Morgunblaðið - 16.02.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Uppfærslutilboð – 30% afsláttur!!
www.atv.is – Skeifunni 17
Afritunarhugbúnaður
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra lýsti höfuð-
stöðvar Íslenskrar erfðagreiningar formlega
teknar í notkun við hátíðlega athöfn í gær. Auk
Davíðs flutti Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra ávarp og árnuðu ráðherrarnir starfs-
fólki ÍE allra heilla á þessum tímamótum. Kári
Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði sér þakklæti til
arkitekta, byggingarstjóra, verktaka og starfs-
manna efst í huga. Sagði hann að þótt húsi væri
fagnað væri það starfsfólkið sem skipti öllu máli
í fyrirtækinu.
Hátt á annað þúsund gesta og starfsmanna var
viðstatt opnunarhátíðina, m.a. forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson. Hjörleifur Stefánsson,
hönnunar- og byggingarstjóri hússins, sagði
tíma- og kostnaðaráætlanir verksins hafa staðist
nema hvað byggingartíminn hefði lengst úr tíu
mánuðum í tólf þar sem umfang verkefnisins
hefði aukist á verktímanum. Kostnaður er kring-
um þrír milljarðar króna. Hjörleifur vakti at-
hygli gesta á tjörn við inngang hússins. Væri hún
umhverfislistaverk eftir Ólaf Elíasson, mýri með
votlendisgróðri sem yrði breytilegur eftir árstíð-
um.
Að loknu ávarpi Hjörleifs afhenti Pétur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Eyktar hf., sem
var aðalverktaki framkvæmdanna, Kára Stef-
ánssyni húsið.
Davíð Oddsson sagði húsið glæsilegt. Hann
kvað Íslenska erfðagreiningu hafa komið inn í ís-
lenskt atvinnulíf eins og þruma úr heiðskíru lofti,
góðkynja afbrigði af eldingu sem lostið hefði nið-
ur í samfélagið, eina merkustu tilraun sem gerð
hefði verið í íslensku athafnalífi fyrr og síðar.
Kári Stefánsson við opnun aðalstöðva Íslenskrar erfðagreiningar
Morgunblaðið/Þorkell
Vel á annað þúsund manns var viðstatt athöfn hjá Íslenskri erfðagreiningu þegar nýbygging fyrirtækisins var tekin í notkun í gær.
Starfsfólkið er það sem skiptir öllu máli
Kostnaður við/28
KRISTLEIFUR Kristjánsson, sér-
fræðingur í barnalækningum, sagði
fyrir dómi í gær að útilokað væri að
níu mánaða drengur, sem lést af
völdum svonefnds „shaken-baby
syndrome“, hefði hlotið áverkana
áður en hann kom í daggæslu að
morgni 2. maí 2001. Þaðan var hon-
um síðdegis ekið meðvitundarlaus-
um á Landspítala – háskólasjúkra-
hús í Fossvogi þar sem hann lést
tveimur dögum síðar.
Maður, sem ásamt konu sinni
gætti drengsins umræddan dag,
hefur verið ákærður fyrir að hafa af
gáleysi valdið dauða drengsins. Er
hann sakaður um að hafa hrist
drenginn harkalega eða á annan
hátt valdið þeim áverkum sem
drógu hann til dauða.
Hann og kona hans eru einnig
ákærð fyrir að hafa haft alltof mörg
börn í gæslu fyrrihluta ársins 2001.
Aðalmeðferð málsins hófst í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær og neit-
aði maðurinn þá að hafa valdið
dauða drengsins eða skaðað hann á
nokkurn hátt. Sagðist hann ekki
vita hvað hefði valdið áverkunum.
21 barn var í gæslu
umræddan dag
Fram kom að 21 barn var í gæslu
hjá fólkinu umræddan dag, þar af
19 sem voru mestallan daginn.
Maðurinn var ekki á heimilinu í
rúmlega 1½ klukkustund fyrir há-
degi en var síðan einn með börnin í
rúma klukkustund eftir hádegi á
meðan kona hans fór í mæðraskoð-
un. Lagði hann drenginn til svefns í
barnavagni en þegar hann ætlaði að
vekja hann, um 2½ klukkustund
síðar, vaknaði drengurinn ekki.
Stuttu síðar fékk hann krampaköst
og var þá hringt í Neyðarlínu eftir
aðstoð.
Bæði maðurinn og konan sögðu
fyrir dómi í gær að daggæslu-
fulltrúi Kópavogsbæjar hefði vitað
af því að þau höfðu fleiri börn í
gæslu en þau höfðu leyfi fyrir, en
fulltrúanum hefði þó ekki verið
kunnugt um heildarfjöldann. Þessu
neitaði daggæslufulltrúinn fyrir
dómi í gær. Verjandi konunnar
lagði þá fram gögn sem hann telur
að sýni fram á að Kópavogsbær hafi
vitað að börnin voru of mörg. Mað-
urinn og konan sögðu fyrir dómi að
þau hefðu talið sig fá óformleg
skilaboð frá bæjaryfirvöldum um að
ekki yrði amast við því þótt þau
hefðu of mörg börn í gæslu.
Drengurinn hlaut
áverkana í gæslunni
Segja/34
Sérfræðingur í barnalækningum bar vitni
vegna andláts níu mánaða drengs
TVÆR grímuklæddar ung-
lingsstúlkur frömdu vopnað
rán í Hlíðakjöri við Eskihlíð í
Reykjavík um miðjan dag í
gær og komust undan með
peninga og símakort, en þetta
er fjórða vopnaða ránið í
versluninni síðan í desember
1999.
Kristinn Einarsson, eigandi
Hlíðakjörs, tók eftir stúlkun-
um fyrir utan verslunina og
segir að þær hafi greinilega
beðið þar eftir því að hann og
kona hans færu í burtu, en
þær hafi framið ránið skömmu
síðar.
Ógnaði afgreiðslustúlk-
unni með stórum kjöthníf
Hann segir að önnur stúlk-
an hafi haldið á stórum kjöt-
hníf, ógnað afgreiðslustúlkunni
og sagt henni að láta pen-
ingana úr sjóðsvélinni í bak-
poka, sem hún hafi verið með,
en áður en þær hafi hlaupið út
aftur hafi stúlkan hrifsað öll
símakort sem hafi verið til
sölu í versluninni og voru í
plastvasa á vegg. Vegfarandi
hafi séð þær hlaupa að bíl sem
var neðar í götunni og öku-
maðurinn hafi síðan ekið með
þær í burtu, en ránið sjálft
hafi aðeins tekið örfáar sek-
úndur.
Að sögn Kristins er þetta
fjórða vopnaða ránið í versl-
uninni síðan í desember 1999
og hefur ekkert þeirra verið
upplýst, en eftirlitsmyndavél
er í versluninni.
Vopnað
rán ung-
lings-
stúlkna
Fjórða ránið á
rúmum tveim-
ur árum
ATVINNULEYSI í janúarmánuði
síðastliðnum var 2,4%, en var 1,9% í
desember. Atvinnuleysi meðal karla
var 2,1% og meðal kvenna 2,8%.
Þetta kemur fram í yfirliti Vinnu-
málastofnunar yfir atvinnuástandið í
janúarmánuði.
Atvinnuleysisdagar voru skráðir
alls 76.039 á landinu öllu í síðasta
mánuði, sem jafngildir því að 3.306
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum. Stofn-
unin spáir auknu atvinnuleysi í febr-
úar, eða 2,4% til 2,7%.
Atvinnulausum hefur fjölgað í
heild um 22,1% að meðaltali frá des-
embermánuði, en um 52% frá jan-
úarmánuði 2001. Undanfarin tíu ár
hefur atvinnuleysið aukist um 11,8%
að meðaltali frá desember til janúar.
Atvinnuleysi í
janúar 2,4%