tók þar
við umferðarstjórn. Þar
skiptast 12 akreinar og
þarf kláran koll að taka
þar við stjórn. Lögreglan
stóð sig þar afburðavel og
ber að þakka henni frá-
bærlega vel unnið starf.
Ingvar Jóhannsson,
Árskógum 8.
Þakka ber það sem vel er gert