Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 32
NEYTENDUR 32 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ HERDÍS Storgaard fram- kvæmdastjóri Árvekni, verk- efnastjórnar um slysavarnir barna og unglinga, segir háa barnastóla mun valtari en fólk heldur og vill hvetja uppalendur til þess að hafa varann á, þótt stóll barnsins sé gerður sam- kvæmt ítrustu öryggisstöðlum. Herdís kveðst hafa fengið ábend- ingu fyrir fáeinum dögum frá móður 10 mánaða barns sem sat í barnastól og tókst að spyrna sér frá borði svo það datt aftur fyrir sig í stólnum. „Umræddu barni varð sem betur fer ekki meint af en fyrir hefur komið að ung börn hafi höfuðkúpubrotnað við það að falla úr háum barna- stól. Við fáum fjölda ábendinga á hverju ári vegna slysa í barna- stólum,“ segir Herdís. Um var að ræða barnastól sem framleiddur er samkvæmt ítr- ustu öryggisreglum og segir Herdís marga foreldra ekki átta sig á því að það sé ekki endilega trygging fyrir því að slys geti ekki orðið. „Það geta allir háir barnastólar oltið um koll og þarna virðist því vera nokkur misskilningur á ferðinni. Ég ráð- legg fólki að setja börnin strax í beisli um leið og þau eru farin að geta setið í stól, sama um hvaða stól er að ræða. Það geta allir stólar oltið um koll og ekki þýðir að taka beislið upp seinna þegar börnin eru farin að geta komist upp úr stólum sínum því þá vilja þau ekki láta hefta frelsi sitt,“ segir hún. Einnig mælir Herdís með því að fólk kaupi nælonborða og plastspennur í byggingar- vöruverslunum sem hægt er að festa undir borðplötu og undir sæti barnsins svo það geti ekki spyrnt stólnum frá borði og dott- ið aftur fyrir sig. Þá brýnir hún fyrir fólki að gæta varúðar við notkun stóla sem festir eru við borðplötu með gúmmítöppum því hætta sé á að borðið sporðreisist þegar barnið er farið að þyngjast. „Þá dettur barnið ekki bara aftur fyrir sig heldur getur fengið borðplötuna í magann líka í ofanálag,“ segir Herdís. Heimasíða fyrir foreldra í bígerð hjá Árvekni Árvekni er til húsa hjá Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur og seg- ir Herdís í bígerð að setja upp sérstaka heimasíðu þar sem for- eldrar og uppalendur geti meðal annars nálgast upplýsingar um slys á börnum og unglingum. Á síðunni verða upplýsingar fyrir foreldra um öll slys, flokkaðar eftir aldri og þroska barns og settar upp á aðgengilegan hátt svo foreldrar séu fljótir að finna það sem þeir leita að. Árvekni er sem stendur með nokkrar upplýsingar um slysa- varnir, svo sem gátlista fyrir heimilið, á heimasíðu Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur, hr.is, en til stendur að heimasíð- an nýja verði mjög ítarleg. Allir barnastólar geta mögu- lega oltið um koll, segir Herdís Storgaard hjá Árvekni. Barnastólar valt- ari en fólk heldur HITASTIG hakkborgara og kjöt- fars í kæli í verslunum Bónuss og Nettó var yfir leyfilegum mörkum, samkvæmt skyndikönnun Neyt- endasamtakanna sem gerð var 5. febrúar síðastliðinn. Til þess að geymsluþol á viðkvæmri kælivöru standist verða kælar að viðhalda hitastigi á bilinu 0–4°C, samkvæmt reglugerð, segja Neytendasamtökin ennfremur. Mælt var hitastig á hakkborgurum, kjötfarsi og fiski- bollum í kælum þriggja verslana, það er verslun Bónuss við Holta- garða, Nettó í Mjódd og Krónunni í Skeifunni og mældist hitastig á hakkborgurum 7,2°C í Bónus og Nettó. Fiskibollur voru yfir fyrr- greindum mörkum í Krónunni og mældist hitastig í þeim 7,6°C, sam- kvæmt könnun Neytendasamtak- anna. Einnig kemur fram að kjötfars í Nettó hafi verið yfir mörkum, eða 7,8°C og segja Neytendasamtökin að allar vörur sem mældar voru í Nettó hafi verið yfir fyrrgreindum 0–4°C mörkum. Sjúkdómsvaldandi örverur geta fjölgað sér yfir 7°C Greint var frá samskonar könnun Neytendasamtakanna í Morgun- blaðinu í lok síðasta mánaðar og haft eftir Rögnvaldi Ingólfssyni, deildar- stjóra matvælasviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, að al- mennt séð væru gerðar miklar kröf- ur um hitastig kælivara í verslunum hér, miðað við önnur lönd. Þannig leyfðu Svíar hitastig allt upp að 8°C. Rögnvaldur sagði ennfremur að ekki væri hætta á að sjúkdómsvald- andi örverur fjölguðu sér í matvöru fyrr en hitastigið færi upp fyrir 7°C. Einnig var haft eftir Óla Þór Hilmarssyni kötiðnaðarmanni hjá Matvælarannsóknum í Keldnaholti við sama tækifæri að það gæti fljótt haft áhrif á gæði kælivöru ef hún væri geymd um nokkurn tíma í meiri hita en 4°C. Æskilegast væri að hitastigið væri sem næst núll gráðum, einkum á ópökkuðum vörum. Neytendasamtökin segja á heimasíðu sinni að allir kælar í fyrr- greindum verslunum hafi sýnt að hitastig væri í lagi og að því hafi komið á óvart að hitastig í vörunni hafi verið talsvert hærra. Til þess að staðfesta að mælingar hafi farið fram á réttan hátt aðstoðaði sér- fræðingur frá Matvælarannsóknum Keldnaholti, Matra, starfsmenn Neytendasamtakanna. Þá segir loks að samtökunum sé kunnugt um að unnið sé að úrbótum í verslununum sem hér um ræðir. Kjötvörur yfir hitamörkum í verslunum LISTIR Café Presto, Hlíðarsmára 15 Maja Loebell opnar sýningu á vatns- litamyndum kl. 15. Maja hefur stundað vatnslitamálun frá árinu 1993 en þetta er hennar fyrsta sýn- ing. Sýningin er opin frá kl. 10–23, virka daga, kl. 12–18 um helgar og henni lýkur 22. mars. Café Rue Royale Smáralind Rósa Matthíasdóttir sýnir sjö verk úr gleri og mósaík. Rósa hefur haldið þrjár einkasýningar. Listhúsið, Laugardal Samsýning þriggja listamanna stendur yfir í Veislugallery og Listacafé: Elínborg Kjartansdóttir sýnir glerverk en hún hefur aðallega unnið að málm- list frá árinu 1989. Sergio Vergara sýnir myndir sem hann hefur málað af draumaverum sínum og Blær sýn- ir verk sem máluð eru í þremur lit- um, svörtu, hvítu og rauðu. Sýningarnar standa til 28. febrúar. Listhúsið er opið alla daga, nema sunnudaga kl. 9–18.30. Hveragerðiskirkja Sameiginlegir tónleikar Skagfirsku söngsveit- arinnar og Söngsveitar Hveragerðis verða kl.17. Stjórnandi Skagfirsku söngsveitarinnar er Björgvin Þ. Valdimarsson, undirleikari er Sig- urður Marteinsson. Stjórnandi Söngsveitar Hveragerðis er Mar- grét Stefánsdóttir og undirleikari er Ester Ólafsdóttir. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Í SÍÐASTLIÐINNI viku fluttu þau Jóhanna Jónas leikkona, Margrét Eir söngkona og Guðmundur Péturs- son gítarleikari söng- og leikdagskrá í Kaffileikhúsinu helgaða menningu bandarískra blökkumanna. Á sýning- unni, sem ber yfirskriftina „A Toast to Harlem – Svört melódía“, er tvinn- að saman blús og gospeltónlist og leiknu efni sem sótt er til skáldskapar Langston Hughes og Mayu Angelou. Sýningin hlaut mjög góð viðbrögð og komust færri að en vildu. Því hafa þær Jóhanna og Margrét Eir ákveðið að bæta við sýningum í kvöld kl. 20 og á morgun, sunnudag kl. 21. Jóhanna Jónas segir að dagskráin sé nokkurs konar óður til hinnar svörtu amerísku menningar þar sem lífsgleðin og treginn mynda svo ein- stakan samhljóm. „Ég kynntist þess- ari menningu þegar ég bjó í Banda- ríkjunum og var m.a. við nám í Boston. Ég kynntist síðar verkum Langston Hughes og Mayu Angelou og fékk í kjölfarið þá hugmynd að spinna út frá þeim einhvers konar uppákomu ásamt Margréti Eir. Hún er náttúrulega frábær söngkona, og hefur sjálf orðið fyrir miklum áhrif- um af blús og gospeltónlist frá því að hún var við nám vestan hafs. Við fengum síðan Guðmundur Pétursson inn í þetta með okkur, sem óhætt er að telja einn besta blúsgítarleikara landsins, og fór af stað mjög góð sam- vinna þar sem við fléttuðum saman leikupplestri og tónlist í nokkurs kon- ar samfelldu flæði,“ segir Jóhanna en tónlistin sem spunnin er saman við leikinn er m.a. sótt til Muddy Waters, Big Mama Thornton og Ettu James. Jóhanna segir að blöndun list- formanna eigi einkar vel við í þessu viðfangsefni. „Sögur og ljóð Langst- on Hughes og Mayu Angelou birta mjög vel þann mikla baráttuanda, til- finningahita og músík sem ríkir í þeirra kúltúr. Í tungutakinu er hrein- lega ákveðin hrynjandi sem er mjög nálæg tónlistinni. Við höfum lagt okkur fram við að gera dagskrána lif- andi og dálítið ólíka því sem verið er að bjóða upp á um þessar mundir, en fyrst og fremst höfum við reynt að ná fram réttri og sannri tilfinningu í okkar túlkun á viðfangsefninu – reynt að teyja ræturnar eins langt og hægt er, eins og Margrét komst ein- hvern tíma að orði. Miðað við við- brögð áhorfenda virðist það hafa tek- ist nokkuð vel, en okkur fannst efnið hafa náð til fólks og snert það djúpt. Við vonumst til að gefa fleirum kost á að sjá dagskrána með því að hafa fleiri sýningar, og kannski endurtaka þessa óvenjulegu og sérstöku upplif- un,“ segir Jóhanna. Morgunblaðið/Sverrir Margrét Eir og Jóhanna Jónas flytja Svarta melódíu ásamt Guðmundi Péturssyni í Kaffileikhúsinu. Svört melódía heillar „MJÖG skemmtileg sýning“ er yfir- skrift sýningar sem opnuð verður í galleríi@hlemmur.is, Þverholti 5, í dag kl. 17. Sýnendur eru Libia Pér- ez de Siles de Castro og Ólafur Árni Ólafsson. Í kynningu segir m.a.: „Þetta er tvískipt innsetning fjarlægra hug- mynda og nálægrar upplifunar og á meðan leirinn þornar og springur baðar Davíð sig í speglagöngum samtímans.“ Sýningin er opin frá miðvikudegi til sunnudags, kl. 14-18, (fimmtu- daga og föstudaga til 20) og stend- ur til 2. mars. Tvískipt innsetn- ing á Hlemmi Verk á sýningunni í galleríi- @hlemmur.is. SVEINSSAFN stendur nú fyrir farandsýningu á verkum Sveins Björnssonar, og fer hún á milli hjúkrunardeilda, félagsmiðstöðva aldraðra og spítala. Sýningin verð- ur opnuð í Félagsmiðstöð eldri borgara í Flatahrauni 3 í Hafn- arfirði á morgun en þangað fer hún frá K-byggingu Landspítalans við Hringbraut. Á sýningunni eru 40 myndir sem ná yfir 42 ára tímabil af listsköp- unarferli Sveins Björnssonar. Sveinssafn hefur opnað vefsíðu á slóðinni www.sveinssafn.is. Farandsýning Sveinssafns Listasafn ASÍ Sýningunni „Að búa og rannsaka“ lýkur á sunnudag. Þetta er samsýn- ing þeirra Ingu Þóreyjar Jóhanns- dóttur myndlistarkonu, Rögnu Sig- urðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundar og Sigríðar Ólafsdóttur, myndlistarkonu. Listasafn ASÍ er opið frá kl. 14–18. Sýningu lýkur Ástarljóð og stríðssögur er eftir Tryggva V. Líndal. Í kynningu segir m.a.: „Í þessari sjöttu ljóðabók sinni gengur Tryggvi lengra en áður í að yrkja persónu- leg ástarljóð ann- ars vegar, og hins vegar í að fjalla um stríð og ófrið- artíma í söguljóð- um og smásög- um.“ Ástarljóðin bera titla s.s. Elskan svarar skáldinu, Ástarmálaráðherra dregur sig í hlé og Erinna til Bákisar. Stríðsljóðin bera titla s.s. Hitlers senna og heimsstyrjalda, Harð- stjóraljóð, Kirsuberjahaust og An- astasía. Útgefandi er Valtýr. Bókin er 57 bls., kilja, unnin í Gutenberg. Verð: 1.000 kr. Ljóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.